Lögberg - 16.03.1950, Blaðsíða 1

Lögberg - 16.03.1950, Blaðsíða 1
Kenslustóllinn í íslenzku og ■slenzkum bókmentum Á umliðnu ári hefir stofn- endanefndinni miðað ágætlega áfram í því að safna fé til stofn- unar kenslustóls í íslenzku og ís- lenzkum fræðum við Manitoba- háskólann. Eins og sakir standa, er víst um $154,000 fjárframlög, en af þeirri upphæð eru $132,696,08 þegar í vörzlu háskólans. Þann 16. febrúar 1950, komst framkvæmdarnefndin að þeirri niðurstöðu, að nú væri tímabært að gefa hverjum einstaklingi af íslenzkum stofni kost á að leggja fram sinn skerf án tillits til þess hver upphæðin væri. Þar, sem nefndinni var falið að safna fé í þúsund dollara upphæðum, eða þar yfir, hefði hún framfylgt þeirri ráðstöfun, en breytt þó þannig til, að auðveldara væri að safna fé frá: (1) einstakling- um, (2) félögum, (3) einstakling- um, er taka vildu sig saman um þúsund dollara fjársöfnun til niinningar eða heiðurs við ein- hvern ákveðinn mann, sem þann ig yrði stofnandi, (4) allir aðrir. 1. Einslaklingsstofnendur. Þær undirtektir, er nefndinni hafa borist frá einstaklingum, sem á- huga hafa fyrir þessu máli eru þegar kunnar og nefndinni hið mesta fagnaðarefni; án þessara frábæru undirtekta myndi mál- ið hafa verið dauðadæmt. 2 Félagastofnendur. Öll þau fimm félög, sem frumkvæði áttu að framkvæmdum málsins, hafa þegar gerst stofnendur eða eru í þann veginn að gerast það; auk þeirra eru mörg fleiri samtök, sem munu æskja þess að ljá uiálinu lið og gerast stofnendur. 3. Viðurkenningarslofnendur. í þessum flokki gefst þess kost- ur, að heiðra íslendinga, lífs eða iiðna, sem haft hafa á hendi for- ustu í umhverfi sínu og verið brautryðjendur í hinum ýmsu greinum félagslegrar þróunar, sem og raunar hverja þá, er vin- ir og ættingjar vilja heiðra; margir hópar í þessum flokki hafa þegar náð tilætluðu marki, aðrir eru í þann veginn að ná því, og enn aðrir hafa í huga að hefjast handa um slíkt í náinni framtíð. 4. Hópstofnendur. Nefndin er þeirrar skoðuna*-, «ð í þessum flokki geti þeir allir rúmast, er styðja vilja fyrirtækið, án þess hún víkji frá þeirri meginreglu, er sett var fyrir þremur árum, að leita einungis til stofnenda eða stofnendasamtaka; nefnd- inni var það ávalt ljóst, að henni Eiga viðtal í Ottawa í fyrri viku kom landbúnaðar- ráðherra Bandaríkjanna, Mr. ^rennan, til Ottawa til skrafs og ráðagerða við landbúnaðarráð- herra sambandsstjórnar, Mrs. Gardiner, varðandi framtíðar- horfur á hveitisölu hvorrar þjóð- ar um sig, og þá einkum út af vsentanlegum friðarsamningum Vlð Vestur-Þýzkaland og Japan. ^andaríkin þóttust eiga á því i°rgangsrétt, að selja þjóðum þessum á sínum tíma 100 miljón- lr mæla hveitis samkvæmt al- þjóðahveitisamningum, en við þetta vildu canadísk stjórnar- vold ógjarnan sætta sig; nú herrna nýlegar fregnir frá Ot- tawa, að í viðtali áminstra ráð- herra hafi alt fallið í ljúfa löð, °g Canada megi selja 20 miljón- lr mæla af áminstu hveitimagni. hefði verið falið að afla fjár 1 þúsund dollara upphæðum, eða þar yfir, og við það varð hún að halda sér. Nú er nefndin að svipast um eftir sjálfboðaliðum, er eigi að- eins leggi eitthvað af