Morgunblaðið - 16.02.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1963, Blaðsíða 1
24 siður jíO árgangur 39. tbl. — Laugardagur 16. febrúar 1963 l*rentsmiðja morgunblaSsins OLÍUSKORTUR VAR YFIRVOFANDI Varnarliðið hl;óp undir bagga — Rússar stóðu ekki við gerða samnmga inga um olíuflutnínga til ís- lands og hafa þeir m.a. borið því við, að þeir hefðu ekki ISLENZKU olíufélögin hafa neyðzt til að kaupa allt að 4000 tonnum af gasolíu af varnarliðinu til að koma í veg fyrir að landið yrði olíu- laust. Astæðan fyrir þessari ráð- stöfun er sú, að Rússar hafa ekki staðið við gerða samn- Mary Small! svípti sig Mary Small, FLESTUM mun í fersku minni. hver urðu afdrif brezka kafarans Peter Small, sem fórst á óhugnanlegan hátt við strendur Kaliforníu, er hann reyndi að setja heims met í köfun, fyrir nokkru. Small var nýgiftur, er óhappið bar að höndum. Kona hans var Mary, 23 ára gömul dóttir Frederick Miles, brezka flugvélaframleiðandans. Nú, réttum 10 vikum eftir að þau giftu sig> eru þau bæði látin. Mary Small framdi sjálfsmorð í örvæntingu, vegna örlaga eiginmannsins. Skrúfaði nún frá gasi í íbúð sinni í London sl. þriðjuiag. Eins og lesendum Mbl. mun kunnugt, komu þau hjónin hér við á Ieið sinni til Banda- ríkjanna, þar sem köfunar- Framh. á bls. 2 nægan skipakost til flutning- anna. Rússar, sem olíufélögin kaupa alla olíu og benzín af, hafa ekki staðið við gerða samninga o& „svikið þá herfilega", eins og einn af starfsmönnum íslenzku olíufélaganna komst að orði við Morgunblaðið í gær. Þar sem hætta var á, að ís- land yrði olíulaust á köldustu mánuðum ársiris, leituðu olíufé- lögin, með samþykki ríkisstjórn- arinnar, til varnarliðsins hér og fóru fram á að fá keypta olíu. Varnarliðið brást vel við og keyptu olíufélögin allt að 4000 tonnum af gasolíu af birgðum þess í Hvalfirði. Hér er um bandaríska olíu að ræða og þykir hún betri til húsakyndingar en sú rússneska. Verðið, sem olíufélögin greiða fyrir olíuna frá varnarliðinu, er nokkru hærra en hið samnings- bundna verð á rússnesku olíunni. Nægar birgðir eru fyrir í land inu af rússnesku benzíni og mun ekki þörf á benzínkaupum frá varnarliðinu. Olíufélögin munu reyna að takmarka kaupin frá varnarlið- inu, sem frekast er unnt, vegna viðskiptasamninganna við Rúss- land. Rétt er að geta þess, að ekki er ástæða fyrir fólk til að hamstra olíu. ÞESSI sögulega mynd sýnir lík Abdul Karim Kassem, for- sáetisráðherra íraks (t. v.), og tveggja samstarfsmanna hans. Hún var tekin I varnarmála- ráðuneytinu í Bagdad. Eftir allharða baráttu við upp- reisnarmenn gafst Kassem upp og var þá þegar skotinn. Að vísu fóru fyrst fram mála- myndaréttarhöld. — Kassem komst til valda á svipaðan hátt og arftakar hans nú, með blóðugri byltingu 1958. MYRÐA Ani DE GAULLE Flett var oían af tilræðismönnum í tæka tíð — fimmta tilræðið við for- setann, sem kunnugt er um París, 15. febr. AP/NTB Herlögregla fletti í gær of- an af samsærismönnum, er höfðu það að takmarki sínu Krúsjeff faðmar sendiherra Kína — segir það tákna sameiginlega af- stöðu til kapitalismans — ekki endi- lega sambúð Kína og Sovétríkjanna Moskvu, 15. febrúar. —- NTB KRÚSJEFF, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, lýsti því yfir í dag, að kommúnista- flokkar Sovétríkjanna og Kína hefðu alltaf unnið sam- an og myndi gera það fram- vegis. Lýsti forsætisráðherrann því yfir við. viðstadda, er efnt var til samsætis í Moskvu í dag, að það yrðu Sovétríkin og Kína, sem kveða myndi að, þegar kapitalisminn væri allur. Er Krúsjeff var að því spurð- ur í dag, hvort hann teldi, að