Morgunblaðið - 12.01.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.01.1958, Blaðsíða 6
6 MORCVNBLAÐ1Ð Sunnudagur 12. jan. 1958 Þorvaldur Carðar Krisfjánsson íögfrœðingur: Réttur til oð ráða eigin málum Iitgunn Thorslensen MEÐ lögum er sveitarfélögum falin meðferð ákveðinna mála. Og stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir rétti sveitarfélaga til að ráða sjálf málefnum sínum. Þessi skipan er einn af hornstein- um lýðræðislegra stjórnarhátta. Það er ekki öllu lýðræði fuil- nægt með almennum kosningum til Alþingis, jafnvel þótt við byggjum við réttláta kjördæma- skipun. Lýðræðið er meira en val á handhöfum ríkisvaldsins. Sönnu lýðræði fylgir dreifing þjóðfélagsvaldsins. Eitt af því, sem bezt stuðlar að dreifingu valdsins, er skipan sveitarfélaganna. Hvarvetna þar sem lýðræðishættir eru þroskað- ir, er sjálfstjórn sveitarfélaga i heiðri höfð. Fólkið á hverjum stað ræður sérmálum sinum sjálft. Þessi skipan er ekki einungis vörn gegn þvi, að ríkisvaldið verði allsráðandi. Þetta stuðlar jafnframt að betri stjórn á mál- um hinna einstöku byggðarlaga. Með þekkingu sinni á staðhátt- um og aðstæðum ræður fólkið bezt fram úr viðfangsefnunum. Með þeim hætti verður bezt mætt fjölbreytileik landshátta og þjóðlífs. Saga Reykjavíkur síðustu ára- tugina sannar vel mikilvægi þess, að sveitarfélögin hafi sjálfstjórn sinna mála. Þessu bæjarfélagi hefur vesið stjórnað traustum höndum. Með djörfung og fram- sýni hefur verið haldið á mál- um. Meiri framfarir hafa orðið hér en annars staðar á landinu. Fólkið finnur þetta í bættri ai- komu og lífsþægindum. Skýring þessa fyrirbæris er augljós. Hana er að finna í eðlis- mun þess stjórnmálaflokks, sem stjórnað hefur bænum, og hinna, sem þar hafa ekki farið með völd. Borgararnir hafa vitað, hvað skilur á milli Sjálfstæðisflokks- ins og vinstri flokkanna. Þeir hafa því allan þennan tíma eílt Sjálfstæðisflokkinn og falið hon- um forsjá bæjarmálanna. Sjálfstæðisflokkurinn byggir stefnu sína á traustum grunm Hún er reist á reynslu þjóðar- innar sjálfrar. Hann sækir ekki fyrirmyndir sínar til erlendra skrifstofufræða. Hann telur, að það, sem bjargaði þjóðinni úr hörmungum og erfiðleikum fyrii tíma sé enn haldbezt í sókn fólks- ins til meiri framfara og bættra lífskjara. Mest um vert sé því að atorka og hugkvæmni fái að njóta sín við úrlausn okkar sér- stæðu vandamála. Ekkert eitt ráð er óbrigðult gegn öllum vanda. Sjálfstæðisflokkurinn velur því þær leiðir, sem til farsældar stefna, hverju nafni, sem nefn- ast. Öðru máli gegnir með vinstri flokkana. Þeir eiga sér eitt úr- ræði. Þeir vilja sníða þjóðfélagið allt eftir einni fyrirmynd. Þetta gildir einu, hvort um er að ræða þjóðnýtingarflokkana eða Fram- sóknarflokkinn, sem vill setja allt mannlífið á svið eftir á- ’cveðnu sölubúðarrekstrarformi. Reykvíkingum hefur ekki lil- Izt á þetta og þess vegna hafn- að afskiptum þessara flokka af bæjarmálunum. Þannig hefur þeim tekizt að ráða málum sín- um farsællega. En þetta gat því aðeins skeð, vegna þess að sveit- rfélögin njóta sjálfstjórnar. Ekki er svo að skilja samt, að ileykvíkingar hafi verið óáreittir við stjórn sinna mála. Illu heilli hafa vinstri flokkamir haft völd og áhrif í þjóðfélaginu. Afskipti þeirra af Reykjavík mótast mjög af tvennu. Annars vegar sjá þessir flokkar ekki íullkomlega þörfína á sjálfstæði sveitarfélag- anna og hins vegar hafa þeir lát- ið stjórnast af pólitísku ofstæki í garð