mörkum sjálfir, heldur heldur fallist á að beita sér fyrir fjársöfnun í hlut- aðeigandi bygðarlögum. í þess- um tilgangi hafa kvittanabæk- ur verið prentaðar, er verða sendar í pósti þeim, er þess æskja. Með því að háskólinn hefir fallist á, að hefja undirbúning að stofnun háskólastólsins, er $150,- 000.00 hafi safnast í sjóðinn, er nefndin þeirrar skoðunar, að slíku marki verði náð í ár, en að fullnaðarmarkinu, $200.000.00, verði náð ári eða svo síðar. Bjartsýni nefndarinnar er ekki á sandi bygð, heldur er hún grundvölluð á hinum höfðing- legu undirtektum fjölda manna, sem fúslega hafa lagt fram fé og fyrirhöfn til fullnaðarúrslita í þessu mikla máli. f umboði stofnendanefndarinnar Dr. P. H. T. Thorlakson, forseti Margrét Pétursson, skrifari. Manif-obaþingið John McDowell, íhaldsþing- maður fyrir Ibervillekjördæmið, fer fram á að stjórnin birti al- menningi ársfjórðungsskýrslu yfir tekjur og gjöld fylkisins. George Renouf, stjórnarand- stæðingur fyrir Swan River kjör dæmi, kveðst sjá fram á að fylk- ið muni þurfa að afla sér $3,000, 000 umfram það, sem núverandi fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir; hann tjáist engan veginn viss um hve auðhlaupið verði að þessu, er tekið sé tillit til þess hve markaðir búnaðarafurða séu nú tvísýnni en í fyrra. Vegna fyrirspurna, sem fram hafa komið í þingi varðandi $20,000,000 orkuverið, sem nú er í uppsiglingu við Pine Falls og $10,000,000 olíuhreinsunarstöð Imperial Oilfélagsins, sem nú er verið að reisa í East St. Paul skamt norðan við Winnipeg- borg, lét náttúrufríðindaráð- herrann, Hon. J. S. McDiarmid þess getið, að stjórnin hefði í hvorugu tilfelli um sig ekkert að hylja, og þingmönnum væri guðvelkomið að ganga að öllum þeim skjölum og skilríkjum, er lytu að framkvæmd beggja fyrir tækjanna. Fundinn sekur J. Albert Gray í Montreal, sá er kærður var um morð konu sinnar með því að koma fyrir sprengju í flugvél, sem hún, á- samt 22 öðrum farþegum ferð- aðist með í haust, var fundinn sekur og dæmdur til hengingar; allir, sem með flugvélinn voru týndu lífi; það sannaðist á hinn kærða, að hann hefði framið glæpinn til að ná í 10 þúsund dollara lífsábyrgð konu sinnar og eins til þess að geta gifts 19 ára gamalli veitingastúlku. RéHarrannsókn hafin Dómsmálaráðherra sambands- stjórninnar, Hon. Stuart S. Gar- son, hefir lýst yfir því, að hann hafi fyrirskipað réttarrannsókn gegn eldspýtnaiðnaðinum hér í landi, er grunur liggi á að beitt hafi verðlagsamtökum til úti- lokunar heilbrigðri verzlunar- samkepni. Mr. Don Henrickson Teksf ó hendur nýja stöðu í Winnipeg Mr. Don Henrickson, sem um nokkur undanfarin ár hefir gegnt verzlunarumboðsmanns- störfum í Saskatchewan, hefir nú tekist á hendur bílaumboðs- sölu hjá Carter Motors Limited hér í borginni. Mr. Henrickson er góður drengur og glæsilegur eins og hann á kyn til; hann er fæddur í Winnipeg 6. september 1917, sonur þeirra Henricks heitins Henricksonar og eftirlifandi ekkju hans frú Þjóðbjargar Hen rickson; hann var í fimm ár í þjónustu Konunglega canadíska flughersins sem flugliðsforingi. Mr. Henrickson er kvæntur Patriciu Mary Allan, sem er af írskum ættum; þau