Morgunblaðið - 10.07.1965, Blaðsíða 1
24 síður
44 st. vinnuvika-
r
4% grunnkaups-
hækkun - 5%
aldursuppbót
í GÆR voru undirritaðir samningar milli atvinnu-
rekenda og verkalýðsl'élaganna í Reykjavík og
Hafnarfirði, Dagsbrúnar, Hlífar, Framsóknar og
Framtíðar. Hafði fundur sáttasemjara, Torfa
Hjartarsonar, með þessum aðilurn þá staðið nokkuð
á annan sólarhring. Samkomulagið var lagt fyrir
fundi verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda þegar
í gærkvöldi.
•I Jafnframt gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu um
sérstakar úrbætur í húsnæðismáium, aðallega fyrir
láglaunafólk, og er hún birt annars staðar í blaðinu.
Meginatriði samkomulagsins, sem undirritað var
£ gær eru þessi.
^ Vinnuvikan verður 44 klst. með óskertu
grunnkaupi. Styttist vinnuvika því um
4 klst.
Grunnkaup hækkar um 4%.
5% aldursuppbót vikukaupsfólks, sem
starfað hefur tvö ár samfleytt hjá sama
atvinnurekenda.
Auknar greiðslur vegna veikindadaga.
h Samningurinn gildir til 1. júní 1966.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og vinnuveitenda við undirskrift samninganna. Talið f. v.: Magnú:
Óskarsson, fulltrúi Reykjavíkurborgar, Gunnar Guðjónsson, Ingvar Vilhjálmsson, Kjartan Thors
formaður Vinnuveitendasambands íslands, og Björgvin Sigurðsson, frkvstj. Vinnuveitendasamb.
milli flokka í samningnum, og
fleiri smávægilegri breytingar
eru frá fyrri samningum.
Ákveðið er, að vinnuveitendur
og Dagsbrún og Hlif setji á stofn
nefnd til þess að semja um kaup
og kjör þeirra, sem vinna á stór-
virkum vinnuvélum, steypubíl-
um og gaffallyfturum í hafnar-
vinnu.
Auk þessara samninga gerði
Vinnuveitendasamband íslands
ýmsa sérsamninga við Dagsbrún
m.a. vegna Mjólkursamsölunnar
Reykjavík og við Verkamannafi
lagið Þór á Selfossi vegna Mjólk
urbús Flóamanna.
Úrbætur í húsnæftis-
málum láglaunafólks
Auk þeirra meginatriða sam-
komulagsins, sem nú hefur verið
getið kveður samkomulagið svo
Hermann Guðmundsson, formað-
lir Hlífar í Hafnarfirði, undirrit-
«r samkomulagið f. h. Hlífar.
á, að eftirvinna skuli greiðast
með 50% álagi, en nætur- og
belgidagavinna með 91% álagi
og er það sama og júnisamkomu-
lagið kvað á um.
Gjald atvinnurekenda í
Riyrkta- og/eða sjúkrasjóði félag
(uma greiðist samkvæmt þeim
reglum, sem giltu á síðasta samn-
ingstímabili, einnig á þeim tíma,
er samningarnir voru lausir.
Ennfremur er í samningunum
ákvæði um, að verkafólk, sem
vinnur hluta úr degi samfellt hjá
sama atvinnurekanda, njóti sama
réttar, og þeir sem vinna fullan
vinnudag, við greiðslur fyrir fri
daga, veikinda- og slysadaga,
starfsaldurshækkanir o. fl.
Ýmsar tilfærslur eru gerðar
— Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
I GÆRKVÖLDI gaf ríkis-
stjórnin út yfirlýsingu um
húsnæðismál í tilefni af lok-
um samninga verkalýðsfélag-
anna og atvinnurekenda og að
| undangengnum viðræðum
fulltrúa liennar og Alþýðr
sambands Islands.
I yfirlýsingunni kemu
fram, að ríkisstjórnin mu
beita sér fyrir verulegum úi
bótum í húsnæðismálum, séi
staklega fyrir láglaunafólk.
Helztu atriði yfirlýsinga
ríkisstjórnarinnar eru þessi:
1. Húsnæðismálastjórnarlá
til þeirra umsækjenda, sem hóf
byggingarframkvæmdir á tímí
bilinu 1. apríl til 31. des. 19í
hækka úr 150 þús. í 200 þús. út
hverja íbúð.
Hámarkslán Húsnæðismál:
stjórnar verða endurskoðuð fi
og með 1. janúar 1966, með hlið-
sjón af hækkun vísitölu bvgging-
arkostnaðar frá 1. júlí 1964. Láns-
upphæðir verða endurskoðaðar
árlega, en næstu fimm ár hækka
lánsupphæðir ekki um minna em
15 þús. kr. á ári.
2. Gerðar verða sérstakar ráð
stafanir til byggingar íbúða fyrir
láglaunafólk í verkalýðsfélögun-
um.
Á vegum ríkisstjórnarinnar og
Reykjavíkurborgar og í sam-
vinnu við verkalýðsfélögin verða
byggðar ekki færri en 250 íbúðir
á ári í fjölbýlishúsum með fjölda
framleiðsluaðferð, fram til ársins
1970. 200 þessara íbúða eru ætlað
ar láglaunafólki í verkalýðsféíög-
unum, en 50 til útrýmingar heilsu
spillandi húsnæði.
Framhald á bls. 6.
Félögin staðfestu
VERKALÝÐSFÉLÖGIN fjiigur, Dagsbrún, Hlíf,
Framsókn og Framtíöin, sem undirrituðu samkomu-
lagið í gær, héldu öll félagsfundi í gærkvöldi, þar sem
samningarnir voru teknir fyrir og voru þeir staðfestir
í ölium félögunum. Vinnuveitendasamband íslands
staðfesti samkomulagið einnig á fundi í gærkvöldi.
Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar, undir-
ritar samkomulagið fyrir hönd D agshrúmar.