Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 9
Sunnuftagur 28 nóv. 1985 MORGUNBLAÐIÐ 9 Jean Valqarð Blöndal Kvebjuorb F. 21.7. 1902 — D. 2.11. 1965 „Aldrei er svo svart yfir sorgarranni að eigi geti birt fyrir eilífa trú.“ KTSSAR setningar komu mér fyrsf í huga er ég las í dagb'löð- unum fráfall vinar míns Val- garðs Blöndal. Ég er sex árum eldri en þessi vinur minn, svo eigi hafði ég Ibúizt við því, að í minn hlut kæmi að mæla eftir hann látinn, h-eldiur öfug-t, en svona eru nú örlögi-n o>g þeim verður að hlýða. Við Valgarð vorum báðir fædd ir á Sa-uðárlkróki, og þótt aldurs munur væri nokkur tóksit þegar með okkur á unga aldri vinábta, sem ég vona að ég otfmædi ekkert um þó ég segi, að hún hafi frá æskudögum aldrei rofnað til hinnar hinztu stun-dar. V-harö var kominn af traust um heiðursforeldrum, -þeim Álf- heiði Guðjónsdóttur Bióndal og Kristjáni Ðlöndal er bjuggu á Sauðárkróki og ólst hann þar upp í skjóli og u-ndir vernd foreldra, seiu í engu máttu vamm sitt vita. Drakk hann þar í sig I á prúð- mennsku og göfgan hugsunar- hátt, sem aldrei brás-t honum síð ar í lífinu og fylgdi honum til leiðarloka. f>egar Valgarð hafði aldur til var hann settur til m nnta og hóf nám við Verzl-unarskóla Is- lands haustið 1916. Lauk han-n tilskildu prófi iþaðan á réttum tíma. f>að er þó hugmynd mín, Verzlunar- og skrlfstofuhúsnæði Til leigu er húsnæði fyrir verzlanir eða skrifstofur að Grensásvegi 50. Góð aðkeyrsla, næg bílastæðL Upplýsingar gefnar í síma 17888. TERYLENE DRENGJAFÖT í miklu úrvali, verð frá kr. 1515,00. KIRKJUSTRÆTI að honum haifi eigi nægt það námsefni, sem þar var á borð borið. f>að er að minneta kosti víst, að hann axlaði bagga sína á nv til frekara nám^ nú lá leiðin til f>ýzkalands. Þegar hanri hafði lokið námi sínu þar kom hann heim og se-ttist að nýju að á Sauðárkróki, þar sem hann síðan átti heima ti-1 æ-viloka. Dvaldi hann eftir það í foreldra- húsum, ýmist sem ókvæntur mað ur og síðar kvæntur er hann gekk að eiga. heitmey ^ma, Jó- hönnu Árnadó-ttur frá Geita- skarði, hina Ao'ætust-u konu og af höfðingliunduðu x-ndafólki korain. Ég hygg að heimilishagur Kristjáns Blöndals hafi lítið breytzt við komu tengdad-óttur- innar og eíðan barnabarnanna, sem fæddust smátt og smátt. Þar er um að ræða fagurt dæmi um samheldni foreldra, barns, tengda barns og bamabarna er svo skipt ast málin, sem ég hygg að hér hafi verið og ætti að skapa for- dæmi til eftirbreytni hjá öllum okkar þjóðfélagsþegn-um. Valgarð var mikil-1 s-tarfs- og afkastamaður og hlóðust strax á hann margskonar störf er heim var komið að loknu námi. Má s\ j heita, að ha-nn taki við störf- um föður síns smátt o-g smátt, þegar hann fyrir aldurssakir hvarf frá þei-m. Svo var um starf hans sem gjaldlkera Sparisjóðsins á Sauðárkróki, einhvers rtærsta sparisjóðs la-ndsin-s, bóksalastarf og starf hans sem póstm-eistara á Sauðárkróki. Auk þess má nef-na það, að Valgarð og kona hans ráku um árabil gistihús á Sauðárkróiki, og kom-u þar enn fram frábærir stjórnunarhæfileikar Vaigarðs og lj-úfmennska, því öll-um ber saman um er til þekkja, að gisti- húsarekstur þeirra hjóna hafi verið með slíkum ágaetum, að. öðrum gæti til fyrirmyndar ver-j ið um langa framtíð, en gistihúsa rekstur getur verið vandasam-1 ur-og oft á tíðum næsta erfiður svo sem allir vi-ta. Þegar ég var ungur maður norður á Sauðárkróki var sýslu! fundur jafnan haldinn þar árí hvert að vetrarlagi og stóð í einaj vi-ku. Þá viku voru jafnan um hönd hafðar margskonar skemmt anir og streymdi fólkið út á „Krókinn“ úr allri sýslunni til þátttöku í þeim dagamismun er menn þá gerðu sér. Er þar að -finna upphaf þeirra skemmtana se i Skagfirðingar halda nú jafnan eina viku á vetri hverjum og nefna „Sæluvikuna“. Er það huglboð mitt, að þa-u hjónin Vail- garð og Jóhanna hafi átt sinn mikla þátt í framkvæmd þeirra mála, því það má hverjum manni ijóst vera að skemmtanir slíkar og þær, sm um hönd eru hafð- ar á „Sæluvikunni", hljóta að vera hverju byggðarlagi ekiki ein göngu til ske-mmtunar heldur og til menningarauka og beinlín- is hjálp í brauðstriti dagana. Tel ég að Skagfirðingar fái seint full þakkað vini mínum Valgarð Blöndal störf hans að þessum málum. Þá vil ég að lokum geta þess, að þegar flugsamgöngur hér inn- anlands fara að færast í auk- ana greip hann áköf löngun til að starfa að þeim mál-um. Beitti hann kröftum sínum og starfs- orku að því, að byggður yrði flug völilur vegna innanlan-dsflu.gs í nánd við Sauðárkrók og sá hann þá hugsjón sína verða að veru- leika. Er þeim áfanga var náð gerðist hann starfsmaður^ Flug- félags íslands við flugvöll þennan og hafði hann nýlokið afgreið-slu flugvélar við völl þennan, að iþví er virtist fullfrísfcur, en hans nánustu vissu reyndar að hann gekk ekki heillbrigður til starfa sinna og hafði svo verið um nokk urt skeið. Að lokinni afgreiðslu iþessara flugvélar steig hann upp í vélina og ætlaði tiil Ak-ureyrar til fundarsetu þar með starfs- bræðrum sínum. Þangað komst hann eigi lifandi, því hann and- aðist á leiðinni frá Sauðárkrók til Akureyrar. Slík fráföll em svipleg, en þó um leið fögur og æskileg. Kæra frú Jóhanna, ég flyt þér og börnum ykkar al’lar mínar beztu kveðjur, og af þvi ég tei mig vita þig sama sinnis og ég er, lýk ég þessum minni-ngarorð- um um látinn vin með þessu erindi úr kvæði skáldsins: „Guð vorn anda ef áframhald ei fá seinna lætur, röðulbanda reist er tja-ld rétt til einnar nætur.“ Björn E. Árnason. mm RALEIGH „KING SIZE FILTER” SÍGARETTAN ER ÞEKKT FYRIR SÍN EKTA TÓBAKSGÆÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.