Morgunblaðið - 01.04.2003, Side 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Bárður viðurkenndi að það hefði
komið sér verulega á óvart að
Keflvíkingar skyldu ná að vinna
nágranna sína í Njarðvík 3:0 í
hinni undanúrslitarimmunni. „Það
kom kannski ekkert svo á óvart
að Keflvíkingar skyldu vinna, en
að þeir tækju þetta í þremur
leikjum kom mér á óvart. Njarð-
víkingar brotlentu raunar í fyrsta
leiknum og virtust ekki ná sér
upp úr því, þeir lentu í vandræð-
um með Damon og Saunders og
þegar þannig er losnar um skytt-
ur Keflvíkinga og þá eru þeir ill-
viðráðanlegir,“ sagði Bárður.
Hann spáði fyrir Morgunblaðið
um framgang mála í undanúrslit-
unum áður en þeir leikir fóru
fram og taldi þá að Grindavík
myndi leggja Tindastól 3:2 og að
Njarðvík myndi hafa Keflavík 3:2.
Raunin varð sú að Keflavík vann
3:0 og staðan er jöfn, 2:2, hjá
Grindavík og Tindastóli.
„Ég tel Grindvíkinga með
sterkari mannskap og reyndari
og það skiptir ekki svo litlu máli
þegar komið er í hreinan odda-
leik. Þrátt fyrir að Grindvíkingar
hafi ekki leikið eins vel að und-
anförnu og þeir gerðu framan af
vetri þá tel ég þá sigurstrang-
legri og held mig því við spána;
Grindavík fer í úrslit,“ sagði
Bárður. Þeir fjórir leikir sem
Grindavík og Tindastóll hafa leik-
ið í undanúrslitunum til þessa
hafa verið jafnir og spennandi og
hafa allir unnist á heimavelli.
Grindvíkingar hafa gert 362 stig
en Tindastóll 352 þannig að mun-
urinn er aðeins tíu stig Grindvík-
ingum í hag.
Helgi Jónas Guðfinnsson hefur
farið mikinn í liði Grindvíkinga,
er með 92 stig og sömu sögu má
segja um Darrel Lewis sem hefur
gert 87 stig, gaf 11 stoðsendingar
í þriðja leiknum og tók 15 fráköst
í öðrum leiknum, en þá var hann
með þrefalda tvennu, 20 stig, 15
fráköst og 10 stoðsendingar. Guð-
mundur Bragason hefur staðið í
ströngu í baráttunni undir körf-
unni og hefur tekið 49 fráköst í
leikjunum, þaraf 18 í þriðja leikn-
um.
Hjá Tindastóli hefur Kristinn
Friðriksson leikið vel og gert 75
stig, sama má segja um Axel
Kárason sem hefur verið grimm-
ur í vörninni og ákveðinn í frá-
köstum. Clifton Cook hefur skilað
sínu, er með 91 stig, og Michail
Andropov hefur verið stöðugur,
er með 76 stig og 31 frákast, og
vilja Sauðkrækingar örugglega
að þessi hávaxni miðherji taki
fleiri fráköst.
Grindvíkingar reyndari
„ÉG fer ekkert ofan af því að ég held að Grindvíkingar komist í úrslit
og leika við Keflavík um Íslandsmeistaratitlinn,“ sagði Bárður Ey-
þórsson, þjálfari Snæfells, í gær þegar leitað var álits hans á odda-
leik Grindavíkur og Tindastóls í undanúrslitum í körfuknattleik,
sem fram fer í Grindavík í kvöld.
Morgunblaðið/Golli
Helgi Jónas hefur leikið vel
með Grindavík.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, Intersportdeild, und-
anúrslit, fimmti leikur:
Grindavík: UMFG - Tindastóll.............19.15
Sigurliðið mætir Keflavík í úrslitarimmu.
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni kvenna, 8-liða úrslit, annar
leikur:
Fylkishöll: Fylkir/ÍR - ÍBV.......................20
Kaplakriki: FH - Stjarnan.........................20
Víkin: Víkingur - Valur ..............................20
Seltjarnarnes: Grótta/KR - Haukar .........20
Í KVÖLD
ALLAR líkur eru á því að Hjörtur
Hjartarson og Gunnlaugur Jóns-
son leikmenn knattspyrnuliðs ÍA
verði ekki með liðinu í síðustu
fjórum umferðum Íslandsmótsins,
en þeim stendur til boða að halda
til Bandaríkjanna til náms næsta
haust.
Hjörtur sagði í gær að honum
stæði til boða að leika með há-
skólaliði í Alabama en þar eru
fyrir íslensku leikmennirnir Þór-
hallur Hinriksson og Sigþór Júl-
íusson sem leika með KR í sumar.
