Dagur - 01.03.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 01.03.2000, Blaðsíða 1
Kratar ósáttir við breytt stjómkerfí Stj dmkerfisbreyting- iu hjá Reykjavíkur- borg mætir audstöðu. Kratar segja að verið sé að ýta út úr nefnd- um áhugastjómmála- fólki. Helgi Hjörvar, forseta borgarstjóm- ar, segir að verið sé að sameina nefndir tfi hagræðingar og spam- aðar. Mikil óánægja er hjá krötum í Reykjavík og jafnvel sumum al- þýðubandalagsmönnum líka, með fyrirhugaða stjórnkerfis- breytingu hjá borginni. Tómas Waage, formaður Alþýðuflokks- félags Reykjavíkur, segir að með þessari breytingu sé 60 til 70 áhugamönnum um stjórnmál, sem setið hafa í nefndum borg- arinnar, ýmist sem aðalmenn eða varamenn, kastað út. Eftir verði aðeins borgarfulltrúar og varaborgar- fulltrúar. Hann segir að með þessu sé hinu dreifða lýðræði vikið burt hjá borginni. Helgi Hjörv- ar, forseti borgarstjórnar, vísar þessu á bug. Hann segir að vísu Fækki áhugastjórnmálafólki eitt- hvað en ekkert í líkingu við þessa tölu. Það sem um ræðir sé fækk- un nefnda sem gerð sé með sam- einingu þeirra. Hann segir að rétt eins og sameining sveitarfé- Iaga hafi þótt takast vel muni sameining nefnda hafa ótvíræða kosti, svo sem hagræðingu, meiri yfirssýn, öflugri einingar og svo framvegis. „Gailinn er auðvitað sá að það fækkar fyrir- mönnum í hér- aði,“ segir Helgi. Hann segir að rætt sé um sjö stjórnarsvið sem færu með stærstu út- gjaldamála- flokkanna, en innan hvers svið verði fleiri undirnefndir. Fyrir hverju þessara sjö stjórns- viða fer einn borgarfulltrúi meirihlutans. Hann segir menn sammála um að í nefndum, sem eru með mjög útgjaldafreka málaflokka, eigi kjörnir borgar- fulltrúar í ríkari mæli að sitja en nú. Helgi segir að þessi svið verði ekki öll tilbúin á sama tíma þannig að þau verði að koma inn eitthvað fram á árið. Ofurdemokratí“ A fundi í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur fyrir skömmu kom fram mikil óánægja með þetta og þá alveg sérstaklega hjá gömlum og góðum krötum sem hafa starfað fyrir flokkinn lengi, að sögn Tómasar Waage. Hann seg- ir grasrótina í flokkunum slitna úr tengslum við kjörna borgar- fulltrúa með þessu. „Með því sem ég hef kallað of- urdemokratíu, hleyptum við inn á borgarstjórnarlistann í gegnum flokkinn tveimur utanflokka mönnum. Nú er svo komið að annar þeirra, Hrannar B. Arnars- son, hefur sagt skilið við okkur en hinn, Helgi Pétursson, kemur úr Framsóknarflokknum. Við getum því sjálfum okkur nokkuð um kennt að eiga ekki aðgang lengur að neinum Alþýðuflokks- manni í borgarstjórn," segir Tómas Waage. — S.DÓR Margir kratar innan R-listans eru óánægðir þessa dagana. Vonbrígði Bæjarráð A-Héraðs fundaði á Egilsstöðum í gærkvöldi og sendi frá sér samhljóða bókun þar sem lýst er yfir vonbrigðum með ákvörðun Islandsflugs að hætta flugi til Egilsstaða 1. apríl. „Bæj- arráð treystir því að Flugfélag ís- lands haldi áfram að veita góða þjónustu á þessari flugleið, án þess að hækka fargjöld umfram almenna verðlagsþróun," segir m.a. í bókuninni. Bæjarráðið mælist til þess að samkeppnisyf- irvöld fylgist grannt með þróun á verðlagi fargjalda innanlands næstu misserin. Héraðsbúar eru ekki þeir einu sem eru vonsviknir með ákvörð- un Islandsflug. Það sama gildir um samgönguráðherra, formann Neytendasamtakanna, bæjar- stjórann á Akureyri og fleiri. Keppinauturinn, Flugfélag ís- lands, gleðst hins vegar og von- ast til að geta snúið taprekstri í hagnað. — Sj« fréttaskýringu « bls. 8-9 Alls fimm börn fæddust á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri i gær, hlaupársdag, 29. febrúar og heil tylft barna á Landsspítalanum syðra. Meðal foreldra sem eignuðust barn á þessum degi voru hjónin Jón Eðvarð Ingólfsson og Brynja Hauksdóttir, sem eignuðust pattaralegan strák. Hér er það eldri sonur þeirra Jóns og Brynju sem heldur á bróður sínum, hlaupársbróðurnum. - mynd: brink Gamli Keisarinn hefur verið girtur afá meðan framkvæmdir standa yfir hjá íslandsbanka. íslands- banldí Keisaraim „Jú, þetta er rétt. Við höfum ákveðið að selja húsnæðið við Laugaveg 105 og ætlum að flytja útibúið yfir í leiguhúsnæði við Laugaveg 116, við hliðina á Tryggingastofnun," sagði Jón Þór- issson; forstöðumaður útibúa- sviðs Islandsbanka, í samtali við Dag en sem kunnugt er stóð um- deildur veitingastaður við Lauga- veg 116 þar til fyrir skemmstu, nefnilega Keisarinn. Breytingar standa nú yfir á gamla Keisaran- um og að sögn Jóns stendur til að bankinn opni þar útibú síðar í mánuðinum. íslandsbanki hefur verið með útibú við Hlemm frá stofnun bankans og þar áður var Utvegsbankinn til húsa. „Húsnæðið hefur verið óhent- ugt, er á mörgum pöllum og að- gengi fyrir fatlaða er erfitt. Við gripum tækifærið fegins hendi þegar við gátum fært okkur á einn pall og í gangstéttarhæð. Fólk þarf að hafa þarna greitt aðgengi, vegna nálægðar við Trygginga- stofnun meðal annars. Þetta er einnig mikilvæg staðsetning vegna nálægðarinnar við Hlemrn," sagði Jón. Aðspurður hvort nýja húsnæðið væri ekki minna en það gamla sagði Jón ekki muna svo miklu þar á. Leit að hagræðingu „Þetta er liður í sífelldri leit okkar að hagræðingartækifærum í úti- búanetinu. Við höfum frekar farið þá leið að leigja heldur en kaupa húsnæði. Með því höfum við náð að fækka verulega fermetum í notkun í útibúunum. Með auk- inni netvæðingu bankanna höfum við getað tekist á við ný verkefni í útibúunum, sem snúa meira að sérhæfðri fjármálaráðgjöf, og mætt í leiðinni flóknari þörf við- skiptavinanna," sagði Jón. Hvort fyrrum viðskiptavinir Keisarans verði velkomnir í nýja útibúið sagði Jón það sjálfsagt mál. „Annars skilst mér að þeir hafi fundið sér annan samastað." - BJI! K U K U Mikið úrval af leikium á verði frá 3.900 kr. NINTENDO’4 BRÆÐURNIR fc>)OKMSSON www.ormsson.js Komdu við hjá okkur oq orófaðu á staðnum ;o Ibt* ’,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.