brátt yrði efnt til fundar með æðstu mönnum Kína og Sovét- ríkjanna, sagði hann, að ekkert nýtt hefði gerzt, er breytt hefði sambúð ríkjanna. Hann vildi ekkert um það segja, hvort hann hefði í huga að efna til fundar með Mao Tse-tung. Það vakti mikla athygli, að Krúsjeff faðmaði ambassador Kína í Moskvu, Pan Tsa-li, hélt annarri hendi um hann, en þrýsti hönd hans með hinni. Aðspurður um það, hvort þetta látbragð ætti að vera tákn- rænt fyrir sambúð þessara tveggja risa kommúnismans, sagði Krúsjeff, að það táknaði afstöðu beggja t-il kapitalismans — ekki endilega sambúðina. Nánar aðspurður um afstöðu Sovétríkjanna til Kína, sagði forsætisráðherrann, að þeir, sem vildu kynna sér það mál, gætu lesið allt um það í grein, sem birtist í „Pravda“ fyrir skömmu. í þeirri grein segir, að Sovét- ríkin séu ætíð reiðubúin að ræða við ráðamenn Kína, en sérstök áherzla sé lögð á, að slíkar við- ræður fari fram fyrir lokuðum dyrum — en sé ekki útvarpað um heim allan. að myrða de Gaulle, Frakk- landsforseta, er hann kæmi í heimsókn til herskóla eins — Ecole Militaire — í París í morgun. Síðustu fregnir herma, að a.m.k. 7 manns, þar á meðal tvær konur hafi verið hand- teknir. Mun ætlunin hafa verið að skjóta de Gaulle með riffli, búnum kíki, er hann stæði í garði skólans. Skýrt hefur verið frá því, að forsetanum hafi verið kunnugt um ætlan samsærismanna kvöld- ið áður en hann fór í heimsókn- ina. Lét fosetinn það ekkert á sig fá, heimsótti skólann, og dvaldist þar 45 mínútum lengur, en til stóð. Sat hann fund með ráðherrum sínum síðar í dag. Þetta er fimmta tilræðið við forsetann, sem vitað er um, frá því hann varð forseti. Samkvæmt þvi, sem næst hef- ur verið komizt, mun tilræðið hafa verið vel skipulagt, en sam- særismönnum tókst ekki að halda fyrirætlunum sínum leyndum, og kamst leyniþjónusta hersins að þeim. Átti að skjóta de Gaulle út um glugga skólans. Fannst riffill, hentugur til verknaðar- ins, heima hjá einum samsæris- manna, kafteini að nafni Poinard er hann var handtekinn. Kona Þórshöfn, Færeyjum, 15. febr. — NTB — VATNSSKORTUR í Færeyjum er nú svo mikill, að skammta verður allt rafmagn á eyjunum. Er nú aðeins opið fyrir straum- inn 4 klukkustundir á sólarhring. Hefur þetta ekki sízt alvarlegar afleiðingar fyrir athafnalífið. hans var einnig handtekin. Kaft- einninn er 37 ára að aldri. Þá mun kafteinn, Jacquot, 40 ára að aldri, búsettur í skólanum, hafa verið handtekinn. Auk hans er skýrt frá því, að þriðji kafteinn- inn, d’Arabaumont, 35 ára að aldri, sé í haldi. Nokkra athygli hefur það vakið, að enskukenn- ari skólans, frú Rousselot de L>is- iac, er talin viðriðin málið, og hefur verið tekin föst. Fleiri nöfn hafa ekki verið nefnd en fullyrt er, eftir áreiðan- legum heimildum, að handtökur standi enn yfir. Ekki er talið ólíklegt, að OAS- menn kunni að standa að baki þessu tilræði, og er nefndur í því sambandi Georges Watin, er enn gengur laus. Hann er talinn þótt- takandi í síðasta samsæri gegn forsetanum. Enn standa yfir réttarhöld í París yfir 15 mönnum, vegna til- ræðis þess, er gert var við de Gaulle í ágúst sl. Kvöldsala við IMóatún U M áratuga skeið hefur Morgunblaðið verið selt úr afgreiðslu þess, á laugar- dagskvöldum. í kvöld verður einnig blaðasala á vegum Morg- unblaðsins, á horni Lauga- vegs og Nóatúns, og er ráðgert að svo verði einnig framvegis á laugardags- kvöldum. Blaðasalinn hef- ur bækistöð við einn af blaðabílum blaðsins og verður bíllinn við benzín- sölu „BP“ á horni Lauga- vegs og Nóatúns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.