Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 22
22
DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST 1985.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Heimsmet í
lyftingum
— á HM í Svíþjóð
Búlgarinn Main Suleimanov setti
nýtt heimsmet í fyrsta keppnisflokkn-
um, 60 kg, á helmsmeistaramótinu í
lyflingum i Södertalje í Svfþjóð á
laugardag. Snaraði 143 kg. Það var í
aukatllraun en í keppninni hafði hann
jafnað heimsmetið, 142,5 kg. Átti það
sjálfur. Orsiit:
1. Maim Suleimanov, Búi. 322,5
2. Yurik Sarakisia, Sovét. 307,5
3. Andrea Letz, A-Þýskal. 292,5
4. Daniel Munez, Kúbu 282,5
5. Jan Wan Chang, N-K6reu 277,5
6. Dorel Matess, Rúmeniu 272
Sigurður Einarsson.
Siggi stór-
bætti sig
„Ég er mjög ánægður með þennan
árangur, ég bætti árangur minn mjög
og átti annað kast lengra en ég átti best
áður,” sagði Sigurður Einarsson,
Ármanni, eftir að hann sigraði í spjót-
kasti í Innsbruck í síðustu viku.
Kastaði lengst 87,80 m, var góðum tiu
metrum á undan næsta manni. Sigurð-
ur kastaði einnig 82,92 m á mótinu í
Áusturríki. Nær logn var þegar keppn-
in fór fram.
Sigurður hefur keppt talsvert erlend-
is að undanförnu, kastaði m.a. 82,28 m
á móti í Finnlandi. Samkvæmt árangri
í spjótkasti undanfarin ár ætti Sigurð-
ur að vera í 20.—25. sæti í ár
heimsafrekaskránni. hsim.
Einar Vilhjálmsson.
Einar nú í
áttunda sæti
Spjótkastararnir eru alltaf að bæta
sig og Einar Vilhjálmsson er nú i
áttunda sæti hvað besta heimsárangur
í ár snertir. Tíu bestu eru:
96,90 — Uwe Hohn, A-Þýskalandi
95,10 — Brian Crouser, USA
94,04 — Duncan Atwood, USA
93.70 — Viktor Jevsjukov, Sovét
92,94 — Zdanek Adamec, Tékk.
92,42 — Dumitru Negoiti, Rúmeniu
92,20 — Dag Wennlund, Svíþjóð
91,84 — Einar Vilhjálmsson, Isl.
91.70 — Bob Rogghy, USA
91,56 — Tom Petranoff, USA
-hsim.
Breiðablik er nú eitt á
toppnum í 2. deild
Virðist líklegt til að komast upp í 1. deild á ný eftir 2:0 sigur á KS
Said Aouita á nú heimsmetin i 1500
og5000m.
Heimsmet
Aouita
— í 1500 m hlaupi
Stórhlauparinn Said Aouita frá
Marokkó setti heimsmet i 1500 m
hlaupi á móti i Vestur-Berlín á
föstudagskvöld. Hljóp vega-
lengdina á 3:29,45 min. og bætti
nokkurra vikna gamalt heimsmet
Steve Cram. Það var 3:29,67 min.,
sett í Nice, og þá var Aouita
sekúndubroti á eftlr. 1 hlaupinu i
Berlin hélt Volker Blumenthal uppi
hraðanum fyrstu 800 m. Hljóp á
1:53,50 mín. Þá tók Frank O’Mara,
írlandi, við og hljóp þriðja hringinn
á 55 sek. Aouita geystist siðan fram
úr og setti heimsmetið. Frægir
hlauparar, eins og Sydney Maree,
USA, og Pierre Deieze, Sviss, komu
i mark 25—30 m á eftir honum á
3:32,90 og 3:33,04 min.
-hsim.
Breiðabiik skaust í toppsætí 2.
deildarinnar á laugardaginn er liðið
vann tilþrifalítiiin sigur á KS á Kópa-
vogsvelUnum, 2—0, eftir að jafnt hafði
verið í hálfleik, 0—0.
Strax á 3. mínútu leiksins fékk Jón
Þór Jónsson gott færi fyrir Breiðablik
en skalii hans af stuttu færi fór rétt
framhjá. Jón Þór þessi átti eftir að
koma meira við sögu en Jón er marka-
hæsti maður Blikanna og hefur verið
mjög markheppinn í sumar. Nóg um
það. Liðin skiptust á aö sækja. Blika-
markvörðurinn Sveinn Skúlason þurfti
að taka á honum stóra sinum til að
verja skot Harðar Júlíussonar og
stuttu seinna fór Siglfirðingurinn Oli
Agnarsson illa með upplagt færi, skaut
framhjá frá markteig.
Jón þáttur Þórs hófst síðan á 6.
minútu seinni hálfleiksins er hann
skoraöi fyrsta mark leiksins fyrir
Blikana. Hann fékk þá boltann eftir þóf
í vítateignum og skallaði boltann í
netið. Á 33. mínútu var þessi mark-
heppni piltur síðan aftur á ferð er hann
náði að skalla boltann í net KS-inga
eftir langt innkast. Jón Þór fékk síöan
vítaspyrnu til að gera þriðja mark sitt í
leiknum en þar brást honum bogalistin
og markvörður KS, Gísli Sigurðsson,
náðiaðverja.