Miklar líkur eru á því að mark-
vörðurinn Bjarki Guðmundsson
sem leikur með Stjörnunni muni
einnig leika með liðinu á næsta
skólaári.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði
Skagamanna, er á leið til St. Lou-
is þar sem hann mun nema fjöl-
miðlafræði, líkt og Hjörtur.
Ef allt fer samkvæmt áætlun
munu þeir Hjörtur og Gunn-
laugur leika sinn síðasta leik með
ÍA þann 17. ágúst en þá eigast lið-
in við í 14. umferð Íslandsmótsins.
Hjörtur hefur verið helsti marka-
skorari Skagamanna síðustu ár
og Gunnlaugur er lykilmaður í
vörn liðsins, þannig að þeir skilja
eftir sig stór skörð fyrir lokaslag-
inn í deildinni. Gunnlaugur J.
Gunnlaugur og
Hjörtur fara í ágúst
FH-ingar hafa gert samning við Danina
tvo, Tommy Nielsen og Allan Borgvardt,
sem voru til reynslu hjá liðinu í síðustu
viku. Samningurinn gildir út leiktíðina og
koma þeir á móts við FH-liðið þegar það
heldur í æfingaferð til Candela á Spáni
um næstu helgi.
Nielsen er 31 árs varnarmaður sem
leikið hefur með AFG frá árinu 2000.
Hann hefur leikið alls 57 leiki með liðinu í
úrvalsdeildinni, þar af einn á þessari leik-
tíð.
Borgvardt er 23 ára miðju- og fram-
herji sem hefur verið í herbúðum AGF frá
árinu 1997. Hann hefur leikið 64 leiki með
liðinu í úrvalsdeildinni, þar af níu á þessu
tímabili.
Danirnir til
liðs við FH
ÚRSLIT
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir,
skíðakona frá Akureyri, lauk keppn-
istímabilinu erlendis á glæsilegan
hátt í gær. Hún keppti þá á tveimur
alþjóðlegum risasvigsmótum í
Hemsedal í Noregi og gerði sér lítið
fyrir og sigraði á þeim báðum.
Dagný Linda hefur haft í nógu að
snúast síðustu dagana því um helgina
keppti hún á tveimur stórsvigsmótum
í Ål í Noregi. Hún varð í fimmta sæti
á laugardaginn og í fjórða sæti á
sunnudaginn.
SVEINN Margeirsson úr UMSS og
Gauti Jóhannesson, UMSB, kepptu á
heimsmeistaramótinu í víðavangs-
hlaupi (stuttri braut) í Lausanne í
Sviss á laugardaginn, en Íslendingar
hafa ekki tekið þátt í mótinu í háa
herrans tíð.
SVEINN hafnaði í 93. sæti á 12,25
mínútum og Gauti varð í 116. sæti af
126 keppendum. Brautin var 4.030
metrar. Kenenise Bekile, Eþíópíu,
kom fyrstur í mark á 11,01 mín., en
aðeins munaði fimm sekúndum á hon-
um og þeim er hafnaði í þriðja sæti.
GEORGE Burley var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri Derby County, til
bráðabirgða á meðan John Gregory
er í banni hjá félaginu. Burley, sem
var valinn knattspyrnustjóri ársins í
úrvalsdeildinni árið 2001 fyrir árang-
ur sinn með Ipswich, var sagt upp hjá
félaginu í október síðastliðnum.
Derby er komið í fallhættu í ensku 1.
deildinni eftir slæmt gengi að und-
anförnu en liðið féll úr úrvalsdeildinni
síðasta vor.
BARRY Ferguson og Steven
Thompson, leikmenn Glasgow Rang-
ers, verða ekki með skoska landslið-
inu gegn Litháen í undankeppni EM í
knattspyrnu á morgun. Ferguson
hefur lengi verið meiddur í nára og
versnaði í leiknum við Ísland á laug-
ardaginn og Thompson, sem þá tók
út leikbann, er heldur ekki heill
heilsu.
FERGUSON hefur hins vegar
frestað því að fara í aðgerð á náran-
um til að geta leikið með Skotlandi
gegn Þýskalandi hinn 7. júní.
SOL Campbell, varnarmaður Ars-
enal, sagðist í gær tilbúinn til að leika
með enska landsliðinu gegn Tyrkjum
í Sunderland annað kvöld. Campbell,
sem hefur verið meiddur á hásin, lék
ekki gegn Liechtenstein á laugardag
og sagði að hvíldin hefði gert sér gott.
