Dagur - 01.09.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 01.09.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 1. september 1992 164. tölublað LACOSTE Peysur • Bolir 8 IM HERRADEILD Gránutelagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Vegaframkvæmdir sitja á hakanum: Dregið verði úr hafnarframkvæmdum - sagði Halldór Blöndal á Fjórðungsþingi Norðlendinga á Hvammstanga „Við getum ekki horft upp á þá þróun að brýnar fram- kvæmdir sitji á hakanum vegna hafnarframkvæmda sveitarfélaga,“ sagði Halldór Blöndal samgönguráðherra á í Skagafirði Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur í Skagafirði aðfaranótt sunnu- dags. Að öðru leyti var umferðin tíðindalítil að sögn lögreglu á Sauðárkróki. Á laugardagskvöldið var haldinn dansleikur í Miðgarði og voru tveir ökumenn teknir fyrir ölvun við akstur. Að sögn lögreglu tengdist þó aðeins annað tilfellið dansleiknum. sþ Sauðárkrókur: Innbrotá tveimur stöðum Brotist var inn á tveimur stöðum á Sauðárkróki aðfaranótt sunnudags. Rúð- ur voru brotnar og ein hurð sprengd upp, en litlu stolið að sögn lögreglu. Ekki er vitað hverjir voru að verki. Brotist var inn í tvö fyrir- tæki í iðnaðarhverfinu á Sauð- árkróki. Annað var Króksverk hf. og hitt Vöruflutningar Magnúsar Svavarssonar. í báð- um tilfellum voru rúður brotn- ar og hjá Króksverki var hurð inn á lager sprengd upp. í hvorugu tilfellinu var miklu stolið, þó það sé enn ekki að fullu rannsakað. Ekki er vitað hverjir voru að verki. sþ Húnaþing: Tveir teknir fyrir ölvunarakstur Lögreglan á Blönduósi stöðvaði tvo ökumenn fyrir meinta ölvun við akstur um helgina. Að öðru leyti var helgin róleg í Húnaþingi og engin umferðaróhöpp að sögn lög- reglu. Dansleikur var á Blönduósi þar sem hljómsveit- in Síðan skein sól spilaði og fór hann mjög vel fram. Tveir voru teknir fyrir meintan ölv- unarakstur, en það tengdist þó ekki dansleiknum á Blöndu- ósi, heldur fjöri á Hvamms- tanga. sþ Fjórðungsþingi á Iaugardag og bætti við að draga yrði úr hafn- arframkvæmdum enda þótt sveitarstjórnarmenn leggðu meiri áherslu á þær en vega- framkvæmdir sem sætu á hak- anum. Sem landbúnaðarráðherra sagði Halldór Blöndal að íslensk- ir bændur hefðu fyrstir bænda á heimsmarkaðnum stígið skref í átt að afnámi útflutningsbóta. „Hagræðing í greininni verður á kostnað bænda,“ sagði Halldór Blöndal og benti á að þeir einir gætu staðið undir henni sem hefðu styrka stöðu. Landbúnaðarráðherra sagði bændur standa frammi fyrir 15- 20% samdrætti í kjölfar afnáms útflutningsbóta jafnvel þótt þeir segðust ekki standa undir slíku. Að sögn Halldórs Blöndal er ekki aðeins verið að fjárfesta í atvinnuleysi þegar framleiðslu- réttur bænda er keyptur upp heldur er verið að koma í veg fyr- ir að hann gangi kaupum og sölum. Ráðherra sagði að til- gangurinn væri að þeir sem brygðu búi fengju eitthvað fyrir sinn snúð og að tryggja rekstur hinna sem eftir yrðu. Davíð Oddsson forsætisráð- herra hélt einnig framsögu á Fjórðungsþingi og sagði m.a. að mikil andstaða væri á þingi við flutning Byggðastofnunar út á land, eins og hann orðaði það: „Byggðastofnun myndi missa marga af sínum hæfustu starfs- mönnum ef hún yrði flutt til Akureyrar." Nánar verður sagt frá framsögu Davíðs Oddssonar á bls. 4 í Degi í dag. GT Óeining um staðarval á Norðurlandi vestra leiddi til leynilegra kosninga. Hér tekur við kjörseðli fundarritari, Bjarni Þór Einarsson sem er sveitarstjóri á Hvammstanga - hann hreppti hnossið. Mynd: gt Ný landshlutasamtök sveitarfélaga: Einar og Bjöm fyrstu formenn Formenn undirbúningsnefnda að stofnun nýrra landshluta- samtaka sveitarfélaga uröu báðir formenn stjórna samtak- anna sem stofnuð voru á föstu- dag áður en síðasta Fjórð- ungsþing Norðlendinga var sett. Formaður Eyþings - Sam- bands sveitarfélaga í Eyjafirði og í Þingeyjarsýslum - var kjörinn Einar Njálsson, bæjar- stjóri á Húsavík. Björn Sigur- björnsson á Sauðárkróki var kjörinn formaður Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra en þeim var valinn ann- ar staður og óvæntur - fundar- staðurinn, Hvammstangi. Lítil starfsemi mun þó fylgja staðsetningu SSNV á Hvamms- tanga fyrst um sinn þvf ákveðið var að fresta ákvörðun um ráðn- ingu framkvæmdastjóra. Auk Björns Sigurbjörnssonar eru í stjórn SSNV Sigfríður Angantýs- dóttir, Skagafirði, Björn Valdi- marsson, Siglufirði, Magnús B. Jónsson, Skagaströnd, og Bjarni Þór Einarsson, Hvammstanga. Guðný Sverrisdóttir, sveitar- stjóri Grýtubakkahrepps, mælti fyrir tillögu kjörnefndar að stjórn Eyþings og var hún samþykkt einróma. Auk Einars Njálssonar eru í stjórn eftirtaldir fjórir aðal- menn: Halldór Jónsson, Akur- eyri, Jóhannes Sigfússon, Sval- barðshreppi, Jónína Óskarsdótt- ir, Ólafsfirði, og Úlfhildur Rögn- valdsdóttir, Akureyri. Á bls. 4 í Degi í dag er rætt við Vandræði með að manna göngur í Öxnadal: Bjóða fólkí „gangnapakka “ - vantar fólk í göngur 11. september og boðið upp á gistingu og fæði Þorsteinn Rútsson, tjallskila- stjóri í Öxnadal, segir að vegna fækkunar á sauðfé í hreppnum undanfarin ár horfi til vand- ræða með að manna göngur í Þorsteinn sagði að erfiðleikar við að manna göngur í Öxnadal væru síður en svo einsdæmi. „Þetta er byrjunin á stóru vanda- haust. Því hefur verið brugðið á það ráð að bjóða áhugasömu útivistarfólki í göngur á svæð- inu í kringum Bakkasel föstu- daginn 11. september nk. og í tengslum við þær býður sveit- arfélagið gangnafólkinu upp á fæði og gistingu á ferðaþjón- ustubænum Engimýri í Oxna- dal. „Það er orðið svo fátt fé hérna að við náum ekki að manna í göngur með álagningu dags- verka,“ sagði Þorsteinn. Til marks um fækkun á sauðfé í hreppnum á undanförnum árum sagði hann að hér á árum áður hafi verið miðað við 20 kindur í einu dagsverki en nú væru 13 kindur í einu dagsverki og ekki væri forsvaranlegt að fara neðar. Dagsverkið er verðlagt á 3800 krónur í Öxnadal á þessu hausti. máli víða um Iand,“ steinn. sagði Þor- Hann sagði að föstudaginn 11. september vantaði níu gangna- menn á svæðið í kringum Bakka- sel, en þegar allt er talið þarf Öxnadalshreppur að kaupa 17-18 dagsverk í haust. óþh Verðlagsnefnd búvara: Obreytt verð á mjólk Verðlagsnefnd búvara ákvað í gær að verð á mjólk til fram- leiðenda yrði óbreytt til 1. des- ember nk., 52,58 krónur pr. lítra. Samkvæmt því verður óbreytt verð á mjólkurvörum til neytenda. Á fundi sínum í gær ákvað Verðlagsnefnd búvara hins vegar ekki nýtt grundvallarverð á dilka- og nautakjöti. Hún kemur aftur saman til fundar nk. föstudag og þá er kjötið á dagskrá. Nýtt grundvallarverð skal ákveðið fyr- ir 15. september. óþh Björn Sigurbjörnsson, nýjan formann Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, en á morg- un birtist viðtal við Einar Njálsson, formann Eyþings - Sambands sveitarfélaga í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum. GT Akureyri: Ryskingar, árekstrar og rúðubrot Töluverð ölvun var á Akureyri um helgina og urðu nokkrar ryskingar við Sjallann. Einnig féll maður niður stiga, tveir árekstrar urðu og rúður voru brotnar í miðbæ Akureyrar á sunnudagskvöld. Snemma á laugardagskvöld féll maður í stiga á Hótel Hörpu og var hann fluttur á slysadeild. Maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður en hlaut þó nokkra áverka á höfði. Aðfaranótt laugardags var lög- reglan kölluð að Sjallanum á Akureyri vegna ryskinga sem þar urðu. Ekki er vitað til að menn hafi meiðst í þeim átökum en föt munu hafa rifnað. Þá var einnig sparkað í lögreglumann við Sjallann. Tveir árekstrar urðu á laugar- dag. Sá fyrri varð á mótum Ham- arstígs og Löngumýrar. Báðir bílarnir eru taldir óökufærir og var ein manneskja flutt á FSA til rannsóknar. Meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg. Síðara óhapp- ið var aftanákeyrsla á Hörgár- braut við Glerárbrú. Bílarnir munu hafa skemmst nokkuð mik- ið en ekki er vitað um meiðsl á fólki. Á sunnudagskvöld voru tvær rúður brotnar í miðbænum, önn- ur í Bókabúð Jónasar en hin á hárgreiðslustofu í Geislagötu. Rúðubrjótarnir náðust fljótlega með hjálp sjónarvotta. KR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.