Alþýðublaðið - 31.03.1967, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 31.03.1967, Blaðsíða 7
 SVEIT HALLS VARÐ ISLANDSMEISTARI Reykjavík, Hdan. ÍSLANDSMÓTINU í sveitakeppni í bridge lauk sl. laugarda'gskvöld með sigri sveitar Halls Símonar- sonar í'rá Bridgefélagi Reykjavík- ur. Vann sveitin alla sína leiki og hafði unnið titilinn þegar ein umferð var eftir. Auk Halls voru í 'sveitinni Eggert Benonýsson, Sí- mín Símonarson, Þorgeir Sigurðs- son, Stefán Guðjohnsen og Þórir Sigurðsson. Auk íslandsmeistaratitilsins öðlast sveitin rétt til að keppa Jyr- ir hönd islands á Evrópumeistara- mótinu í bridge, sem haldið verð- ur í íriandi dagana 4.-16. sept í haust. Röð og stiig sveitanna voru sem hér segir: 1. Sveit Halls Símonarsonar Bridgefélag Reykjavíkur 65 st. 2. Sveit Benedikts Jóhannssonar Bridgefélag Reykjavíkur 56 st. 3. Sveit Agnars Jörgenssonar Bridgefélag Reykjavíkur 51 st. 4. Sveit Hannesar R. Jónssonar Bridgefélag Akraness 42 st. 5. Sveit Ólafs Guðmundssonar Bridgefélag Hafnarfj. 34 st. 6. Sveit Hjalta Elíassonar Bridgefélag Reykjavíkur 31 st. í fyrsta flokki var keppt í tveim riðlum og öðluðust tvær efstu sveitirnar.í hvorum riðli réttindi til þátttöku í meistaraflokki næsta ár. Úrslit urðu þau í A-riðli, að sveit Jóns Magnússonar frá Tafl- og Bridgeklúbbi Reykjavíkur varð efst með 53 stig, en í öðru sæti var sveit Gunnars Sigurjónssöriar frá Bridgefélagi Keflavíkur fneð 50 stig. í B-riðli sigraði sveit Steinbófs Ásgeirssonar frá Bridgefélagi R- víkur með 53 stig og önnur var sveit Jóns Stefánssonar frá Bridge deild Breiðfirðinga með 47 stig. Efstu sveitirnar munu spila til úrslita um 1. verðlaun í 1. flokki, en hinar um 3. verðlaun. BJÖRN ÞORSTEINSSON SKÁKMEISTARIÍSLÁNDS Reykjavík, Hdan. KEPPNI á Skákþingi íslands i landsliðsflokki lauk á annan páskadag með sigri Björns Þor- steinssonar og hlaut hann titil- inn Skákmeistari íslands nú í fyrsta skipti. Björn var vel að sigrinum kom inn og tapaði aðeins einni skák, gegn Arinbirni Guðmundssyni í síðustu umferðinni. Gunnar Gunnarsson fyrrver- andi skákmeistari íslands tap- aði einnig í síðustu umferðinni, gegn Ingvari Ásmundssyni og hafnaði því í 2.-4. sæti ásamt þeim Arinbirni Guðmur.Vssyni og Halldóri Jónssyni frá Ak-ur- eyri. Úrslit í landsliðsflokki urðu sem hér segir: Vinn.: 1. Björn Þorsteinsson 7VÖ 2. Arinbjörn Guðmundsson .7 3. Halldór Jónsson 7 4. Gunnar Gunnarsson 7 5. Ingvar Ásmundssori 'öVá 6. Bragi Kristjánssen 5V2. 