Morgunblaðið - 16.10.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.10.1959, Blaðsíða 11
Föstudagur 16. okt. 1959 MORCUNRLAÐ1Ð 11 Þorsteinn Konráðsson F. 16. sept. 1873. — D. 9. okt. 1959. ÞORSTEINN var íæddur í Múla í Línakradal í Húnavatnssýslu, sonur hjónanna Konráðs Kon- ráðssonar og Guðrúnar Þorsteins- dóttur, sem síðan fluttust að Mýr- um í Hrútafirði. Þar dó Konráð á bezta aldri, 1888. Guðrún giftist í annað sinn merkisbóndanum Hannesi Þorvarðarsyni á Hauka- gili í Vatnsdal og hafði þangað með sér sonu sína, Þorstein og Eggert. — Hann- es dó eftir skamma sambúð þeirra, en Guðrún bjó áfram á Haukagili með mikilli rausn og skörungsskap, þangað til Eggert tók við jörð og búi. Hún iézt 1917. Þorsteinn leitaði sér ungur mennta út fyrir átthagana, lauk átján ára gamall góTgnfræðaprófi úr Flensborgarskóla og var auk þess einn vetur við nám í Reykja vík hjá Jónasi organista Helga- syni. Þegar hann kom heim, varð hann ráðsmaður hjá móður sinni, en stundáði jafnframt barna- kennslu á vetrum. Vorið 1900 fór hann að Eyjólfsstöðum í Vatns- dal og kvæntist árið eftir Mar- gréti, sem ein lifði barna þeirra Eyjólfsstaðahjóna, Jónasar Guð- mundssonar og Steinunnar Steins dóttur. Um nokkurra ára skeið voru þau eldri og yngri hjónln þar í sambýli, en smám saman tóku þau Þorsteinn og Margrét við allri jörðinni ásamt Bakka, sem þá var lagður undir Eyjólfs- staði. Þau bjuggu þar til 1938, er þau voru tekin að lýjast við búskapinn, en ekki horfur á. að neitt bama þeirra mundi taka við jörðinni. Þau seldu hana þá, þótt þeim þætti erfitt að skilja við hana og Vatnsdalinn, en við tóku þau hjónin Bjarni Jónas- son og Jenný Jónsdóttir, sem síðan hafa búið þar með mynd- arskap og ræktarsemi við bessa fallegu jörð. Þau Þorsteinn og Margrét fluttust til Reykjavíkur og keyptu húsið mv 64 við Berg- staðastræti, en Þorsteinn stund- aði bókhald og skrifstofustórf, meðan honum entist heilsa til. Þorsteinn Konráðsson var mað- ur fjölhæfur og lagði á margt gjörva hönd. 'Hann var mikitl verkmaður, að hverju sem hann gekk, útsjónarsámur og forsjáll búmaður. Búið var aldrei mjög stórt, en gagnsamt og arðbært. Þar stóð allt á traustum fótum, og voru jafnan nægar fyrningar í garði og forði í búri. Hann bætti jörðina mjög, eftir því sem tök voru á og tæki til á þeim tímum, enda hlaut hann fyrir þær framkvæmdir heiðurslaun úr styrktarsjóði Kristjáns konungs níunda árið 1924. Hann reisti 1918 vandað íbúðarhús úr steini, sem lengi mun standa, og voru slík hús þá enn fá þar um sveit- ir. Hann var mikill hagleiksmað- ur, jafnt á smíðar úr tré og málmum, og bar heimilið því margvísleg vitni. Tónlist var hon um sérstakt hugðarefni alla tíð, hann var organisti í Undirfells- kirkju 1895—1938, eignaðist smám saman stórt safn íslenzkra og erlendra nótnabóka og var fjölfróður um þau efni. Eftir því sem honum gafst meira tóm frá bústörfum, tók hann að sinná j meir ýmsum þjóðlegum fræðum, j kom sér upp góðu bókasafni og skrásetti margan fróðleik úr hér- aði. Sérstaka stund' lagði hann á að safna gömlum galdrakver- um hvaðanæva, skrifaði þau upp og teiknaði galdrastafina af mik- illi vandvirkni. Hann naut hin síðari ár nokkurs styrks af Al- þingi til fræðistarfa, og má vænta þess, að ýmislegt, sem hann S3fn- aði og ritaði, eigi eftir að koma seinni tíma fræðimönnum í góð- ar þarfir. — Eins og að líkum lætur átti Þorsteinn allmikinn hlut í málum sveitar og safnað- — minning ar og öðrum félagsmálum, þótt hér verði ekki talið. Ef geta skyldi eins hæfileika Þorsteins öðrum fremur, mundi ég vilja nefna hinn lifandi áhuga hans á því, sem honum þótti mikils um vert, og hið andlega fjör, sem brást honum ekki, jofn- vel eftir að heilsan var á þrot- um og sjónin biluð. Hann var óþreytandi að tala um hugðar- efni sín og það sem vakið hafði aðdáun hans. Hann var manna ræktarsamastur við