Fréttablaðið - 26.01.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 26.01.2010, Blaðsíða 20
Haraldur Örn Ólafsson er þjóð- þekktur fjallagarpur sem á langan fjallgönguferil að baki. Hann hefur meðal annars gengið á Mount Everest, norðurpólinn og suður- pólinn. Hann stofnaði nýverið fyr- irtækið Fjallafélagið sem hefur það að markmiði að bjóða upp á skemmtilegar og vandaðar ferðir á fjöll hér á landi og erlendis. Fyrsta verkefnið verður svokölluð 9.000 metra áskorun þar sem Haraldur mun leiða hóp í nokkrum æfinga- göngum og enda síðan á göngu á hæsta tind landsins, Hvannadals- hnúk. „Fyrir fimm árum tók ég að mér fararstjórn á Hvannadalshnúk fyrir Ferðafélag Íslands og komst á bragðið. Það er mjög gefandi að fara með fólk á hæsta tind lands- ins enda upplifir maður gönguna í gegnum fólkið. Maður sér sjald- an jafn ánægt fólk og á toppnum,“ segir Haraldur sem hefur gengið með fjölda manns á hnúkinn síðast- liðin fimm ár. „Á þessum tíma tók ég eftir að áhuginn hefur stöðugt farið vax- andi auk þess sem mér þótti þörf fyrir vandað undirbúningspró- gramm,“ útskýrir Haraldur sem ákvað að setja saman æfingapró- gramm sem myndi veita mönnum aðhald svipað og einkaþjálfun í heilsuræktarstöðvum. Æfingaferðirnar verða þrettán talsins og farnar á þriðjudögum eða laugardögum. Fyrstu göng- urnar eru auðveldar en þegar líður nær vori kemur að meira krefj- andi göngum. Meðal annars verð- ur gengið á Úlfarsfell, Akrafjall, Esjuna, Helgafell, Skarðsheiði, Vífilsfell og Móskarðshnúka. Sjálf gangan á Hvannadalshnúk verður farin laugardaginn 15. maí. En hver er hugsunin á bak við nafnið 9.000 metra áskorun? „Þegar ég fór að reikna saman hæðina á öllum göngunum komst ég að þeirri skemmtilegu staðreynd að hún var nærri 9.000 metrunum en það er svipuð hæð og hæsta fjalls heims, Mount Everest,“ segir Har- aldur glaður í bragði og minnist afreks síns frá árinu 2002. Kynningarfundur um 9.000 metra áskorunina verður haldinn á Grand Hóteli klukkan 20 í kvöld. Nánari upplýsingar má nálgast á www.fjallafelagid.is. solveig@frettabladid.is Níu þúsund metra hækk- un á fjórum mánuðum Nýstofnað Fjallafélag Haraldar Arnar Ólafssonar heldur kynningu á Grand Hóteli í kvöld til að kynna 9.000 metra áskorunina sem felst í reglulegum æfingagöngum sem enda með göngu á Hvannadalshnúk. Haraldur á toppi Mont Blanc. MYND/ÚREINKASAFNI Hjónin Guðjón Svansson og Vala Jóhannesdóttir fóru ásamt sonum sínum í árslangt ferðalag til Suður-Ameríku. Þar upplifði fjölskyldan ýmis ævin- týri og skemmti sér meðal annars á æfingavöllum sem eru hannaðir bæði með þarfir barna og fullorð- inna í huga. Svo heilluð voru hjónin af hugmyndafræðinni sem liggur til grundvallar þessum æfingavöll- um að þau voru ekki lengi að heim- færa hana upp á eigin vistaverur eftir komuna til Íslands. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er heimilisfólkið mjög ánægt með útkomuna, sér í lagi synir Guðjóns og Völu sem nýta tækin óspart til ýmissa leikja. roald@frettabladid.is Styrkjast í gegnum leiki Viktor Gauti grípur hér um kaðal sem hjónin létu setja upp í stofunni. Eins og litlir apakettir! Ekki er annað að sjá en að bræðurnir Patrekur Orri og Arnar Ingimundur skemmti sér konunglega í klifurhringjunum. LÝÐHEILSUSTÖÐ hefur gefið út fræðsluefnið Til- lögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum og hjá íþróttafélögum. Markmiðið er að stuðla að hollri næringu íþróttaiðkenda. www.lydheilsustod.is Pro Tools Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447 Föstudaga Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.