Morgunblaðið - 30.12.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.12.1961, Blaðsíða 2
▼ 2 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 30. des. 196i Islenzk fisksala í Bandaríkjunum BJARNI V. Magnússon, fram- kvaemdastjóri Iceland Products í Steelton í Pennsylvaníuríki, hefir verið hér heima undanfarna daga til að ræða við forráðamenn Sam bandsins um væntanlegar fisk- sölur á næsta ári. Bjarni segir markaðshorfur góðar, ef frá sé skilin ýsan, sem enn t>á er í eins bonar öldudal. Samt hafa verið gerðir sölusamningar um nokk- urt magn af smáýsu til Banda- ríkjanna. Samningar hafa einn ig verið gerðir um verulegar þorskblokkarsölur og koma nú í spilið enn nýjar stærðir af blokk unum. Hinar breytilegu stærðir á blokkunum hafa valdið frysti- húsamönnum miklum höfuðverkj um, en þeir verða þó að gera sér grein fyrir því, að okkur er lífs nauðsyn að fylgja þeim kröfum, sem kaupendurnir gera. Það veik ir mjög aðstöðu okkar á markaðn um, hve svifaseinir við erum að taka upp nýjungamar, og oft tef ur það fyrir, að við framleiðum skakkar stærðir af blokkum, og erum allt of svifseinir að átta okkur á breytingum. (Úr fréttabréfi Sjávarafurða- deildar SÍS). Elclur í bragga UM KLUKKAN hálf fimm 1 fyrri nótt var slökkviliðið kvatt að Langholtsvegi 171, en þar er Pípu- og hellugerð Reykjavíkur bæjar til húsa í bragga. Hafði kviknað í út frá olíukyndingu, en úrgangsolíugryfja er fyrir fram an kyndinguna og hafði eldur komizt í hana- Skömmu eftir að slökkviliðsmenn komu inn varð nokkur sprenging í olíugeymin um, en ekki töldu slökkviliðs- menn að um hættu hefði verið að ræða af þeim sökum. Gekk greiðlega að slökkva eldinn og skemmdir mimu hafa verið litlar. Dr. Matlliías Þórðarson látinn Dr. Matthías Þórðarson. fyrrv. þjóðminjavörður, andaðist að- faranótt föstudags í Bæjarsjúkra- húsinu, en þar hafði hann legið sjúkur í þrjá mánuði. Hann varð 84 ára. Þverskurður skv. mælingum Áma Þ. Árnasonar, verkfræðings, er sýnir grunn Tjarnargötu 4. Matthías Þórðarson var fædd- ur 30. okt. 1877 á Fiskilæk í Mela sveit, sonur Þórðar Sigurðsson-ar bónda þar og konu hans Sigríð- ar Runólfsdóttur. Hann tók stúd- entspróf 1898 og hélt þá til Kaup- mannahafnar, þar sem hann lagði stund á norræna málfræði og fomfræði. 1907 varð hann að- stoðarmaður við Forngripasafn- ið og var skipaður þjóðminja- vörður 1908. Gegndi hann því starfi til ársins 1947. Hann var í stjórn Hins íslenzka bókmennta- -félags frá 1912 og til dauðadags; forseti þess um langan aldur. Formaður Hins íslenzka forn- leifafélags var hann frá 1920 og til æviloka; ritstjóri Árbókar þess frá 1920 til 1947. Hánn gegndi auk þessa trúnaðarstörf- um í fjölmörgum öðrum félaga- samtökum. Mikil ritstörf liggja eftir dr. Matthías svo sem Þjóð- menjasafnið 1863—1913, Ættar- skrá Þórðar Sigurðssonar og Sig- ríðar Runólfsdóttur á Fiskilæk, Fomleifar á Þingvelli, íslenzkir listamenn I.—II., Yínlandsferð- irnar o.fl. o.fl. Þá sá hann um út- gáfu rita Jónasar Hallgrímsson- ar. Matthlas Þórðarson varð pró- fessor að nafnpót 1937 og heiðurs doktor við Háskóla íelands 1952. Fyrri kona Matthíasar Þórðar- sonar var Alvilde Marie. fædd Jensen, en síðari kona hans var Guðríður Guðmundsdóttir. Dr. Matthías Þórðarson var samvizkusamur og afkastamikill — Bæjarsfæbi Framh. af bls. 20. frá ýmsum hliðum, og er einkum vitnað til Kálunds, Jóns biskups Helgasonar og Klemenzar Jóns- Súnar. Málið komst að nokkru leyti á nýjan grundvöll með forn leifafundinum í Tjarnargötu 4. Eins og kunnugt er, var þar ekki um fornleifagröft í eiginlegum skilningi að ræða, en Matthías Þórðarson og þeir