Fréttablaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur Stjórnkerfi fyrir fiskveiðar Íslendinga Póst- og fjarskiptastofnun opnaði nýlega tilboð í leyfi til reksturs nýrra farsíma- kerfa á Íslandi. Tvö leyfi eru í boði og sóttu fjögur fyrirtæki um; tvö svissnesk og tvö íslensk. Forstjóri BebbiCell, annars sviss- neska fyrirtækisins, situr fyrir svörum um fyrirætl- anir sínar á íslenska GSM- markaðnum. „Í Þýskalandi og annars staðar á meginlandi Evrópu er gífurlegt verðstríð á farsímamarkaðnum, en á Íslandi hefur þetta stríð ekki byrjað. Við ætlum okkur að koma inn á markaðinn með mjög sam- keppnishæft verð miðað við það sem íslenskum farsímanotendum stendur til boða í dag,“ segir Andr- eas Fink, forstjóri svissneska far- símafyrirtækisins BebbiCell. Fyrirtækið er annað tveggja svissneskra fyrirtækja sem sóttu um að reka GSM-farsímakerfi hér á landi, hitt heitir Amitelo. Ásamt þeim sóttu íslensku fyrirtækin Núll-Níu og IP-fjarskipti um leyfi. Samkvæmt stigakerfinu sem Póst- og fjarskiptastofnun notar til að meta gæði tilboða var Amit- elo með besta tilboðið, BebbiCell með það næstbesta og Núll-Níu í þriðja sæti. IP-fjarskipti ráku lestina með töluvert færri stig en hin þrjú fyrirtækin. Leyfunum tveimur verður úthlutað fyrir lok þessa mánaðar. Andreas Fink segir Ísland hafa orðið fyrir valinu þegar tilboði BebbiCell í rekstur farsímakerf- is í svissnesku borginni Basel var hafnað vegna betri tilboða hjá keppinautunum. „Við vorum komnir langt með að skipuleggja kerfið þegar til- boðinu var hafnað. Þegar við fórum að skoða aðra möguleika kom í ljós að Reykjavík er ótrú- lega lík Basel hvað varðar rekst- ur farsímakerfis. Hún hentar mun betur fyrir okkur en Basel ef eitthvað er.“ Basel er við landamæri Sviss, Þýskalands og Frakklands, og eru íbúar hennar 170.000. Fink segir landamærin rétt hjá Basel hafa valdið BebbiCell töluverð- um vandræðum, og aðstæðurnar í Reykjavík séu mun betri. Í útboðinu hér á Íslandi felst að fjarskiptafélögin reisi eigin senda þegar úthlutun er í höfn, segir Hrafnkell V. Gíslason, for- stóri Póst- og fjarskiptastofnun- ar. Þó sé ekkert því til fyrirstöðu að þau semji við önnur félög á borð við Símann eða Vodafone um notkun sendanna þeirra. Fink segir ekki koma til greina fyrir BebbiCell að semja við Sím- ann eða Vodafone um notkun GSM-senda þeirra. „Það er erfitt að kaupa þjónustu af samkeppn- isaðila. Ef ég væri Síminn eða Vodafone myndi ég ekki bjóða nýjum keppinaut á markaðnum mjög góðan samning.“ Hann segir fyrirtækið munu reisa nýja senda og bjóða upp á farsíma- þjónustu innan tólf mánaða eftir leyfisveitinguna, fái BebbiCell leyfi. „Við höfum áætlanir fyrir allt landið. Við byrjum á að setja upp senda á höfuðborgarsvæðinu og fikrum okkur síðan út til annarra bæja og sveitarfélaga. Það er ekki alveg ákveðið í hvaða röð það verður, en við ætlum okkur að bjóða upp á þjónustu um allt land,“ segir Fink. Útboð Póst- og fjarskiptastofnun- ar kveður á um rekstur hefð- bundins GSM-kerfis, en ekki þriðju kynslóðar farsímakerfi. Rekstur þess konar kerfis var boðinn út fyrir nokkru og buðu Síminn, Vodafone og Nova, dótturfélag Novator, í það. Þriðja kynslóð farsímakerfis býður upp á stóraukinn gagna- flutningshraða og er næsta skref í þróun á farsímatækni. Meðal þess sem hægt er að bjóða upp á með þeirri tækni er hágæðasjón- varpsútsendingar, vefnotkun um farsíma og myndsímtöl. Einnig verður hægt að tengja fartölvur við háhraðanettengingu hvar sem er með gagnakortum sem sett eru í tölvurnar. Fink segist ekki sjá eftir því að hafa misst af útboðinu fyrir Erlendur áhugi á fámennum GSM Heildarlausn fyrir snyrtinguna Lotus Professional Arngrímur Þorgrímsson Sölustjóri hjá RV Rekstrarvörur 1982–200725ára R V 62 30 B Marathon RVS miðaþurrkuskápur 5.423 kr. 3.982 kr. Blár enMotion snertifrír skammtari WC Compact statíf blátt fyrir tvær rúllur 3.982 kr.6.968 kr. WC Compact statíf RVS fyrir tvær rúllur 1.865 kr. Blár sápuskammtari FoamLotus Sápuskammtari RVS 4.974 kr. Á tilboði í apríl 2007 Valdar gerðir af Lotus Professional skömmturum og tilheyrandi áfyllingum fyrir snyrtinguna. Verður ekki útrýmt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.