Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.1989, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.1989, Blaðsíða 8
* k s ! ; r i y Sjálfsmynd frá árinu 1915. Helene Schjerfbeck List hennar var líkt við skemmda ávexti - en nú þykja verk hennar dýrgripir í söfnum- fram að því. Þessar listakonur voru á sínum tíma í hópi hinna fyrstu kvenna, sem hlotið höfðu nokkurn veginn jafnmikla menntun og skólun í málaraiist og þeir karlkyns málarar, er voru þeim samtíma — fyrstu konurnar á Norðurlöndum, sem gátu þó lif- að þolanlega af málaralist sinni, ef þær ekki höfðu bundið sér of þunga bagga sem giftar konur, mæður og húsfreyjur á eril- sömu heimilum með öllum þeim skylduverk- um sem fylgdu þeirra tíma húshaldi. KvenlegViðhorf A árunum kringum 1890 var symbolism- inn mikils ráðandi í málaralist. Andar af ýmsu tagi, sem voru á ferli í skógum, birt- ust á léreftinu, dans álfanna varð sýnilegur og yfirleitt voi-u hinar ýmsu ráðgátur, sem lífið býr yfir, leystar að minnsta kosti á táknrænan hátt. Heil kynslóð málara á Norðurlöndum lokkaði listunnendur út í þau undur og sérkenni, sem norræn náttúra býr yfir, út í hið bjarta landslag sumarnæturinn- ar, út að glitrandi vatnsflötum og inn í mosavaxinn helli tröllsins. Helene Schjerf- beck var engin undanteking í þessum efn- um. Hún var ein af þeim ungu listamönnum á árunum um og eftir 1880, sem boðuðu ný viðhorf í listum. Hún uppgötvaði þá liti og þau ljósbrigði, sem Bretagne býr yfir — en það var sjö eða átta árum áður en Paul Gauguin útfærði á málverkastriga sínum þau áhrif, sem hann varð fyrir af sýntetísk- um litaflötum, í verkum frá 1887 og fram til 1890. En Helene Schjerfbeck var jafn- framt natúralisti og gerði mikið af því að draga í verkum sínum upp sannar, trúverð- ugar myndir af því sem gat að líta að húsa- baki. Hún fann sér sem sagt myndefni á stöðum, sem enginn annar málari hafði áður fundið neitt áhugavert við til að festa á léreftið: Bláleitir skuggar platanttjánna á hijúfum múrvegg lítils íbúðarhúss, barn í tréskóm og hálfsokkum, þvottur, sem breiddur hafði verið í grasið til þerris. Það var á þessum fyrstu árum hennar í Bretagne, rétt eftir 1880 að Helene Schjerf- beck tók að sleppa smáatriðunum í málverk- um sínum og fór að beina athyglinni meira að heildinni í mynduppbyggingu sinni. Þau málverk, sem hún vann á þennan hátt, lagði hún þó jafnharðan til hliðar og hélt þeim út af fyrir sig í málverkageymslu sinni, eft- ir að góðir vinir hennar í hópi listamanna höfðu látið þau orð falla um myndirnar, að þeir skildu ekki hvað hún væri að fara í þessum verkum. En Helene Schjerfbeck stóðst samt ekki freistinguna að mála við og við eitt og eitt verk með þessari myndupp- byggingu, eingöngu sjálfri sér til ánægju. I hennar augum var heildarblær litaflatanna alltof lokkandi til þess að hún vildi leggja þessa aðferð sína í málverki með öllu á hill- una. Heima Og Heiman Helene Schjerfbeck fæddist í Helsingfors árið 1862. Hún stundaði fyrst nám við teikniskóla Finnska myndlistarfélagsins og Fyrir um það bil tveimur árum stóð yfir mikil yfirlitssýning á verkum norrænna málara, sem voru við lýði. um 1880. Fór sýningin á milli fjögurra hinna stærri höfuðborga Norðurlanda og var fyrst sett upp í Osló, því næst í Stokk- Um fínnska málarann HELENE SCHJERFBECK, sem telst nú eitt af stóru nöfnunum í norrænni myndlist, en naut takmarkaðarar velgengni ámeðan húnlifði. Eftir LENU HOLGER hólmi, þá í Helsingfors loks var hún sett upp í Kaupmannahöfn. Segja má, að þetta samstillta norræna sýningaframtak hafi fengið alveg einstaklega góðar undirtektir hjá bræðraþjóðum okkar — þ.e.a.s. nánar tiltekið hjá skandinavískum höfuðborgarbú- um. Hafa hundruð þúsunda gesta komið til þess að sjá sýninguna í hinum fjórum norr- ænu höfuðstöðum. Þetta er raunar í fyrsta skiptið sem sýn- ingargestir og gagnrýnendur hafa beint athygli sinni að verkum norrænna kvenlist- málara í jafn ríkum mæli og að verkum karlkyns málara. Konurnar, sem verk voru valin eftir á þessar sýningar, eru líka vissu- lega mjög frambærilegir fulltrúar listsköp- unar á þessu tímabili: Sænska listakonan Hanna Hirsch, tveir kunnir norskir listmál- arar, þær Harriet Backer og Kitty Kielland, danska listakonan og Skagenmálarinn Anna Brondum, og síðast en ekki sízt finnska listakonan Helene Schjeifbeck. Sýningar- gestir munu örugglega muna verk þessara kvenna og sjá þau fyrir hugskotssjónum sínum löngu eftir að sýningunni er lokið. Viðfangsefni hinna norrænu listakvenna í þeim verkum, sem sýnd voru þarna sam- an, eru dagdraumar, dagsins erfíði og amst- ur og töfrandi litbrigði miðsumarnæturinnar — viðfangsefni séð öðrum augum og tekin öðrum listrænum tökum en tíðkast hafði Kvöldsól yGr Raseberg, 1890. 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.