Íslendingaþættir Tímans - 18.08.1982, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 18.08.1982, Blaðsíða 1
ISLENDINGAÞÆTTIR Miðvikudagur 18. ágúst 1982 — 32. tbl. TÍMANS Johannes Carl Klein kj ö tkaupmaður f. 24.2. 1887 d. 30.7. 1982 Johannes Carl Klein kjötkaupmaður á Baldurs- Eötu 14 andaðist 30. júlí s.l. á Vífilsstöðum, 95 ara að aldri. Þessi velgerðarmaður minn var gæddur miklu þreki og var andlega hress og minnisgóður til hinsta dags, en fótfúinn og bundinn við hjólastól síðustu árin. Klein réðst árið 1915 sem veitingamaður eða „restauratör" á elsta Gullfoss, fyrsta skip Eimskipafélagsins og fyrir eigin reikning. Þá var enginn íslenskur bryti til, sem gat gegnt starfinu. Heimsstyrjöldin geisaði, hættur voru hvarvetna á höfunum og fáir farþegar með skipinu. Veitinga- salan á Gullfossi reyndist því fyrsta brytanum engin auðsuppspretta. Starfinu fylgdi hins vegar ýmis kynni. Þá var Sveinn Björnsson, síðar fyrsti forseti ísl. lýðveldisins, stjórnarformaður Eim- skipafélagsins og á heimili hans var Klein tíður gestur. Frú Georgía var dönsk og saknaði danskr- ar spægepylsu og svínakamb'. Brytinn á Gullfossi var vel kominn til þen ra hjó: a með góðgætio, og hjá þeim kynntist hann stúlkunni Elínu Þorláks- dóttur frá ísafirði. Hann giftist henni 1918 og settist þá að í Reykjavík. Klein gekk ungur á matreiðsluskóla hjá „besta* eldhúsi Kaupmannahafnar" Le diner transpor- table, og útskrifaðist þaðan 1908. Jafnframt' matreiðslunáminu sotti nann kvöldskóla í verslun- arfræðum. Að námi loknu sigldi hann tvö ár sem matsveinn, síðara árið á stóru farþegaskipi sem gekk milli Skandinavíu og Ameríku. Þar líkaði honum illa og skipti um farkost og áfangastað í desember 1909 og réði sig á Ask. leiguskip sem Thor Tulinius hafði í förum milli Kaupmanna- hafnar og íslands. Skipið tók 20 farþega og var Klein eini matsveinninn um borð. Föður hans- þótti það undarlegt ráðlag þegar sonurinn réð sig á „smákopp", sem kúldraðist norður til fslands. eftir að hafa verið á stórskipum í förum til New Tork. í íslandsferðum var Klein sinn eiginn herra, en ekki þjónn annarra eins og hjá hinum stóru. °g hann steig ölduna á íslandshafi næstu 8 árin. Þá var oft þrútið loft og þungur sjór. Haustið 1913 var Klein bryti á lslandsfarinu Kong Helge. Hm mánaðamótin okt-nóv. 80 mílur norður af Færeyjum á leið til Noregs fengu þeir á sig brotsjó 1 ofviðri. sem svipti brúnni af skipinu, en þar stóðu Þá fyrsti stýrimaður og tveir hásetar. Þetta var um hálftíu að kvöldi. þreifandi myrkur og fárviðri og , engin björgun möguleg. Annar björgunarbátur- inn molaðist við reykháf skipsins, sem hraktist stjórnlítið uns Klein og öðrum stýrimanni tókst að rétta það af, og farmi sínum skiluðu þeir til Noregs eins og áætlað var. Eftir að hafa tapað á veitingum á Gullfossi, gafst Klein upp á þeim starfa og tók að sigla á flutningaskipi milli Danmerkur og Englands í von um betri afla. Þetta var 1917 og kafbátahernaður Þjóðverja í algleymingi. Þá var það hinn 29. apríl að tundurskeyti frá kafbát hæfði skipið á Norðursjó. Skipið sökk, en áhöfnin, 18 menn, komst slysalaust í björgunarbáta. Klein var snöggklæddur þegar sprengingin varð, en gat gripið jakka um leið og hann hljóp niður í annan bátinn. 1 tvo sólarhringa voru þeir að velkjast við lítinn kost i návaðaroki um Norðursjó, án þess að sjá til annarra skipa en kafbáta. Þá loks bar þá í sjónmál hollensks kútters, sem var að veiðum og bjargaði mönnunum. Eftir þessa svaðilför gerði Klein stuttan stans í Kaupmannahöfn og réð sig bryta á íslandsfarið Geysi og settist að í Reykjavík. Johannes Carl Klein var fæddur og uppalinn í Kaupmannahöfn. Þegar hann kom fyrst til Reykjavíkur 1909, blasti við honum hafnarlaust sveitaþorp í kvosinni milli Grjótaþorps og Skólavörðuhæðar. Þetta var timburhúsaþorp í dálitlum vexti; menn voru að ljúka við að reisa húsin við Tjarnargötuna og tengja götuita í Skuggahverfinu beint við Miðbæinn, Hverfisgatan var orðin til og Landsbókasafnið, fegursta húsið í Reykjavík. Reykvíkingar voru teknir að byggja úr steini, og steinhúsum fjölgaði næstu árin. Klein virtust íslendingar fátækir og illa klæddir, en húsin, sem þeir reistu, stækkuðu og fríkkuðu með hverju ári og klæðnaðurinn skánaði, a.m.k. í Reykjavík. Annars þótti honum Reykjavík leiðinlegur bær og fátt um skemmtistaði. Helst var að líta inn á Hótel ísland, þar sem nú er Hallærisplanið. Á Hótel Skjaldbreið var kaffihús, og svo var Norðurpóllinn inn við Hlemm, en þar var veitingahús á ystu mörkum bæjarins. Þrátt fyrir fábreytt mannlíf og fátækt, festi Klein hér yndi, steig á land og réðst sem matsveinn á strandferðaskipið Vestra, sem sigldi milli Reykja- víkur og Akureyrar, og lenti að sögn Kleins á 46 höfnum í aðalferðum haust og vor. Þá var strandferðaskipið aðalsamgöngutækið við af- skekktar byggðir, því að vegir voru engir nema í helstu kaupstöðum og bíllinn varla kominn til sögunnar. Klein kynntist nú íslensku ströndinni, heillandi björtum sumarnóttum og hrímsvörtu og úfnu skammdeginu. Eftir um þriggja ára strandsiglingu réði Klein sig á Kong Helge, og þaðan lá leiðin á fyrsta millilanda skipið sem Islendingar eignuðust og eftir það var hann um skeið bryti á björgunarskip- inu Geir, uns hann gerðist verslunarstjóri fyrir Matarbúð Sláturfélags Suðurlands við Laugaveg 42 á horninu á Frakkastíg. Þegar hann var orðinn verslunarstjóri hjá íslensku fyrirtæki, taldi hann sér skylt að læra málið og leitaði til Freysteins Gunnarssonar, sem þá vann að íslensk-danskri orðabók. Freysteinn bar undir nemandann merkingu danskra orða, svo að kennslustundirnar urðu oft langar, og Klein lærði að skilja íslensku, en hann lærði einnig að athuguðu máli að ekki var ráðlegt að mæla á þá fungu. Reykvískum sælkerum, vaxandi stétt manna í kaupstaðnum, þótt það traustvekjandi að kaupa kjötvörur, þar sem dönsk tunga var töluð fyrir innan búðarborð- ið. Danir voru talsvert áberandi í bæjarlífinu og Framhald á nsestu síðu

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.