allar góðar minningar og gat einatt með hrifningu sinni lyft því, sem öðr- um virtist smærra, upp í hærra veldi. Það var jafnan hressandi að eiga tal við hann, og hann verður öllum þeim minnisstæður, sem kynntust honum. ★ Það er ekki ofmælt, að hjóra- band þeirra Þorsteins og Mar- grétar hafi verið fágætlega gott, svo samrýnd sem þau voru og samhent í öllu, enda heimilislífið hlýtt og ánægjulegt. Heimitið á Eyjólfsstöðum var annálað fyrir myndarskap, gestrisni, og hjálp- semi. Og samheldni var jafnan hin bezta með allri fjölskyld- unni. Þau Þorsteinn og Margrét eign- uðust níu böm, og komust átta til fullorðinsára: Sigurður, stórkaupmaður, d. 1946, kvæntur Kristínu Hannes- dóttur, sem lifir mann sinn. Jóhannes, meðeigandi Körfu- gerðarinnar, d. 1937, kvæntur Önnu Gísladóttur, sem lifir mann sinn. Guðrún, gift Magnúsi Hannes- syni, rafvirkjameistara. Unnur og Hulda, verzlunar- meyjar. Hannes, stórkaupmaður, kvænt ur Jóhönnu Thorlacius. Konráð, verzlunarmaður, kvænt ur Steinunni Vilhjálmsdóttur. Kristín, gift Guðlaugi Guð- mundssyni, bifreiðarstjóra. Loks má geta þess, að þau ólu upp nöfnu Margrétar, Mag- gréti Jósefsdóttur, sem gift er Guðmundi Jóhannessyni, málara. Þó að þau hjónin yrðu fynr þeirri sorg að missa tvo elztu syni sína, báða mikilhæfa mfenn, var þeim gefið mikið barnalán. Þau sýStkini eru öll ágætlega gefin, atgervis- og dugnaðarfólk og hafa komizt vel áfram, og upp eru að renna nýjar kyn- slóðir og efnilegar, sem lofa góðu um framtíð ættarinnar. Þess verður sérstaklega að minnast, að þær systurnar, sem ógiftar eru, Unnur og Hulda, gerðu for- eldrum sínum kleift að halda heimilinu í sömu skorðum, þegar þau tóku að eldast og heilsan að bila, og hafa annast þau af ein- stakri alúð og umhýggju, sam- hliða öðrum störfum sínum. Margrét átti áttræðisafmæli síðastliðinn sunnudag, 11. októ- ber, tveimur dögum eftir andiát Þorsteins. Eins og nærri má geta, hafði fjölskyldan ætlað sér að halda þann dag hátíðlegan, en örlögin réðu því, að á honum varð annar blær. En hún var samt þann dag umkringd börn- um sínum, tengdabörnum og barnabörnum og umvafin ást þeirra, þakklátsemi og hluttekn- ingu. Það er líka mikil gæfa, þótt samvistum þessa heims sé slitið, að geta í aftanskini minn- inganna horft yfir nærfellt sextíu ára sambúð, sem aldrei hefur borið skugga á innan frá og svo mikil blessun fylgt í farsæld niðjanna og hylli góðra manna. S. N. iíyndakmAi IflKíCOWUWMAK Ný ásiarsaga i rökkrinu Leyndarmál leikkonunnar Jean Dawson er ung stúlka, sem dreymir um frægð og frama á leiksviðinu. — Hún gerist staðgengill hinnar fi;ægu kvikmyndaleikkonu Lolu Merrett, sem hafði horfið á dularfullan hátt, en Jean er tvífari Lolu. Kvikmynda- takan fer fram í frumskógum Afríku. Þar gerast hinir furðulegustu atburðir. I hlutverki Lolu lendir hún óafvit- andi í höndum harðsvíraða eiturlyfjasmyglara, og verður að þola fyrirlitningu Dtui Shane, fréttaritara, sem hún elskar og tilbiður. Saga um ÁSTIR EITURLYFJASMYGL og KVIKMYNDATÖKU N auðungaruppboð sem auglýst var í 56., 57., og 58. tbl. Lögbirtingablaðsins 1959, á hluta í Bergsstöðum við Kaplaskjólsveg, hér í bænum, eign Steingríms Kl. Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu tollstjórans í Reykjavik á eigninni sjálfri mánudaginn 19. október 1959, kl. 3 síðdegis. BORGARFÓGEINN í REYKJAVlK. Sendisveinn Röskur piltur óskast til sendiferða á skrifstofu okkar, hálfan eða allan daginn. J. Þorláksson & Norðmann hf. ' Bankastræti 11. Smáíbúðarhús til sölu er smáíbúðarhús við Akurgerði. Eignin er mjög vönduð að öllum frágangi. Bílskúrsréttindi fylgja. Uppl. veitir EGILL SIGURGEIRSSON, hrl. Austurstræti 3 — Sími 15958. Unglingsstúlka óskast til innheimtustarfa nú þegar. íslenzk-erlenda verzlunarfélagið h.f. Garðastræti 2. . JOHNSON & KAABER H/r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.