Morgunblaðið - 31.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.01.1964, Blaðsíða 1
24 slður 51. árgangur 25. tbl. — Föstudagur 31. janúar 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins „Um þau máíefni er alls ekki að ræöa“ — segir J. O. Krag, forsætisráðherra, un grein sovézks „fréttaskýranda", sem vitnað er í, í „Þjóðviljanum“ í gær Einkaskeyti til Mbl. Kaupmannaih., 30. 1. JENS Otto Krag, forsæt- isráðherra Danmerkur, skýrði fréttamanni Morg- unblaðsins svo frá í dag, að engar viðræður um kjamorkuvopn á Norður- löndum, kjamorkuvopna- laust svæði þar,_ né stað- setningu slíkra vopna á íslandi eða Noregi séu fyr- irhugaðar, er Krag heldur til Moskvu í næsta mán- uði. • Mbl. leitaði til Krag, for- sætisráðherra, vegna fregnar í „Þjóðviljanum“ í gær, en það blað vitnar þá í grein eft- ir fréttamann, Boris Tarasoff, sem blaðið segir sitarfa við „Novosti“-£réttastofuna sov- ézku. • „Þjóðviljinn* segir, að í grein Tarasoff sé skýrt frá því, að er J.O. Krag heimsaek ir Moskvu í næsta mánuði, muni hann ræða bann við öllum kjarnorkuvopnum á Norðurlöndum, við Krúsjeff, forsætisiráðherra Sovétríkj- anna. Þetta mál segir „Þjóð- viljinn“ sérstaklega aðkall- andi, vegna „fyriræ'tlana Bandaríkjanna að koma sér upp stóð fyrir kjarnorkukaf- báta í Hvalfirði.“ • Síðan vísar blaðið þannig í grein fréttamannsins: *„— Tillagan um að komið verði upp kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum viæð-| ist vera sú tillaga af þessu tagi sem auðveldast væri að framkvsema, af því að Norð- urlönd eru þegar slíkt svæði. En svo fráleitt sem það virð- ist, hafa þeir sem eru efins um gagnsemi þeirrar tillögu einmitt haft þetta að helztu mótbáru gegn henni ........ En það sem gerzt hefur nú að uiidanförnu dreguf enn úr gildi þessar mótbáru. Svo get ur farið, að tvö þeirra Norður landa sem eru í Atlantshafs- bandalaginu verði ásamt öðr- um til að spilla þeirri sér- stöðu Norðurlanda .... for- ingjar Atlantsihafs.bl. hafa á prjónunum fyrir ætlanir um að koma upp stöð fyrir kaf- báta með kjamahlöðnum flugskeytum í Hvalfirði. Þá hefur einnig verið um það rætt, að norsku firðirnir væru ákjósanlegar stöðvar handa kjarnorkuka£bátum.“ J. O. Krag, Um þessa fullyrðingu sovézka „fréttaskýrand- ans,“ segir Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dana: „Er opinber heimsókn af því tagi, sem ég mun leggja upp í til Sovétríkj- anna, fer fram, er það venja, að ræðzt sé við um stjórnmál og viðskiptamál, en án þess, að um nokkra samninga sé að ræða, og um þau málefni, sem Hr. Boris Tarasoff nefnir, er alls ekki að ræða“. Stórmeistararnir Friðrik Ölafsson og Tal mættust á skákmótinu í gærkvöldi. Þcssa mynd tók Ól. K. Mag. af leiknum- Tal situr sem fastast Friðrik gengur um gólf i heimspekilegum hugleiðingum. Sjá myndir og frásögn á bls. 27. Bylting í S-Vietnam — herráð Minh, sem steypt var, sakað um að fylgja stefnu DeGaulle — Engar blóðsúthellingar — AP — NTB — G E R Ð var bylting í S-Viet- nam í morgun, og þeir menn reknir frá völdum, sem þeir tóku í byltingu, sem gerð var fyrir um þremur mánuðum. Nguyen Khanh, hershöfð- ingi, stóð fyrir byltingunni nú, sem sögð er hafa hafa far- ið fram án blóðsúthellinga. — Er hershöfðinginn nú nær einvaldur í S-Vietnam, að því er segir í bandarískum frétt- um. Enn hefur engin staðfesting fengizt á stefnu þeirra, sem völdin hafa tekið, en hermt er, að Khanh, hershöfðingi, sé OECD ræðir lofsamlega um f r amkvæmdaáætlun ina, — ársskýrslu, en bendir á nokkur skilyrði þess, að hún nái fram að ganga Einkaskeyti til Morgun- blaðsins. •— London, 30. janúar — AP ÁRSSKÝRSLA Efnahags- og framfarastofnunarinnar, O. E. C. D„ hefur verið birt. Fjallar hún um almenna þróun efna- hagsmála, og gætir þar að vanda bæði gagnrýni og lofs. í kafla þeim, er fjallar um ísland, er vikið að fram- kvæmdaáætlun