Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1989, Blaðsíða 2
Fréttir
FIMMTUttAGÚR 19. OKTÓBER 1989.
Hæstiréttur:
Broadway þarf að borga
yfir tuttugu milljónir
Hæstiréttur hefur dæmt veitinga-
húsið Broadway til að borga manni,
sem slasaðist þar um mitt ár 1986,
15,2 milljónir króna auk vaxta. Með
vöxtum lætur nærri að greiðslan sé
um 22 milljónir króna. Hæstiréttur
klofnaði í afstöðu sinni í þessu máli.
Þrír dómarar töldu að maðurinn
ætti að fá allt sitt tjón bætt en tveir
dómarar töldu að hann ætti að fá
helming þess. í bæjarþingi Reykja-
víkur var Broadway dæmt til að
greiða helming tjónsins.
Maðurinn var á dansleik er hann
Gabbaði slökkvi-
liðið en náðist
Slökkviliö Reykjavikur var
kallað út fjórum sinnum í gær-
kvöldi og nótt Einu sinni var um
gabb að ræða og náöist í þann sem
hringdi. Þar var tilkynnt um að
reyk legöi frá kjallara á húsi sem
stendur á mótum Laugavegar og
Vatnsstígs. Þegar málið var
kannaö tókst að rekja símtaliö og
náöist í sökudólgina
Slökkviliðiö var einnig kvatt að
Snorrabraut þar sem eldur hafði
komið upp í geymsluhúsnæði
íbúðarhúss. Þar urður lítilsháttar
skemmdir. Einnig kviknaði h
öskutunnum við Vogaskóla án,.
þess þó að tjón yröi. Þá fór bruna-
viðvörunarkerfi í gang í vöru-
geymslum í Borgarskála og
reyndist þar um bilun í kerfinu
að ræða.
-ÓTT
Skák:
ísland í 5. sæti
íslenska skáksveitin í átta
landa keppninni hefúr ekki átt
láni aö fagna en í gær var teflt
við Norðmeim. Jóhann, Margeir
og Hannes Hlífar geröu jafiitefli.
Guðfríður Lilja tapaði sinni skák
en Helgi Ólafsson vann sína skák.
Skák Jóns L. fór í bið og er talin
jafnteflisleg. V-Þjóðverjar eru
efstir með 17 vinninga. íslending-
ar hafa 11,5 vinning og biðskák.
-SMJ
Davfð heillaði
Sunnlendinga
Regfna Thorarensen, DV, SeHosá:
Davíð Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík, kom með Þorstein
Pálsson, þingmann okkar Sunn-
lendinga, hingað á Selfoss og
héldu þeir fúnd á Hótel Selfossi í
gærkvöldi Um 150 manns sóttu
fundinn og voru allir heillaðir af
Davið, ræðumennsku hans og
fyndni. Davíö slær tvær flugur i
einu höggi, skemmtir fólki um
ieið og hann flytur ræður sínar.
Aðalstöðin í loftið
Aðalstöðin, hin nýja útvarps-
stöö í eigu Ólafs Laufdals, hóf
útsendingar klukkan sjö í morg-
un. Sendir stöðin á tíðni FM 90,9
og munu nást á Suðumesjum og
Snæfellsnesi. Formlega hefjast
útsendingar þó ekki fyrr en
klukkanl4ásunnudagogþámeð '
viðhöfn,
Útvarpssfjóri Aöalstöðvarinnar
er Bjami Dagur Jónsson.
-hlh
- vegna slyss sem varð þar fyrir rúmum þremur árum
slasaðist. Hann féll af dansgólfi niður
í stiga og var fallið um tveir metrar.
Áður höfðu orðið tvö slys á veitinga-
staðnum - með svipuðum hætti.
Annað þeirra varð á sama stað og
fyrrnefnf slys. .Upphækkun hafði
verið sett á handrið um dansgólfið
en hluti hennar var ekki til staðar
þegar slysið varð. Handriðið var um
90 sentímetra hátt þar sem maðurinn
féfl.
