Fréttablaðið - 26.01.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.01.2010, Blaðsíða 38
22 26. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGURNÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 7 L 10 10 L DYHAT MORGANS kl. 4.40 - 8 - 10.20 MAMMA GÓGÓ kl. 4 - 6 - 8 - 10 AVATAR 3D kl.4.40 - 7 - 8 - 10.20 AVATAR 2D LÚXUS kl. 4.40 - 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.40 - 5.50 SÍMI 462 3500 BAD LIEUTENANT kl. 10 MAMMA GÓGÓ kl. 8 AVATAR 2D kl. 6 - 9 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 6 16 7 10 L L 10 L L L 12 L MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 - 10 AVATAR 3D kl. 5.30 - 9 FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTIÐ FRUMGRÁTURINN kl. 10 Enskur texti NIKULÁS LITLI kl. 10 Enskur texti ÞAÐ VAR EKKI ÉG, ÉG ... kl. 5.50 Enskur texti HJÖRTUN kl. 6 - 8 Enskur texti EDRÚ kl. 8 Enskur texti SÍMI 530 1919 16 16 14 L L L HARRY BROWN kl. 8 - 10.20 THE ROAD kl. 5.30 - 8 - 10.20 TAKING WOODSTOCK kl. 8 - 10.30 ALVIN & ÍKORNARNIR 2 kl. 6 íslenskt tal ALVIN & THE CHIPMUNKS 2 kl. 6 enskt tal JULIE & JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35 SÍMI 551 9000 .com/smarabio 600 600 600 600 600 Á EINU AUGNABLIKI BREYTTIST HEIMURINN... ...AÐ EILÍFU! 97.000 GESTIR! LANGVINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI YFIR 25.000 GESTIR! 600 Gildir ekki í 3D eða Lúxus AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. Í Háskólabíói 15.-28. janúar www.af.is Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 16 10 12 12 12 12 V I P L L L L L L L L UP IN THE AIR kl. 5:40 - 8 - 10:20 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 5:50D SHERLOCK HOLMES kl. 6 - 8D - 10:40D SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 WHIP IT kl. 8:20 BJARNFREÐARSON kl. 6 - 8:20 - 9 - 10:40 SORORITY ROW kl. 10:40 TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:50 (Síðustu sýningar) SHERLOCK HOLMES kl.6D -8D - 9D -10:10D -10:40D PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 5:50D BJARNFREÐARSON kl. 5:50 - 8 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 6 UP IN THE AIR kl. 8 - 10 BJARNFREÐARSON kl 5:40 SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:30 FRÁBÆR TEIKNIMYND ÞAR SEM SVEPPI FER Á KOSTUM Í HLUTVERKI LEMMA Frá höfundi SHREK sýnd með Íslensku tali ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 600 GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D OG BEINAR ÚTSENDINGAR - bara lúxus Sími: 553 2075 UP IN THE AIR kl. 8 og 10.10 7 DID YOU HEAR ABOUT THE MORGANS? kl. 10.10 L MAMMA GÓ GÓ kl. 6 og 8 10 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 6 - Ísl. tal L AVATAR 3D kl. 6 og 9 10 500 kr. 500 kr. 500 kr. Leikhús ★★★★ Góðir Íslendingar Eftir Jón Pál Eyjólfsson, Jón Atla Jónasson og Hall Ingólfsson Leikarar: Jón Atli Jónasson, Halldóra Geirharðsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Bergur Þór Ingólfs- son, Jón Páll Eyjólfsson, Hallur Ingólfsson Myndband: Mind- group Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir og leikhópurinn Búningar: Stefanía Adolfsdótt- ir og leikhópurinn Leikstjórn: Mindgroup (Jón Atli, Jón Páll og Hallur) Frumsýning á föstudegi í Borgar- leikhúsinu. Úti vindhviður og rign- ingarskúrir og hver hviða með sína stefnu. Innandyra flögruðu sjálf- hverfar frásagnir eins og lottókúl- ur í tilheyrandi blástursbúri.Enn einu sinni tekst þeim að reka oní landann sem kjaftstopp tekur á móti frösum, kækjum og klisjum úr sínum eigin orðaforða. Höfundarnir þrír hafa mark- að sér alveg ákveðið strangt form og fylgja því fast eftir. Formið er bæði í innri gerð verksins sem og í umbúðum þess og útfærslu. Sjö einstaklingar eru saman í búri búnu til úr neti, bæði hænsnaneti og fiskineti og kannski interneti ef því er að skipta. Meðan leikur- inn fer fram skiptast á myndskeið á sjónvarpsskjáum í bakgrunninum. Sömu myndir á mörgum skjáum eins og mannskapurinn sé í raun í Elko á laugardegi, þó að uppá kom- an hefði eins getað átt sér stað í einhverjum heitum potti sundlaug- anna, en er í sjálfu sér bara inni í hugskotum vorum. Samanber nafn leikflokksins. Samskipti þessara einstaklinga eru í raun og veru engin, þó orða- skiptin flæði fram eins og krækj- ur eftir eintal hvers og eins. Hver einstaklingur