Þjóðviljinn - 02.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.03.1977, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN Miðvikudagur 2. mars 1977 — 42. árg. —50. tbl. Stórlega sér á trjám á BrúsastöOum hjá Reyni Guðmundssyni Mengun frá álverinu?: Hestar fúlsa viö heyi Reynir Guðmundsson sem býr á Brúsastööum skammt utan Hafnarfjarðar hefur tvo hesta á fóðrum. Við hittum hann að máli þar sem hann vinnur i áhaldahúsi Hafnar- fjarðar. Hann sagði að nú i vetur heföi brugðiö svo við að hestarnir skildu heima- hey og hey ofan úr Kollafirði að þegar þeim væri gefið það i bland og vildu ekki éta heimaheyiö. Hér er einhver andskotinn að og ég hef lúmskan grun um að mengun frá álverinu eigi einhvern þátt i þessu, sagði Reynir. Hestarnir eru uppaldir á Brúsastöðum og hefur alla tið likað vel hinn fjölbreytti túngróður úr hrauninu og verið gráðugir i hann. Reynir tók fram aö heyið úr Kollafirði og frá Brúsastöð- um væri nákvæmlega eins verkað en það lægi i lögum i hlöðunni og hann vissi ná- kvæmlega hvað hvort væri. Reynirsagði ennfremur að það sæi stórlega á trjám hjá sér. Birkitré hafa nú verið blaðlaus sjávar- og álvers- megin i 3-4 ár en á þessum tima hefur sjór ekki gengið yfir landið. Reynir hefur bú- ið í 20 ár á Brúsastöðum og tengdafólk hans miklu leng- ur. Reynir sagði að lokum að álverið væri staðreynd og margir heföu vinnu af þvi og þvi færi best á að ekki stæði mikill styrr um það. En ef ekki yrðu sett upp hreinsi- tæki á allranæstu árum þá yrðifarið að deila fast um ál- verið i Hafnarfirði. —GFr Sjá baksíðu SVR: Fargjöld hækka enn t dag veröur mikil hækkun á fargjöldum með Strætisvögnum Reykjavikur. Einstök fargjöld fulloröinna hækka um 10 kr. og kostar farmiði nú kr. 60 f stað 50 áður. Farmiöi fyrir barn kostar nú kr. 20 i stað kr. 18 áður. Meðaltalshækkunin er um 23 af hundraði. Tilfinnanlegasta hækkunin er samt á farmiðaspjöldum fyéir aldraöa og öryrkja. Þeir fengu áöur 58 miða fyrir kr. 1.000, en fá nú aðeins 44 miða. Farmiöaspjöld fyrir fullorðna á 1000 kr. eru nú meö 19 miðum i stað 21 áður, og farmiðaspjöld fyrir kr. 2000 með 44 miöum i stað 58. Farmiöaspjöld fyrir börn með 40 miðum kosta á dag kr. 600 i stað kr. 500 áður. Hollustuhættir í Straumsvík á þingi: ENGAR EFNDIR í STÆRSTU MÁLUM þeir eru „ við- ræðugóðir segir í skýrslu heilbrigðis- eftirlitsins Þetta er skýrsla um argasta hneyksli, — sagði Jónas Arnason á Alþingi I gær, þegar Matthias Bjarnason heilbrigöisráðherra haföi flutt mönnum skýrslu heil- brigöiseftirlits rikisins um holl- ustuhætti I álverinu í Straumsvfk. 1 skýrslunni kemur m.a. fram að þegar er farið að bera ailmjög á atvinnusjúkdómum af völdum mengunar á vinnustaðnum og minnt er á aö i könnun, sem fram fór fyrir þremur árum kom i ljós að 83% þeirra starfsmanna sem athugaðir voru höfðu skerta heyrn, en fjórði hver maöur hafði orðiö fyrir verulegu heyrnartapi. 1 skýrslunni kemur fram, að það er fyrst um áramótin 1971 og 1972, að islensk heilbrigðisyfir- völd fara fyrst að blanda sér i ástand mála á þessum vinnustað en þá var vinstri stjórnin nýtekin við völdum og Magnús Kjartans- son tekinn við heilbrigðismálun- um. Um samskiptin við forráða- menn verksmiðjunnar segir i skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins: ,,að þeir hafi i flestum tilvikum verið viðræðugóðir, en efndir framkvæmda verið misjafnar. Þó hefur I flestum tilvikum verið ráðin bót á hlutum, nema stóru eða alvariegustu mengunarmál- unum, bæði innandyra og utan. Þar hafa efndir verið engar.” Sjá síðu 6 i gærkvöldi stýrði Spassky svörtu mönnun- um sínum i sókn gegn hvítliðum Horts og tók oft töluverða áhættu. Mörg- um þótti sýnt að sá sovéski hefði komið sér í slæma klípu< en þegar skákin fór í bið hafði hann frípeð sem vóg upp á móti sterku biskupapari Horts. Staðan er fremur jafntef lisleg. Mynd: —gsp SJA 10. SIÐU Sovétmenn leyfa japönum veiöar MOSKVU 28/2 Reuter — Sovét- rikin tilkynntu Japan f dag, að japönsk fiskiskip fengju enn um sinn að veiöa eins og áður innan hinnar nýju 200 milna fiskveiði- lögsögu Sovétrikjanna á Kyrra- hafi og Norður-lshafi, en sú út- færsia gcngur i gildi nú um mánaðamótin. Gildir þessi ráðstöfun að sögn meðan yfir standa samningavið- ræður sovétmanna og japana um fiskveiöiréttindi, sem nú eru hafnar. Aö öðru leyti hafa sovésk stjórnarvöld tilkynnt, að erlend riki megi þvi aðeins stunda veiðar innan hinnar nýju fiskveiðilög- sögu aö þau hafi gert samning um veiðarnar við Sovétrikin. Bandaríska 200 mílna lögsagan tekur gíldi WASHINGTON 1/3 Reuter — Hin nýja 200 milna fiskveiðilögsaga Bandarikjanna, gekk i gildi á miðnætti s.l., en Bandarikjaþing samþykkti útfærsluna siðastliðið ár, eftir að mistókst á hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna að ná samkomulagi um alþjóölega útfærslu i 200milur. Innan hinnar nýju fiskveiðilögsögu eru sum auðugustu fiskimið Bandarikj- anna, sem til þessa hafa verið mjög sótt af erlendum skipum. Samkvæmt útfærslulögunum má leyfa erlendum fiskiskipum Kúba lýsir sig fúsa til samninga að veiða innan lögsögunnar, ef talið er að einhverjir fiskistofnar séu svo sterkir, aö þeir þoli meiri sókn en frá bandarikjamönnum einum. Veiöar útlendinga á nokkrum tegundum, þar á meðal þorski og ýsu Kyrrahafsmegin og rækju Atlantshafsmegin, eru þó algerlega bannaðar. Bandarikin hafa þegar gert samning um fiskveiðiréttindi inn- an 200 milna lögsögu sinnar við Japan, Sovétrikin og Efnahags- bandalag Evrópu. Kúba, sem lýsti yfir 200 milna fiskveiðilög- sögu i gær, hefur þegar lýst sig fúsa til aö ræöa við Bandarikin um hafsvæði, sem bæði rikin gera tilkall til. Miðsvetrarfundur SÍRs Verðum mjög orkufrek 1980-2000 Þurfum 3 Hrauneyjarfossvirkjanir til eigin nota fram til ársins 2000 Fullkomin orkudreifing kostar 30 miljarða SIÁ SÍÐU 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.