Þjóðviljinn - 02.10.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.10.1985, Blaðsíða 1
Ráðherraefnin orðin óþolinmóð. Ríkisstjórnarskjálfti Þeir em í stólastríði Sjálfstœðisflokkurinn að gefast upp á stjórnarsamstarfinu. Bregða á gamalkunnugt ráð: Ráðherrastól handa Þorsteini, -en líka Friðrik og jafnvel Ólafi G. Einarssyni. Marrar undir Albert og Matthíösum Eg tek því ekki með þegjandi þökkum að menn rísi upp með andfælum 10 dögum eftir að búið er að lemja saman efnahagsáætl- un og segi að flokkurinn minn vilji ekkert af henni vita,“ sagði Sverrir Hermannsson iðn- aðarráðherra í samtali við Þjóðviljann í gær af því tilefni að miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í Stykkis- hólmi um helgina að taka upp fjárlagafrum- varpið að nýju eftir að hafa náð samkomulagi um frumvarpið fyrir hálfum mánuði. „Eg auðvitað hlýt að hrökkva upp með andfælum og það var það sem ég sagði vð þá,“ sagði iðnaðarráðherra. í Stykkishólmi var gerð hörð hríð að efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar og fljótlega eftir að efnislegar umræður hófust um málið tók að bera á umræðu um nauðsyn á að skipta um ráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn í ríkis- stjórninni. Gerð var hörð hríð að ýmsum ráð- herrum sérstaklega Albert Guðmundssyni, en heimildir Þjóðviljans í Sjálfstæðisflokkn- um sögðu að nú vildu menn annaðhvort mikl- ar breytingar á ríkisstjórninni eða stjórnar- slit. Auk Alberts eru þeir Matthíasar, Bjarnason og Á. Mathiesen oftast nefndir til afsagnar. Þeir sem helst eru nefndir til arf- töku eru þeir Þorsteinn Pálsson, Friðrik Sop- husson og Ólafur G. Einarsson. Birgir Isleifur Gunnarsson hafði orð fyrir óánægjuhópnum í Stykkishólmi, en hug- myndafræðilega forgöngu um ófarirnar í efnahagsmálum hafði Vilhjálmur Egilsson formaður SUS og hagfræðingur Vinnuveit- endasambandsins. „Það er alvarleg óánægja með efnahags- stefnu fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinn- ar allrar. Þessi óánægja er meðal atvinnurek- enda og hún er almennt í flokknum. Það er því ekki nema eðlilegt að sjóði uppúr fyrst í kringum Albert,“ sagði áhrifamaður í flokknum í samtali við Þjóðviljann í gær. Sami maður kvaðst óttast að niðurstaðan yrði einungis sú, að Þorsteinn Pálsson færi einn inní stjórnina en flestir teldu þá verr af stað farið en heima setið. „Við viljum kosningar því byrinn sem við höfum í skoðanakönnun- um gefur okkur einnig tækifæri sem við verð- um að nýta,“ sagði þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í samtali við Þjóðviljann í gær. Þegar Þjóðviljinn bar hugsanlegar manna- breytingar á ríkisstjórninni undir Sverri Her- mannsson iðnaðarráðherra sagði hann: „Það var sagt um DeGaulle, að ráðherrar hans hefðu aðallega lesið það í blöðum hvenær þeir hættu. Ég hef svolítið gaman af svoleiðis vinnubrögðum en ég skal engu spá um hvort þetta verður þannig. En ég held að það mætti gjarnan vera svo að menn færu að taka hressi- lega á.