Morgunblaðið - 23.10.1918, Blaðsíða 1
5. argaagr
Miðv.dag
23
Okt. 1818
MORGUNBLAÐID
346.
tðiabiað
Ritstiórnarsími nr. 500
Ritsíjón:
Vilbjáimar Fínsen
Ísafoídarprentsmiðja
Afgreiðslnsimi nr. 500
Svar Þjóðverja komið
-3se-
Mótmæli goga þvi að gengið
sé á rétt þýzku þjéðarinnar.
Kafbátum bannað að
sðkkva farþegaskipum.
Nefnd fatið að athuga landspjölt Þjóðverja
.........-..z á undanhaldinu. .........-t=
London, 22. okt.
Svar Þjóðverja til Wilsons forseta
iiefir nú verið birt.
Þýzka stjórnin mótmælir ólöglegu
>og ómannúðlegu framferði gegn
þýzka hernum á sjó og landi og
þar með gegn þýzku þjóðinni.
Segir hún, að það sé ætíð nauð-
synlegt að gera landspjöll til þess
að verja undanhald.
Enn fremur neitar þýzka atjórnin
því, að kafbátarnir hafi »nokkurn
tíma af ásettu ráði grandað björgun-
arbátum með farþegum*. En til
þess að koma í veg fyrir alt það,
er gæti hamlað friði, hefir þýzka
stjórnin látið það boð út ganga til
þýzkra kafbátaforingja, að þeir megi
ekki framvegis sökkva farþegaskip-
am, en stjórnin getur þó ekki
ábyrgst það, að fyrirskipun þessi
tnuni ná til allra kafbátanna áður en
þeir koma heim.
f svarinu er hvergi minst á það,
að spítalaskipum hafi verið sökt.
Þýzka stjórnin gengur að þeim
skilyrðum, er Wilson forseti hefir
sett og segir, að um leið og hún
samþykki það að yfirgefa hertekin
lönd, þá bdist hún við þvi, að alt
sem að þvi lytur að yfirgefa lönd
og semja vopnahlé sé falið hermála-
ráðunautum, og að það sé bygt á
afstöðu herjanna nú sem stendur,
þannig að hvorugir missi neins í.
Stjórnin treystir því, að Wilson
forseti muni ekki koma fram með
neinar þær kröfur, sem sé vansæm-
andi fyrir þýzku þjóðina að ganga
að.-------
Brezka utanríkisráðuneytið litur
þannig á málið, að þar sem svar
Þjóðverja sé stilað til Wilsons for-
seta, þá beri honum fyrst og fremst
að íhuga það og afráða, hvort hann
vilji bera það undir stjórnir annara
bandamanna. En fyr er svo er
komið, þykir eigi hlýða að koma
fram með neitt opinbert álit um
svarið.
Berlin, 21. okt.
Svar Þjóðverja til Wilsons var
sent í gærkvöldi yfir Sviss og stjórn-
inni þar falið að koma því til
Washington.
Tíl þess að rannsaka hvað satt sé
í þeim ákærum, sem fram eru bornar
um það að þýzki herinn geri land-
spjöll og leggi í auðn að þarflausu
á undanhaldinu, fór nefnd hlutleys-
ingja til vígstöðvanna og er hún
skipuð fulltrúum hlutleysingja i
Brussel og formaður hennar er Fri-
herra von der Lanken, sendiherra.
Suður-Jótland.
Danir fara fram á að
það skeri úr því með þjóð-
aratkvæði hvort það vill
vera danskt eða þýzkt.
London, 22. okt.
»Berliner Tageblattc hefir komist
að því hjá xíkisþingmönnum, að
danska stjórnin hefir farið fram á
það við þýzku stjórnina, að ákvæði
fimtu greinar friðarsamningsins í
Prag verði látin koma til fram-
kvæmda og ibúum norðurhluta
Slésvík-Holstein þannig gefinn kost-
ur á, að skera úr því með þjóðar-
atkvæði, hvort þeir vilji heldur vera
danskir eða þýzkir.
Herlán Bandaríkjanna.
London, 22. okt.
