Morgunblaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  125. tölublað  98. árgangur  RAUÐHÆRÐA FÓLKIÐ FÆRIR ÚT KVÍARNAR BROTIÐ BLAÐ Í HANDBOLTA KVENNA KONUR ERU KJARKMEIRI EN KARLAR Í ÚRSLITAKEPPNI EM CROSS-FIT 10AF RAUÐHÆRÐUM 35 16% er það hlutfall erlendra eigna sem lífeyrissjóðir munu nú selja 19% er skuldaaukning ríkisins í erlendri mynt vegna kaupa á bréfunum ‹ ÍBÚÐABRÉF › » Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Erlendar eignir lífeyrissjóðanna munu minnka um tæp 16% eftir að gengið var frá samkomulagi við Seðlabanka Íslands (SÍ) um kaup á íbúðabréfum að nafnvirði 90 millj- arða króna í gær. Um er að ræða hluta þeirra bréfa sem SÍ keypti af Seðlabanka Lúxemborgar fyrir skömmu, en hluti þeirra féll SÍ í skaut í kjölfar bankahrunsins í októ- ber 2008. Til að fjármagna kaupin hyggjast lífeyrissjóðir selja hluta erlendra eigna sinna, sem nema tæplega 3,5 milljörðum evra í heild miðað við op- inbert gengi SÍ. Alls greiða lífeyr- issjóðirnir 549 milljónir evra fyrir eignirnar. Íbúðalánasjóður gefur út íbúðabréf, en þau eru verðtryggð með ríkisábyrgð. Heildarútgáfa íbúðabréfa var 703 milljarðar króna í lok síðasta árs, og því eru sjóðirnir nú að kaupa rífleg- an hluta útistandandi íbúðabréfa með viðskiptum gærdagsins. Brúttóforðinn stækkar Af 549 milljónun evra sem lífeyr- issjóðirnir hyggjast greiða SÍ fyrir bréfin munu 35 milljónir strax renna til Seðlabanka Lúxemborgar vegna samningsins sem innsiglaður var um miðjan maí. 514 milljónir evra munu síðan bætast við gjaldeyrisvaraforða bankans. Brúttógjaldeyrisvaraforði bankans mun því aukast sem því nemur. Nettógjaldeyrisstaða bank- ans er engu að síður enn neikvæð, vegna þess að stærstur hluti forðans er fenginn að láni. Heildarskuldir íslenska ríkisins í erlendri mynt aukast að sama skapi um 64 milljarða króna, en í lok apríl námu þær um 340 milljörðum króna. Aukningin er 19%. »14 Lífeyrissjóðir selja erlendar eignir  Borga Seðlabanka Íslands 549 milljónir evra fyrir stafla af ríkistryggðum, verð- tryggðum skuldabréfum  Ekki um nýfjárfestingu að ræða samkvæmt reglum SÍ Morgunblaðið/Kristinn Lífeyrissjóðir Kaupa íbúðabréf. Andri Karl og Helgi Bjarnason Viðræður eru hafnar um meirihlutasamstarf í sveitar- félögum víða um land, bæði formlegar og sums staðar óformlegar. Í borginni hófust viðræður Besta flokksins og Samfylkingar í gær og verður fram haldið í dag. Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, segir að um hálfgerðan stefnumótaleik að erlendri fyrirmynd sé að ræða. Það sé betra en að „rjúka beint í rúmið eins og tíðkast hefur“. Á fyrsta fundinum komust fulltrúar flokkanna að sam- komulagi um fundaskrá fyrir vikuna. Dagur B. Eggerts- son, oddviti Samfylkingar, segir að farið hafi verið yfir sviðið og hugmyndir flokkanna séu ekki svo ólíkar. Gangi viðræður að óskum verður Jón Gnarr næsti borgarstjóri Reykvíkinga, en það er óhagganleg krafa Besta flokks- ins. Oddvitar Samfylkingarinnar og VG í bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákváðu í gærkvöldi að hefja formlegar meirihlutaviðræður. Viðræður fjögurra flokka um mynd- un nýs meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs hafa staðið frá því á sunnudag. Oddviti Samfylkingarinnar telur að vinn- an fari langt í dag, jafnvel að meirihlutinn fæðist. Rætt verður um verkaskiptingu á fundum oddvitanna í dag. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar gerðu í gærkvöldi skriflegt samkomulag um að endurnýja meirihlutasamstarf flokk- anna. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur verið bæjar- stjóri en framsóknarmenn gerðu kröfu um að staðan yrði auglýst og varð það niðurstaðan að sögn Eiríks Finns Greipssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins. Endurtalning á Dalvík breytti ekki úrslitum Atkvæðin í kosningunum í Dalvíkurbyggð voru talin að nýju, að kröfu umboðsmanns Framsóknarflokksins, en flokkinn vantaði aðeins eitt atkvæði til að fá sinn annan mann kjörinn á kostnað fjórða manns J-listans. End- urtalningin breytti ekki niðurstöðunni og því hefur J- listinn hreinan meirihluta. Stefnumót í borginni Morgunblaðið/Ómar Viðræður Oddvitinn Jón Gnarr fær sér kaffi á fundi með samstarfsfólki sínu í Besta flokknum í gærkvöldi.  Viðræður um meirihluta víða hafnar  Meirihluti gæti fæðst í Kópavogi í dag  Auglýst eftir bæjarstjóra á Ísafirði MUmfjöllun í kjölfar kosninganna 2, 4, 6, 8, 12, 16 Óskar Bergsson, fv. oddviti Fram- sóknar í Reykja- vík, telur að Ein- ar Skúlason hafi staðið óeðlilega að framboði sínu til oddvita flokks- ins í borginni. Einar hafi í kjöl- farið lagt út í kosningabaráttu með takmarkað bakland, enda hafi margir framsóknarmenn ekki getað hugsað sér að styðja hann. Guðni Ágústsson telur klíku á bandi Einars hafa „slátrað“ besta manni flokksins í borginni, Óskari Bergssyni, með aðferðum sem vart teljist löglegar. Guðni skýtur föstum skotum að Jóni Gnarr og leiðir líkur að því að fram- boð Besta flokksins sé uppsetning á gamanleik. baldura@mbl.is »4 Telur bellibrögð hafa komið oddvitanum í koll í kosningunum Óskar Bergsson Alls var 1.745 kjörseðlum breytt í Kópavogi í kosningunum á laug- ardag, með útstrikun eða endur- röðun. Þar af var 1.483 atkvæðum breytt á lista Sjálfstæðisflokksins, sem er um 36% af þeim atkvæðum sem flokkurinn fékk. Að sögn Jóns Atla Kristjánssonar, formanns kjör- stjórnar í Kópavogi, var áberandi hve oft Ármann Kr. Ólafsson og Gunnar I. Birgisson voru strikaðir út eða röðun þeirra breytt. Þetta hafði þó ekki áhrif á niðurstöðu kosninga. Á Akureyri voru flestar útstrikanir á lista Sjálfstæðisflokks, eða nærri 30% af atkvæðum flokks- ins, og 16,8% á lista Samfylkingar. aij@mbl.is »8 Útstrikanir í Kópa- vogi og á Akureyri flestar hjá D-lista „Við teljum tjónið minna með því að fresta mótinu,“ segir Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossa- bænda. Hagsmunaaðilar í hesta- mennsku og hrossarækt og fulltrúar stjórnvalda ákváðu í gær að fresta Landsmóti hestamanna, sem vera átti á Vindheimamelum um næstu mánaðamót, um ár vegna smitandi hósta sem herjar á hrossastofninn. Kristinn segir að hestamennskan sé alveg lömuð vegna veikinnar. Menn selji ekki hesta og tamninga- stöðvar séu í lamasessi. Þá hafi veik- in og frestun landsmótsins áhrif á ferðaþjónustuna því von hafi verið á fjölda erlendra ferðamanna á lands- mótið og í hestaferðir í tengslum við það. Leggur hann áherslu á að reynt verði að koma hestamennskunni í gang aftur síðar í sumar, til að draga úr tjóninu. „Það er allt afbókað í tíu daga í kringum landsmótið. Þetta er tölu- vert fjárhagslegt tjón, nema hægt verði að finna eitthvað í staðinn,“ segir Rósa Vésteinsdóttir sem rekur ferðaþjónustu á Hofsstöðum í Skagafirði. Rósa segir að byrjað sé að huga að öðrum möguleikum. Rósa á einnig aðild að stórri tamninga- stöð. „Við ákváðum í síðustu viku að hengja hnakkana upp og afskrifa landsmótið,“ segir hún. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Mikið fjárhags- legt tjón  Landsmóti hesta- manna frestað um ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.