í dómi Hæstaréttar segir að for-
ráðamönnum staðarins hafi átt að
vera ljóst að handriðið var ekki full-
nægjandi vöm fyrir gesti. Þeir hafi
gert sér grein fyrir því þegar þeir
létu setja sérstakan búnað á hand-
riðið til að hækka það. Það hafi því
verið með öllu óforsvaranlegt að láta
fjarlægja þennan búnað svo sem gert
hafði verið þegar maðurinn slasað-
ist. Hæstiréttur segir að það verði að
telja að til þess megi rekja orsök
slyssins.
I vottorði sérfræðings í orku- og
endurhæfingarlækningum segir að
maðurinn hafi dvalið á Reykjalundi
frá 20. júlí 1986 til 22. maí 1988. Hann
hafi síðan búið á heimili foreldra
sinna. Nýlegt mat á ástandi manns-
ins sýni að líkamlegt og andlegt at-
gervi sé óbreytt frá því er hann
dvaldist á Reykjalundi.
Þá segir að maðurinn sé meö heft-
arlömun. Hann gangi haltur meö því
að sveifla fætinum og hafi engin not
af hendinni og auk þess sé sjón hans
skert. Einnig hafi hann orðið fyrir
andlegri skerðingu, geti ekki talaö
og hvorki skrifað né reiknað.
í vottorðinu segir að fótlun manns-
ins sé óbreytt og að hann geti aðeins
búið í vernduðu umhverfi og stundað
vemdaöa vinnu. Nú eru rúm 3 ár frá
slysinu og ekki neins bata að vænta.
Broadway var gert að greiða 1,7
milljónir í málskostnað, bæði í hér-
aði og fyrir Hæstarétti.
Meirihluta Hæstaréttar í þessu
máh skipuðu hæstaréttardómararn-
ir Guðmundur Jónsson, Guðrún Er-
lendsdóttir og Sigurður Reynir Pét-
ursson hæstaréttarlögmaður. í
minnihluta voru Þór Vilhjálmsson
og Gunnar M. Guðmundsson.
-sme
Keyrt var á gangandi vegfaranda víö Vegmúla um hádegisbilið í gær.
Maöurinn, sem keyrt var á, var fluttur á slysadeild en meiðsl hans voru
ekki talin alvarleg. Þegar sjúkrabíll var kallaður á vettvang vildi svo illa til
að hann lenti i allhörðum árekstri við fólksbíl við brúna á Bústaðavegi.
Þar slapp ökumaður við litilsháttar meiðsl en bílarnir eru töluvert skemmd-
ir. Annar sj úkrabíl I fór því að ná í manninn sem slasaðist við Vegmúla.
DV-myndirS
Kjötútflutningur:
Fáum ekki undanþágu
- segir landbúnaöarráöherra
„Það er auðvitað beinlínis rangt
það sem má lesa út úr orðum Magn-
úsar að ekkert hafi verið gert til að
hðka fyrir möguleikum hans á að
flytja út kjöt. Það hefur margoft ver-
ið reynt áð fá Efnahagsbandalagið til
að aflétta innflutningshindrunum
sínum en það hefur reynst ákaflega
erfitt,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
son landbúnaðarráðherra en hann
vih mótmæla ummælum Magnúsar
Steinþórssonar, veitingamanns í
Englandi, um að íslensk stjómvöld
hafi ekkert gert til að aðstoða hann
við að flytja út kjöt.
Steingrímur sagði aö það væri
ákaflega erfitt að fást við Efnahags-
bandalagið sem setti fyrir sig ástand
íslenskra sláturhúsa eða þá meinta
hormónagjöf í íslenskum dýrum án
þess að taka við mótrökum íslend-
inga.
Sagöi landbúnaðarráðherra að síð-
ast fyrir nokkrum dögum hefði hann
rætt þetta við landbúnaðarráöherra
V-Þýskalands sem hefði lofað að
nefna þetta í aðalstöðvunum í
Brússel. Steingrímur hafði það þó
eftir starfsbróður sínum að ekki væri
ástæöa til bjartsýni þótt ekki væri
beðið um annað en undanþágu fyrir
örlitlumagniafkjöti. -SMJ
Vísindaveiöar á hrefnu:
Samvinna við Norð-
menn kemur til greina
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
„Við ræddum stuttlega hvalamál
en þar standa Norðmenn frammi fyr-
ir ýmsum erfiðleikum. Þeir hafa sett
fram hógværa áætlun um vísinda-
veiðar á hrefnu en hafa fengið hörð
viðbrögð frá Bandaríkjamönnum.
