Verkamaðurinn - 10.04.1943, Blaðsíða 1
XXVI ARG.
Laugardaginn 10. apríl 1943.
15. tbl.
VERKAMANNAFÉLAG AKUREYRARKAUP-
STAÐAR STOFNAÐ MED 250 MEÐLIMUM
VERKLYÐSFÉLAG AKUREYRAR REKIÐ UR ALÞYÐUSAMBAND-
INU OG ER NÚ IFULLKOMINNI UPPLAUSN
70 MEÐUMIR ÞESS HAFA SAGI SIG ÚR ÞVÍ OG GENGID í VERKA-
MANNAFELAGID OG MUNU FLEIRIFETAIFÓTSPOR ÞEIRRA NÆSTU DAGA
Stjórn hins nýja félags er þannig skipuð: Formaður: Mar-
teinn Sigurðsson. Ritari: Jóhannes Jósefsson. Gjaldkeri:
Björn Einarsson. Meðstjórnendur: Þórður Valdimarsson
og Sigurður Baldvinsson. Varastjórn: Haraldur Þorvalds-
. v '
son, formaður. Björn Jónsson, ritari. Loftur Meldal, gjald-
keri. Meðstjórnendur: Stefán Árnason og Pálmi Jónsson.
Félagið hefir samþykt að sækja um upp-
töku í Alþýðusamband Islands
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði sendu fulltrúar Alþýðusam-
bandsins stjórn Verkalýðsfélags Ak-
ureyrar síðdegis s.l. föstudag síðustu
samkomulagstillögur sínar og
kröfðust svars í síðasta lagi fyrir kl.
11 árdegis laugardaginn 3. apríl.
Fara hér á eftir þessar tillögur
fulltrúa Alþýðusambandsins:
Verkamenn í Reykja-
vík, Hafnarfirði og
Siglufirði
senda verkamönnum á Akur-
eyri árnaðaróskir
Eftirfarandi skeyti frá verklýðs-
samtökunum í Reykjavík, Hafnar-
firði og Siglufirði bárust stofnfund-
um Verkamannafélags Akureyrar-
kaupstaðar:
Óskum ykkur allra heilla með
sameiningu verkalýðsins á Akureyri
undir merkjum hins nýja verka-
lýðsfélags.
Verkamannafélaéið „Dafeshrún oé
Verkamannafélaéið „Hlíf“.
Velkomnir í allsherjarbaráttu-
samtök verkalýðsins. Hej'll fylgi
störfum ykkar.
F. h. verkamannafélaésins „Þróttur"
á Siélufirði
—Gunnar Jóhannsson.
Síðustu samkomulagstillögur.
Verkalýðsfélag Akureyrar, Verk:\-
mannafélag Akureyrar og fulltrúar
Alþýðusambands íslands, Jón Sig-
urðsson og jón Rafnsson fyrir hönd
Verkakvennafélagsins „Eining“ Ak-
ureyri og fyrir hönd Alþýðusam-
bands íslands, hafa orðið ásátt um
eltirfarandi skuldbindandi sam-
komulag:
O
1. Verkalýðsfélag Akureyrar lofar
því að þeir félagsmenn Verka-
mannafélags Akureyrar og aðrir
þeir, sem sækja um inngöngu í
Verkalýðsfélag Akureyrar á næstu
undum þess ög samkomulag verður
um samkv. því sem ákveðið er í öðr-
um lið þessa samkomulags, að inn-
gönguskilyrði hafi, verði ^teknir í
Verkalýðsfélag Akureyrar.
Lögum Verkalýðsfélags Akureyr-
ar verði breytt samkv. fylgiskjali
nr.
2. Á meðan áðurnefndar tillögur
um breytingar á lögum Verkalýðs-
félags Akureyrar (á fylgiskj, nr. )
liafi ekki gengið formlega í gildi,
komi ekki til framkvæmda ákvæði
3., 4. og 13. gr. laga Verkal.fél. Ak-
ureyrar um inntökuskilyrði og
brottvikningu, og um inntöku
nýrra meðlima í félagið, verði fylgt
eftirfarandi reglu:
Fulltrúar Alþýðusambands ís-
lands, Jón Sigurðsson og Jón Rafns-
son ásamt tveim fulltrúum, sem til-
nefndir eru af stjórnum Verkalýðs-
félags Akureyrar og Verkamanna-
félags Akureyrar, skulu athuga all-
ar inntökubeiðnir, og hafi þeir sér
til aðstoðar mann úr stjórn hvers
sambandsfélags hér á staðnum, til
að ganga úr skugga um að innsækj-
endur séu eigi í öðrunr stéttarfélög-
um.