7. Trausti Björnsson .5 8. Jónas Þorvaldsson 5 9. Haukúr Angantýsson ö 10. Gylfi Magnúss'on ■ 4Vá 11. Jón Þór “ 3Í4 12. Bragi Björnssón 3V^ í meistaraflokki sigraði Ingi- mar Halldórsson frá Ólafsvík með nokkrum yfirburðum og hlaut 7VS vinning af 9 möguleg- um. Að sögn tefldi Ingimar mjög vel í mótinu og var aldrei í tap- hættu. Hann hefur rétt til að tefla í landsliðsflokki naesta ár, ásamt þeim sem hreppir annað sætið, en um það munu tefla þrír skákmenn er hlutu 6 vinninga hver, þeir Jóhann Ö. Sigurðssón, Björn- Theodórsson og Bjarni Magnússon. í fyrsta flokki voru keppendur 8 og sigraði Steingrímur Stein- grímsson með 6 vinninga. í öðru sæti var Sigtryggur Sigurðsson með 4Vá vinnin'g. Flytjast þeir báðir upp í meistaraflokk næsta ár. I öðrum flokki voru 14 kepp- endur, sem tefldu 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Efstur var Jón St. Gunnlaugsson með 7 vinn inga og annar Sigurður A. Gunn arsson með 6V2 vinning. Keppni í unglingaflokki fór fram á Akranesi í umsjá Taflfé- lags Akraness dagana 19.-24. marz. Þátttakendur voru 12, þar af aðeins einn utanbæjarmaður, frá Akureyri. Úrslit urðu þau, að Unglinga- meistari varð Andrés Ólafsson frá Akranesi með 7 vinninga, en næst ir og jafnir með 6V2 vinning Stef- án Ólafsson frá Akureyri, Gunn- ar Magnússon og Leó Jóhannes- son, báðir frá Akranesi. Mótið tókst mjög vel, aðeins eitt skyggði á, það að ekki skyldu fleiri utan- bæjarkeppendur sjá sér fært að koma til Akraness. Því meiri heið ur ber þeim unga fulltrúa, sem brauzt alla leið frá Akureyri í of- viðrinu þessa daga. Hefði mátt ætla, að þeir sem styttra áttu að saékja, létu sjá sig, en sú varð ekki raunin. Keppendur í Unglingaflokki Skákþings íslands. Sigurvegarinn And- rés Ólafsson er þriðji frá vinstri j fremri ráð. (Mynd: 'H. Þ.) Trausti Björnsson hraðskákmeistari Reykjavík, Hdan. Ilraðskákmót íslands fór fram á annan í páskum og voru þátttak- endur 92 og tefldar 9 umferðir eft ir Monrad-kerfi. Sigurvégari varð Trausti Björns Son' ér hlaut 16 vinninga úr 18 skákum, sem er mjög góður árang ur; 1 öðru sæti var Friðrik Ólafs- sbn, hlaut 14 vinninga. Friðrik tapaði * báðum skákunum fýrir Trausta. í þriðja sæti var Lárus Jóhnsen með 13 vinninga. 6uðm. Þórðarson skákmeistari Kópavogs FYRSTA Skákþingi Kópavogs, er stóð yfir frá 12.-23. þ.m. er lokið. Tefit var í Gagnfræðaskólanum og voru þátttakendur alis 22, en þar af tefldu 12 í unglingaflokki. Skákmeistari Kópavogs 1967 varð Guðmundur Þój'ðarson er hlaut 7V2 vinning. í unglingaflokki urðu efstir og jafnir þeir Róberf Eyjólfsson og Helgi Sigurðsson með 8% vinn- ing hvor. Á þriðjudagskvöld fór fram hraðskákmót og sigraði Guðmund ur þar einnig, hlaut 20Í4 *vinn- ing af 21 mögulegum. Eins og fyrr segir var teflt i Gagnfræðaskólanum, þlar hefur raunar öll starfsemi félagsinb far- ið fram. Taflæfingar verða á mánudagskvöldum eins og ’áður. Taflfélag Kópavogs vill hét með færa skólastjóra hr. Oddi A.’ Sig- ■ urjónssyni innilegar * 1 2 3 4 5 6 þakkir • fyrir velvild í garð félagsins. ' Nokkru áður en Skákþinginu Framhald á bls. 10 Björn Þorsteinsson Ingimar Halldórsson 31. maú 1967 -- ALÞÝÐUBLA0IÐ %

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.