þeirra, sem ráðið hafa 'iui num. Flokkuin, sem vilja steypa allt pjiVðfélagið i ákveðið form. hentar ekki dreiíing valdsins Því meira sem það safnast á ferri hendur því betra. Aðal- atriðið er, að valdhafinn þekki úrræðið. Þar sem úrræðið er hið eina rétta, er ekkert að sækja til annarra. Bezt er að hafa vit fyrir fólkinu. Það rétta er ekni of gott, hvar sem er. Það á við alls staðar í þjóðfélaginu. Það er því vafasamur árangur af því, að fólkið sé að ráða sínurn málum sjálft. Þetta viðhorf vinstri flokk- anna kemur fram í öllum þeirra athöfnum, stjórnvaldsráðstöfun- um og lagasetningu. Það þarf því ekki langt að leita slíkra verka. Nægir að taka tvö dæmi frá síð- ustu mánuðum, sem lýsa vel að- förunum gagnvart Reykjavík. Á síðasta Alþingi fékk ríkis- stjórnin samþykkt lög um hús næðismálastofnun o. fl. Löggjöf þessi var um marga hluti hin furðulegasta, svo sem kunnugt er. Meðal annars eru þar ákvæði sem mjög freklega skerða rétt sveitarfélaga til að ráða eigin málum. í lögum þessum var hús- næðismálastjórn fengið vald til að láta undirbúa byggingu íbúð- arhúsahverfa í kaupstöðum með því að láta gera skipulagsupp drætti af þeim. Þá var og við- komandi bæjarfélag skyldað til að leggja vegi og gera aðrar framkvæmdir, sem nauðsynlegar eru til að gera lóðir byggingar- hæfar í slíkum hverfum. Og ekki nóg með það. Þetta á að gerast á þeim tíma, sem félagsmálaráð- Nýja símaskráin og ruglingur á síma- númerum Sanngjarn skrifar: ÉTTILEGA eru margir óánægðir með fráganginn á nýju símaskránni, letrið, er smátt og niðurröðun ógreinileg. En þetta fyrirkomulag mun vera til- raun, sem sjálfsagt verður breytt til bóta við næstu útgáfu. Þá þyrfti lika að setja Reykjavík, höfuðstaðinn fremst, því að sá parturinn er lang-viðamestur og vandmeðfarnastur, enda lítt skilj anlegt, hvers vegna sú tilhögun var tekin upp, sem nú hefur giit undanfarið. Síðan þessi símaskrá kom út á fyrra ári, hefur komið í ljos áber andi ruglingur hjá sumum not- endum, einstaklingum og stotn- unum, í tilgreiningu símanúm- eranna, þvert ofan í það, sem ætlazt var til og glögglega kemur fram í sjálfri símaskránm. Þar eru tölustafirnir 1, 2, 3 og svo frv. settir eftir vissum regium framan við aðalnúmerið, og ner að nefna þann staf sér í lagi og síðan tvo og tvo saman enda bil á milli í skránni. T.d. 2 — 28—81, iesið: tveir-tuttugu og átta (eða tveir, tveir, átta) — áttatíu og herra þóknast. Þá er og lagt fyr- ir, að húsnæðismálastjórn láti ekki afskiptalausa lóðaúthlut- un. Vitað er, að þessu er fyrst og fremst stefnt gegn Reykjavík Með því að bæjarbúar hafa ekki treyst stjórnarflokkunum til þess að stjórna bænum, þá er farin þessi leið. Valdið er tekið af bæjarfélaginu og sett í hendur nefndar, sem ráðherra segir fyrir verkum. Enn er í fersku minni aðför félagsmálaráðherra að Reykjavík á síðastliðnu hausti. Þá tók ráð- herra sér vald, sem honum bar ekki, til að ógilda álagningu út- svara í bænum. Þessi valdníðsla var þeim mun vítaverðari, þar sem stofnað var í voða rekstri bæjarfélagsins. Það tók of lang- an tíma að leita aðstoðar dóm- stólanna í máli þessu. Á meðan hefðu hinar margháttuðu fram- kvæmdir bæjarins stöðvazt og því hefði fylgt ófyrirsjáanlegai afleiðingar. Það var ekki ráð- herranum að þakka, að ekki fór svo sem til var stofnað, heldur bæjarstjórninni, sem brást við tilræðinu á þann veg, sem forð- aði mestum vandræðum. Það mætti lengi nefna dæmi, er sýna hug stjórnarflokkanna til Reykjavíkur. En þess gerist ekki þörf. