Dagblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 24
Fæöingarortof skert til muna — ef makihefur 1430 þiísund á ári fellur þaðniður Það þótti stór áfangi í réttindabaráttu kvenna þegar lög voru samþykkt á Alþingi þess efnis að allar konur skyldu njóta fæðingarorlofs í þrjá mánuði. Nú hefur það gerzt að þessi réttindi hafa verið skert mjög. Konur sem eiga maka sem hafa 1430 þúsund í árs- tekjur fá ekkert orlof. Þetta tekjumark er svo lágt að fjölskyldur gera vart meira en að draga fram lífið á þessari upphæð. Frá því í ársbyrjun 1976 hefur konum verið greitt fæðingarorlof án þess að tillit sé tekið til tekna maka. Þegar reglugerð var samin um þetta mál varð úr að orlofið yrði greitt úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði. Um hann gilda ákveðin lög sem á nú að framfylgja út í yztu æsar. Þar segir m.a. að miða skuli greiðslur úr sjóðnum'við tekjur maka og skiptir þá ekki máli hvort hjóna aflar þeirra. Þann 12. janúar sl. var samþykkt af sjóðsstjórn að þetta ákvæði skyldi einnig ná til greiðslu fæðingarorlofs úr sjóðnum. í stjórn sjóðsins eru: Axel Jóns- son alþingismaður, Björn Jóns- son forseti ASI, Kristján Rangarsson formaður LÍU og Eðvarð Sigurðsson alþingis- maður. Einnig eru í stjórninni Pétur Sigurðsson alþingis- maður og Hermann Guðmunds- son formaður Hlífar í Hafnar- firði, en þeir voru ekki á þess- um fundi. -KP. Þórunn Valdimarsdóttir: Hróplegt óréttlæti. „Hróplegt óréttlæti” — segirÞórunn Valdimarsdóttir um skert fæðíngaroríoT Vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á greiðslum fæðingar- oriofs snerum við okkur til Þórunnar Valdimarsdóttur, for- manns Verkakvennafélagsins Framsóknar. Hún átti sæti í nefnd þeirri sem var skipuð til þess að semja reglugerð um fæðingarorlof. Einnig voru í þeirri nefnd Ragnhildur Helga- dóttir alþingismaður, Eyjólfur Jónsson lögfræðingur og Jón Ingi- marsson skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. „Það var alls ekki meiningin að lögin yrðu túlkuð á þennan hátt,“ sagði Þórunn. „Þegar þetta var rætt við samningu reglu- gerðarinnar voru allir með það i huga að allar konur fengju þetta, eins og reyndar hefur verið reyndin sl. ár. Frá mannlegu sjónarmiði er þetta hróplegt Þarf laga- breytingu ef á að leið- rétta þetta — segir Bjom Jonsson Ekki skíðaveður „Mér sýnist horfa illa með skíðaveðrið fyrir Sunn- lendinga um þessa helgi,“ sagði Páll Bergþórsson í gær. „Það er landsynningur í aðsigi með regnsvæði og 5-6 vindstigum. Þetta veður gæti staðið fram á sunnudag." Páll sagði að betra útlit væri með skíðafæri norðan- lands og vestan. Reyndar var veður á Vestfjörðum slæmt í gær og snjókoma á Norðurlandi en horfur voru á að það batnaði verulega. -AT- Björn Jónsson: Þaö verður aö breyta lögunum ef leiörétting á að fást. óréttlæti. Þetta nær til allra kvenna innan ASl en konur hjá ríki og borg fá sitt kaup óskert í þrjá mánuði,“ sagði Þórunn enn- fremur. Hún sagði að það væri naumast annað hægt en að mótmæla þessu. Raunar væri bezt að hafa or- lofsgreiðslur innan trygginga- kerfisins, en til þess þarf að breyta lögunum „Þetta er mikið leiðindamál og kom mjög flatt upp á okkur,“ sagði Þórunn. Dagblaðið sneri sér til Björns Jónssonar forseta ASÍ en hann á sæti í stjórn Atvinnuleysis- tryggingasjóðs. „Lögin eru ósanngjörn eins og þau eru en til þess að breyta þeim þarf Alþingi að láta málið til sín taka. Mér finnst að þetta eigi að vera laun en ekki atvinnuleysis- bætur, eins og það er núna. At- vinnuleysistryggingasjóður starfar samkvæmt lögum, sem verður að sjálfsögðu að fylgja. Það þarf breytingar á lögum um starfsemi sjóðsins, annars telur sjóðstjórnin að hún sé að taka fé ófrjálsri hendi,“ sagði Björn. -KP. Ferskt loft í dagsins önn Það er engu líkara en hundurinn ráðl ríkjum á skrifstofu þessari, rólegur og yfirvegaður hefur hann rölt út í dyr til að fá sér ferskt loft í önnum dagsins, gargandi símum, óleystum verkefnum og öðru þvargi. Svo er þó ekki, þvi skrifstofuna á Þóróur á Sæbóli, biómasali með meiru, svo hundurinn er ekki nema í mesta lagi til aðstoðar þar. DB-mynd Hörður. Leíkið um þriðja sætið viðTékka ídag: Ungu strákamir leika þá í nslenzka liðinu! þeir sem ekki hafa fengið tækifæri áður í B-keppninni Frá Halli Hallssyni, Linz. — Það fá allir tækifæri. Þvi munu þeir Kristján Sigmunds- son, Þorbergur Aðalsteinsson og Bjarni Guðmundsson leika með ísler.zka landsliðinu í leiknum við Tékka um 3.