Þrir Blikar voru spjaldaöir gulu í
leiknum. Það voru þeir Gunnar Gylfa-
son, Hákon Gunnarsson og Heiðar
Heiðarsson.
Gunnar Gylfason, Jón Þór og
Jóhann Grétarsson áttu allir mjög
góðan leik fyrir Kópavogsliöiö. Liðið
hlýtur að vera mjög sigurstranglegt í
deildinni og mikið má ske eigi liöinu
ekki að takast aö endurvinna sæti sitt í
1. deildinni. Liðið á eftir að leika við
Skallagrím og Völsung á útivelli og
Fylki á heimavelli.
Lið KS var mjög jafnt í þessum leik.
Enginn leikmanna liðsins skar sig úr
heildinni.
-fros.
Endurkoma Skúla
hafði góð áhrif
— N jarðvík vann sinn stærsta sigur f deildinni í ár
er liðið sigraði Skallagnm 3:0 á laugardaginn
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara
DV á Suðurnesjum:
Njarðvíkingar mjökuðu sér heldur
lengra frá botnliðum 2. deUdarinnar er
Uðið vann góðan sigur á Skallagrimi
frá Borgarnesi á laugardaginn, 3—0.
Það var auðséð á leik Njarðvíkinga að
þeir höfðu endurheimt Skúla Rósants-
son. SkúU var maðurinn á bak við flest-
ar sóknarlotur Uðsins sem skoraði sina
fyrstu þrennu í deUdinni í ár.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PRÓFÍL-
PÍPUR
DIN 2395 - A/59411
□ [
] □ □□
Fjölmargir sverleikar. Lengd 6 m.
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
Njarðvíkingar léku undan golu í
fyrri hálfleiknum og voru heldur betra
liðið. Á níundu mínútu náði liðið
forystunni með óvæntu marki.
Guðmundur Sighvatsson miðvörður
hafði þá brugðið sér í sóknina. Hann
fékk knöttinn í vítateig Borgnesinga og
skaut að markinu, boltinn stefndi á
stöngina en fór í Hauk Jóhannsson og
breytti um stefnu og hafnaði í mark-
neti Skallagríms. Guömundur var
síðar í hálfleiknum miðpunktur
sóknaraðgerða er hann átti hörkuskot í
stöng. En aöeins eitt mark skildi að í
hálfleik. Njarðvíkurmark númer tvö
kom á 20. mínútu seinni hálfleiksins er
Haukur Jóhannsson fékk sendingu inn
fyrir vömina og skoraði framhjá
Bjarka Þorsteinssyni markverði
Skallagrims. Þórður Karlsson átti
síðan allan veg og vanda af þriðja
markinu er hann fékk boltann rétt utan
vítateigs og lyfti honum fallega yfir
Bjarka og í marknet Borgnesinga.
Liðunum tókst að skapa sér fleiri færi í
leiknum en inn fór boitinn ekki.
Skúli Rósantsson var sem vítamín-
sprauta á Njarðvíkurliðið. Hann
reyndist iðinn við að stöðva sóknar-
lotur Skallagríms auk þess sem hann
Evrópumet í
bringusundi
Italski sundmaðurinn Gianni
Minervinf setti Evrópumet í 100 m
bringusundi á ítalska meistaramótinu
í síðustu viku. Synti á 1:02,61 min.
Hann er 19 ára og býr í Róm. Bætti
Evrópumet Dimitri Volkov, Sovét-
ríkjunum, um 2/10 úr sekúndu.
-hsim.
var sífellt að byggja upp spil fyrir lið
sitt. Þess má geta að Skúli lék fyrir
tveimur árum með IBK í 1. deild. Hann
skipti yfir í Njarðvíkurliðið í fyrra en
hefur lítið getað leikið með liðinu
vegna meiðsla. Annars var liö
Njarðvíkinga heiisteypt. Vömin lék
mjög vel og virtist Borgnesingum
erfitt að komast í gegnum hana. Auk
Skúla áttu þeir Þórður Karlsson og
Haukur Bragason góðan dag.
Olafur Helgason lék vel í liöi Skalla-
gríms en auk hans sýndi hinn leikni
Bjöm Axelsson góð tilþrif.
Magnús Jónatansson dæmdi leikinn
mjög vel. Bjöm Axelsson fékk að sjá
eina spjald leiksins og var það gult á
litinn.
-fros.
STAÐAN
2. DEILD
Úrsiit í leikjunum í 2. deild á laugar-
dag urðu þessi:
Isafjörður-Vestmanneyjar 2—2
Njarðvík-Skallagrímur 3—0
Breiðablik-KS 2-0
Leiftur-KA 1—í
Völsungur-Fylkir frestað
Staðan er nú þannig:
Breiðablik
IBV
KA
KS
Völsungur
tsafjörður
Njarðvík
Skallagrímur
Fylkir
Lelftur
15 9 4
15 8 6
14 8 3
15 7 3
14 5 3
15 3 7
15 4 4
15 4 4
14 3 3
15 2 3
28—13 31
37—13 30
28—13 27
21— 19 24
22— 22 18
14—21 16
10-17 16
19—34 16
12—18 12
10—31 9
-hsim