eða týpa stendur eins og fulltrúi ákveðinnar mann- gerðar eða hugmyndar um mann- gerð sem fyllir mengið Íslendingar samtímans. Vaðandi gluggaumslög upp í klof, gónandi á innihaldsleysi sjónvarpsauglýsinga bornar fram með nýja eintóna framburðinum birtast þessar persónur sem út og suður segja sína sögu án þess að í henni sé nokkur kjarni, nokkurt eiginlegt upphaf og alls ekki nið- urstaða. Samtölin sem eru í raun ekki samtöl heldur sjálfhverfar einræður skarast þó eins og keðju- söngur en þetta samskiptaform er vonlaust. Niðurstaðan var því ein- hvern veginn sú að þetta fólk væri algerlega vonlaust, nema af því að fólkið var geymt í búri sem vernd- aði það frá heiminum. Höfundarn- ir sem voru með í leiknum viðhöfðu svokallaðan „non acting“ eða ekki leikandi leik, sem í sjálfu sér er ein tegund leiks eða stílfærslu í leik- rænni tjáningu. Hallur Ingólfsson fór með hlutverk fulltrúa sem við öll þekkjum svo mæta vel hvort heldur er úr pólitíkinni eða bara úr síðustu fermingarveislu. Hann vissi allt um okkur sem við viss- um ekki. Frásögnin um hundinn Sí Sí sem verkið hefst á gefur tóninn um hvers við megum vænta. Hver saga fjallaði í raun um okkur sjálf, smellið form sem einnig var við- haft hjá þekktum spámönnum í Palestínu fyrir tvö þúsund árum. Mjög öflugur frásagnarmáti. Allar þær litlu sögur sem sagðar eru, hvort heldur þær fjalla um hár- greiðsluferðalag ungrar konu sem Dóra Jóhannsdóttir léði líf af snilld þar sem forheimskan og tómhyggj- an glumdi úr henni, voru í raun um sama hlutinn. Og eins botnaði túlkun Bergs Þórs Ingólfssonar á gigtveika manninum sem dýrkaði Taíland í þekktri stærð úr samtím- anum. Maðurinn var hvorki vond- ur né illa meinandi, bara skertur af heilaþvætti fordómanna sem með sínum demonska krafti hefur skapað hans sannleika. Í túlkun sinni kitlaði Bergur svo hlátur- taugar áhorfenda að bekkir skulfu og þar með salurinn í heild sinni. Það er ekki rétt að þakka honum einum fyrir gusurnar sem liðuðust eins og bylgjur yfir salinn. Halldór Gylfason í sínu ámátlega hlutverki venjulega gæjans átti líka sína spretti sem og þeir Jón Páll og Jón Atli. Að ógleymdri Halldóru Geir- harðsdóttur í hlutverki 2007-kon- unnar eða hvað maður á nú að kalla svona jeppadís með heimssýn eins og úr röri. Leikmyndin sem hópurinn sjálf- ur á heiðurinn af er jafn stór hluti af listaverkinu og það handrit sem liggur til grundvallar. Það er eins og allar greinar leikhúslistarinnar nái hér jafnvægi, bæði lýsingin og tónlistin í þessum keðjusöng sem ætti nú að orka sem blaut tuska í andlit margra því það er akkúrat ekki boðið upp á neina breytingu né von um breytingu, byltingu, lausn eða andlegt flug meðan einstakling- arnir eru eins og fiskar í kringlóttu fiskabúri bryðjandi eitthvert sefj- andi rítalín. Þetta er hressi legri og hollari sýning en sést hefur lengi, að vísu aðeins í lengri kantinum þar sem ekki var hlé. Ef Íslendingar eru jafn vitlausir og þeir birtast í þessu verki, þá er okkur óhætt að baða okkur bara í dæet kók og smæla framan í heim- inn eins og hingað til, en sé einhver von þá er kaldhæðin og beitt ádeila af þessu tagi það eina sem getur hjálpað okkur til þess að við förum að hugsa og gera eitthvað. Það er óhætt að segja að sýningin, með undirliggjandi svari við spurning- unni Hver fann upp kokteilsósuna, létti af manni fargi. Mjög gaman! Elísabet Brekkan Niðurstaða: Ein hressilegasta og hollasta sýning sem sést hefur lengi. Mjög góðir Íslendingar GÓÐIR ÍSLENDINGAR Jón Atli Jónasson í hlutverki sínu í leikritinu Góðir Íslendingar. Sýningin fær afbragðsgóða dóma. Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið hefst 1. febrúar. Skráning hafi n í síma 695 8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org Verð 14.900 kr. Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið Meðgöngujóganámskeið Stakur tími 1.500 kr. • Mánaðarkort 10.900 kr. • 3 mánaðakort 23.900 kr. • 6 mánaðakort 36.000 kr. • 10 tíma klippikort 10.000 kr. Meðgöngujóganámskeið 10.500 kr. Innifalið í kortum eru allir opnir tímar ásamt þeirri þjónustu sem boðið er upp á í Veggsport. Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport) Sími: 695 8464 og 772 1025 www.jogastudio.org Ný og persónuleg jógastöð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.