Morgunblaðið - 16.01.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1965, Blaðsíða 1
24 síður 52. árgangur. 12. tbl. — Laugardagur 16. janúar 1865 Prentsmiðja Morgunblaðsin*. a ríkjandi um veiöirétt íslenzkra toffara við RegviigerðSr og opinber sjó- kort stangast á samkvæmt clámi í nsáSi Péturs HaSidórssonar l\láli brezka togarans Hewitt vísað frá f GÆR voru kveðnir upp dómar í máli togarans Péturs Hall- dórssonar og brezka togarans Roberts Hewitt. — Skipstjóra Péturs Halldórssonar var ekki gerð refsing í dóminum, en afli togarans og veiðarfæri voru gerð upptæk, með því að dómurinn komst að þeirri niðurstöðu, að ekki væri heimilt að veiða á því svæði, þar sem togarinn var tekinn. Þetta hefur það í för með sér, að fjögur svæði í kringum landið, að ummáli um 3000 ferkílómetrar, verða nú lokuð fyrir íslenzk- um togurum mikinn hluta ársins, en á þessum svæðum hafa þeir stundað veiðar allt frá samkomulaginu við Breta 1961 og talið sig hafa til þess fulla heimild. Hefur Landhelgis- gæzlan íslenzka látið þá óáreitta við þessar veiðar þar til nú. Þessi svæði eru út af Faxaflóa, út af Húnaflóa, sunnan Langaness og sunnan Reykjaness þ.e. Selvogsbanki, sem eru ein hin fengsælustu fiskimið við ísland. Þá var máli brezka togarans vísað frá dómi, en ríkissjóð- ur dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað vegna þess máls. — Dómur í máli Péturs Halldórs- sonar var kveðinn upp kl. 2 e.h. í gær í sakadómi Reykjavíkur og er efni dómsins á þá leið, að talið var sannað að skip ákærða hefði verið að veiðum innan fiskveiði- takmarkanna eins og þau hafa verið ákveðin frá 1961. Hitt þótti ekki sannað, að skipið hefði ver- ið innan markanna eins og þau voru ákveðin 1958. Af hálfu á- kærða var því haldið fram að heimilt væri að vera að veiðum é svæði því er aukið var við fisk- veiðilandhelgina með reglugerð nr. 3/1961. Niðurstaða dómsins varð sú að ekki væri heimilt að veiða á þessu svæði, en hinsvegar væru ákvæði um þetta svo ó- glögg, að um afsakanlega van- þekkingu eða misskilning á rétt- arreglum væri að ræða hjá á- kærðum. Leiddi þetta til þess að honum var ekki gerð refsing með dóminum. Hins vegar voru afli og veiðarfæri skipsins gerð upp- tæk og ákærður dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar. Að lokinni dómsuppkvaðningu lýsti Benedikt Blöndal, verjandi skipstjórans á Pétri Halldórssyni, Péturs Þorbjörnssonar, yfir því, að hann óskaði þess, að dómnum yrði áfrýjað. Morgunblaðið hefur spurzt fyrir um mál þetta hjá Baldri Möller, ráðuneytisstjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneyt inu og komst hann svo að orði: „Óljóst ér, hverjar reglur gilda á svæði því, sem um' ræðir eins og niðurstaða dóms ins sýnir, en hún virðist vera í mótsögn við skilning sjávar- útvegsmálaráðuneytisins á túlkun reglugerðar nr. 87/ 1958. Annars vil ég lítið um málið segja á þessu stigi, þar sem því hefur verið áfrýjað og okkur hefur ekki borizt dómurinn í hendur í heild sinni“. Samkvæmt upplýsingum Péturs Sigurðssonar, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, eru kort þau, sem talað er um í Framhald á bls. 2 Sir Winston ChurehilL Churchill fékk slag í gær Liggur mjög þungt haldinn á heimili sínu London, 