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvernig þessir flokkar reyna að trufla og tor- velda stjórn bæjarins. Reykvíkingar munu ekki við bæjarstjórnarkosningarnar 26. þ. m. frekar en endranær trúa þessum flokkum fyrir stjórn sinna mála. En nú er svo komið. að það er ekki nóg. Meðan ríkis- stjórn situr að völdum í landinu, sem hefur að leiðarljósi einræðis- kenningar kommúnista og póh- tískt ofstæki Framsóknar, vofir stöðugt yfir hætta Og hættan er sú, að valdið verði tekið af Reykvíkingum og fært í hendur ráðherra, sem noti það gegn þeim á gjörræðislegan hátt. í bæjarstjórnarkosningunum, sem nú fara fram gefst Reykvík- ingum gott færi á að firra sig þeim voða, sem af ríkisstjórninni stafar. Það gerum við tryggileg- ast með því að veita Sjálfstæðis- floklcnum meira kjörfylgi en nokkru sinni fyrr. Þannig hnekkjum við valdi og áhrifum stjórnarflokkanna. En um leið treystum við okkar rétt til að ráða eigin málum. einn ( eða átta, einn). Verður þannig allt greinilegra og auð- veldara að segja og muna. Hitt er óviðkomandi þessu, að kvartanir heyrast stundum um Minningarorb Á NÝJÁRSDAG dó frú Ingunnn Thorstensen í sjúkrahúsinu Sól- heimum hér í bæ. Er hinir mörgu vinir og vandamenn lcvöddu hana við útfararguðsþjónustu í Dóm- kirkjunni fyrir tveimur dögum, var það áhrifamikil stund, en kveðjusálmurinn hafði verið val- inn nýjársljóð Matthíasar: Hvað boðar nýjárs blessuð sól. Á þeim degi, sem við heilsuð- uðum nýju ári, hafði þessi kona heilsað ári eilífðarinnar, þar sem þurfti engu að kvíða. Og svo hljómaði annað erindi sálmsins: Sem guðs son forðum gekk um kring, hún gengur ársins fagra hring og leggur smyrsl á lífsins sár og læknar mein og þerrar tár. Þannig lýsti skáldið nýjársól- inni. En viðstöddum þóttu þessi orð einnig táknræn og athyglis- verð lýsing góðrar konu, sem hafði varið ævi sinni til líknar- starfa. Ingunn Thorstensen var fædd á Þingvöllum við Öxará 16. jan. 1894 og því tæpra 64 ára, er hún dó. Foreldrar hennar voru séra Jón Thorstensen, sem um nær 40 ára skeið var prestur á hinum sögufræga þingstað, og kona hans, Guðbjörg Hermannsdóttir. Sr. Jón var sonur Jónasar Thor- stensens sýslumanns á Eskifirði og Þórdisar Pálsdóttur Melsted. Guðbjörg var dóttir Hermanns Johnsens sýslumanns á Velli og Ingunnar Halldórsdóttur og lifir hún enn, á tíræðisaldri. í foreldrahúsum ólst Ingunn upp, elzt fimm systkina. Gamli Þingvallabærsnn, sem þau bjuggu i, er nú fyrir alllöngu helzt' til mikla hörku við inn- heimtu hinna háu símagjalda. en þar geta menn oftast sjálfum sér um kennt.“ Fáein orð um tóbak ELVAKANDA skilst, að Níels Dungal og fleiri snjallir vis- indamenn hafi nú sannað, svo að ekki verði um villzt, að tóbaks- reykingar geta valdið lungna- krabba, og því sé bezt að forðast þær. Menn mættu gjarnan láta sér það að kenningu verða í rík- ara mæli en nú er. Og í þvi sam- bandi er ekki úr vegi, að minnast orða þess merka manns Jakobs 1. Englandskonungs. Hann samdi rit gegn tóbaksnautn, og segir þar m.a.: reykingar „eru vani, sem er herfilega ljótur á að líta, ógeðslegur af að lykta, skaðleg- ur fyrir heilann, og hættulegur fyrir lungun. Hinn svarti sting- andi reykur, sem honum fyigir, er helzt sambærilegur við hinn viðbjóðslega eim, sem leggur frá botnlausum djúpum helvítis ... “ Já, ólíkt er nú kóngurinn skyn- samari en Siðmundur karlinn Freud, sem sagði, að tóbakið væri það