Morgunblaðið - 22.12.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.1965, Blaðsíða 1
32 síður 52. árgangur. 293. tbl. — Miðvikudagur 22. desember 1965 Prentsmiðja MorgunblaSsins. Charles de Gaulleí Forsetakjöriö hvatning og kvöð IViitterafid biðtir um rannsókn á kesningaúrslitum Að fundinum loknum ræddi de Gaulle við fréttamenn, og sagði að úrslitin væru honum^ Framhald á bls. 31 l ÞAÐ var hátíðlegt í Voga- í skóla, þegar nemendur gagn- [ fræðadeildar kvöddu áður en | ijólaleyfl hófst. Að venju varJ | flutt jólaguðspjallið, og fór' j fram helgileikur með söng. f Hér sjást Helgi Þorláksson, | Iskólastjóri og sr. Magnús Run | |ólfsson ásamt nokkrum nem- í endum, sem þátt tóku í helgi- 1 [ leiknum. Wilson til Moshvn London, 21. des. (NTB) HAROI.I) Wilson, forsætisráð- herra Bretlands, tilkynnti í dag B.ð hann hefði þegið heimboð leiðtoga Sovétrikjanna og færi til Moskvu til viðræðna við þá feinn 21. febrúar n.k. Mun for- eætisráðherrann þá aðallega ræða við sovézku leiðtogana um möguleika á því að koma á friði í 'Víetnam. En Bretar og Rúss- »r skipuðu formenn Genfar-ráð- etefnunnar 1954, sem kom á friði i Indókína eftir sjö ára styrjöld þar. París, 21. des. — (NTB) — CHARLES de Gaulle, forseti Frakklands, kom í dag til Parísar ásamt konu sinni, eft- ir að hafa dvalið um helgina á sveitasetri sínu utan við höfuðborgina. Við heimkom- una átti forsetinn fund með Gaston Payewski, formanni stjórnarskrárnefndarinnar, sem tilkynnti de Gaulle form- lega þau úrslit forsetakosn- inganna sl. sunnudag, að hann hefði verið endurkjörinn Frakklandsforseti til næstu sjö ára. Hafnbannið á Rho- desíu segir til sín EPiciEdsEnenn deila á sfefinu brezku stjúrnarinnar London, 21. des. — (NTB) — MÖRG ríki bafa nú bannað öll viðskipti við Rhodesiu, og mun láta nærri að bönn þessi nái til helming alls útflutn- ings landsins. í sjónvarpsræðu, sem Har- old Wilson, forsætisráðherra Bretlands, flutti í gær, sagði hann að stjórn Ian Smiths hefði komið á lögregluríki í Rhodesíu, og þyrfti að sjá svo Kjarnorkumálin rædd á fundi Johnsons og Erhards Washington, 21. des. (AP—NTB). TVEGGJA daga viðræðum þeirra JLvndons B. Johnsons, Banda- rikjaforseta, og Ludwigs Erhards, hanzlara Vestur Þýzkalands, lauk í dag í Washington. Var þá gefin út sameiginleg yfirlýsing leið- toganna, þar sem segir m. a. að tryggja heri Vestur Þýzkalandi, og öðrum aðildarríkjum Atlants tiafsbandalagsins, sem ekki hafi eigin kjarnorkuvopn, nauðsyn- lega hlutdeiid í kjarnorkuvörn- um. Síðar í dag flutti Erhard ræðu og sagði að Bandríkjunum og Vestur Þýzkalandi væri það ekkert metnaðarmál að Vestur Þjóðverjar yrðu aðilar að kjarn- orkuvörnum NATO, hinsvegar vildu Þjóðverjar njóta sömu rétt- inda innan bandalagsins og önn- ur aðildarríki. í tilkynningu þéirra Johnsons og Erhards segir að kjarnorku- varnir Atlantshafsbandalagsins verði ræddar nánar við fulltrúa aðildarríkjanna. Er það tali’ð sýna a'ð leiðtogarnir hafi ekki samið sin á milli um neitt það ákvæði, er veiti Vestur Þjóðverj- um aukna aðild að kjarnorku- vörnum. Johnson forseti segir í yfirlýsingunni að varnir At- lantshafsbandalagsins hafi reynzt tryggar til þess, en Bandaríkin líti svö á að unnt ætti að vera Framhaltí á bls. 31. um að „þessir menn“ næðu aldrei aftur öllum völdum í landinu. Rhodesíumálið var til um- ræðu í hrezka þinginu í dag. Sagði þá leiðtogi íhalds- mana, Edward Heath, að flokkur hans gæti ekki lengur stutt stefnu stjórnar Verka- mannaflokksins