Dagblaðið - 11.01.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.01.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1980 — 9. TBU. Saía Rúgbrauðsgerðarinnar fyrir 4 árum dregur dilk á eftir sér. Tveirhæsta■ réttariög- memkærð- irfyrirmeint fjármáia■ misferii — ekkert fullnaöaruppgjör liggur fyrir em — sjá bls. 9 GUDLAUGUR í FOR- SETAFRAMBOD „Það hafa mjög margir orðað þetta við mig og ég mun mjög fljót- lega láta heyra frá mér opinberlega um þetta,” sagði Guðlaugur Þor- valdsson, rikissáttasemjari, er Dag- blaðið spurði hann hvað væri hæft í því að hann hefði þegar ákveðið að gefa kost á sér ti! forsetaembættis. Dagblaðið telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Guðlaugur hafi þegar ákveðið að fara í framboð. ,,Ég hef ekki gefið neitt út um þetta ennþá. Mér finnst mér bera skylda til að láta heyra frá mér fljót- lega, á hvorn veginn sem það verður,” sagði Guðlaugur Þorvalds- son. -GAJ 25 ÞÚSUND HAFA VERID MYRTIR í AFGHANISTAN — sjá erl. fréttir bls. 6 og 7 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI II.—AÐALSÍMl 27022. Sviptingar í lagmetismálum: KEAHEFUR AUGASTADÁ K.JÓNSS0N ÁAKUREYRI — óviss framtíð Sölustofnunar lagmetis í kjölfar þess og yfirvofandi úrsagnar Norðurstjömunnar f Hafnarfirði Tugþúsundum saman renna dósirnar út úr Norðurstjörnunni i Hafnarfirði og munu siðan væntanlega enda feril sinn á borðum Bandarfkjamanna. Unga stúlkan teygir sig þarna i bakka með sfldarflökum, sem tilbúin eru i dósirnar. Rekstur Norðurstjörnunnar gengur nú betur en oft áður. Hann hefur ekki ávallt verið neinn dans á rósum. Norðurstjarnan er nú að mestu I eigu Framkværndastofnunar og hyggst taka sölumál sfn I eigin hendur af Sölustofnun lagmetis um næstu áramót. DB-mynd Hörður. Umræður, sem á máli fésýslu- og stjórnmálamanna kallast „þreifing- ar”, fara nú fram um aðild KEA að rekstri niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar & Co. hf. á Akureyri. Vilja menn ekki í fyrstu lotu tala um kaup eða sölu fyrjrtækisins. Niður- suðuverksmiðjan, /sem er sú stærsta og fullkomnasta her á landi, hefur nú með stuttu millibili orðið fyrir miklum áföllum. Er þar um að ræða tjón af skemmdum gaffalbitum frá í fyrra sem talið var nema 300 milljón- um og nú tjón af gallaðri rækju sem talið er nema um 200 milljónum, eins og getið er annars staðar í blaðinu. Verði af aðild eða kaupum KEA á þessari miklu niðursuðuverksmiðju, má telja víst að dagar Sölustofnunar lagmetisins séu taldir. K. Jónsson & Co hefur lengi verið hálfóánægður aðili að Sölustofnuninni og komi KEA með i eða taki við rekstrinum opnast vafalaust betri alheimsmark- aðir en Sölustofnunin gæti hugsan- lega náð. K. Jónsson & Co hefur framleitt 50—60% af því magni sem Sölustofnunin hefur selt. Norðurstjarnan i Hafnarfirði hefur framleitt 25—30% af sölu- magni Sölustofnunarinnar, en Norðurstjarnan hefur nú að sögn Péturs Péturssonar forstjóra gert ráðstafanir til að losna úr aðild að Sölustofnuninni um næstu áramót. Af stórframleiðendum er þá aðeins Siglósíld eftir innan Sölustofnunar- innar en sú verksmiðja framleiðir litið annað en gaffalbita á Rússlands- markað og er starfrækt aðeins hluta úr ári. Þarf hún því ekki dýrt sölu- apparat. Auk þessara þriggja stórframleið- enda eru aðeins smáfyrirtæki aðilar að Sölustofnuninni, sem lítið eða ekkert selja á utanlandsmarkaði. Má þar nefna Artic, ORA, Síldarrétti, íslenzk matvæli og fleiri. -A.St.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.