Morgunblaðið - 06.05.1960, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.05.1960, Blaðsíða 6
6 MORGVISBLAÐIÐ Fðstudagur S. maf 1960 Heiðmörk 10 ára á þ< •essu sumri ÞAB kom fram á aðalfundi Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur í fyrra kvöld, að starfsemi félagsins er nú mikil ár hvert og framvinda mála farsæl. Á þessu ári minnist félagið hins merkasta áfanga í sögu sinni. í sumar verða liðin 10 ár frá því að Heiðmörk var vígð og skipuleg skógrækt undir stjórn Skógræktarfél. Reykja víkur hófst þar. Gat Einar G.E. Sæmundsen skógarvörður og framkvæmdastjóri félagsins þess, að nú væri búið að groðursetja 1 Heiðmörk yfir eina milljón trjá plantna. ★ Gróðursettar 200 þús plöntur Á aðalfundinum flutti Guð- mundur Marteinsson formaður félagsins skýrslu stjórnarinnar, en Jón Helgason kaupm. gerði grein fyrir reikningum. Gekk rekstur félagsins vel á síðastl. ári og er fjárhagur félagsins sæmi legur. Einar G.E. Sæmundsen skógarvörður, gerði grein fyrir starfinu í Heiðmörk. Þar voru í fyrrasumar gróðursettar nær 200,000 trjáplöntur. Var hlutur Vinnuskólastúlkna er störfuðu í mörkinni 116 þús. plöntur, en sjálfboðaliða’ rúmlega 80,000 plöntur. Þá skýrði Einar frá því að gróðursettar hafi verið á ann- að þúsund trjáplöntur í plógför. Hér er um tilraunagróðursetn- ingu að ræða og kvað Einar inargt benda til að slík aðferð muni eiga vel við hér á landi, við ákveðin skilyrði. Vegakerfið i Heiðmörk hefur þegar kostað mikið fé og kvað Einar nú búið að .mæla út fyrir enn nýjum veg) og verður hann inn með Vífilsstaðahlíð, niður um Hjalla- brúnir. Verður þessi vegur 6—7 km langur og mun þá enn opnast skemmtileg leið um Heiðmörk, sem er einn vinsælasti staður Reykvíkinga er þeir vilja dusta Uppsögn Barna- skólans á tyirkju- bœjarklaustri Kirkjubæjarklaustri, 30. apríl. U P P S ö G N barnaskólans að Kirkjubæjarklaustri fór fram sl. sunnudag og var hún mjög fjöl- sótt eins og venjulega. Hófst hún með guðsþjónustu og síðan var gefið yfirlit um skólastarfið og einkunnir nemenda lesnar upp. Hæstu einkunn í skólanum hlaut Guðlaug Magnúsdóttir, Fagurhlíð 8,80. Við skólaslitin skemmtu börnin, með 'upplestri, söng og leik. Sýning á teikningum og handavinnu nemenda var mjög fjölbreytt. í skólanum voru í vet ur 27 börn alls, þar af 10 undir skólaskyldu aldri. Nokkur börn voru úr öðrum skólahéruðum. — Kennari skólans er Kristjana Jónsdóttir, húsfreyja á Sólheim- um í Landbroti. — Fréttaritari. af sér rykið á fögrum sumardög- um. Þá sagði Einar frá nýjum minn ingarreit sem félagið hefur látið gróðursetja í Vífilsstaðahlíðum til minningar um dr. Helga Tóm- asson sem sæti átti í stjórn Skóg- ræktarfél. Reykjavíkur til dauða- dags. ★ Skógræktarstöðin Um skógræktarstöðina og starf ið þar ræddi Einar eimnig í skýrslu sinni til fundarins Enn getur stöðin stækkað og hús henn ar einnig til muna. 1 græðireitum stöðvarinnar eru nú hundruð þúsunda plantna og græðlinga. Vöxtur var í meðailagi á öllum tráplöntum þar í stöðinni. Við kosningu tiil aðalstjórnar fé lagsins var Lárus Bl. Guðmunds- son endurkjörinn og nýr maður tók sæti í varastjórn félagsins Bjarni Helgason jarðvegsfræð ingur. Var fundurinn fjölsóttur og að vanda annaðist ritstörfin á fund inum Guðbrandur Magnússon fyrrum forstjóri, en fundarstjóri var Hákon Guðmundsson