Fram


Fram - 08.03.1918, Blaðsíða 1

Fram - 08.03.1918, Blaðsíða 1
Verz/un Síg. Sigurðssonar Sig/ufirði. Sími 21. Stærst úrval! Lægst verð! npfifippf7f& II. ár. SiglufirÖi 8. marz. 1918. 7. blað. Ollum peitn sem sýndu okkur hluttekningu við jarð- arför litla drengsins okkar, vottum við okkar innilegasta þakklæti. Guðrún Jóhannesdóttir. Jens Eyjólfsson. Svar til Friðbj. ritstj. og G. Bíldahls. - -o— Eg sé.að í fyrsta og öðru tbl. Frams II árg. hafa þeir Guðmund- ur Bíldahl og Friðbjörn ritstj. Níels- son tekið til athugunar bréf það sem eg skrifaði og byrtist í 56. tbl. sama blaðs f. ár. Vegna þessa ætla eg að biðja blaðið fyrir eftirfarandi línur. G B fer mörgum orðum um landsversiun og kaupfélagsskap. Honum þykir eg vera of fylgjandi slíkri verslun, því hann vill að mér skiist, dýrka og tilbiðja kaupmenn, og háfa þá sem leiðarstjörnu á versl- unarbrautinni. Pað virðist eftir hans kenningu vera synd að framleiðend- ur sjálfir hugsi neitt um það að koma sínum vörum í sem best verð og landsstjórnin á að vera óhæf, vegna þess hún hjálpi þeim ti! þess. Hann telur landsverslunina hafa »stóra ókosti,« og má það vera að eitthvað megi að henni finna, en hitt er ekki ofmælt hjá mér að líkur séu til að hún hafi afstýrt neyð, og skal eg fara nokkrum orðum um þetta frekar. Það verður ekki séð að kaupmenn hafi haft ástæðu til að minka innkaup sín hennar vegna, enda landsstjórnin kvatt þá til að halda þeim áfram, því ekki hafa menn orðið þess áskynja að þeir haf. legið með matvörur sinar oseldar til lengdar, hafi þeir viljað losna við þær, því altaf hefir ver.ð me.r. eftirspurn eftir þeim vörum, en þeir hafa getað fullnægt. . Af þessu má draga þa alyktun að kaupmenn hafi gjö'rt _ það sem þeir gátu til þess að útvega sér vörur, því svo dýrt hafa þeir selt að vel borgaði sig fyrir þá, þess vegna, að fá vörur. Pegar litið er á það að landsverslunin hefir útvegað mikið af matvöru, verður ekki hægt að álíta annað en ofmikil neyð hefði orðið, ef hún hefði ekki verið, vegna vöruskorts. Pá er að *).íta á verðmun þann sem verið hefir hjá kaupmönnum og landsverslun því þeir hafa oft selt 20 kr. dýrara hverja matartunnu e n hún, og kunnngt er það að hún hefir selt kaffi á kr. 2,10 pr. kgr., syakur 1,25 og 1,45 pr. kgr., en k upmenn kaffi kr. 3,20, sykur 1,60 og 1,90 til 2,00 pr. kg. Þessi verð- munur er svo mikill aðokkurbænd- ur munar um hann, en síldarfólkið hefir máske svo mikla uppbótar og gjafapeninga að því sé sama hvao dýrt það kaupir, ef kaupmenn að eins eiga í hlut. Viðvíkjandi því að kaupmenn hefðu auðgað sig á neyð annara, sem F. N. þykir ofmælt hjá mér, er það að segja að ýms dæmi má finna sem benda í þá átt. Var ekki kaffi selt á Siglufirði í vor sem leið á 5 kr. og 50 aura pr. kgr.? Var þar ekki líka selt rúgmjöl um tíma á 80 eða jafnvel 1 kr. pr. kgr. Ennfremur má geta þess að á Akranesi í Borgar- fjarðarsýslu, voru ræktaðar kartöflur á síðastl. sumri, sem kaupmenn í Reykjavík keyftu og borguðu um 30 kr. pr. tunnu en seldu svo þeg- ar til Reykjavíkur kom á 50 til 60 kr. hverja tunnu. Þessi kartöflu sala mæltist svo illa fyrir að jafnvel kaupmannablað- ið »Landið« andmælti henni, sem verstu óhæfu, og fer þar meðal annars svofeldum orðum um hana. »Hér er augljóst dæmi um þá illu tilhneigingu sem kemur víða fram, og á auðvelt starf á þessum tímum nfl. tilhneigingin til að nota sér neyð almennings og vöruskortinn til þess að okra.