Morgunblaðið - 14.08.1982, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR OG LESBÓK
176. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGÚR 14. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ronald Reagan um ástandið í Beirút á blaðamannafundi í gærkvöldi:
„Trúi staðfastlega að
vopnahlé verði haldið"
Wa.shington, 13. á|píst. AP.
„ÉG KR hæfilega hjarlsýnn á að leysa
megi deiluna í Líbanon á friðsamleg-
an máta því ég trúi því staðfastlega,
að í þetta sinn verði vopnahléð hald-
ið,“ sagði Ronald Reagan, Banda-
ríkjaforseti, á blaðamannafundi, sem
hann efndi til í kvöld þar sem hann
kynnti stefnu sína i skattamálum.
Eins og vænta mátti hurfu
skattaumræður í skuggann af
spurningum, sem rigndi yfir forset-
ann úr öllum áttum, varðandi
ástandið í Beirút. Forsetinn var að
því spurður af hverju hann hefði
ekki tekið í taumana fyrr en í gær,
fimmtudag, er hann hafði síma-
samband við Menachem Begin fox-
illur yfir 10 stunda linnulausum
loftárásum ísraela á Beirút. „Ég
mat stöðuna þannig, að hún væri
svo viðkvæm, að minnstu afskipti
af samningaviðræðunum gætu haft
alvarlegar afleiðingar."
Reagan var ennfremur að því
spurður hvort átökin í Líbanon
hefðu breytt afstöðu hans til ísra-
ela. Forsetinn svaraði því til að
hann liti enn svo á að Bandaríkjun-
um bæri skylda til að virða Camp
David-samkomulagið og tryggja
sjálfstæði Israels.
Vopnahléð, sem komið var á í
Beirút í gær, var haldið í dag, og
hafa engar fregnir borist af átök-
um. Hins vegar fer ástandið í vest-
urhluta borgarinnar dagversnandi
þar sem ísraelar hafa ekki leyft
neina birgðaflutninga til vestur-
hluta borgarinnar. Þar hefur fólk
Bretland:
Séð fyrir endann
á neyðarástandinu
l/ondon, 13. áfDÍNt. AP.
í DAG lauk fimm daga verkfa/li
starfsfólks á sjúkrahúsum, þar sem
um 750.000 hjúkrunarfræðingar og
annað starfsfólk lagði niður störf til
að leggja áherslu á launakröfur sínar.
Neyðarástand á hinum 2.500
ríkisreknu sjúkrahúsum hefur ríkt
í allan dag, en ástandið hefur farið
versnandi dag frá degi þessa fimm
daga sem verkfallið hefur staðið.
Það eru tólf verkalýðsfélög
starfsfólks á sjúkrahúsum sem
standa fyrir verkföllunum til að
leggja áherslu á 12 prósent launa-
hækkunarkröfu sína. Þau hafa til-
kynnt að þau muni halda áfram
mótmælum í næstu viku til að
leggja áherslu á kröfur sínar enn
um sinn.
Leiðtogi verkalýðsfélags tækni-
manna í prentiðnaði var í dag sekt-
aður um 350 pund, en hann kom
fyrir rétt vegna þess að hann boð-
aði til 24 klukkustunda samúðar-
verkfalls með hjúkrunarfólki.
Mikla athygli vakti að hann slapp
við fangelsun, en fastlega hafði
verið búist við því í blaðaheiminum
og höfðu önnur verkalýðsfélög
starfsmanna í prentiðnaði boðað að
þau myndu fara í verkfall til að
mótmæla ef dómurinn yrði þannig.
Dómur þessi var kveðinn upp
samkvæmt lögum sem sett voru ár-
ið 1980 þar sem verkalýðsleiðtogar
eru lýstir ábyrgir fyrir tjóni er
hlýst af því að boða til ólöglegra
verkfalla, eins og t.d. verkfalla þar
sem félagar þeirra eru ekki beint
tengdir.
verið án vatns og sjúkrahús án
nauðsynlegra lyfja í meira en tvær
vikur. Að sögn fréttamanns BBC er
ástandið í borginni geigvænlegt.
Philip Habib, sérlegur sendi-
fulltrúi Bandaríkjamanna í Mið-
Austurlöndum, tók í dag upp þráð-
inn að nýju þar sem frá var horfið í
samningaviðræðum um brottflutn-
ing PLO-manna frá Beirút. Það
hefur gert fulltrúum viðræðuaðila
erfitt fyrir, að ógjörningur virðist
vera að kasta tölu á fjölda PLO-
manna í borginni.
A hverju götuhorni eru vopnaðir
menn í hinum ýmsu gervum. Er úti-
lokað að greina PLO-menn frá
vinstrisinnum í borginni. Sumir eru
dulbúnir, aðrir ekki. PLO hefur af-
hent Habib lista þar sem segir að
flytja eigi 7.100 menn úr borginni,
en Israelar krefjast brottflutnings
13.000 manna. Þeir hafa hins vegar
ekki rökstutt tölu sína.