á þeim vett- vangi, og lagði til að þingið samþykkti ályktun þess efn- is að stjórninni yrði hönnuð sérhver valdbeiting til að koma stjórn Ian Smiths frá völdum, og jafnframt að brezku stjórninni væri mein- að að setja hafnbann á strend ur Mozambique í þeim til- gangi að stöðva olíuflutninga til Rhodesíu. Viðskiptabannið við Rhodesíu mun hafa þau áhrif m.a. að stjórn Smiths verður að finna nýja markaði fyrir afurðir landsins. Aðallega varðar þetta útflutning inn á tóbaki, en einnig sölu á sykri, asbesti, kopar og fleiri málmum. Fyrstu áhrifa viðskiptabanns- ins tekur nú að gæta í Rhodesíu að þvi er varðar innflutning á olíu. Það eru ekki Bretar einir, sem bannað hafa olíuflutninga og sölu til Rhodesíu, heldur einnig Holland, Beigía og Japan, auk Bandaríkjanna, sem urðu einna fyrst til að stöðva flutninga þang að. Hefur olíu til Rhodesíu verið skipað á land í hafnarborginni Beira í Mozambique, og dælt það an eftir olíuleiðslu til hreinsun- arstöðvarinnar í Umtali í Rhod- esíu, og er þetta um 300 km. leið. í brezka þinginu í dag sagði Edward Heath að íhaldsflokkur- inn mundi ekki greiða atkvæði á þingi gegn þeirri ákvörðun stjórnarinnar að banna olíuflutn- inga til Rhodesíu. En hann sagði hinsvegar að Rhodesíu-stefna stjórnarinnar væri að mörgu leyti hættuleg. Gæti hún leitt til þess að allar samningaviðræður reyndust útilokaðar í framtíð- inni, og að nauðsynlegt yrði að Framhald á bls. 31. I stuttu máli Auckland, Nýja Sjálandi 21. des. (AP). Stjórn Nýja Sjálands hefur ákveðið að færa út fiskveiði- lögsögu landsins í 12 mílur 1. janúar n.k., að því er for- sætisráðherrann, Keith Holy- oake lýsti yfir í dag. Boise, Idaho, 21. des. (AP). BANDARÍSKU geimfararnir Walter Schirra og Tlhomas Stafford hafa verið kjörnir heiðursfélagar stéttarfélags bandarískra hljómlistarmanna. Astæðan er sú að geimararnir sungu „Jingle Bells“ í talstöð geimfars síns í sögulegri ferð þeirra í síðuistu viku. Amsterdam, 21. des. (NTB). KOMMÚNISTAFLOKKUR Hollands, sem telur nokkur þúsund flokksfélaga, verður leystur upp frá 1. janúar n.k. Skorar flokksstjórnin á flokks menn að ganga í flokk sósíal- ískra friðarsinna. Ekki teknir alvarlega Stokkhólmi 21. des. (NTB). SÍÐUSTU Gemini-tilraunir Bandaríkjamanna úti í geimn um hafa haft örvandi áhrif á ferðir fljúgandi disk.a, og leitt til þess að verur frá öðrum hnöttum eru n.ú önnum kafn- ar við rannsóknir á því hve langt menn hér á jörðu eru komnir á sviði eldflauga og kjarnorku. Eða svo segir Bengt Linder, formaður „Ifologiska félagsins“ sænska. En félag þetta hefur innan vébanda sinna ýmsa .„sérfræð inga" á sviði rannsókna á fljúgandi diskum. Linden segir að ýmsir fé- lagsmenn hafi fengið upplýs- ingar eftir margháttuðum leið um um þessa auknu starf- semi úti í geimnum að undan förnu. Hafi sumir félags- manna verið í sambandi við utanaðkomandi verur, en til þess er m.a. beitt fjarskynjun (telepati). Aðspurður nánar um þetta fjarskynjunarsam- band sagði Linder að það væri eins og mönnum væri gefin merki inn í höfuðin, svipuð Morse-merkjum. Linder viðurkenndi að- spurður, að því miður tækju ekki margir skýrslur „Ifolo- giska félagsins" alvarlega, en taldi að brátt yrði á þéssu breyting. „Það mun koma í Ijós að málið er alvarlegt" sagði hann. Og hann bætti því við að allar þær verur, utan úr geimnum, sem nú sýndu áhuga á ástandinu hér á jörð- Unni, væru háþróaðar, miklu þróaðri en mennirnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.