Alþýðublaðið - 31.12.1987, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 31. desember 1987
5
Jón Baldvin Hannibalsson:
NÆST Á DAGSKRÁ ER VIRÐISAUKASKATTUR,
SKATTLAGNING ATVINNU R EKSTR ARINS OG
SAMRÆNID SKATTLAGNING EIGNATEKNA
Fjármálaráðherra talar út um kerfisbreytingar og sér fram á lögfestingu mestu umbóta á
skattkerfinu í sögu íslenska lýðveldisins
F jármálaráöherra
hefur haft í æði mörg
horn að líta síðustu vik-
urnar. Fjárlög hafa verið
til umfjöllunar á Alþingi
og auk þess standa
fyrir dyrum viðamiklar
skattkerfisbreytingar,
sem umdeildar hafa
verið. Þrátt fyrir stífa
fundi verður ekki sagt
aö „rífandi gangur“ hafi
verið í þinginu, þar sem
deilt er stíft um kvóta
og stjórnarandstaða
hefur haldið uppi linnu-
lausu málþófi um sölu-
skatt, tolla og vöru-
gjöld.
Alþýðublaðinu lék
forvitni á að heyra hvaö
fjármálaráðherra hefur
að segja um það sem
helst hefur verið gagn-
rýnt varðandi skatt-
kerfisbreytingarnar og í
stuttu fundarhléi í gær
tókst að króa Jón
Baidvin af.
Matarskattur og
helgisvipur
Þú hefurverið gagnrýndur
harðlega fyrir það að leggja á
„matarskatt", fyrir árás á
heimilin í landinu og fleira í
svipuðum dúr. Hvað er um
þetta að segja?
„Einn þáttur þeirrar kerfis-
breytingar sem nú stendur
fyrir dyrum eru breytingar á
söluskatti sem fela það í sér
að söluskattur verður sam-
ræmdur og leggst m. a. á
matvörur, sem nú eru ýmist
söluskattsfrjálsar eða með
10% söluskatti. Þessi breyt-
ing út af fyrir sig veldur
hækkun á matvörum. Aðrir
þættir breytinganna, niður-
felling sex mismunandi að-
flutningsgjalda og lækkun
tolla, leiða á hinn bóginn til
lækkunar vöruverðs. Þar til
viðbótar koma síðan um-
fangsmiklar hliðarráðstafanir
til tekjujöfnunar. I krónum
talið litur dæmið þannig út
fyrir vísitölufjölskyIdu með
105 þús. kr. ráðstöfunartekjur
í október, að matarreikningur
getur hækkað um 1800 kr. á
mánuði. Á móti kemur lækk-
un á öðrum vörum sem nem-
ur öðrum 1800 krónum. Fram-
færslukostnaður haekkar ekki
af þessum sökum. Ýmsar
mikilvægustu neysluvörur
heimilanna svo sem mjólk,
dilkakjöt og fleiri vörur
hækka ekki. Þetta eru stað-
reyndir og kjarni málsins.
Það hefur verið þyrlað upp
gríðarmiklu moldviðri sem
ætlað er að vekja ugg meðal
almennings vegna þessara
breytinga. Menn setja upp
helgisvip og láta sem matvör-
Jón Baldvin Hannibalssnn fjármálaráðherra: „Það verður ekkl Iðlið staðar numið. Virðisaukaskattur, endurskoðun ð skattlagningu atvinnurekstrarins og samræmd skattlagning eignatekna
er næst á dagskrá. Þessum verkelnum þurtum við að IJúka á næsta ári.