Ekki liggja fyrir endanlegar upp-
lýsingar um hvernig PLO-mennirn-
ir muni skiptast á milli landa þegar
þeir verða fluttir á brott. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
eru líkur taldar á því, að Sýrlend-
ingar taki við helmingi mannanna,
eða um 3.800 alls. Þá er talið líklegt
að Jórdanir taki við 1.600 mönnum,
írakar 1.350 og Egyptar 1.000
mönnum.
Þessi unga palestínska stúlka missti framan af hægri hendi í fyrstu
loftárásum ísraela á Vestur-Beirút. Hún bíður nú sem aðrir í ofvæni eftir
að þessum ósköpum linni.
X
v>r 1
[>«-
Starfsfólk á sjúkrahúsum, sem nú er f
Downingstræti 10, til að leggja áherslu
verkfalli, efndi í dag til mótmælagöngu að bústað Margrétar Thatrher, í
á launakröfur sínar, en ekkert hefur enn miðað í samkomulagsátt.
Fyrstu óeirðirnar í
Póllandi 1 tvo mánuði:
Táragasi var beitt
gegn 10.000 mótmælendum
\ arsjá, 13. á|(úst. AP.
LÖGREGLA beitti í dag táragasi er
óeirðir brutust út í Gdansk í dag er
10.000 stuðningsmenn Samstöðu
söfnuðust saman í miðborginni til að
minnast látinna verkamanna i átök-
um, sem urðu fyrir 12 árum, og
gengu um götur borgarinnar að höf-
uðstöðvum kommúnistaflokksins. Er
þetta i fyrsta sinn í tvo mánuði, sem
óeirðir verða í landinu.
Óeirðirnar í Gdansk hófust
skömmu eftir hádegið þegar hópur
verkamanna úr skipasmíðastöð-
inni í borginni, fæðingarstað Sam-
stöðu, reyndi að leggja blómsveiga
að minnismerki um verkamenn,
sem létu lífið í óeirðum sem urðu
1970. Þegar um 2.000 manns höfðu
safnast saman skarst lögreglan í
leikinn með táragas og kröftugar
vatnsdælur.
Sneri mannfjöldinn þá frá
minnisvarðanum og hélt í átt að
höfuðstöðvum kommúnistaflokks-
ins í borginni. Á leiðinni þangað
bættist stöðugt í hópinn og þegar
dró nær höfuðstöðvunum voru
göngumenn orðnir um 10.000 tals-
ins. Grýttu þeir öllu tiltæku að
lögreglunni. Er leikurinn tók að
harðna flýðu þeir af vettvangi um
þröng stræti miðborgarinnar.
I Varsjá voru mótmælaaðgerð-
irnar mun friðsamlegri. Þar komu
um 1.000 manns saman og sungu
sálma í miðborginni. Hins vegar
var hrópað og baulað á lögreglu-
menn er þeir reyndu að fjarlægja
borða þar sem á var ritað „I minn-
ingu um verkamenn, sem látið
hafa lífið fyrir valdi fólksins". Við
það brást lögreglan hart við og
sprautaði vatni á mannfjöldann,
sem lagst hafði á bæn.
Löggæsla var hert að mun í
stærstu borgum landsins í dag.
Var greinilegt að yfirvöld bjuggu
sig undir frekari ókyrrð í tengsl-
um við tveggja ára afmæli Sam-
stöðu.
Fær ekki að
heimsækja eig-
inmann sinn
Moskvu, 13. AP.
EIGINKONA Sergei Batovrin, upp-
hafsmanns einu óháðu friðarhreyf-
ingarinnar í Sovétríkjunum og nú er á
geðveikrahæli, skýrði frá því í dag að
henni hefði verið meinað að heim-
sækja mann sinn. llún sagði, að Serg-
ei hefði náð að hrópa til hennar skila-
boð út um glugga.
Sagði hann að hann væri enn
beittur andlegum þvingunum. Er
eiginkona Batovrins heimsótti hann
um sl. helgi sagði hann henni að
honum væru gefin þunglyndislyf,
þvert ofan í eigin vilja. Friðarhreyf-
ingin hefur sætt stöðugum ofsókn-
um frá því hún var stofnuð fyrir
tveimur mánuðum.
21 ár frá því
Berlínarmúr-
inn var reistur
Berlín, 13. ágúst- Al*.
BLÓMSVEIGAR voru lagðir að Berl-
ínarmúrnum í V-Berlín til að minnast
þess, að i dag er 21 ár liðið frá því
múrinn, sem skilur vestur- og austur-
hluta borgarinnar að, var reistur.
Minningarathöfnin dró að sér
nokkur hundruð manns og á meðal
þeirra, sem hlýddu á ávörp í tilefni
dagsins, voru nokkrir v-þýskir
stjórnmálamenn. Við tækifærið
lýsti Hans-Dietrich Genscher því
yfir, að nauðsynlegt væri að bæta
samskipti landanna tveggja.
Mun fleiri sóttu sambærilega
samkomu í fyrra á 20 ára afmæli
múrsins. Alls hafa 72 látið lífið svo
vitað sé í tilraunum sínum til að
komast vestur yfir múrinn, sem er
þriggja metra hár.