Lögberg-Heimskringla - 07.04.1977, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 07.04.1977, Blaðsíða 1
GLEÐILEGA PÁSKA EASTER GREETINGS Borg3teinn Jónsson Box 218 Roykjavík, Iceland 91 ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 7. APRÍL 1977 NÚMER 13 Lögberg-Heimskringla óskar lesendum sínum öllum gleðilegra páska. Frank Thorolfson lát-inn Frank Thorolfson, hinn víð- kunni vestur-íslenzki hljóm- listarmaður, lést nýlega í Hamilton, Ontario, 63 ára að aldri. Thorolfson var fæddur í Winnipeg, sonur Halldórs Þórólfssonar frá Borg á Mýr um og konu hans, Friðriku Friðriksdóttur Thorolfson ótskrifaðist frá Toronto Royal Oonservatory, Royal School of Music í Don- don og síðast frá Chicago Musical Collega. — Hann kenndi við háskóla í Ohicago og Saskatdhewan og stjórn- aði einnig um tíma sinfóníu- hljómsveit Manitobaháskól- ans, stofnaði jafnframt Win- nipeg Chamber Orchestra. Árið 1959 flutti Thorolfson 'til Hamilton, Ontario, sem deildarstjóri tónlistardeildar McMasterJháskólans og er nú álitinn eins konar “faðir” deildarinnar þar. Hann lætur eftir sig ekkju og tvær systur, Mrs. Pearl Johnson og Mrs. Walter Alli- son, báðar í Winnipeg. THEY SHOULDNT CALL ICELAND ICELAND Kvikmynd um ísland frumsýnd í New York Miðvikudagipn 13. apríl verður ný kvikmynd um ísland frumsýnd í New York. Myndin, sem er 28 mínútna löng litmynd heit ir “They shouldnt call Ice land Iceland” og var gerð á vegum Ferðamálaráðs ís lands og Flugleiða. Höf- undur myndarinnar er Frizt Kahlenberg, hollend ingur, sem búið hefur í Bandaríkjunum í mörg ár. Hann hefur áður gert land kynningarmyndir fyrir 45 þjóðir aðrar. Myndin var fyrst sýnd í Reykjavík 18. febrúar. Frumsýningin í New York 13. apríl verð- ur í Time-Life Building. Lögberg-Heimskringla hefur lagt drög að því að fá þessa mynd til sýning- ar í Winnipeg, og ef til vill víðar, og verður nánar skýrt frá því í næsta blaði. já Fyrstu heiðursborgarar Kópovogs Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs, sem nýlega var haldinn, voru hjónin Hulda Jakobsdóttir og Finnbogi Rútur Valdimars son gerð að fyrstu heiðurs borgurum Kópavogs. Bæði störfuðu þau lengi að sveitarstjórnarmálum í Kópavogi, og heimili þeirra á Marbakka var einnig skrifstofa Kópa- vogshrepps um alllangt skeið. Finnbogi Rútur var odd viti Kópavogshrepps frá stofnun hans árið 1948 til 1955 og síðan fyrsti bæjar stjóri Kópavogskaupstað- ar frá 1955-1957, og bæjar- fulltrúi til 1962. Hann var bankastjóri Útvegsbanka íslands frá 1957—1962. Hulda var bæjarstjóri frá 1957-1962 og bæjarfull etrúi 1970-1974. Hún er eina konan á íslandi, sem verið hefur bæjarstjóri. Kópavogur er vinabær Riverton. Þar gegnir kona embætti bæjarstjóra, — Beatrice Olafson. Bej MIKILL ÁHUGI Á ÍSLANDSFERÐUM VIKING TRAVEL efnir, sem kunnugt er til tveggja íslandsferða frá Kanada í sumar. — Fyrri ferðin verður farin frá Winnipeg í júní og er á- hugi fólks svo mikill, að sýnt var að færri kæmust að en vildu, og því hafa forráðamenn VIKING TRAVEL nú fengið stærri flugvél, en upphaflega var ætlunin að nota til ferðar- innar. Farið verður með flugvél af gerðinni DC-8 sem tekur 227 farþega. Vegna þessara ráðstaf- ana eru laus sæti í þessa ferð, og ættu þeir, sem vilja tryggja sér far til ís- lands í júní, að hafa sam- band við: Stefan J. Stefanson, 37 Macklin Avenue, Winnipeg R2V 2M4 Sími (204) 338-1161 eða T. K. Arnason, 128 Fourth Avenue, Gimli, Manitoba ROC 1B0 Sími (204) 642-8276. RÓLEGT VIÐ KÖTLU Sf Allt hefur verið með kyrrum kjörum við Kötlu frá því að jarðhræringarnar urðu þar í síðustu viku, eins og sagt var frá í Lögbergi-Heimskringlu. Katla gaus síðast árið 1918 og 30 árum síðar, eða um 1950 fóru menn að búast við gosi á ný, en það var ekki fyrr en 1955 að mikill vatna- gangur varð í Múlakvísl, og hafa menn talið að þá hafi Katla létt eitthvað á sér. Enn er fylgst nákvæmlega með þróun mála við Kötlu, en hrinan í síðustu viku er sú snarpasta sem komið hef- ur í 10 ár, snarpasti kippur- inn mældist 4.5 stig á Richt- er kvarða. já ÓRÓLEGT VIÐ KRÖFLU Þótt jarðfræðingar vilji ekki slá neinu föstu, þá hafa nokkrir látið hafa eftir sér síðustu daga, að líkur á gosi á Kröflusvæðinu aukist enn. Þar eru stöðugar jarðhrær ingar, og fyrir skömmu mældust þar 140 jarðskjálft- ar á einum sólahhring, flestir vægir, en nokkrir tvö stig á Richters kvarða, og aðeins þar ýfir. Norðurendi stöðvar hússins var á sama tíma 9.1 millimetra hærri en suður- endinn, og er það meira land ris en áður hefur mælst þar. já auglýsið í LÖGBERGI* HEIMSKRINGLU Einar Ágústsson: EKKERT SENDIRÁÐ f KANADA Lögberg-Heimskringla hef ur fregnað, að undanfarið hafi verið uppi getgátur um, hvort Einar Ágústs- son utanríkisráðherra hyggðist segja af sér em- bætti, og gerast sendi- herra í Kanada. Svo háværar voru þess ar raddir orðnar, að ráð- herrann sá ástæðu til að gera sérstaka grein fyrir málinu á fundi miðstjóm ar Framsóknarflokksins í sáðustu viku. J ¥ Einar Ágúzlsson, Þá sagði utanríkisráð- herra, að engin fótur væri fyrir því, að hann hefði hugsað sér að fara til Kanada og gerast sendi- herra þar. I fyrsta lagi væri ekkert íslenskt sendi ráð í Kanada, og það væri heldur ekki á döfinni að setja það á fót þar. Það er sem kunnugt er sendiráðið í WaShington sem fer með mál manna í Kanada, en sendiherra þar er Hans G. Andersen. Hann er fæddur í Winni peg, og í vetur var hann hér á Þjóðræknisþinginu, og þá var hann einnig gerður að heiðursborgara í Winnipeg. já

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.