Hafa jafnvel verið hafðar uppi hótan-
,ir unuað sétja viðskiptahann á Noreg
;ef af|»e§su verðyr,“ sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra
um fund hans og Kjell Magne Bonde-
vik, hins nýja utanríkisráðherra
Norðmanna, í morgun.
Jón Baldvin sagði að Bondevik
hefði leitað ráða enda íslendingar
nýlega lokið sinni vísindaáætlun
með sóma. Norðmenn hafa hug á að
veiða 17 hrefnur en þeir telja að
stofnin sé á bihnu 50.000 til 60.000 dýr
fyrir utan strönd Noregs og í Bar-
entshafi. . s;
„Ég sagði hoi|um að það vapri mikv
il fiöldi af hreffiu úti fyrir strönduni,
íslands og það4væri líklegt fyrr en
síðar að við myndum hefia veiðar
aftur. Að sjálfsögðu kemur til greina
að vinna með Norðmönnum í þessu
efni,“ sagði Jón Baldvin. -SMJ
Isflug er nýtt flugfélag:
Stofnendurnir eiga
allir í Arnarflugi
Stofnað hefur verið nýtt flugfélag,
ísflug. Stofnendur fyrirtækisins eru
alhr hluthafar í Arnarflugi. Óttar
Yngvason er formaður stjómar hins
nýja flugfélags.
Áð sögn Óttars mun félagið annast
erlent leiguflug. Tilgangur með
stofnun félagsins er sá að styðja viö
bak Amarflugs. Magnús Bjamason,
aðstoðarframkvæmdstjóri Arnar-
flugs, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri hins nýja félags. Hann
mun eftir sem áður gegna starfi sínu
hjá Amarflugi. Óttar segir að verið
sé að vinna í að útvega verkefni og
þegar sé ýmislegt í gangi.
ísflug veröur með skrifstofu á aðal-
skrifstofuAmarflugs. -sme
Skemmdir unnar hjá
skátum í
Brotist var inn í húsnæði Skátafé-
lagsins Kópa við Borgarholtsbraut
um helgina og unnar þar miklar
skemmdir. Einnig var brotist inn í
vinnuskúr skólagarða við Furu-
grand. Þar voru skemmdir unnar á
hurðum og rúöur brotnar.
„Viö urðum fyrir tilfmnanlegu
tjóni. Þeir sem bmtust inn fylltu
vaskinn af pappír, skrúfuðu svo frá
vatninu og fóm í burtu," sagði Ágúst
Kópavogi
Bragason, félagsforingi Kópa í sam-
tah við DV.
„Það tók slökkviliðið á annan tíma
að dæla öllu vatninu út. Vatnsborðið
var orðið um 10 sentímetrar. Parket-
gólfiö flaut upp og eyðhagðist. Einni
viku áður var líka brotist inn hérna.
Þá var pappírsgögnum dreift á gólfin
og hellt úr djúsbrúsum út um aht,“
sagði Ágúst.
-ÓTT
Jón Ólafsson:
Gaf ekki kost á mér
„Ég gaf ekki kost á mér sem stjóm- mun núna helga mínum eigin fyrir-
arformaöur. Ég var búinn að ákveða tækjum krafta mína en þar hafa
það fyrir löngu og undirbúa það vel. ýmis verkefni setið á hakanum
Ég hef helgað mig íslenska útvarps- vegna anna,“ segir Jón Ólafsson,
félaginu síðasthðin fimm ár frá því fyrmm sfiómarformaður íslenska
ég átti þátt í stofnun þess. Staða þess útvarpsfélagsins hf„ Bylgjunnar, en
er í góðu jafnvægi núna og því hepgi- hann lét af því starfi á aðalfundi fé-
legur tími til að draga sig í hlé. Ég lagsinsígær. ’-JGH