Nú hefir orðið samkomulag milli
þessara manna um lrlutgengi og rétt
innsækjenda til að vera í verka-
mannafélagi samkvæmt lögum Al-
þýðusambands íslands og sambands-
félaga yfirleitt, og skulu þeir þá
öðlast óskoruð félagsréttindi í
Verkalýðsfélagi Akureyrar, enda
hafi þeir greitt lögákveðið gjald til
félagsins og skrifað undir skuld-
bindingu samkvæmt lögum þess.
Inntökubeiðnir skulu berast upp
í einu lagi á fundum sé um fleiri
en eina að ræða.
í fjarveru þeirra Jóns Sigurðsson-
ar og Jóns Rafnssonar, geta þeir
sett menn í sinn stað til að gegna
þessu starfi.
(Framhald á 3. síðu).
Fölsun uppvís í stór-
um stíl
Fimm menn settir í varðhalí
Skömtunarskrifstofa ríkisins varð
þess vöf við síðustu mánaðamót. að
mikið af fölsuðum skömmtunar-
seðlum var í umferð.
'Var rannsókn hafin í málinu og
voru í því sarhbandi 5 rrienn hand-
teknir, en þeir eru: Jón Kjartans-
son forstjóri hjá sælgætisgerðinni
Víkingur, Adolph Bergsson, lög-
fræðingur, Friðjón Bjarnason, |
prentari, Einar Jónsson og Þor-
steinn/Oddsson, starfsmenn í prent-
myndaggrð Ólafs Hvanndals.
Rannsókn málsins er ekki lokið.
Skömtunarskrifstofan varð þess á-
skynja, að fölsuðu seðlarnir, er voru
sykurmiðar, komu aðallega frá
einni verslun. Kvaðs verslunin lrafa
fengið þá hjá Jóni Kjartanssyni, en
hann sagðist hafa fengið þá hjá
Adolph Bergssyni, er kvaðst hafa
fengið þá hjá Friðjóni Bjarnasyni
prentara, sem viðurkendi að hafa
prentað þá eftir myndamóti, sem
hann hafði fengið hjá starfsmanni
í prentmyndagerð Ólafs Hvanndals.
Þriggja ára hetjubar-
áttu Norðmanna minst
víða um heim
í gær voru þrjú ár liðin frá því
Þjóðverjar réðust inn í Noreg.
Var þessa harmleiks minst víða
um heim í gær m. a. með guðsþjón-
ustu í dómkirkjunni í Reykjavík.
Johan Nygaardsvold, forsætisráð-
herra Norðmanna, flutti ræðu í
London í tilefni af þessum degi.
Lauk hann máli sínu með því að
þegar Noregur yrði aftur frjáls,
myndi Verða endurreist þar ríki á
grundvelli hins þrautreynda lýð-
ræðisskipulags.
Harmsaga norsku þjóðarinnar
verður ekki rakin hér. Hun verður
ekki sögð með orðum og því siður
fáum orðum. Vér getum litla hjálp
veitt þessari frændþjóð vorri en vér
gætum þó sýnt henni meiri samúð
en raun bar vitni í gær.
............ ............... ■ i
Hinn ósigrandi
,, Noregur
Bókaforlag Sovétríkjanna í
MoSkva hefir nýlega gefið út bók
um Noreg, sem heitir: „Hinn ó-
sigrandi Noregur", eftir M. Afonin.
í bókinni er lýst þróuninni í
Noregi eftir 9. apríl 1940 og jafn-
framt er þar lýsing á Noregi fyrir
stríðið. Afonin telur að árásinni á
Noreg hafi ekki síður verið stefnt
gegn SoYétríkjunum en gegn Stóra-
Bretlandi.
í bókinni er ýtarleg æfisaga
Quislings, sérstaklega hefir höf.
rannsakað afstöðu hans til Fridtof
Nansen. Eins og allir svikarar, segir
Afoin, vill Quisling ekki minnast
á fortíð sína, og það mun líka vissu-
lega vera ástæðan fyrir því að
Quisling hefir fangelsað Odd Nan-
sen.
Bókin var gefin út í 50.000 ein-
tökum og. var uppseld eftir fáa
daga.