hæsta- réttarritari. Frú Guðrún J Erlings Thorstein Petersen Kunnur stjórnmálamaður í Fœreyjum látinn ÞÓRSHÖFN, 4. maí. (Einkaskeyti til Mbl.) — Hinn kunni, færeyski stjórnmálamaður Thorstein Pet- ersen, fyrrverandi landsstjórnar- maður og bankastjóri, andaðist í dag hér í bæ, sextugur að aldri. — Thorstein Petersen var einn af forgöngumönnum að stofnun Sjó- vinnubankans árið 1932, og var hann bankastjóri til 1950, er hann tók sæti í landstjórninni. Hann var fyrst kosinn til Lög- þingsins árið 1940, og þingmaður var hann til 1951. — Frá árinu 1943 og til 1950 var hann einnig fulltrúi í danska þjóðþinginu. — Thorstein Petersen varð að segja af sér þingmennsku, þegar Sjó- vinnubankinn varð gjaldþrota ár- ið 1951 og mál var höfðað gegn honum og stjórn bankans — en hann var þá dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi. — Árið 1957 var hann að nýju kjörinn til danska þjóðþingsins — en var þá útilok- aður frá þingsetu. — • — Þegar Thorstein Petersen var á leið til Danmerkur með Tjaldi fyrir tveim árum, fékk hann slæma byltu. Hlaut hann höfuð- kúpubrot og nokkrar skemmdir á heila. — Skipið setti hann þá í land í Ósló, þar sem hann lá sjúkur marga mánuði. — Hann fékk aldrei heilsuna aftur. Fyrir nokkrum dögum tók honum að hraka mjög — og í morgun and- aðist hann. Dáin 1. maí 1960. 1 DAG verður frú Guðrún J. Er- lings borim til hinztu hvílu. Hún andaðist 1. maí s.l. Frú Guðrún fæddist 10. jan. 1877 á Kotlaugum í Hrunamannahreppi, dóttir Jóns Einarssonar, bónda þar. Frú Guðrún var kona Þor- steins Erlingssonar skálds. Hann lézt í sept. 1914. Bjó hún manni sínum hið indælasta heimili, eins og kunnugt er, og kom þangað margt áhugafólk um bókmenntir og listir til skrafs og ráðagerða, enda var frú Guðrún listræn í eðli sínu og hafði mikið yndi af að tala um skáldskap. Höfðu þau reist húsið Þingholtsstræti 33 ár- ið 1911 og hefir það verið með sömu ummerkjúm og áður var meðan skáldið liifði. Kappkostaði frú Guðrún að haida í heiðri minninguna um Þorstein mann sinn. Frú Guðrún var fríð kona yfir- litum og vakti athygli hvar sem hún fór. Síðustu árin var hún heilsulaus orðin, en fylgdist þó með af áhuga ekki siður en forð- um daga, þegar þau h]ón voru samtaka í því að prýða heimili sitt og umhverfi á alla lund: „Hvar sem heimili okkar var, söfnuðust smáfuglarnir utan um okkur strax og snjór kom“, sagði Guðrún einhvern tíma. Frú Guðrún og Þorsteinn Er- lingsson eignuðust tvö börn, frú Svanhildi, rithöfund, sem gift er Sæmundi Stefánssyni forstjóra, og Erling lækni, sem er giftur Huldu Davíðsson. KVEÐJA FRÁ VINKONU Þú áttir svo heita ást og trú og yl þann, er hjörtun kætti. Og líknandi hendur lagðir þú, gr líðendum harmur mætti. Og víst hef ég margs að minnast nú, er muna og þakka ætti. Og mjög er mér hugstæð myndin sú, og mér vill hún huggun bjóða, er ljósheima til við byggðum brú, við birtu og angan ljóða, en óði og blómum unnir þú, og öllu því fagra og góða. Það gengur svo margur í manna- heim, er mæðist af sorg og kvíða. Það leikur víst ei á tungum tveim. Hver telur þá sárt er líða? Þú opnaðir faðm þinn öllum þeim, er áttu við böl að stríða. Mér tregt er um mál, ég hnípi hljóð, þú horfin ert, vina kæra. En blómálfar til þín ljúflings Ijóð nú leika á hörpu skæra. Og sólskríkjur munu sumarljóð þér syngja og þakkir