15. janúar. (NTB-AP) é Einkalæknir Sir Win- stons Churchills skýrði frá því í dag, að hinn aldni stjórnmálaskörungur hefði fengið slag og lægi þungt haldinn á heimili sínu í Lund- únum. é í kvöld gaf læknirinn, Moran lávarður, út til- kynningu um líðan sjúklings- ins þar sem sagði, að hún hefði lítið breytzt í dag. Sir Winston svæfi djúpum svefni og finndi hvorki til óþæginda né sársauka. Moran lávarður las tilkynninguna af tröppum heimilis Sir Winstons í Hyde Park Gate, en þar hafði mik- ill mannfjöldi safnazt saman. Fréttamenn spurðu lækninn hvort Sir Winston væri með- vitundarlaus, en hann sagði: „Þessari spurningu vil ég ekki svara“. é Læknirinn kvaðst gefa út næstu tilkynningu um líðan Sir Winstons á hádegi i Framhald á bls. 28 Indónesíumenn segjast vilja friðsamlega lausn, en halda áfram að senda skæruliða Rahman segir Súkarnó verkfæri í höndum kommúnistaflokks Indónesíu Djakarta, Kuala Lumpur, 15. janúar (NTB) • SÚKARNÓ, Indónesíufor- seti, sagði fréttamönnum í dag, að hann væri fús til að fall- Við uppkvaðningu dóms í máll Péturs Halldórssonar. í dómarasætum frá vinstri eru Halldór Ingimarsson meðdóandi, HalldórÞorbjörnsson sakadómari og Karl Magnússon meðdómandi.__________Yzt til vinstri situr Bragi Steinarsson, fulltr. saksóknara, og við hlið haus Gísii Einarsson hrl., en yzt til hægri verjandi í málinu Benedikt Blöndal hdl. ast á, að sendinefnd frá Samein- uðu þjóðunum rannsakaði hvort íbúar N-Borneó væru ánægðir með aðildina að Malaysíu. • f hádegisverðarboði með fréttamönnum í dag, sagði utanríkisráðherra Indónesíu, Sú- bandríó, að Indónesíumenn vildu leysa deilunrnar við Malaysíu á friðsamlegan hátt, en þeir héldu áfram að senda skæruliða til N- Borneó, vegna þess að íbúar þar æsktu aðstoðar Indónesíu. Hann sagð'i, að Indónesíumenn væru fúsir að hefja viðræður við Mala- ysíumenn og Breta þegar í stað um friðsamlega lausn deilumál- anna, en ef til styrjaldar kæmi, myndu þeir leita aðstoðar er- lendra ríkja. Hann vildi ekki upp lýsa hver þessi ríki væru. • Forsr ■‘isráffherra Malaysíu, Tunku Abdul Rahman. sagði í dag, að fráleitt væri að hefja viðræður um lausn deilu- málanna við Súkarnó, Indónesiu- forseta. Forsetinn væri verkfæri í höndum kommúnistaflokks Indó nesíu, en sá flokkur færi eftir fyrirmælum frá Peking. Um þau ummæli Súkai nós, að hann væri fús til að samþykkja, að SÞ sendu eftirlitsnefnd til N- Borneó, sagði Rahman, að Sú- karnó hefði aldrei viljað fara eft- ir úrskurði SÞ, og væri ekki á- stæða til að ætla, að hann gerði það fremur nú, þegar Indónesia hefði sagt sig úr samtökunum. Rahman kvaðst fús að taka til Framhald á bls. 8 Á að leyfa togveiðar í landhelgi? DEILT hefur verið hart um hvort leyfa skuli íslenzkum skipum veiðar með botnvörpu innan landhelginnar. Taka togarans Péturs Halldórsson- ar og málarekstur í sambandi við hana hefur orðið til að vekja enn meiri athygli á þessari spurningu. Morgunblaðið hefur snúið sér til 19 manna, sem allir eru gjörkunnugir íslenzkri út gerð og leitað álits þeirra á, hvort fiskiskipum okkar skuli heimilaðar togveiðar innan núverandi fiskveiðimarka. Svör þessara 19 manna birt ast á blaðsíðum 10, 11, 13 og 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.