Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Blaðsíða 44
44 Lífsstíll 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað Seldu húsið og skoða heiminn É g lít ekki svo á að við séum strandaglópar á Íslandi. Maður er strandaglópur ef maður er á stað sem maður vill ekki vera á,“ segir Kanadamaðurinn Rocky Vachon. Hann kom ásamt kærustu sinni, Paulu Fatia, til Íslands á mánu- daginn í síðustu viku. Þau urðu fyrir því óláni, þegar þau komu til Íslands frá Bandaríkjunum, að afgreiðsla á mótorhjólinu þeirra tafðist hjá tolla- yfirvöldum í Ameríku. Þau höfðu gert ráð fyrir að bíða í nokkra daga eftir hjólinu en sú bið lengist um viku, hið minnsta. Rocky og Paula, 35 og 33 ára, tóku saman fyrir um þremur árum. Þau höfðu bæði hug á að leggja land und- ir fót, eða hjól, og skoða heiminn. Einu ári eftir að þau kynntust hafði Paula selt húsið sitt og jafnaði þá upphæð sem Rocky hafði safnað sér. Þau hættu bæði í vinnunni og settust upp á hjólið. Þau óku frá heimabæ sínum, Hamilton í Ontario-héraði í Kanada í ágúst 2011. „Við fórum vestur Kanada, í gegnum Vancouver og þaðan yfir til Bandaríkjanna,“ segir Paula um upphaf ferðalagsins. „Við ferðuðu- mst um Bandaríkin, fórum þaðan til Mexíkó, Belís og svo Gvatemala,“ heldur hún áfram. Þegar þau nálg- uðust suðurhluta Ameríku, eftir 146 ferðadaga og 25 þúsunda kílómetra akstur, tók ferðalagið á mótorhjólinu óvæntan endi. Flutningabíll þröngvaði þeim út af veginum og þau höfnuðu ofan í skurði – eiginlega á kaf í skolp. Þau sluppu bæði ómeidd en hjólið skemmdist töluvert og varð óökuhæft. Lærði að gera við hjólið Rocky, sem er menntaður rafmagns- verkfræðingur, hófst strax handa við að endurbyggja hjólið og skipuleggja framhald ferðarinnar. Hann segist ekk- ert hafa kunnað þegar hann byrjaði að skrúfa það í sundur og panta varahluti. Hann tók myndir af hverju skrefi og setti allar skrúfur og bolta í poka sem hann merkti. „Ég er ekki bifvélavirki en ég get næstum því kallað mig það eftir þetta,“ segir hann og hlær. „Það er gott að þekkja hjólið þegar eitthvað kemur upp á. Ég kunni ekki að gera við dekk þegar ég byrjaði en núna get ég bjarg- að mér með flest. Ég reyni að gera allt sjálfur,“ segir hann. Þau fóru aftur af stað í byrjun sumars og hafa verið á ferðalagi um Kanada í næstum 70 daga og ferðuðu- mst um austurhluta Kanada, Ný- fundnaland og Labrador. Því næst flugu þau til Íslands. Boðið í bústað Rocky og Paula njóta nú íslenska sum- arsins, þó megnið af farangri þeirra, auk fararskjótans, vanti. Þau hafa verið tiltölulega heppin með veður. Fyrstu nóttina gistu þau við Keflavíkur- flugvöll en næsta dag húkkuðu þau sér far í Reykjanesbæ, þar sem þau komust í verslun og nettengingu. „Við erum með fötin okkar og tjaldið. Það er nóg í bili,“ segir hann af því æðru- leysi og þeirri gleði sem einkennir fas þeirra beggja. Á föstudaginn hittu þau Gylfa Jón Gylfason, fræðslustjóra í Reykjanesbæ, fyrir utan ráðhúsið í bænum þar sem þau höfðu tjaldað. Gylfi Jón bauð þeim í mat og í kjölfarið að dvelja í sumar- húsi hans að Hafurbjarnarstöðum, á milli Garðs og Sandgerðis, þar til þau fá hjólið í hendurnar. Þau eru hæstá- nægð með þá gestrisni. Gylfi Jón hefur sýnt þeim Reykjanesið og þau hafa meðal annars skoðað Gunnuhver, vin- sælan ferðamannastað við Reykjanes- vita. Þá fengu þau lánaðan bíl hjá heimamanni til að fara í dagsferð að Gullfossi og Geysi. Flækingar Rocky og Paula halda úti skemmtilegri vefsíðu þar sem fylgjast má með ferða- lagi þeirra. „Not all those who wander are lost“ eru einkennisorð vefsíðunn- ar. Á íslensku gæti það útlagst sem: Flækingar eru ekki alltaf villtir. Tilvitn- unin er úr Hringadróttinssögu en slóð vefsíðunnar er einmitt notallthose- whowanderarelost.ca. Rocky tekur myndir og Paula skrif- ar texta um það sem á daga þeirra drífur á ferðalaginu. Þar má meðal annars sjá nákvæmt sundurliðað yfir- lit yfir eyðsluna á ferðalaginu, en á ferð þeirra um Ameríku eyddu þau að jafnaði sem jafngildir 6.600 krónum á dag. Þau spara mjög við sig í mat og gistingu enda tjalda þau yfirleitt utan hefðbundinna tjaldstæða. „Stundum komumst við ekki í sturtu svo dögum skiptir,“ segir Paula og hlær. „Núna veit ég hvernig það er að vera skítugur hjól- reiðamaður (e. dirty biker).