eiga einn son. ust þeir allir, ennfremur 2 börn er sváfu í húsinu, og maður, sem reyndi að bjarga börnunum( dó af hjartaslagi. Hið mesta og ægilegasta flug- slys, sem sögur fara af, vildi til á sunnudaginn; 80 manns fór- ust, aðeins 3 komust af lemstr- aðir. Hópur fólks úr bænum Lantarum í Wales hafði leigt flugvél til þess að taka sig til Dublin á írlandi, á fótboltaleik, síðastliðinn laugardag. Wales bar sigur úr býtum á leikvellin- um og fólkið var í bezta skapi þegar það lagði af stað heim á sunnudaginn; hópur vina beið þess á flugvellinum, en rétt þeg- ar vélin var í þann veginn að lenda, sá það sér til skelfingar að hún sveigði alt í einu til jarð- ar með ógurlegum krafti. Ekki kviknaði í henni en líkamar fólksins tvístruðust í allar áttir. Veðrið var fagurt og skyggni gott, enginn veit enn um orsök Snjólaug Sigurdson píanisti heldur hljómleika í New York Miss Snjólaug Sigurdson " Síðastliðinn sunnudag hélt Miss Snjólaug Sigurdson píanó- hljómleika í Times Hall við slyssins og er verið að rannsaka mikla aðdáun hlustenda; er hún það. Flugvélin var af Tudor gerð, er byrjað var að framleiða eftir stríðið; hefir lítið lán fylgt þeim, alls nafa farist 144 manns í flugvélum af þessari gerð. Skipaður yfirum- sjónar maður skóla Dr. Herbert Mclntosh, 61 árs að aldri, hefir verið skipaður yfirumsjónarmaður skóla í Win- nipeg í stað Dr. J. C. Pincocks, er nýlega tilkynti embættisaf- sögn sína; báðir eru menn þessir hinir mikilvægustu, er látið hafa mikið til sín taka á vettvangi fræðslumálanna innan vébanda Manitobafylkis. Skólaráð borgarinnar hefir skipað sex manna nefnd með það fyrir augum, að knýja Mani tobastjórn til ríflegri fjárfram- laga til skóla héraða, en fram að þessu hefir gengist við. Alvarlegt verkfall í París Undanfarna daga hefir staðið yfir verkfall þeirra manna, er við gas og rafljósastöðvar hafa unnið í París; hefir þetta þröngv að tilfinnanlega kosti borgarbúa, og getur haft í för með sér al- varlegar afleiðingar standi það lengi yfir; yfirvöld borgarinnar hafa látið handtaka ýmissa af forkólfum verkfallsmanna og á- saka þá um samsæri gegn því opinbera. Ægileg flugslys Síðastliðna viku skeðu tvö ægileg flugslys. Á þriðjudaginn 8. marz, fórst ein af þeim flug- vélum, sem fara reglulegar ferð- ir milli Washington, D.C., og Winnipeg. Hún var á leiðinni að sunnan og reyndi að lenda í Minneapolis, en vegna snjóbyls, gat flugmaðurinn ekki greint flugvöllinn; þegar hann ætlaði að hækka flugið aftur, rakst flug farið á 80 feta langa fánastöng, er stóð við hermanna grafreit, mílu frá flugvellinum, féll til jarðar, rakst á hús og kviknaði þegar í því og flugvélinni. 13 manns voru á flugfarinu og fór- Úr borg og bygð Þjóðræknisdeildin „F R Ó N“ heldur opinn fund í G. T. húsinu kl. 8 e. h. á mánudaginn 27. marz næstkomandi. Séra Philip M. Pétursson flyt- ur erindi á þessum fundi og fleira verður þar til skemtunar, sem nánar verður getið í næsta blaði. H. Thorgrimson ritari Fróns. ☆ Á föstudaginn var lézt á Al- menna sjúkrahúsinu hér í borg- inni frú Jóhanna Eager 59 ára að aldri, dóttir Finns heitins Ste- fánssonar, sem í fjölda mörg ár var búsettur