Þjóðviljinn - 19.11.1940, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.11.1940, Blaðsíða 1
FUNDUR FLOKKSÞINGSINS í kvöld hefst kl. 8% í Baðstofu iðnaðarmanna, Flokksmenn velkomnir meðan húsrúm leyf ir. Hafið með ykkur skírteini. 5. árgangur. Þriðjudagur 19. nóv. 1940. 264, tölublað. Steínþór Guðmundsson kosínn forsetí þíngsíns. — I kvöld flytur Brynjólfur Bjarnason skýrslu míðstjórnarínnar Annað þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista- fiokksins var sett s.l. sunnudagskvöld í Baðstofu iðnaðar- manna. Einar Olgeirsson, formaður flokksins bauð fulltrúa og gesti velkomna. Risu menn úr sætum sínum og sungu Alþjóðasöng verkamanna. Kjörbx-éfanefnd athugaði kjörbréf fulltrúanna, en að því búnu hófust þingstörf með kosning- um á starfsmönnum þingsins og nefndum. Forseti' þingsins var kosinn Steinþór Guðmundsson kenn- ari, en varaforsetar Einar Ol- geirsson og Áki Jakobsson, bæjarstjóri á Siglufiri. Ritarar þingsins voru kosn- ir Gunnar Benediktsson, Arn- finnur Jónsson, Steingrímur Aöalsteinsson og Dýrleif Árna- dóttir. Þá var gengið til kosninga í nefndir þingsins og fóru þær þannig: Stjórnmálanefnd: Áki Jakobs son, Brynjólfur Bjarnason, Eggert Þorbjarnarson, Jóhann Kúld, Steinþór Guömundsson. Verkalýðsmálanefnd: Ed- varö Sigurösson, Hallgrímur Hallgrímsson, Jón Rafnsson, Kristinn Sigurösson, Sigurður Guðnason, Tryggvi Helgason og Þóroddur Guömundsson. Kosninganefnd: Arnfinnur Jónsson, Einar Olgeirsson, Gunnar Benediktsson, Gunnar Jóhannsson oð Sigfús Sigur- hjartarson. Blaða- og útgáfunefnd: Ein - ar Olgeirsson, Kristinn E. And résson og Steingrímur Aöal- steinsson. Fulltfiiar Alþýduflokksfélaganna hvcría af þín$í verklýðsfélaganna Fullfrúar verklýðsfélagafina verða að láfa fara fram nýjar kosnin$ar í ollum verklýðsfélögum innan sam~ bandsíns og kalla saman þíng síðar í vefur Brynjólfur Bjarnason í gær fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla á Alþýðusam- bandsþinginu um hin nýju lög Alþýðusambandsins og voru lögin samþykkt með 5406 atkvæðum gegn 896, 97 sátu hjá og 1507 voru fjarverandi. í dag kl. IVz halda þingfundir áfram, og verða þar að- eins mættir fulltrúar frá verkalýðsfélögum. Á þeim fundi hlýtur aðalumræðuefnið að vera, nýjar þingkosningar til Alþýðusambandsþings og þinghald síðar í vetur, þannig að stjórn sambandsins verði skipuð í fullu samræmi við þann grundvöll, sem Alþýðusambandið er komió á. Það er mikiö gleðiefni að skipulag Alþýöusambandsins er nú komið í það horf aö öll íslenzk verklýösfélög ættu að geta sameinazt innan þess, og eiga fulltrúar þeir sem þingið sátu þakkir skilið fyrir aö hafa leyst þessi mál með þeim hætti sem orðiö er, en engum Hltler rædir uið Clano greifa og I Bændanefnd: Grímur Norð- dal, Sigurður Einarsson, Brynj ólfur Bjamason og Gunnar Benediktsson. Samþykkt var að fresta þing fimdum þar til í kvöld, þriðju- dag, vegna þess að fulltrúun- um af Norðurlandi hafði seink aö, en þeir eru flestir með Esju. í kvöld hefst fundurinn með því að Brynjólfur Bjarnason, formaður miöstjómar og flokksstjórnar, flytur skýrslu um störfin á þeim tíma sem liðinn er frá stofnþinginu og verður ræða hans jafnframt grundvöllur umræðna um hlut verk flokksins og starf á næstu árum. Þýðingarmiklar breyfíngar á sfjórn breeka hersíns Ciano greifi, utanríkisráðherra ítala, og Suner, utanrík- isráðherra Francostjórnarinnar ræddu við Hitler í Berchtés- gaden í gær. Viöstaddir fimd þeirra voru von Ribbentrop, utanríkisráðherra Þýzkalands og von Keitel, forseti þýzka herforingjaráðsins. Síðar um daginn ræddi Hitler við þá Ciano greifa og von Ribbentrop eina, Ekkert