DANSKI knattspyrnumaðurinn
Stig Töfting hefur ákveðið að falla frá
því áfrýja úrskurði dómstóla frá því í
október á síðasta ári þegar hann var
dæmdur til fjögurra mánaða fangels-
isvistar fyrir að ráðast á veitinga-
mann á krá í Kaupmannahöfn í
haust. Úrskurða átti í málinu á nýjan
leik hinn 10. aprí næstkomandi en
Töfting tók þá ákvörðun í gær að
hætta við áfrýjunina og þarf hann því
að sitja á bak við lás og slá í fjóra
mánuði.
FÓLK
Til að öðlast keppnisleyfi þurfa fé-
lögin að uppfylla ákveðin skilyrði svo
sem vallaraðstæður, fjármál, mann-
virki og réttindi þjálfara en stór-
auknar kröfur eru gerðar á hendur
félögunum varðandi þessa þætti.
Það er ekki hvað síst mannvirkja-
þátturinn sem snertir hvað mest fé-
lögin. Eins og málum er háttað í dag
uppfylla ekki öll félög þennan þátt
og fá ekki keppnisleyfi nema að til
komi staðfesting frá viðkomandi
bæjarfélagi um að farið verði út í
framkvæmdir fyrir árið 2007 en það
er aðlögunartími sem KSÍ hefur gef-
ið félögunum til að uppfylla kröfurn-
ar.
KA og Fylkir eru meðal þeirra liða
sem ekki uppfylla kröfur hvað mann-
virkjaþáttinn varðar og þurfa að fá
yfirlýsingu frá yfirvöldum í Reykja-
vík og Akureyri til að fá undanþágu.
„Þetta lítur þannig út hjá okkur að
við uppfyllum allar kröfur nema
mannvirkjaþáttinn eins og fleiri fé-
lög. Okkar bæjarfélag virðist ekki
hafa sent til KSÍ nógu fullnægjandi
yfirlýsingu og nú er leyfisnefndar-
innar að ákveða hvert næsta skref
verður. Ég er bjartsýnn á að farið
verði út í þessar framkvæmdir á að-
lögunartímanum og ég veit að það er
á forgangslista samkvæmt bókun
íþrótta- og tómstundaráðs Akureyr-
ar að taka völlinn og mannvirkin í
gegn. Það er löngu orðið tímabært
að taka mannvirkin hér fyrir norðan
í gegn og áhorfendur fái boðlega að-
stöðu Þetta snertir ekki bara okkur
hjá KA heldur Þór líka,“ sagði Vign-
ir Már Þormóðsson, formaður knatt-
spyrnudeildar KA, við Morgunblað-
ið.
„Við bíðum eftir viðbrögðum frá
Reykjavíkurborg. Ég veit að menn
frá borginni og KSÍ funda á morgun
(í dag) og vonandi kemur eitthvað já-
kvætt út úr þeim fundi. Við stöndum
kannski verst að vígi hvað Reykja-
víkurfélögin snertir að uppfylla
mannvirkjaþáttinn en ég hef enga
trú á öðru en málin fái farsæla lausn.
Ég býst fastlega við að við fáum
styrk frá borginni til að geta uppfyllt
kröfurnar fyrir þennan tilskilda tíma
en ég get ekki sagt til um það hve-
nær framkvæmdir geti hafist. Aðal-
málið er að fá í hendur staðfestingu
frá borginni og í framhaldinu að
semja áætlun út frá því,“ sagði Örn
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Fylkis, við Morgunblaðið.
Leyfisnefnd KSÍ fer yfir umsóknir liða í efstu deild
KA og Fylkir upp-
fylla ekki kröfur
LEYFISNEFND Knattspyrnusambands Íslands kemur saman til
fundar í dag og fer yfir umsóknir félaganna í efstu deild sem skilað
hafa inn umsóknum til þátttöku í deildinni samkvæmt nýju leyfis-
kerfi KSÍ, sem tekið hefur verið upp að fyrirmynd frá Knattspyrnu-
sambandi Evrópu, UEFA. Þau félög sem uppfylla ekki kröfurnar fá
ekki keppnisleyfi en það verður þó ekki endanleg niðurstaða því
félögin geta áfrýjað úrskurði nefndarinnar.
KÖRFUKNATTLEIKUR
KR – Keflavík 70:82
DHL-höllin, annar úrslitaleikur kvenna,
mánudaginn 31. mars 2003.
Gangur leiksins: 2:0, 2:4, 6:6, 12:17, 14:17,
18:19, 18:26, 21:32, 32:36, 34:38, 36:39,
39:39, 41:41, 41:46, 43:50, 49:56, 49:60,
54:60, 55:71, 61:71, 68:77, 68:82, 70:82.
