Alþýðublaðið - 13.04.1944, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 13.04.1944, Blaðsíða 7
Ffanmtadagnr 13. aprfl 1944. ;í;’ xcn.'ssx&'j JwmÚÍ Næturlæknir er x Læknavarð- StOfvcnni, sími 5030. Næturvörður er í Ingqlfsajpó- léki. Næturakstur annast Bifreiðastöð íslands, sími 1540. ÚTVAEPIÐ: 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl. 19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25 Hljómplötur: Söngdansar. 19.45 Lesin dagskrá næstu viku. EO. Fréttir. 80.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar- inn Guðmundsson stjómar): a) Peter Schmoll-forleikur- inn eftir Weber. b) Haust- vals eftir Albeniz. c) Lag Lenskis eftir Tschaikow- sky. 20.50 Frá útlöndum (Jón Magnús- son fil. kand.). 21.10 Hljómplötur: Lög leikin á píanó. 81.15 Spurningar og svör um ís- lenzkt mál (Björn Sigfús- son magister). 21.50 Fréttir. TJngmennafélag Reykjavíknr heldur fund í baðstofu iðnaðar- manna í kvöld kl. 8%. Félags- memi eru áminntir um að mæta atundvíslega, því að mörg áríð- antíi mál eru á dagskrá. •Tónlistarfélagiff og Leikfélag Reykjavíkur sýna Pétur Gaut annað kvöld. Að- göngumiðasala hefst kl. 4 í dag. Leikfélagið biður blaðið að minna lnnheimtumenn á að útborgun reikninga er 14. og 15. þ. m. í Iðnó kl. 5. Kirkjuriíið, 3. hefti 10. árg. er nýkomið út. Ritið er að vanda fjölbreytt að efni, meðal annars er í þessu hefíi minningarræða um síra Jóh. Þorkelsson dómkirkjuprest og minningargreinar um hann eftir eíra Bjarna Jónsson og dr. Alex- ander Jóhannesson. STYRJALDARLOK f ÁR? Frh. af 3. síðu. komust ekki nema um 30 þúsundir af. Hér er engu slíku til að dreifa. ALLT ERU ÞETTA að vísu bollaleggingar leikmanns, sem eklcert skynbragð ber á hernaðarvísindi, en það er þó fróðlegt athugunarefni <jllum þeim, sem fylgjast með fréttum. Telja má víst, að orrahríð sú, sem fyrir dyrum stendur, verði hörð og grimmileg, þvi mikið er í húfi. Þjóðverjar vita, hvers þeir eiga að vænta, banda- menn hafa ekki verið myrkir í máli um þá hluiti. Og bandamenn muniu leggja sig alla fram um það að hekja Þjóðverja á brott úr löndum þeim, sem þeir hafa kúgað og lamað undanfarin ár. ALLIR VONA, að styrjöldinni ljúki á þe9su ári, að minnsta kosti í Evrópu, en eitt er víst, að það verður banda- mönnum erfið leið og torsótt. LOFTÁRÁS Frh. af 3. síSu. stöðina Aachen í Þýzkalandi, sem er skammt frá landamær- um Belgíu. Um borgina liggja mikilvægar jámbrautir frá Þýzkalandi vestur á bóginn. Þá hafa bandamenn ráðizt á Za- greb, höfuðborg Króatíu. Loka réðust amerískar Ma- rauder-flugvélar á ýmsa staði í JBelgíu og Frakklandi og ollu mikltiin spjöllum. Nutu þær fylgöa.-: brerkra orustuflugvéla. liiœrmn í _____ 7 Hiagnúsar ICfærraested, skipstjéra fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. þ. m. — Húskveðjan hefst að heimili mínu Ingólfsstræti 3 kl. 3,30 síðdegis Athöfniimi í kirkjunni verður útvarpað. Emilía Kjæmested. Jarðarför móður okkar, flargrétar Jéiisdéttsir frá Eyvindarmúla, fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 14. þ. m. og hefst með húskveðju frá heimili hennar, Bragagötu 34 B kl. 1%. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Jönmn Guðlaugsdóttir. Steinuim Guðlaugsdóttir. Jón Guðlaugsson. Konan mín Sigaartojörg Meigadóttsr, sem andaðist á páskadaginn, 9. þ. m., verður jarðsungin iaugar- daginn 15. þ. m. og hefst athöfnin kl. 3.30 e. h. frá heimili okkar Baldursgötu 3. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni og jarðað verður í Fossvogskirkjugarði. Fyrir hönd mína og annara aðstandenda. Einar Jónsson. HafnargerSin á Húsa- vik. Frh. af 2. síðu. verðum blóma á Húsavík. Þar er starfandi leikfélag, sem Sig- urður Kristjánsson veitir for- stöðu. Það sýndi „Mann og konu“ í vetur, og tókst það með ágætum. Verkalýðsfélögin eru tvö, V erkamannafélag Húsavíkur og Verkakvennafé- lagið Von. Auk þess er þar svo starfandi iðnaðarmannafélag, og er mikill áhugi fyrir að koma á stofn iðnskóla. Kirkju- kór var stofnaður á Húsavík í vetur og starfar hann a£ mikl- um áhuga og fjöri. íbúar Húsavíkur eru um 1040 talsins. Hefir þeim lítið fjölgað síðustu árin, enda hefir engin stríðsvirma verið á Húsa- vík og húsmæðisekla er þar til- finnanleg eins og víðar. Verkaýðssamfökin á Ákureyri. Frh. af 2. síðu. þessi mál, þá voru um s. 1. ára- mót um 200 verkamenn, er litla sem enga atvinnu höfðu. Nokk- uð mxm þó hafa rætzt úr þessu síðan, bæði vegna þess að skip voru þá ófarin á veiðar og svo er nokkur vinna við hafnargerð ina, og fer hún vaxandi. Samkvæmt tillögum fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna, var skipuð nefnd af bæjarstjórn Ak ureyrar til athugunar á útgerð- armálum bæjarins. Nefndin hefir m. a. sent til- lögur til ríkisstjórnarinnar þess efnis að til Akureyrar fáist þrjú af skipum þeim, sem keypt verða í Svíþjóð. Alþýðuflokiksmenn á Akuxþ eyri munu ganga hart fram í því að bætt verði úr um atvinnu mál i bænum“. Gjöfin fil Sumargjafarinnar Frh. af 2. síðu. það átti upptökin að stofnun Sumargjafar fyrir 20 árum. Bréf, sem fylgdi gjöfinni og var undirritað af Aðalbjörgu Sigurðardóttur, Guðrúnu Pét- ursdóttur og Svanfríði Hjart- ardóttur, var á þessa leið: „Bandalag kvenna hefir á- kveðið að gefa kr. 3000,00 í Vöggustofusjóð Ragnheiðar Sigurbjargar ísaksdóttur í til- efni af 20 ára afmæli Sumar- gjafar og til minningar um þær frú Kristínu Símonarson og frú Camillu Bjamason, sem mikinn þátt áttu í stofnun Sumargjafar. Nefnd fjárupp- hæð hefir verið lögð irm í bankabók, sem fylgir með þessu bréfi." Flokksþiihg Framsóknar. Frh. af 2. síðu þing, sem Framsóknarflokkur- inn hefir nokkru sinni haldið, enda mun hafa verið allmikið kapp í fulltrúakosningunni og munu öll félög flokksins hafa kappkostað að senda fulla tölu fulltrúa. Deilur allmiklar hafa verið uppi í Framsóknarflokkn- um um tveggja ára skeið og hafa þær farið vaxandi upp á síðkastið. Er gert ráð fyrir að þetta flokksþing marki úrslita- stefnu flokksins í framtíðinni — og gengur sterkur orðrómur um það að það geti leitt tiþ harðra deilna og allmerkra tíðinda í sögu flokksins og stjórnmála- lífinu yfirleitt. Upplýsingastöff Þingstúku Reykjavíkur er opin í dag frá kl. 6—8 e. h. í Templara- hölltoni. Fríklrkjuveg 11. Skíðamófið á Siglu- firði. Frh. af 2. síðu. 5. Jónas Ásgeirsson, SS 1:05,44 6. Ásgr. Kristjánss., SS 1:10,22 Gangan var 17 km. og vom keppendur 7 í þessum flokki, en í B-flokki voru 4 keppendur og urðfci þar úrslit þessi: B-jlokkur. 