Til frelsisláns Bandaríkjanna hefir
verið boðið 150 miljóuum dollara
meira fé, heldur en stjórnin íór
fram á að fá.
Frá Serbum.
London, 22. okt.
í serbneskri tilkynningu er sagt
frá þvi, að hinn 19. október hafi
franskt riddaralið og serbneskt fót-
göngulið tekið Zayctehari. Vestar
tóku Serber Bolyevatz. í vestri
Morava-dal komust Serber til Trsenik.
Frá Bretum.
London, 22. okt.
Tala herfanga þeirra er Bretar
tóku í orustunni 20. október norð-
an við Le Cateau, er nú orðin yfir
3000.
Stöðvar óvinanna hjá Selle-ánni
voru mjög ramgerðir af náttúrunn-
völdum og vörðu óvinirnir þær af
mesta frækleik. Orustan var hin
ákafasta, en hið djarfa viðnám óvin-
anna var brotið á bak af brynreið-
um, sem tóku þátt í orustunum.
Brezkar hersveitir eru nú komn-
ar að herlínunni hjá Schelde norður
og vestur af Turnai og eiga tvær
milur ófarnar til þorpsins. Nálgast
þær St. Armand, hér um bil sex
mílur fyrir norðvestan Valenciennes,
I Flandern halda óvinirnir stöðv-
um frá Eede niður að Lys hjá
Petegem.
Irsku skipi sökt.
London, 22. okt.
írska gufuskipið »Dundalk« hefir
verið skotið í kaf fyrirvaralaust.
16 menn vantar.
Sprenging I Yélaverksmiðjn.
Berlin, 21. okt.
Frá Magdeburg er simað, að spreng-
ing hafi orðið í »Berlín Anhaltischen
Machinenfabrikc í Dessau og hafi
þar farist rúmlega 70 menn en 50
særzt.
Stj órnskipunaroreyting I Bayem.
Berlín, 2i. okt ""
^Mtinchen: Þessa dagana hefir
staðið yfir ráðstefna milli flokkanna
i bayernska þinginu, viðvikjandi end-
nrbótum á stjórnskipun landsins.
Er búist við því að í þessari viku
verði skýrt opinberlega frá því sem
gert hefir verið i þvi máli.
Sérfriður.
(Frá fréttaritara Morgunblaðsíns)
Khöfn, 21. okt.
Frá London er símað að ef svar
Þjóðverja við ávarpi Wilsons verði
ekki fullnægjandi, þá hafi Áusturíki
og Tyrkland í hyggju að byrja
sérfriðarumleitanir við bandamenn.
10 milna framsókn
Khöfn, 21. okt,
Bretar hafa sótt fram xo milur
hjá Selle og handtekið 2000 Þjóð-
verja.
Oskufall nyrðra
Ákureyri í gær.
Talsvert öskufall hefir orðið hér
síðustu dagana, siðan sunnan áttin
byrjaði. Fregnir annarsstaðar af
Norðurlandi herma og öskufall
nokkuð.
Atkvæðagreiðslan..
Akureyri í gær.
Upptalning atkvæða um sambands-
málið var lokið í fyrrakvöld. Féllu
atkvæði þannig að 248 sö^ðu já, en
ij nei.
Kötlugosið.
Vér áttum í gær tal við mann,
sem kom austaií úr Vík í fyrradag
og var þar staddur þegar Katla
gaus.
Hann sagði afskaplegt jökulhlaup
hafa orðið á ný síðastliðinn mið-
vikudag. Dynkir miklir og ólæti í
jörðnnni. Hlaup þeíta fór sömu leið
til sjávar og fyrsta hlaupið og ætla
menn að það hafi ekki gert neitt
tjón.
Hallgrímur bóndi á Hjörleifs-
höfða lagði upp frá Vík á sunnu-
daginn áleiðis heim. Fékk hann tvo
fylgdarmenn með sér austur Sand-
inn og urðu þeir að vaða upp undir
hendur yfir vötnin. Komst Hall-
grímur heim og fylgdarmennirnir
aftur íil Víkur heilir á húfi.
Þegar gosið byrjaði var Einar
bóndi í Kerlingardal staddur I Vlk,