“ Sigur Rós í uppáhaldi Þau stefna á að vera tvær til þrjár vik- ur á ferðalagi um Ísland eftir að þau fá hjólið. Þau hafa merkt við marga staði sem þau ætla að heimsækja hér, en Rocky er mikill aðdáandi hljóm- sveitarinnar Sigur Rósar. Hann féll fyrir landinu þegar hann sá heimilda- myndina Heima, um tónleikaferðalag sveitarinnar um Ísland. Þau Rocky og Paula áætla að ferð- ast þar til peningurinn klárast. „Við ætlum næst til Danmerkur, með Nor- rænu, og svo sunnar, þegar fer að hausta. Við ætlum í haust til Portúgal, þar sem Paula fæddist og á fjölskyldu sem hún þekkir lítið. Hún hefur ekki komið þangað frá því hún var þriggja ára,“ útskýrir Rocky. „Fjölskylda mín býr í Portúgal og Frakklandi. Ég þekki þau ekki en hef hitt suma einu sinni, fyrir löngu síðan. Það verður gaman að hitta þau,“ bætir Paula við. Þau gera ráð fyrir að verja vetrin- um í Portúgal og hyggja á að heim- sækja Marokkó líka. Þegar fer að vora ætla þau að færa sig norðar á bóg- inn og heimsækja Sviss og Ítalíu, hið minnsta. „Okkur langar að fara til Egyptalands, aka með Nílarfljótinu og heimsækja Jórdaníu. Við verðum svo að sjá til hvort hægt verður að fara til Tyrklands og Alsír en aðstæður í þeim löndum verða að ráða því,“ seg- ir Rocky. Hann hefur að auki reynt að sannfæra kærustu sína um að heim- sækja Pakistan og Íran, en til Íran langar Rocky mikið að koma, sérstak- lega norðurhéraðanna. „Ég er enn að reyna að sannfæra hana …“ „Við sjáum til,“ grípur hún fram í og hlær. Þau ætla að láta veðrið ráða för, svolítið eins og Íslendingar. „Við för- um heim þegar við erum annaðhvort orðin leið hvort á öðru eða blönk.“ Finna frið á hjólinu Þau viðurkenna aðspurð að það geti tekið á að vera saman á ferða- lagi allar sólarhringinn, svo vikum og mánuðum skiptir. Stundum kast- ist svolítið í kekki. „Við erum stund- um spurð hvers vegna við notum ekki hljóðnema til að tala saman þegar við erum á mótorhjólinu,“ segir Paula en segir að það komi ekki til greina. „Við notum tímann á hjólinu til að hugsa og vera út af fyrir okkur,“ seg- ir Rocky. „Þó við sitjum þétt saman þá eru þetta einu stundirnar sem við fáum frið hvort fyrir öðru. Það skipt- ir máli,“ segir hann og Paula tekur í sama streng. Þau segja að mótorhjólið veiti þeim mikið frelsi. Þau geti skoðað staði sem aðrir þurfa jeppa til að kom- ast á. Hjólið komist vegi sem smábíl- ar komist ekki. „Þetta er eins og jeppi á tveimur hjólum – þannig komumst við lengra og getum séð meira en ef við værum á bílaleigubíl,“ segir Rocky en bætir við að Paula verði svolítið hrædd ef vegirnir eru mjög slæmir. Hugmyndin kviknaði í Taívan Fyrir um tíu árum var Rocky að vinna við enskukennslu í skóla í Taívan, til að eiga fyrir háskólanámi. Hann keypti sér vespu og fór að aka um strendur landsins. Það var þá sem hann fékk þá flugu í höfuðið að ferðast um heiminn á mótorhjóli. Hugmyndin var nokkur ár í gerjun og undirbúningi. Eftir há- skólanám fékk hann vinnu sem gaf vel. En vinnan átti ekki við hann. „Ég þoldi ekki vinnuna og gat ekki hugs- að mér að sitja á bak við skrifborð næstu 30 árin. Svo kynntist ég Paulu og sagði henni frá því hvað mig lang- aði að gera,“ útskýrir Rocky. Paula seg- ir að hana hafi líka langað til að ferðast en í fyrstu hafi hugmyndin um að gera það á mótorhjóli verið fráleit. Honum hafi þó fljótt tekst að sannfæra hana um ágæti þess að ferðast um á mótor- hjóli. „Ég féll fyrir stöðunum sem hann ætlaði að heimsækja,“ segir hún. Húsið seldist og þau drifu sig af stað, eins og fram hefur komið. Paula segist þó stundum sakna heimahag- anna, fjölskyldunnar og kattanna sinna, sem eru 13 og 17 ára. Þeir eru í pössun hjá bróður hennar og móður og heyra má að hún óttast að hitta þá ekki aftur. „Kettir geta alveg náð 20 ára aldri,“ segir Rocky til hughreystingar. n n Rocky Vachon og Paula Fatioa fóru í heimsreisu á mótorhjóli n Fengu höfðinglegar móttökur í Reykjanesbæ Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Við erum með fötin okkar og tjaldið Fararskjótinn Þau skötuhjú lentu utan vegar í El Salvador í janúar 2012. Þau sluppu ómeidd en gerðu hlé á ferðinni því hjólið skemmdist. Nú eru þau aftur komin af stað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.