1. Steinn Símonars., SS 1:05,33 2. Inghn. Sæmunds., SS 1:06,20 3. Sig. Sigurðss., Þinge. 1:14,10 4. Ingvar Hólm, ÍRA 1:29,02 Ganga drengja 17—19 ára. (15 km.) 1. Haraldur Pálsson, SS 51,04 2. Valtýr Jónasson, SS 51,14 3. Helgi Öskarsson, SS 53,26 4. Kristinn Jónsson, SS 58,25 5. Lárus Guðmundss., SR 61,12 6. Haraldur Bjömiss., SR 64,29 Hér voru 7 keppeiidur, en 1 meiddist í göngunni, Þórir Jónsson úr Reykjavik, og varð að hætta. Keppendur voru nokkr^ fáir í göngunni, sérstaklega þegar þess er gætt, að mótið fer nú fram heima hjá mestu gön«m- görpum landsins, og víst eru piltarnir góðir riorður þar, að ekki skuli þurfa að stytta vega- lengdina nema um tvo km. fvr- ir drengi. Tólf km. hefði víst flestum fundizt nóg hér syðra. (SS þýðir Skíðaráð Sir1' . ar, SR Skíðaráð Reykjavíkur og ÍRA íþróttaráð Akureyrar.) Á lauigardag fyrir páska fór fram svig. Kvenfólk kenpti í tveim flokkum, B og C, og urðu úrslit þessi: B-flokkur. 1. Maja Örvar, SR 54,5 2. Alfheiður Jónsd., ÍRA 57,4 Aðeins þessar tvær stúlkur kepptu hér. C-flokkur. 1. Aðalheiður Rögnv.d., SS 49,4 2. Kristín Aðalbjömsd., SS 49,8 3. Rarmveig Júníusd., ÍRA 52,2 4. Erla Kjartansdóttir, SR 56,2 5. Inga Guðmundsd., SR 56,9 ,6. M.argrét Gestsdóttir, Sam- einingu, Ólafsf., 59,0 Keppendur voru alls 8 í þessum flokki. ,,Slalombikarinn.“ Þá fór fram keppni um „Sla- lombikar" Litla Skíðafélaýsins fyrir 4 manna sveitir. Úrslit urðu: 1. Skíðaráð Siglufjarðar (A- sveit) á 339,1 sek. í sveitinni voru: Har. Pálsson, Jón Þor- steinsson, Ásgr. Stefánsson, Jónas Ásgeirsson. 2. íþróttaráð Akureyrar (A- sveit) á 348,4 sek. (Björgvin Júníu'sson, Magnús Brynj- ólfsson, Eysteinn Ámason, Júlíus Magnússon). 3. Skíðaráð Reykjavíkur (A- sveit) á 379,9 sek. (Jóhann Eyfells, Bjöm Blöndai, Jón M. Jónsson, Haraldur Árna- J son). 4. ÍRA, B-sveit á 388,9 sek. 5. Menntaskóli Akureyrar á 390,2 sek. 6. SR, B-sveit, á 393,7 sek. 7. SS, B-sveit, á 418 sek. Brautin var 350 m. löng. Svig karla. A-jlokkur. 1. Har. Pálsson, SS 125,8 2. Björgvin Júníuss., ÍRA 131,4 3. Jón Þorsteinsson, SS 140,1 4. Har. Árnason, SR 146,4 5. Jón M. Jónsson, SR 147,6 6. Eysteinn Árriason, ÍRA 150,3 Brautin var 520 m. og kepp- endur 12. Bjöm Blöndal var 10. á 173,4 og Jóhann Eyfells 11. ó 179,2. — ÍRA hlaut svigbikar I fyrir beztu 4 manna sveit í 3. sinn og til fullrar eignar, á 597,5 sek. SR hafði 646,6. Aðr- ir fengu ekki fulla sveit. 1. Guðm. Guðm.son, ÍRA 125,2 2. Eyjólfur Einarsson, SR 127,4 3. Hreinn Ólafsson, IRA 130,0 4. Hörður Bjömsson, SR 133,8 5. Pétur Blöndal, MA 142,7 6. Sig. Þórðarson, IRA 144,8 Keppendur voni hér 17 og brautin nokkru styttri en hjá A-flokki (470 m.). Har. Björns. varð 11. á 174,0, og Magnús Guðmundsson, Hafnarfirði, 9. á 159,1. — Svigbikar II féll einnig í skaut IRA, sem hafði 545,7 sek. fyrir 4 manna sveit móti 658,1, sem SR hafði. Aðr- ir komu ekki til greina. Í.R. vann þennan bikar í fyrra. C-flokkur.