eina, sem Columbus gæti borið fram til að afsaka fund Ameríku! horfinn, en mynd hans mun þó varðveitast, m. a. á þjóðfrægu og yndislegu málverki Ásgríms Jónssonar, sem allra augu stöðv- ast við í málverkabók hans. Á þeirri mynd sitja tvær stúlkur frammi á bakkanum og greiða hár sitt. Ég hef alltaf ímyndað mér, að önnur þeirra væri Ing- unn, en hún bar fagurt, sterk- rautt hár. Hvílík tengsl við sögulega helgidóma þjóðarinnar hafa það ekki verið hjá þeim syst- kinum að lifa sín æskuár á Þingvöllum og það meira að segja áður en umrót véla og tækni hófst þar, meðan allt var enn óumbreytt eins og það hafði verið í árroða íslandsalda. Eins og þá var siður flestra stúlkna af góðum heimilum gekk Ingunn í Kvennaskólann í Reykjavík. Hún hafði áberandi góða námshæfileika, hafði lítið fyrir náminu, þótt skólaganga hennar yrði að þeirra tíma sið ekki lengri. Síðan var hún enn þá hjá foreldrum sínum á hinu gestkvæma heimili og er mér af orðum annarra kunnugt um að þessi elzta dóttir prestshjónanna varð mörgum gestinum minnis- stæð sakir þeirrar glæsilegu framkomu, er henni var þá þeg- ar eiginleg. En árið 1922 sigldi hún til Kaupmannahafnar til náms í líkamsnuddi. Þar sýndi hún enn ótvíræða námshæfileika sam- fara áhuga á því líknarstarfi, er hún hafði sett sér og lauk nám- inu með góðum vitnisburði á skömmum tíma. Meðan hún dvaldist úti lét sr. Jón, faðir hennar af prestskap og dó skömmu síðar, svo fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur og dreifð ist. Eftir að hún kom heim hélt Ingunn löngum heimili með móður sinni og systur sinni, Ástu. Hún hóf starf sitt sem nudd- kona hjá Jóni Kristjánssyni lækni og varð brátt kunn og vel metin fyrir marga læknun og linun þjáninga í því starfi. Hún var til kölluð af mörgum lækn- um og starfaði um langt ára- bil við sjúkrahúsið Sólheima í Tjarnargötu. Einnig var hún oft kvödd til í Landsspítalann og þá ekki síður til einstakra sjúk- linga í heimahúsum. Var það henni oft mikið starf að ganga um lcring til sjúlclinga. Hún var formaður Nuddlæknafélagsins. Starf nuddlæknisins er oft að færa nýtt líf í líkamsvöðva, sem dofnað hafa við langvarandi sjúkdómslegur eða undan gipsi. Til þess þarf nákvæma líkamsfræðiþekkingu. En Ing- unn lagði fram meira en bókþekk inguna eina. Það var sjúklingum hennar ákaflega mikils virði, að henni fylgdi ætíð hressandi og uppörvandi blær glaðsinnis og gamanyrða. Þetta var henni eig- inlegt og slíkt gat skipt miklu máli fyrir langþreytta sjúklinga. Árið 1930 eignaðist Ingunn son, Jón Ragnar, sem var henni mjög kær. Kom það fram í mörgu, hve hænd þau voru hvort að öðru, m. a. er þau fóru saman í skemmtilega ferð til Danmerkur fyrir nokkrum árum um leið og hann hóf nám í verzlunarskóla í Kaupmannahöfn. Hann saknar móður sinnar, en starfa hefur hann á skrifstofu tollstjóra í Reykjavík. Ingunn giftist árið 1950 Krist- jáni Bergssyni, útgerðarmanni. Var hún seinni kona hans og bjuggu þau í Valhöll, þar sem nú er félagsheimili Sjálfstæðis- manna. Hún var glæsileg hús- freyja og ávann sér skjótt hylli stjúpbarna sinna. Sambúð þeirra Kristjáns varð þó skammvinn, því að hann dó 1955. Eftir það bjó Ingunn aftur með syni sínum og aldraðri móður. Síðustu árin átti hún við langa og þreytandi vanheilsu að búa, þótt aldrei heyrðist hún kvarta né kveina, því að hún var þrekmikil. Frh. á bls. 19. suritar ur OKI I B ai UI dagiega lifinu j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.