Morgunblaðið - 21.05.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
15
Áætlunarflug milli Egilsstaða og Færeyja
NU ER í fyrsta sinn hægt að
fljúga til útlanda frá öðrum stað
en Keflavík og Reykjavík, því að
með tilkomu sumaráætlunar
innanlandsflugs hófst áætlunar-
flug milli Egilsstaða og Færeyja.
Frá Egilsstöðum til Færeyja er
flogið á sunnudögum og frá Fær-
eyjum til Egilsstaða á fimmtudög-
um. Þessar flugferðir eru auk
þess í sambandi við áætlunarflug
til og frá Hornafirði.
Á meðfylgjandi mynd er áhöfn
Friendship-skrúfuþotunnar sem
fór fyrstu áætlunarflugferðina
Egilsstaðir—Færeyjar. Talin frá
vinstri: Kjartan Norðdahl, flug-
maður, Geir Garðarsson, flug-
stjóri. Flugfreyjurnar Vigdís
Pálsdóttir og Guðrún Helgadóttir.
Manndrápið í Þverholti:
Ákærði var ekki
talinn sakhæfur
Fjármálaráðherra sagði, að eitt
meginverkefni þeirrar heildar-
endurskoðunar skattakerfisins,
sem ríkisstjórnin stefndi að, væri
staðgreiðsla skatta. Hann hefði
falið ríkisskattstjóra að gera
greinargerð og tillögur um málið.
Þessi skýrsla hefði nú verið lögð
f’ram. A næstunni yrði að taka
ákvörðun i máli þessu með einum
eða öðrum hætti. Fyrr en niður-
staða væri fengin væri ekki unnt
að móta endanlega þá nýju skatta-
löggjöf, sem unnið væri að.
Ráðherrann sagði ennfremur,
stungum í brjóst og kvið i þvi
skyni að svipta hann lifi.
Dómurinn taldi sannað, að
ákærði hefði gerzt sekur um
þessa háttsemi, en þar sem
ákærði var ekki talinn sakhæfur,
var hann sýknaður af kröfu
ákæruvaldsins um refsingu, en
hins vegar 'dæmdur til þess að
sæta öruggri gæzlu á viðeigandi
stofnun. Þá var ríkissjóði gert að
greiða allan sakarkostnað, þar á
meðal réttargæzlu- og
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
ákærða, Arnar Clausen hæsta-
réttarlögmanns, kr. 65.000,-.
Af hálfu ríkissaksóknara flutti
Hallvarður Einvarðsson vara-
ríkissaksóknari málið.
Dóminn kváðu upp sakadomar-
arnir Jón A. Ólafsson, sem dóms-
formaður, Armann Kristinsson og
Sverrir Einarsson, sem meðdóm-
endur.
Póstmenn:
VÍTAVERÐ
VINNUBRÖGÐ
SEM ÖGRA
TIL ÁTAKA
AÐALFUNDUR Póstmannafé-
Iags Islands haldinn 6. mai 1975
samþykkti að víta þau vinnu-
brögð sem viðhöfð voru við setn-
ingu reglugerðar frá 20.12 1974
um skipulagsmál hjá pósti- og
síma og telur fundurinn að með
slikum vinnubrögðum sé verið að
ögra til átaka.
Þó illa hafi til tekist í upphafi
af hálfu valdhafa um þessi mál,
þá skorar P.F.Í. á samgönguráð-
herra að framhaldsákvarðanir
verði ekki teknar nema I fullu
samráði við þá aðila sem við eiga
að búa og framkvæma þær. Þar á
meðal er P.F.I. að þeim hluta sem
að póstifiálum snýr.
1 síðustu viku var kveðinn upp í
Sakadómi Reykjavíkur dómur í
máii Kristjáns Kristjánssonar
verkamanns, sem varð Friðmari
Sædal Markússyni að bana í Þver-
holti 18B, Reykjavik 8. desember
s.l. Var ákærði ekki talinn sak-
hæfur og því sýknaður af kröfu
ákæruvaldsins um refsingu en
hins vegar dæmdur til að sæta
öruggri gæzlu á viðeigandi stofn-
un. Málið fer nú til Hæstaréttar.
1 fréttatilkynningu frá Saka-
dómi segir:
I dag var í sakadómi Reykjavík-
ur kveðinn upp dómur í máli, sem
ríkissaksóknari höfðaði með
ákæru dagsettri 7. april sl.l á
hendur Kristjáni Kristjánssyni
verkamanni, Þverholti 18B i
Reykjavík, fyrir manndráp og
manndrápstilraun aðfaranótt
sunnudagsins 8. desember s.l. eða
árla morguns þann dag að Þver-
holti 18B í Reykjavík, með því að
svipta Friðmar Sædal Markússon
lifi á þann hátt að stinga hann
með hníf margar stungur i brjóst
og kvið og ráðast að öðrum manni
og leggja til hans mörgum hnífs-
Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra:
Vestmannaeyjar:
Hótelið missir
vínveitingaleyfi
Á FUNDI bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja s.l. fimmtudag var
samþykkt að Hótel Vestmanna-
eyjar fengi ekki framlengingu á
vínveitingaleyfi en leyfi hafði
verið veitt fyrir bar á hótelinu í
eitt ár. Mun bar hótelsins því
verða lagður niður á næstunni,
því vínveitingaleyfið er háð sam-
þykki bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja. Þá samþykkti bæjarstjórn
einnig bann við því að börn innan
14 ára ^ldurs yrðu afgreidd með
tóbaksvörur.
AUGLYSINOASIMINN ER:
22480
Álit um staðgreiðslu-
kerfi og virðisaukaskatt
MATTHlAS A. Mathiesen fjár-
málaráðherra lagði fram á AI-
þingi greinargerðir um stað-
greiðslukerfi skatta og endur-
skoðun söluskatts f átt til skatts
með virðisaukasniði, einkum til
að tryggja skattastöðu fyrirtækja
Fjármálaráðherra sagði, að hér
væri um að ræða lið f þeirri
heildarendurskoðun skattakerfis-
ins, sem unnið væri að. Ráðherr-
ann sagði, að hann vonaðist til, að
unnt yrði að taka þessi mál til
ákvörðunar strax og þing kæmi
saman næsta haust.
að annað veigamikið verkefni við
endurskoðun skattkerfisins væri
breyting á söluskatti i átt til
skatts með virðisaukasniði, eink-
um til að tryggja skattastöðu
fyrirtækja. Sérstökum starfshópi
hefði verið falið að vinna að þessu
verkefni og hefði hann nú skilað
áliti. I greinargerðinni væru ekki
gerðar ákveðnar tillögur um upp-
töku virðisaukaskatts eða breyt-
ingar á gildandi söluskattskerfi.
Markmið greinargerðarinnar
væri fyrst og fremst að skýra og
gera grein fyrir ýmsum þeim
atriðum, sem lita þyrfti á, þegar
tekin verður afstaða til þess,
hvort taka á upp virðisaukaskatt í
stað söluskatts eða hvort gerðar
skuli aðrar grundvallarbreyting-
ar á söluskattinum á næstunni.