í þessari borg; frú Jóhanna var mesta kona, sem hvarvetna kom fram til góðs; útför hennar fór fram frá Fyrstu lúterku kirkju á þriðjudaginn undir forustu séra Valdimars J. Eylands; þessarar mætu konu verður vafalaust nán ar minst síðar. ■Cr ÞAKKARAV ARP Eg vil hérmeð votta öllum, er veitt hafa mér bæði andlegan og efnalegan stuðning við söngnám mitt í Minneapolis, innilegt þakk læti. Ber fyrst að nefna hr. Árna, dómara, Gislason og frú, er buðu mér hingað suður með sér síð- astliðinn ágúst og hafa síðan veitt mér ómetanlegan styrk; ég er til húsa hjá syni þeirra, Rob- ert W. Gislason og frú, og nýt þar innilegrar góðvildar. Enn- fremur er ég í mikilli þakkar- skuld við hr. Valdimar Björn- son fyrir margháttaðan stuðn- ing; hr. Harry Lárusson og frú, og séra Valdimar J. Eylands og frú þakka ég alla hjálp bæði nú og fyrr. Sönglög og uppörvandi bréf frá hr. S. K. Hall, Wynyard, hafa verið mér kærkomin; þess- ir hafa og veitt mér fjárhagsleg- an stuðning: hr. J. B. Johnson og frú, Birkines, Gimli, Man., $50.00; Icelandic Canadian Club, Winnipeg — jólagjöf $100.00; Þjóðræknisdeildin „Gimli“, Gimli, Man. — $55.00 og hr. Jó- hann P. Sæmundsson, Gimli, Man. — $55.00. Eg vona, ef Guð gefur mér heilsu, að síðar gefist mér tæki- færi til að sýna ykkur, kæru vin- ir, að hjálp ykkar á þessum tíma- mótum ævi minnar, hefi ég virt og fært mér í nyt eftir megni. — Hlýhug ykkar og stuðning bið ég Guð að launa. Ykkar einlægur, Ólafur Kárdal 1520—6th Street S.E. Minneapolis, 14, Minnesota. mikilhæfur píanóleikari a þróunarstigi. í tilefni af áminstum hljóm- leikum barst ritstjóra Lögbergs svohljóðandi símskeyti á mánu- daginn: New York, 13. marz 1950. 116, No. 6, Ballade, Op. 118, No. 3 and Capriccio, Op. 116, No. 7; Hindemith’s Sonata No. 2; Jeux d’Eau and Pavane pour une In- fante Defunte by Ravel; Debus- sy’s L’Isle Joyeuse and Chopin’s Fantaisie in F Minor, Op. 49. íslenzkt kynningarkvöld „Þetta kveld var íslendingum til mikils sóma“, sögðu fleiri en einn við mig að lokinni íslenzku samkomunni, er haldin var á veg um Manitobaháskólans á mánu- dagskvöldið og mun það ekki of- mæli því þátttakendur allir leystu hlutverk sín prýðilega af hendi. — Erindi frú Lilju Ey- lands fjallaði aðallega um þau oru kynni^ er hún fékk um þróun lista á íslandi — hljómlist, mál- aralist, höggmyndalist, tréskurð- arlist og handiðnaðarlist; sagði hún svo skemtilega frá og brá upp svo mörgum skýrum mynd- um af því sem fyrir augu og Einar P. Jónsson ritstjóri Lög- eyru bar að unun var að hlusta bergs, 695 Sargent Avenue, Win- nipeg. Hljómleikar Snjólaugar í Times Hall með ágætum og hlutu góðar viðtökur. Við íslend- ingar í New York erum upp með okkur af henni Kveðjur María Markan Östlund". Hér fer á eftir skrá viðfangs- efna: Bach-Rummel work Jesus Christ, the Son of God; Cesar Frank’s Prelude Chorale and Fugue; Brahms’ Intermezzo, Op. Krefst dauðadóms Sir Waldron Smithes, einn af sæmdar- forvígismönnum íhaldsflokksins í brézka þinginu, hefir skorað á stjórnina að hlutast til um að hegningarlögunum verði þannig breytt, að dauðadómur verði kveðinn upp yfir mönnum, er fundnir hafa verið sekir um