Brautin - 01.06.1962, Blaðsíða 1

Brautin - 01.06.1962, Blaðsíða 1
IRAUTIN FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA 1. JÚNÍ 1 962 . 1. ÁRGANGUR VEGIRNIR OKKAR Ökumenn hafa allt fram á síðustu ár verið lítill minni hluti hinnar ís- lenzku þjóðar. Er það sennilega megin ástæðan fyrir því, hve óskum þeirra og réttmætum kröfum hefur lítið verið sinnt. En nú er orðin mikil breyting hér á. Nú má full- yrða, að meiri hluti Islendinga til- heyri þeim hópi, sem annaðhvort hefur ökuleyfi, nýtur bíla daglega að meira eða minna leyti eða hefur megin .atvinnu sína í sambandi við þá. Þeir landar eru víst nú orðið fá- ir, sem ekki eiga á einhvern hátt meira eða minna undir bílunum komið. Það gefur því auga leið, að hægt er að framfylgja kröfunum um fleiri vegi, en fyrst og fremst betri vegi með miklu meiri þunga en áð- ur. Samstaða bíleigenda sem til þessa hefur ekki verið eins góð og brautin ákjósanlegt var, hlýtur nú að eflast til framgangs þessu máli. Aðeins nokkur hluti þess fjár- magns, sem hið opinbera nær inn frá bíleigendum með allskonar sköttum og tollum, rennur til vegagerða og vegaviðhalds. Bíleigendur hafa fyrir löngu ekki aðeins sætt sig við að borga vegina heldur telja það nú vafalaust flestir alveg sjálfsagt. Og ég fullyrði, að ef þeim yrði gefinn kostur á betri vegum gegn hærri sköttum og tollum, þá myndu þeir flestir kjósa það. En þess þyrfti ekki með til að bæta úr. Aðeins það, að tekjur hins opinbera af bílum rynnu til veganna óskiptar að frádregnum nauðsynlegum kostnaði við bílaeft- i

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/233

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.