færa. Margrét Jónsdóttir. • Ferðamannatíminn nálgast Nú fer ferðamannatíminn að nálgast. Margir eru þeirrar skoðunar að við gerum okkur ekki nægilegan mat úr ferða- mönnum og hafa þeir vafa- laust rétt fyrir sér. Allar þjóð ir heims, og ekki sízt þær sem fátækar eru að gjaldeyri, keppast um að hæna til sín ferðamenn. Og skýrslur sýna, að þó talsverðu sé til kostað hjá þeim til að geta tekið við ferðamönnum, þá margborgar það sig. Hreinar gjaldeyris- tekjur af ferðamönnumhækka ár frá ári. Þó held ég að þeim sem þannig hugsa, hætti til að ganga of langt, gera ráð fyrir kostnaðarsamari framkvæmd- um en nauðsynlegar eru, til að höndla þessa eftirsóttu ferðamenn með gjaldeyrinn sinn, og því verður lítið úr framkvæmdum. Tökum t. d. hótelin. Þeir ferðamenn, sem búa á dýrustu og fullkomnustu hótelunum, þar sem ekkert er til sparað, vilja líka hafa eitthvað við að vera. Þeir ferðast ekki langa leið bara til að vera á fínum hótelum, þó þeim þyki það sjálfsagður viðurgerningur. Glæsileg hótel eru alls staðar. Þau eru ágæt — með öðru. • Eitthvað við að vera Aftur á móti er hér nóg við að vera fyrir ferðamenn með ákveðin áhugamál. T. d. hafa komið hingað á vegum þýzkr- ar ferðaskrifstofu hópar nátt- úrufræðikennara og í sumar vill þessi litla ferðaskrifstofa senda fleiri hópa kennara en Ferðaskrifstofa ríkisins treyst ir sér til að taka við vegna húsnæðisleysis, þó íslands- ferðir hafi aldrei verið aug- lýstar þaðan. Jóhanni Sig- urðssyni forstöðumanni skrif_ stofu F. í. í London datt einn- ig í vor í hug að bjóða brezk- um náttúrufræðingum upp á hópferðir til íslands.Strax var hvert sæti skipað. í Bretlandi munu vera um 4000 manns í félagsskap náttúrufræðinga svo af nógu er að taka. Þarna er fólkið, sem hefir mikið að sækja til íslands, og sem við getum með íburðarlausum við urgerningi tekið á móti — en þó ekki engum. Önnur tegund ferðamanna, sem hingað kemur í sumar, á ☆ FERDIIMAIMD líka hingað erindi. Það eru sjóstangarveiðimenn, sem ætla að iðka íþrótt sína 1 nokkra daga í Vestmannaeyj- um. Áhugi þeirra fyrir ís- landsferð beinist að sjálfsögðu fyrst og fremst að fiskinum og veiðinni, ekki að fínu hóteli — en þó verða lág- marks þægindi að vera fyrir hendi. Menn sem ætla sér að koma slorugir af sjó að kvöldi, verða t. d. að hafa baðher- bergi svo eitthvað sé nefnt. • Látlaus viðgerningur en góður Auðvitað eru fjölmargir aðrir hópar manna, sem af ýmsum ástæðum finna hér betra land til heimsóknar fyrir sig en annars staðar. Ég held að við eigum að laða þá hingað, en ekki keppast við að fá þá ferðamenn, sem lúxusaðbúnaður skiptir öllu. Enginn má þó skilja orð mín þannig að við höfum nógu góð an aðbúnað fyrir ferðamenn. Langt því frá. En ég held að við ættum að keppa fremur að því að fá snyrtileg lítil hótel á þeim stöðum, þar sem eitthvað er við að vera, og fjallakofa uppi í öræfum, þar sem menn geta fengið gistingu' í sæmilegu rúmi og látlausan en góðan mat. T. d. gætu á hverjum stað verið 1—2 stúlk ur, sem sæju um slíkar veit- ingar, þegar ferðamenn ber að garði í þessa 2—3 mánuði sem hægt er að ferðast um hálendið. Öræfaferðalög eru nýstár- legt fyrirbrigði, sem þeir sem ánægju hafa af slíku, geta vel sótt langar leiðir, og búast má við að látlaus þægindi nægi slíkum ferðamönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.