Stig KR: Jessica Stomski 21, Helga Þor-
valdsdóttir 18, Hildur Sigurðardóttir 15,
Hanna B. Kjartansdóttir 6, Halla Jóhann-
esdóttir 4, María Káradóttir 3, Guðrún Sig-
urðardóttir 3.
Fráköst: 33 í vörn – 18 í sókn.
Stig Keflavíkur: Erla Þorsteinsdóttir 18,
Anna M. Sveinsdóttir 16, Birna Valgarðs-
dóttir 11, Sonia Ortega 11, Svava Ósk Stef-
ánsdóttir 11, Kristín Blöndal 8, Marín Rós
Karlsdóttir 4, Rannveig Randversdóttir 3.
Fráköst: 27 í vörn – 9 í sókn.
Villur: KR 27 – Keflavík 22.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Er-
lingur Snær Erlingsson. Góðir.
Áhorfendur: 135.
Staðan er 2:0 fyrir Keflavík.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Minnesota – Dallas............................. 95:119
Indiana – Phoenix................................. 92:81
Detroit – Sacramento........................... 99:88
Denver – Washington .......................... 88:72
Seattle – LA Lakers........................... 119:98
Toronto – New York ............................ 95:86
Milwaukee – Miami ............................ 109:87
New Orleans – San Antonio ................ 90:92
LA Clippers – Memphis................... 102:100
Staða efstu liða:
Austurdeild:
Detroit Pistons 72 46 26
New Jersey Nets 73 45 28
Philadelphia 76ers 72 43 29
Indiana Pacers 73 43 30
New Orleans Hornets 74 41 33
Boston Celtics 74 40 34
Orlando Magic 73 39 34
Milwaukee Bucks 74 35 39
Washington Wizards 73 34 39
Vesturdeild:
Dallas Mavericks 73 55 18
Sacramento Kings 74 55 22
San Antonio Spurs 73 53 20
Portland TrailBlazers 72 45 27
Minnesota Timberwolves 75 46 29
Utah Jazz 73 43 30
Los Angeles Lakers 73 42 31
BLAK
1. deild karla
Stjarnan – ÍS ............................................ 3:1
(25:18, 25:16, 18:25, 25:20)
Stjarnan tryggði sér deildameistaratitil-
inn.
Lokastaðan:
Stjarnan 16 13 3 43:14 43
ÍS 16 13 3 41:18 41
HK 16 7 9 31:28 31
Þróttur R. 16 7 9 26:31 26
Hamar 16 0 16 0:48 0
Í úrslitakeppninni leikur Stjarnan við
Þrótt R. og ÍS við HK.
SKÍÐI
Bikarmót SKÍ, Akureyri
Stórsvig kvenna 28. mars:
Harpa Dögg Kjartansd., Breiðab .... 1.42,17
Hrefna Dagbjartsdóttir, Akureyri .. 1.45.40
Arna Arnardóttir, Akureyri ............. 1.45,60
Stórsvig karla 28. mars:
Ingvar Steinarsson, Akureyri .......... 1.37,34
Steinn Sigurðsson, Ármanni ............ 1.39,26
Andri Þór Kjartansson, Breiðab...... 1.41,05
Svig kvenna 29. mars (fyrra):
Hrefna Dagbjartsdóttir, Akureyri .. 1.37,83
Arna Arnardóttir, Akureyri ............. 1.38,30
Guðrún J. Arinbjarnard., Víkingi .... 1.41,30
Svig karla 29. mars (fyrra):
Steinn Sigurðsson, Ármanni ............ 1.29,49
Andri Þór Kjartansson, Breiðab...... 1.30,98
Elvar Þrastarson, Fram ................... 1.31,94
Svig kvenna 29. mars (síðara):
Harpa Dögg Kjartansd., Breiðab .... 1.42,42
Arna Arnardóttir, Akureyri ............. 1.42,49
Ásta Björg Ingadóttir, Akureyri ..... 1.45,91
Svig karla 29. mars (síðara):
Steinn Sigurðsson, Ármanni ............ 1.33,26
Andri Þór Kjartansson, Breiðab...... 1.34,12
Sveinn Brynjólfsson, Dalvík............. 1.36,66
Stórsvig kvenna 30. mars:
Arna Arnardóttir, Akureyri ............. 1.46,12
Hrefna Dagbjartsdóttir, Akureyri .. 1.46,77
Harpa Dögg Kjartansd., Breiðab .... 1.47,51
Stórsvig karla 30. mars:
Ingvar Steinarsson, Akureyri .......... 1.39,81
Andri Þór Kjartansson, Breiðab...... 1.40,92
Steinn Sigurðsson, Ármanni ............ 1.41,79