hefur verið látið uppi um viðræður þessar, en talið víst að þær standi í sambandi við áætlanir um hern- aðaraðgerðir á næstunni. Það vekur athygli að Suner ræddi við Laval á leið sinni til Þýzkalands, og er gert ráð fyrir að rætt hafi verið í Berchtesgaten m. a. um nýlepdukröfur Spánverja í Norður-Afríku í sambandi við það ef Spánn færi í styrjöldina með Möndulveldunum. Antonescu, forsætisráðherra Rúmeníu, kom heim til Búk arest í gær úr ítalíuför sinni. Breyiingarnar á bresku hersijórnínní Mikilvægar breytingar er veriö aö gera á yfirstjórn brezka hersins, og er sú þyð- ingarmest, að komiö verðuv á náinni samvinnu landhers og flughers. Hefur verið ákveðið ao viss hluti flughersins yrði jafnan reiðubúinn til aðstoöar landhernum, og hefur sir Arthur Garrett marskálkur verið skipaður herforingi yfir þessum hluta flugliersins, og á hann að hafa aö herforingja- ráði foringja bæði úr flugliði Frh. á 4. síðu ætti aö vera betur ljóst en ein- mitt þeim, að öll verklýðsfélög, sem nú eru 1 Alþýðusamband- inu, sem og þau félög, sem ganga munu inn í þaö næstu vikurnar, hljóta að krefjast þess að kosningar fari nú fram í öllum félögum, og að hinir nýkjörnu fulltrúar komi sam- an til þings síðar í vetur og verði þá kosin stjórn fyrir sam bandið, en bráðabirgðastjóm fari með völd til þess tíma. Það er augljóst, að kjósi þeir fulltrúar sem kosnir hafa ver- ið samkvæmt hinum gömlu einræðislögum Alþýðusam- bandsins, veröur það til þess eins, að gefa þeim öflum, sem ekki eru holl einingu verkalýðs ins tækifæri til þess, aö tefja fyrir því enn um stund að öll íslenzk verklýðsfélög samein- ist í einu sambandi. Enginn þarf að efa að þessi öfl eru til og þau munu láta á sér bæra, en hitt viröist ljóst, að þeir fulltrúar verklýðsfélaganna sem nú sitja á þingi þessu, vilji af heilum hug vinna að fullkominni einingu verkalýðs- ins, en þeir ættu að gera sér Ijóst, að þeir taka með annarri hendi það sem þeir gefa með hinni, ef þeir tryggja ekki að stjórnin verði kosin í samræmi við hinn nýja grundvöll. Ekki má heldur gleyma því að þeir menn, sem semja við stjórn Alþýðuflokksins um fjár hagslegan aðskilnað flokksins og Alþýöusambandsins verða að vera kosnir af fulltrúum allra sambandsfélaga, og á full um lýðræðisgrundvelli. Þegar athuguð er afstaða blaðanna tU þessara mála. kemur í ljós, að ritstjóri Vísis þurfti að lesa Þjóöviljann í 4—5 daga til að sannfærast um aö hér hefði verið stigið spor í rétta átt. En Alþýðublað ið skrifaði leiðara í gær um skipulagsmál verklýðshreyfing arinnar sem má heita berg- mál af skrifum Þjóðviljans um þau mál þetta síðasta ár. Eng- um er alls varnað. BnMr Idru etkl úr IkíauDum 15. íslcnzkar fjölskyldur hafa ekki þak yfir höf- uðid en brezkír liðsfor- íngjar o$ íslenskír bur- geisar gína yfír íbúðum sem naegðu fil að baefa úr húsnaeðísleysinu Því var lofað af stjórnarvöld unum í haust, þegar húsnæðis vandræðin komu ómótmælan- lega í ljós, að brezka setuliðið skyldi 15. nóv. flytja út úr þeirn íbúðum, sem það hefði. Þessu var hátíðlega yfirlýst sem samningi milli þjóðstjórnar- innar og biezku herstjórnai- innar. Nú er 15. nóv. kominn og lið inn og brezka setuliðið situr kyrrt í íbúðum þeim, sem það hefur tekið. Það munu vera um 70 ibúð- ir alls, 20 heil hús og svo íbúð- ir í ýmsum húsum, sem Bretax hafa. En 40 fjölskyldur að minnsta kosti eru húsnæðis- lausar enn. Þess eru jafnvel dæmi, aö hjón með tvö böm verði aft hafast við á götunni að mikiu leyti á daginn og fái af náft að liggja í íbúðum hinna og þessara kunningja sinna á nóttunni. “Yamhaid k 4. aíðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.