“ Ákveðið hefur verið að forysta Sjálfstæðis- flokksins ræði við Steingrím Hermannsson formann Framsóknarflokksins um endur- skoðun fjárlagafrumvarpsins sem þeir sam- þykktu á dögunum, en mannabreytingarnar verða teknar til umfjöllunar á þingflokks- fundi Sjálfstæðisflokksins nk. mánudag. lg/óg Sjá leiðara bls. 4. MENNING IANDID Alverið Engar athuganir á loftmengun Loftmengun frá kerskálum hefur ekki verið mœld síðan 1983. Ólafur Pétursson Hollustuvernd: Höfum ekki haft mannskap til að annast þetta Mælingar á loftmengun frá ál- verinu í Straumsvík hafa ekki verið gerðar síðan árið 1983, en við höfum áhuga á að taka þær upp að nýju og ég held mér sé óhætt að segja að við eigum möguleika á því að gera það, þar sem okkur hefur nú bæst nýr starfsmaður í hópinn, sagði Ólafur Pétursson forstöðumaður mengungarvarna Hollustuvernd- ar ríkisins í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Þegar ákveðið var á sínum tíma að settur skyldi upp hreinsibún- aður í kerskála álversins, var jafnframt kveðið á um að reglu- lega skyldi mælt hversu mikið magn eiturefna kemst framhjá hreinsibúnaði og í gegnum hann. Eins og áður segir hafa slíkar mælingar ekki farið fram síðan árið 1983, og er skýringin að sögn Ólafs sú, að Hollustuvernd hefur ekki haft mannafla til að annast þetta. En nú er áhugi fyrir því innan stofnunarinnar að taka upp þráðinn að nýju. Ólafur Péturs- son var nýlega á fundi með heilbrigðisráði Hafnarfjarðar þar sem þetta mál var rætt og kom þar fram skýr vilji manna innan ráðsins um að þessar mælingar verði teknar upp. Hrafn Jónsson formaður heilbrigðisráðs sagði í samtali við blaðið í gær, að ráðið myndi væntanlega ýta á eftir því í heilbrigðisráðuneytinu að það beitti sér fyrir því að hefja þessar mælingar sem fyrst. „Það er töluvert magn sem sleppur framhjá hreinsibúnaðin- um. Það sem menn hafa mestar áhyggjur af eru flúorsambönd, sem eru mjög skaðleg gróðri. Ég er á þeirri skoðun að það þurfi að framkvæma þessar mælingar reglulega ef út í það verður farið, en það hefur engin ákvörðun ver- ið tekin um hvort eða hvernig þetta verður gert,“ sagði Ólafur Pétursson. gg Beinagrindur úr Alsírstríðinu Algeirsborg - Byggingarverka- menn sem voru að störfum 350 km suður af Algeirsborg, á slóð- um þar sem áður var bækistöð frönsku útlendingaherdeildar- innar, komu niður á 67 beina- grindur sem taldar eru vera frá því í Alsírstríðinu en því lauk árið 1962. íbúar á staðnum töldu fullvíst að beinin væru jarðneskar leifar liðsmanna þjóðfreisissveitanna sem franski herinn hafði hand- tekið. Flest beinin báru merki bruna og umhverfis staðinn sem þau fundust á lágu skothylki og byssukúlur á víð og dreif. Beina- grindurnar fundust innan um sorp sem hafði verið brennt til ösku. -ÞH/reuter Einvígi Heimsmeistari lagður í 25 leikjum Spennan magnast í Moskvu þar sem meistarinn og áskorandinn eru nú jafnir Kasparov vann Karpov í stystu vinnings- skák sem tefld hefur verið í heimsmeistar- aeinvígi íýrr og síðar. Eftir aðeins 25 leiki kaus heimsmeistarinn að leggja niður vopnin. Karpov tefldi Nimzoindverska vörn í þriðja skiptið í einvíginu þrátt fyrir að hafa tapað með þeirri vörn í fyrstu skákinni og verið hætt kominn í þeirri sjöundu. Kasparov tók snemma á sig stakt peð á d4 en fékk færi í staðinn. í 23. leik kom síðan óvænt en mögnuð drottningarfórn sem leiddi til þess að Karpov gafst upp tveimur leikjum síðar. Þessi vinningur er mikill sigur fyrir áskor- andann því auk þess að hafa náð Karpov að vinningum þá má búast við því að Karpov verði lengi að jafna sig eftir svo háðulegt tap. Sjá nánar skákskýringar á bls. 3.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.