njósnarstarfsemi og stofnað með því öryggi þjóðarinnar í hættu, þó á friðartímum sé; eins og nú hagar til, má aðeins beita dauða- dómi gegn slíkum ófremdar- mönnum á stríðstímum; ekki er enn vitað hverju stjórnin svarar til um áminsta lagabreytingu, en líkur taldar til, að hún muni henni síður en svo hliðholl. Dauðsföll af völd- um umferðarslysa Frá því um síðastliðin áramót hafa umferðarslys í Winnipeg orðið níu manns að líftjóni; þetta er hár skattur á rúmlega tveimur mánuðum, og bendir ó- neitanlega til þess, að brýn þörf sé á því, að fjölga lögregluþjón- um við umferðaeftirlit í borg- inni; hér er um svo mikilvægt mál að ræða, að bæjarstjórnin má ekki horfa í kostnaðinn við aukið eftirlit. á hana. Þá lék hinn kunni fiðlu- leikari Palmi Palmason ásamt H a r r ý Rowlin og H a r o 1 d Jonasson lag eftir Björgvin Guð- mundsson. Frú Pearl Johnson söng lög eftir Árna Thorsteins- son, Sigvalda Kaldalóns og Sig- fús Einarsson; það var ekki ein- ungis að hún söng vel, heldur skýrði hún efni ljóðanna svo yndislega að hrífandi var. Ung- frú Sigrid Bardal annaðist undir spil. Ungfrú Thora Ásgeirsson lék á píanó tónverk eftir Pál fsólfsson af snild, eins og vænta mátti af henni. Konurnar og hinar tvær ungu stúlkur voru klæddar íslenzkum búningum og jók það ekki lítið á virðuleik samkomunnar. Forseti háskólans, Dr. A. H. S. Gillson stjórnaði samkomunni; er hann eins og kunnugt er, tals- vert fróður í íslendingasögun- um í þýðingu William Morris. Kvaðst hann hefði óskað að við þetta tækifæri hefði einnig verið upplestur úr fornsögunum eða eitthvað atriði bókmentalegs eðlis, en úr því myndi verða bætt þegar kennaraembættið í íslenzku og íslenzkum fræðum yrði stofnað við Manitobaháskól ann; sagðist hann vonast til að þessi samkoma yrði upphafið að mörgum slíkum samkomum, er haldnar yrðu á vegum háskólans til að kynna íslenzka menningu. Að lokinni skemtiskrá skoð- uðu gestir íslenzk málverk og íslenzka skrautmuni, er til sýn- is voru undir umsjón frú Sofíu Wathne. Yfir hundrað manns sóttu samkomuna og var margt af því annara þjóða fólk. I. J. Síðustu fréttir Við nýafstaðnar kosningar í Grikklandi hlutu vinstri flokk- arnir í sameiningu nægilegt þingfylgi til stjórnarmyndunar. Á sunnudaginn fór fram þjóð- aratkvæði um það í Belgíu hvort Leopold konungur yrði kvaddur til valdatöku eður eigi. 57 af hundraði greiddra atkvæða féllu konungi í vil. Við kosningar í Rússlandi á sunnudaginn var fengu komm- únistar nálega öll atkvæði, enda aðeins flokkur þeirra í kjöri. Nóg af lýðræði þar! Fjórhagsóætlun Manitobafylkis A miðvikudaginn í vikunni, sem leið, lagði forsætisráðherr- ann D. L. Campbell, er um hríð gegnir einnig fylkisféhirðisem- bætti, fram á þingi fjárhagsá- ætlun stjórnarinnar yfir fiár- hagsárið frá 1. apríl 1950 til 31. marz 1951, og gerir hún ráð fyr- ir $2,600,000 hærri útgjöldum en í fyrra; alls eru útgjöldin áætl- uð 39 miljónir dollara; fjárveit- ingar til heilbrigðismála og vega gerða hækka að mun, og mun slíku alment fagnað verða; fjár- hagur fylkisins hefir sennilega aldrei staðið á fastari fótum en einmitt nú.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.