« Pessi ummæli flytur það blað sem áður hefir haldið því fram að best væri fyrir þjóðina að efnin söfnuðust á sem færstar hendur, en hér þykir því þó oflangt geng- ið og er það þakkarvert að það er ekki svo blint af kaupmannafylgi að þeir geti ekki ofboðið þvi. Þau hefðu líklega orðið nokkuð mörg svona dæmi ef landsverslunin hefði ekki verið, og get eg ekki séð að eg hafi oflofað hana. F. N. neitar því að það sé lífs- starf kaupmanna að lifa á annara framleiðslu. En á hverju lifa og á hverju græða kaupmenn sem ekkert framleiða sjálfir? Öðru en því að selja annara framleiðslu dýrari en þeir kaupa hana. Hitt er annað mál að nokkrir kaupmenn eru framleið- endur, því það hefir þótt álitlegur gróðavegur að hafa verslun með út- gerð, svo hag^r af viðskiftum þeirra sem atvinnu hafa við útgerðina renni í þeirra eigin vasa, að sem mestu leyti, og eru til margar sagnir um slík viðskifti ekki síst þegar atvinnu- þiggjandinn þarf að skulda við versl- un útgerðarmannsins. Rað er sorglegt að hjá Bíldahl, kemur fram sú hugsun að kaupfé- lög og landsstjórn eigi óþökk skilda fyrir það að gjöra sitt.itrasta til þess að koma kjöti í sem hæst verð, því það er lífsskilyrði fyr.r hverja þjóð, að útflutningsvörur hennar séu í sem hæstu verði. Hann langar auð- sjáanlega til þess að sú vara sé í sem lægstu verði til þess að kaup- staðarbúar geti notið góðs af því, og vill þess vegna ekki láta flytja það til Noregs, af því þar fæst hærra verð en Englendingar vilja borga. Þetta er svo leiðinleg og skaðleg framkoma gagnvart aðalframleiðslu- vöru aðalatvinnuvegar landsins, að hún verður aldrei nógsamlega vítt. Hvað mundu útgerðarmenn segja ef landbændur gerðu kröfu um það að þeir mættu ekki selja fisk og fl. með hærra verði en Englendingar i vilja gefa fyrir hann, og sömu eru hlutföllin, því bændur þurfa að kaupa mikið af honum. Eg vona og veit að slík krafa kemur ekki fram, en gott þætti mér ef Bíldahl vildi benda mér á ef svo yrði, því eg vildi verða með í því að kveða hana niður. Eg get að öðru leyti verið stuttorður um kaujrfélögin, því Friðbj. hefir að mestu leyti svarað því og er skemti- legt að heyra að kaupmaður getur litið með sanngirni á kaupfélagsmál- in, því á maður ekki að venjast. Pó er það misskilningur hjá honum að eignir »Kaupfélags Eyfirðinga« séu eingöngu frá utanfélagsmönn- um, því félagsmenn skifta þeim hag- naði sem þeir hafa á viðskiptum við félagið; taka um helming af honum en leggja hitt fram sem veltufé fyr- ir félagið. Eg vil benda því til Bíldahls að nær væri honum, se.n góðum Sigl- firðing, að kveðja þá til þess að endurreisapöntun þá sem verkamenn eitt sinn höfðu á Siglufirði, með ' góðum árangri, heldur en níða kaup- félögin, því svo mikið munaði á verði þar eða hjá kaupmönnum, að góður skildingur mundi það nú vera ef henni hefði verið framhaldið og endurbætt, sem lent hefði hjá al- menningi. Eg get tekið það fram að eg á- lít marga kaupmenn sómamenn, og starf þeirra er löghelgað af þjóðfé- laginu, en nauðsynlegt er að hafa jafnframt kaupfélags starfsemi, svo almenningur eigi kost á að njóta hagnaðarins, af viðskiftum sínum, og til þess að starfa að verðhækk- un á framleiðsluvörunum. Þá fer Bíldahl nokkrum orðum um tollhækkun sem eg minnist á í bréfi mínu og sneiðir þar vandlega hjá merg málsins, sem eg held hann komi ekki auga á. Hann segir: »Hvaða maður með heilbrigðri skin- semi myndi greiða atkvæði með toll- hækkun sjáfarafurða? Enginn.