Tíminn - 30.05.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.05.1962, Blaðsíða 1
Fólk er fceSið að athuga. a9 kvö!rt«ími blaíliamsínrea er 1 8 3 0 3 SÚLUBÖRN AfgreiSslan í Banka- stræti 7 opnuð kl. 7 alla virka daga „Svartur mánu- dagur” í kaup- höllinni í N.Y. NTB—New York, 28. maí. Gífurlegt verðfall varS í gær á verSbréfum í kauphöllinni í Wall Street í New York. Út- reikningar sýndu, aS verS- hrun þetía, aSallega á verð- bréfum í brezkum fyrirtækj- um, nam yfir 20 milljörðum dollara, eða sem svarar þrem prósentum nettó af saman- lagSri verðbréfaeigninni. Á hálfri klukkustund höfðu sum verðbréfin fallið í verði um milijónir dollara. Mikil skelf- ing greip um sig meðal fólks, ; sem verðbréf átti, við f regn í þessa. Fjármálamenn í New ! York sátu langt fram á nótt og reiknuðu út tjón sitt vegna verðfallsins. | Stjórnin i Washington hefur látið í ljós mikinn ugg vegna þessa (atburðar og lýst því yfir, að fjár- j málastjórn landsins sé nú stefnt í ; bráðan voða, og viðs'kiptagildi doll arsins sé í hættu. Sem dæmi um, ! hve mikilli ringulreið atburðurinn I olli, má nefna, að fjarritarar, sem i venjulega greina frá kauphallar- . viðskiptum, urðu 2 klst. og 20 mín- ' útum á eftir með fréttina. Er þetta ! mesta verðhrun, sem orðið hefur : í kauphöllinni síðan árið 1929, er heimskreppan skall á . Gengur nú dagurinn í gær und- (Framh a 15. siðui sasKazi Guðlaug Helgadóttir (t.v.) og Gerður Guðmundsdóttir (th.) bíða þess að fá að komast inn í aug- lýsingaskrifstofuna. Þær voru í óða önn að Ijúka við hádegisaug- lýsingarnar í gær, þegar þrír rnenn snöruðust inn til þeirra og sögðu þeim, að kom? sér út, því þelr ættu að innsigla skrifstof- una. Á hurðarhúninum sést inn- siglið. (Ljósm.: Tíminn, GE) SKATTHEIMTUMENN LÆSTU ÚTVARPINU! I GEYSIS-MEWN SJA 4. SIÐU I fyrrakvöld fór Ólafur Jó- hannesson, varaformaður Fram- sóknarflokksins nokkrum orðum um kosningaúrslitin í fréttaauka Ríkisútvarpsins, þar sem ýmist formcnn eða varaformenn flokk anna töluðu. Ólafur sagði m.a.: ,,Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka fólki það traust, sem það hefur í þessum kosningum sýnt stefnu og starfi Framsókn- arflokksins. Það er okkur sönn- un þess að við höfum barizt fyrir góðum málum . . . . “ Ávarp sitt endaði Ólafur á þessum orðum: „Ég vil svo aðeins að endingu þakka öllum hinum mörgu, sem unnið hafa að glæsilegum sigri Framsóknarflokksins í þessum kosningum“. Um 12-leytið í gær komu þrír menn niður í Ríkisútvarp í þeim erindagerðum, að stöðva að einhverju leyti starf semi þess, sökum vangoldins söluskatts af aðgöngumiðum að tónleikum sinfóníuhl jóm- sveitarinnar. Mennirnir þrír voru fulltrúar tollstjóra og lögreglu, og innsigl- uðu þeir auglýsingastofu útvarps- ins og skrifstofu aðalgjaldkera. Ríkisútvarpið hefur tekið að sér um skeið rekstur Sinfóniuhljóm- sveitarinnar, en annars standa að henni með fjárframlögum ríkið, Reykjavíkurbær, Þjóðleikhúsið og Ríkisútvarpið. Það var ekki fyrr en um áramót, að skattanefnd ákvað að leggja söluskatt á hljómsveit- ina, og mun sú upphæð hafa verið eitthvað innan við 10 þúsund krón ur. Ríkistúvarpið hafði vegna þessa snúið sér til Menntamálaráðuneyt- isins, og það síðan til yfirskatta- neíndar varðandi það, hvort hljóm sveitinni bæri að greiða þennan skatt. Útvarpinu hafði ekki borizt svar um þetta mál í gærmorgun, en þá vár útrunninn sá tími, sem toll- stjóri gefur hverjum aðila til þess að greiða skatta þá, sem honum, eða embætti hans ber að krífja inn. Fóru því starfsmenn toli-.jóra niður í útvarp eins og fyrr segir, í þeim erindagTðum að stöðva að einhverju leyti starfsemi þess. Laganna verðir komu á auglýs ingaskrifstofuna, og voru þar þá tvær stúlkur að ljúka við að skrifa auglýsingar, sem lesa átti i hádegis útvarpinu. Var stúlkunum sagt að hafa sig út, og fengu þær ekki einu sinni að taka með sér auglýs- (Framhald a 15 síðuj Vuknð u konninyuiíúD á 7. sióo SJÁ LEIÐARA SKRIF ÍHALDSBLAÐANNA UM KOSNINGAÚRSLITIN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.