náttúrufræð- ingarnir dr. Finnur Guðmunds- son, Geir Gígja, Guðmundur Kjartansson og Jóhannes Áskels- son fylgdust með því, sem upp kom. Eftir beiðni Jóhannesar Ás- kelssonar framkvæmdi Árni Þ. Árnason verkfræðingur mæling- ar á grunninum í umboði bæjar- verkfræðings. Fékkst vitneskja um jarðlagaskiptingu Og leifar bygginga og mannvistar frá ýms um tímum allt frá landnámsöld. Óvíst er, hvcrs konar byggingar þar var um að ræða, en á 18. öld stóð á þessu svæði bústaður ög vinnustofur beykis hjá innrétting unum í Reykjavík. Benti Matt- hías Þórðarscn á það í grein í Vikunni 15. júní 1944, þar sem hann lýsir fornleifafundinum. Nú hefur komið fram við skjalarannsókn Þorkels Grímsson ar, að bæði bústaðurinn og verk- stæðin eru að stofni til hús frá því fyrir daga innréttinganna, er voru lagfræð til þess að þau hæfðu hinni nýju notkun þeirra. Þau voru byggð, segir í skoðun- argerð frá 1759, að landssið. Að lokum sagði Þorkell Gríms- son: „Með því byggingarlagi, sem tíðkaðist, og þeirri stærð og skip an húsa, sem venjuleg var á stór- býlum, er ekki að efa, að hús, bæjarins í Reykjavík hafi alltaf tekið yfir stórt svæði. Við vitum einnig, að þar var tvíbýli, áður en jörðin var lögð til innrétting- anna. Verður að gera ráð fyrir tilfærslu húsa og þar með nýjum grunnstæðum á jafnlöngum tíma og um er að ræða. Hann er ekki ýkjastór í þessu tilliti grunnur- inn, sem fornleifarnar og mann- vistarlögin fundust í við Tjarnar- götuna vorið 1944, og áreiðanlega hefur ýmislegt farið þar forgörð- um, en ég efa ekki, að hann hafi geymt leifar af bænum í Reykja- vík frá landnámsöld og fram til hins síðasta“. Að erindi Þorkels loknu tóku til máls Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður, Helgi Hjörvar rit- höfundur, Lárus Sigurbjörnsson skjalavörður og Björn Þorsteins- son sagnfræðingur. Greindi þá á um ýmislegt þessu varðandi og hvöttu til frekari framhaldsrann sókna bæði með skjalakönnun og uppgreftri. Hér birtist hluti af göm.lum’ og sjaldséðum uppdrætti, sem fáir hafa vitað um áður. Hann er frá árinu 1749 og merktur svo: „Ilolmens Havn udi Iis- land Anno 1749, aflagt af H. Hoffgaard“. Eftir nöfnunum má sjá Arnarhól, Reykjavík, Hlíðarhús, Ánanaust, Sel, Eiði, Mýrarhús, Nes, Gróttu, Hrólfsskála, Lambastaði og Skildinganes. Þorkell Grímsson, fornieifafræðingur, virðir fyrir sér hluti, sem upp komu við uppgröft í Tjarnargötu 4 vorið 1944. (Ljósm. Mbl.; ÓI. K. M.). Matthías Þórðarson fræðimaður og munu merki hana lengi sjást í islenzkri fornminja- fræði og fornleifavörzlu. Þá var hann áhugamaður um heimilis- iðnað og myncllist. Mun Lista- safn ríkisins hafa notið þess, með an það var undir hans umsjá. Heimatilbúin sprengja sprakk í höndum þeirra PATREKSFIRÐI, 29. des. Það slys vildi tíl hér á Þorláksmessu að tveir unglingspiltar urðu fyr ir því óhappi að heimatilibúin sprengja sprakk í höndum þeirra með þeim afleiðingum að annar drengjanna, Sigurberg Guðjóna son meididist lítilsháttar á hendi, en aftur á móti slasaðist hinn, Gunnar Karl Guðjónsson, mun meira, meiddist verulega á hendi og læri- Báðir voru drengimir fluttir heim að lokinni aðgerð og er líðan þeirra nú eftir atvikum góð, en Gunnar lá rúmfastur þar til í gær. — Trausti. Mikil aðsókn að Skugga-Sveini Það er mikið annríki í að- göngumiðasölu Þjóðleikhúss- ins um þessar mundir, en þar er sem kunnugt er verið að selja aðgöngumiða á Skugga Svein. Nú er uppselt á 4 sýn- ingar fyrirfram og virðist allt útlit á að aðsókn að leiknum ætli að verða mjög mikil ng virðist „Skuggi" gamli ætla að verða furðu lífseigur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.