- 1. Valtýr Jónasson, SS 67,8 2. Eirik Eylands, SR 70,0 3. Sveinn Óskarsson, ÍRA 70,1 4. Eggert Steinsen, ÍRA 70,3 5. Hjörtur Jónsson, SR 72,0 6. Lárus Guðm.son, SR 73,4 Keppendur voru hér 36. þessum flokki var ekki keppt um neinn sérstakan bikar. Mótið gat ekki haldið áfram á 2. páskadag né þann 3. vegna veðurs. Sunnlendingar og Ak- ureyringar héldu því heimleið- is í fyrradag, því þeir eru flestir tímabundnir. Mótið hélt svo áfram í gær með stökki í A- og B-flokki. Urslit urðu þessi í A-flokki: 1. Jón Þorsteinsson, SS 230,1 stig (stökk 33V2 og 34 m.). 2. Jónas Ásgeirsson, SS 232,2 stig (stökk 331Á og 30 m.). 3. Sigurgeir Þórarinsson, SS 217,8 stig (stökk 33 og 33Vz m.). í B-flökki sigraði Steinn Sí- monarson, SS á 198,5 stig (stökk 29V2 og 28 m.). Næstur var Ingimundur Sæmundssön, SS á 151 stigi (stökk 31 og 33XA m. — féll í síðara stökkinu). Eftir stökkið var hægt að reikna út hver hefði hlotið tit- ilinn Skíðakappi íslands. En hann hlýtur sá, er fær hæsta stigatölu samaníagt í göngu og stökki. Sigur af hólmi nú bar Jón Þorsteinsson, og hefir hann borið það heiti áður. Hann fékk 467,1 stig. Næstur var Ásgrímur Stefánsson með 441 stig stig, þriðji Jónas Ás- geirsson með 422,2, og fjórði Sigurgeir Þórarinsson með 385,8 stig. Allt eru þetta Sigl- firðingar. Skæðasti keppinaut- xxrinn, Guðmundur Guðmunds- son frá ÍRA, sem þennan fitil bar í fyrra, var farinn heim, svo að nú fékk Jón léttan sig- ur, en þó engan veginn óverð- rigan. í B-flokki sigraði samanlagt í göngu og stökki Steinri Sí- monarson á 399,5 stigum, en. næstur var Ingimundur Sas- mundsson með 352 stig. í dag heldur mótið áfram og verður þá keppt í bruni um Andvökubikarinn. HROÐALEG AÐBÍJÐ Frh. af 3. síðu. sniíðum með berum hnefum, eða með gúmmíslöngum. 1 maí í fyrra fór sendiherra Dana, Mohr í utanríkismála- ráðuneytið þýzka og ræddi þar um hegningarfangabúðir. Hann. sagði þá: „Ég vakti athygli á hinum mörgu mannslátum og því, hve mörg þeirra væru af völdum lungnabólgu. Þá benti ég á, að dauðsföllin gætu staf- að af ofþreytu, enda svæfu fang arnir á hörðu steinsteypugólf- inu einu saman.“ Þá hefir það komið fyrir, að danskir verkamenn hafa verið settir á einhvers konar nám- skeið og síðan verið sendir til austurvígstöðvanna, þar sem þeir voru notaðir til þess að sækja lík fallinna Þjóðverja og greftra þau. Var þess krafizt að menn þessir yrðu að sverja Hitler hollustueið. Þetta barst til eyma dönsku stjórnarinnar, sem mótmælti þegar í stað. Þá lofuðu Þjóðverjar, að danskir verkamenn yrðu ekki framar notaðir til slíkra starfa og ekld heldur þyrftu þeir að sverja Hitler hollustueið. Tvær íbúðir 3—4 hérbergja, í Norðurmýri eða nálægt Rauðará óskast nú þegar. Tilboð, merkt: „Austmaður“, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir n. k. föstudagskvöld.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.