« Hér kemur hann með þá kenningu að 12 þingmenn séu veiklaðir á geðs- munum og væri gérlegt fyrir hann að leita þeim lækningar. Nú er ástandið svo að verðlags- skráin hefir hækkað mikið vegna þess að gangverð frainleiðsluvar- anna hefir hækkað, og eins og hann ætti að vita, byggjast landbúnaðar- skattar á henni; án tillits til fram- leiðslukostnaðar. Enn aftur á móti hvílir útflutningsgjaldið á ákveðnum þunga, án tillits til verðhækkunar, því nú er verðhækkunartollurinn af- numinn. Af þessu sést að hlutföll- in sem áður voru milli þessara tekju- greina landssjóðs hafa mikið breyst og þess vegna hefði bráðabirgða- hækkun á útflutningsgjaldinu verið sanngjörn. Þetta ætti að liggja ljóst fyrir og menn að skilja. Um hitt hvor atvinnuvegurinn hefir meiri framleiðsíukostnað, ætla eg ekki að metast, en aðeins geta þess að að- ialútflutningsvara okkar bænda, kjct- ið, hefir lækkað í verði og hross hafa alls ekki verið seljanleg útúr landinu; og þó hefir ábúoar og lausa- fjárskattur hækkað, sem nokkuð staf- ar af því að afurðir sjáfarins hafa hækkað ogframleiðsukostnaður hvað vinnu snertir. F. N. telur rétt að útflutningsgjald yrði prósentugjald, eftir verði vör- unnar að frádregnum framleiðslu- kostnaði. Eg er honum sammála með það að prósentugjald ætti það að vera, þar sem það er ekki nú, og hefi eg lagt til að svo yrði, í grein sem fór til Reykjavíkur til byrt- ingar þar og einnig í áður umgetnu bréfi mínu. Pað getur verið álitamál, hvort rétt sé að draga framleiðslukostnað frá og gjöra hann tollfrían, því mjög mismunandi er hann, eftir staðhátt- um, þó um sömu tegund framleið- slu sé áð ræða, sem ekki er hægt að gjöra ráð fyrir, þegar hann yrði áætlaður. Pá verður honum mjög skrafdrjúgt um ummæli mín . viðvíkjandi síldar- kongunum og telur þau »vítaverð,« en heldur jafnfram ákveðna lofræðu um þá, sam bjargvætti þjóðarinnar. Athugum þetta nánar. Síldveiðin er talin standa yíir 2 mánuði, en kunn- ugir vita að af þeim tíma gengur mikið frá, svo flest árin mun veið- in berast á land á svo sem3 vikna tíma, því hún er mjög komin undir tíðarfari. Eftir þessu hafa síldarkongar hag- að sér og ráðið svo margt fólk að hægt væri að salta síldina þó hún bærist á land á stuttum tíma. Þetta veldur því að fólkið verður of margt til þess að atvinna þess geti talist sæmileg; því þó margir vaki daga og nætur, þegar þessar stóru hrúg- ur koma á land þá þola fæstar hend- ur að vera með síldarhreistur og óþverra í marga daga samfleytt. Það er satt að allir viti að »veiðin get- ur brugðist« en hitt vita 'ekki vinnu- þiggjendur þegar þeir ráða sig til vinnu, hvað maigt fólk er ráðið og að litlar líkur eru til að hægt sé að atvinnan verði góð, enda hafa víst sumir þessir síldarmenn, sem sam- viskusamir eru, fundið til þess hvað óheilbrigt er við þessa atvinnu, og sýnt það í verkinu, með því að gefa nokkrar krómy, til hugnunar og til þess að míkja skap surtira vinnu- þiggjenda. Svona lít eg á málið, og kalla þess vegna sum atriði sem þeir nota blekking. Lítum svo á eftirtekjur þjóðfélagsins af þessari síldarveiði og eru það fáir einstaklingar sem stór græða, en allur fjöldinn, sem

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.