ríkisstjórnar- innar, og er farið um hana lof- samlegum orðum. Segir O. E. C. D. hana miða að öruggum hagvexti, nýtingu orkulinda, með tilliti til aukinnar hag- kvæmni og fjölbreytni í at- vinnuháttum og útflutningi, svo og hóflegum erlendum lántökum. Síðan exu rædd skilyrði þess, að framkvæmd áætlunarinnar takizt. I Jiví sambandi er bent á þörf þess að koma á efnahags legu jafnvægi; og viðhalda þvi, og þörf á að draga úr útgjöldum ríkisins. Nauðsynlegt er sagt að draga úr þenslu á lágmarkaðn- um, en slíkt er vart talið unnt, nema reglum um endurkaup Seðlabankans á afurðavíxlum verði breytt, eða þær afnumdar. Þá er talin þörf á aukinni „á- byrgðartilfinningu“ launþega og atvinnurekenda, en undir því sé stöðugt verðlag komið. Framihald á bls. 2. mjög andvígur kommúnistum og andvígur stefnu Frakka í málefnum SA-Asíu. Segir, að í dag hafi hershöfðinginn gengið á fund handaríska ambassadorsins í Saigon, Henry Cabot Lodge, og lagt fyrir hann gögn, sem sanni, að hlutleysissinnar hafi ætlað að taka völdin í landinu, innan skamms. • Ný hershöfðingjastjórn hef ur tekið við völdum, en Khanh Jét handtaka hershöfðingja eldri stjórnarinnar. Þó er enn ókunn- ugt um æðsta mann hennar, Van Minh, hershöfðingja. Hann mun ekki hafa verið handtekinn ásamt hinun^. Óvíst er um dvalars,tað hans, eða afdrif. • Khanh er sagður hafa lýst því yfir, að hann hafi með hönd- um óyggjandi sannanir þess, að tveir helztu samstarfsmenn Van Minh, hershöfðingjarnir Tran Van Donh og Le Van Kim, hafi, ásamt lögreglustjóranum í Sai- gon, Mai Hu Xuan, ætlað sér að ganga til samstarfs við Frakka, í þeim tilgangi að gera S-Vietnam að hlutlausu ríki. Þá hermir £ fréttum, að innan- ríkisráðherrann fyrrverandi, Le Van Kim, hafi verið borinn þeim sökum, að hann hugsaði einungis um eigin hag. Khanh sagði í útvarpsræðu í dag, að hershöfðingjastjórnin, sem nú hefur verið hrundið úr sessi, hafi svikið fólkið í landinu. Khank hefur tilnefnt 17 hers- höfðingja og 18 aðra háttsetta hermenn í nýtt byltingarráð. Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa algerlega neitað því, að eiga nokkurn þátt í byltingunni, en þó segir í fréttum, að rétt áður en byltingin hófst, hafi bandarískum sendjmönnum verið gert aðvart um, hvað í aðsigi var. Johnson, Bandaríkjaforseti, er sagður hafa fylgzt af athygli með því, sem gerðist í S-Vietnam. — Bandarískir ráðaihenn munu enga afstöðu hafa tekið til bylt- ingarmanna. (Sjá ennfremur grein á bls. 23) Tunglflnug og tveir hnettir • ú loft í gær Washington og Moskva, 30. jan. — NTB BANDARÍKIN og Sovétríikin sendu í dag á loft eldflaugar og gervitungl, og er hér u<m að ræða enn ný Skref í áttina til aukinnar þekkingar á geimnum. • Bandaríkin sendu í dag á loft eldflaug, sem ber nafnið „RANGER VT:“ og ætlað er að fara til tunglsins. Ber eldflaug- in mikið af sjónvarps- og mynda vélum, enda er henni ætlað að senda milli 3000 og 6000 myndir á leið sinni, en tiil tunglsins á flaugin að koma á sunnudags- morgun. Rekst hún þá á tunglið, brotnar og ér þá hlutverki henn- ar lokið. Þetta er 6. tilraun Bandarikj- anna, til að senda flaug til tunglsins. Fyrri tilraunir mis- tókust. • Sovétríkin skutu í dag á loft tveimur gervihnöttum, sem nefndir eri^ „geimstöðvar" í sovézkum fréttatilkynningum. Bera þeir nöfnin „Elektron I. og II. “ Fara þeir eftir sporöskjulaga brautum. „Elektron I.“ fer f jærst frá jörðu í 7.100 km. en „Elek- tron II.“ í 68.200 km fjarlægð. Næst eru þeir í 406 og 460 km. fjarlægð. Umferðartími þess fyrri er 2 t. 49 mín., þess síðari 22 t. og 40 mín. Hnettirnir tveir mæla geislun í geiminum og gefa upplýsingar um geislunarbelti. Gervihnötturinn bandaríski, (19 tonn), sem skotið var á loft í gær með risaflauginni „Saturn- us“, starfaði með eðiilegum hætti •Sap }

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.