-4. sæt- ið í dag — og Viggó Sigurðsson verður í liðinu, sagði Birgir Björnsson, formaður landsliðs- nefndar, þegar ég ræddi við hann um skipun islenzka liðs- ins gegn Tékkum. Þeir Ölafur H. Jónsson og Axel Axelsson fóru til Þýzkalands í gærmorgun og það verða því aðeins tveir ísl. leik- mannanna hér sem ekki leika gegn Tékkum. Ekki vildi Birgir gefa það upp — en miklar líkur eru á að Kristján komi í stað Gunnars Einarssonar í markið og annaðhvort Þorbjörn Guð- mundsson eða Ágúst Svavars- son hvíli af útispilurunum. Islenzku leikmennirnir tóku lífinu með ró í gær — það var slappað af á hótelinu í Linz. Fundur var í morgun og þá lögð á ráðin en Karl Benediktsson fylgdist með leik Tékka og Svía í Vínarborg á fimmtudag. —Ég held við höfum ágæta sigurmöguleika gegn Tékkum, sagði Birgir ennfremur. Liðs- andinn er svo einstakur og strákarnir vel stemmdir fyrir leikinn. Við sigruðum Tékka1 líka í Reykjavík með sama liði og við höfum hér, sagði Birgir. Leikurinn bofst kl. eitt að ísl. tíma. íslenzki landsliðshópurinn heldur ’il Vinarborgar á sunnu- dag og fylgist þar með siðustu leikjunum í keppninni — það er milli Svía og Austur- Þjóðverja um efsta sætið og Spánverja og Búlgara um 5/6 sætið. Heim verður haldið á mánudag og komið til Keflavík- ur um kvöldið um Glasgow. Svíar hafa komið mjög á óvart í keppninni hér — og leikið sinn örugga handknatt- leik. Austur-Þjóðverjar eru ekki öruggir um sigur gegn þeim. — Þýzku- leikmennirnir tala enn um þá heppni sína að ná algjörum toppleik gegn ís- landi. Þar heppnaðist allt hjá þeim — en eins og Þjóðverjarn- ir léku gegn Spáni og Hollandi hefði Island haft góða mögu- leika. Það er almennt álit þeirra sem fylgzt hafa með keppninni. Öli Ben. markvörð- ur heldur til Svíþjóðar á sunnu- dag og mun leika sinn fyrsta leik með Olympía á mánudag. —h.halls. frjálst, úhád dagblað 16 ára fangelsi fyrirMiklu- brautar- morðið — og þjófnaðinn íHéðni Ásgeir Ingólfsson, Reynimel 84 í Reykjavík, var í gær dæmdur í sakadómi Reykja- víkur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Lovisu Kristjáns- dóttur 26. ágúst sl. og þjófnað í Vélsmiðjufini Héðni 27. nóvem- ber 1975. Asgeir var einnig dæmdur til að greiða Vélsmiðjunni Héðni hf. 817 þúsund krónur skv. kröfu fyrirtækisins, 80 þúsund krónur í málsóknarlaun til ríkissjóðs, 120 þúsund krónur i réttargæzlu- og málsvarnarlaun til verjanda síns og 40 þúsund krónur til réttargæzlumanns síns við rannsókn þjófnaðarins f Héðin hf.. Dóminn upp sakadómararnir Haraldur Henrýsson, sem var dómsformaður, Jón A. Ölafsson og Sverrir Einarsson. I frétt frá sakadómi Reykja- víkur segir m.a.: „Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði hinn 26. ágúst sl. ráðið Lovísu Kristjánsdóttur, Eiriksgötu 17 bana að Miklubraut 26 með þvi að slá hvað eftir annað í höfuð hennar með kúbeini. Var þessi verknaður talinn varða við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Einnig var hann talinn sannur að sök skv. 244 gr. sömu laga með þvf að hafa haft á brott með sér peninga og ýmis verðmæti úr fyrrgreindu húsi sama dag. Þá var einnig talið sannað að ákærði hefði hinn 27. nóvem- ber 1975 gerzt sekur um að stela þremur peningakössum úr fjárhirzlu Vélsmiðjunnar Héðins hf., hér í borg, sem hann hafði komizt yfir lykla að en í kössum þessum voru peningar og ýmiss konar verðmæti. Var þessi verknaður sömuleiðis talinn varða við 244. gr. hegningarlaganna." -ÖV. Bandaríkjamaður dæmdurí þriggja mánaða fangelsi fyrír innflutning áLSD Ungur Bandarlkjamaður var í fyrradag dæmdur í þriggja mán- aða fangelsi, 300 þúsund króna sekt og til greiðslu málskostnaðar í Sakadómi í ávana- og fíkniefna- málum. Lét hann senda sér 255 skammta af ofskynjunarefninu LSD í janúar og febrúar sl. I al- mennum pósti frá Bandaríkjun- um. Níutíu skömmtum kom hann í dreifingu til nokkurra aðila en hitt lagði lögréglan hald á. Bandaríkjamaður þessi kom einn síns liðs hingað til lands. Hann komst í kynpi við nokkra íslendinga og áttaði sig þá fljót- lega á því að hér var markaður fyrir efni af þessu tagi. Hann hefur verið 1 gæzluvarð- haldi um nokkurt skeið og hóf afplánun refsidómsins þegar eftir. uppkvaðningu hans. -ÖV.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.