Morgunblaðið - 24.03.1973, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.03.1973, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1973 1 7 Sigurður Ragnarsson, stud. jur«: Sænskir snjóboltar Sænski stjórnmálaflokkurinn Centern, Miöflokkurinn, hefur á síðustu árum lagt allt kapp á valddreifingu. Þessi pólitík er rekin á breiðum grundvelli; hún skírskotar ekki einungis til opinbers valds og auðvalds, heldur til alls þess valds, sem í miklum mæli safnast á fárra hendur. Nú má furðu oft líkja vald- inu við snjóbolta, sem veltur fram og ' stækkar, án þess við verði ráðið. Þegar boltinn er orðinn stór, gerist hann svo þungur í vöfum, að enginn hægð arleikur er að brytja hann nið- ur, auk þess sem fyrirbærið virðist oft harla gott útlits. Þeir sem lagt hafa gjörva hönd á boltann, eru þvi vísastir til að hópast kringum hann i þögulli forundran og aðdáun, án þess til skoðunar komi, hvort ný- virki þetta er til nokkurs brúk- legt. Líka eru til þeir boltar, sem verða enn meiri fyrir sér, bruna niður fjallshlíðar og verða að stórum skriðum, sem gleypa bæði menn og mýs. Þá sitja menn inni í boltanum sín- um og hafast ekki að. Þeir eru réttnefndir snjókarlar. Eitthvað á þessa leið hugsa þessir sænsku miðflokksmenn, sem ganga fram fyrir skjöldu til að berjast við valdsöfnunina. Þeir segjast ekki vilja láta vald boltana gleypa sig með húð og hári. Svíþjóð er sjálfsagt gósen land valddreifingarmanna, þvi þar sýnast blasa við háir haug- ar af samþjöppuðu valdi í öll- um áttum, rétt eins og þeir væru gerðir til að reyna afl sitt við. Ríkisvald, byrokrati, tecknokrati o.s.frv., frv. o. frv. hafa náð merkilegum þroska í jafnaðarmannalandinu, og háir valdstoínar teygja sig hvar- vetna til himins, og byrgja sól- arsýn öllum þeim, sem eru bara venjulegir menn. En hvernig skyldi þá himinninn líta út? Þessarar spurningar spyr Mið- flokkurinn. Hann spyr lika: langar okkur til að sjá þennan himin og hvernig eigum við að fara að því? Miðflokksmenn segjast vilja sjá sólina. Reynsl- an verður að skera úr um, hvort þeir eiga það eftir og hvort þeir þola slika sýn. Hitt er vist, að verkefnin eru ærin, og víðast hvar er valdið svo haugþjapp- að, að vaskir menn geta vænzt einhvers árangurs. Hvar á þá fyrst að bera nið- ur? Miðflokkurinn skilgreinir valddreift þjóðfélag svo, að í því landi séu pólitískar ákvarðanir teknar svo nærri einstaklingum, sem frekast er unnt. Eitt helzta haldreipið í þvi tilliti eru sveit- arfélögin talin vera. Sjálfs- stjórn þeirra verði því mjög að styrkja — og stjórnarskrár- binda— samhliða því, að kom- ið verði fyrir kattarnef þeirri af hinum mörgu líknarloppum ríkisins, sem ásælist vald það, er í eðli sinu fellur í sveitar- félagaætt. En sveitarfélögin geta þó einnig reynzt vera gildra. Þau stækka og stækka mörg hver, og þá smækka og smækka líka borgararnir. 1 þeim tilvikum segist flokkurinn vilja skera og brytja, þangað til eftir standi hæfilega stórar hverfastjórnir, sem hafi í sínum höndum hluta þess valds, — er sveitarfélögum ber. Valdkerfið innan opinberrar ráðsmennsku og sýslunar, telur Centern, að eigi að vera með því móti, að ríkið geri ramma til að starfa eftir, þá komi sveitar- félögin til og fylli upp í ramm- ann, en til þess að hann verði manneskjulega og vel útfylltur, verði að koma enn nær til fólks ins, þá þarf, með þvi að minnka stjórnunareiningarnar. Þessa hugsun telur Miðflokkur- inn svo fallega, að hann setur hana fremst i stefnuskrá sina og helztu áróðursbæklinga. Byggð i Svíþjóð þjappast sí- fellt saman. Stórar borgir stækka og í sveitunum fækkar. Þykir flokknum þessi þróun vera til hinnar mestu óþurftar og telur hann Svía þurfa að manna sig upp til að snúa henni við með markvissum og tiltæk um ráðum. Þennan fílshátt þurfi að uppræta með þvi að búa ágætlega og betur að sveitum landsins, einkum í atvinnumál- um. Centern vill dreifa fjármála- legu valdi ríkis sem einstakl- inga. Flokkurinn vill efla lítil og meðalstór fyrirtæki, sem .og samvinnuhreyfinguna. Hann get ur fjölskyldufyrirtækja að góðu. Blessun flokksins er lögð á meðákvörðunarrétt starfs- manna í fyrirtækjum, einkum hvað áhrærir vinnuaðstæður, jafnframt því sem frumkvæði starfsfólks er talið vera gott ráð til að auka vinnugleði og vinnu gæði. Mörk fyrirtækjalýðræðis eru ekki tiltekin og fátt sagt um það, hvenær skepnan megi rísa gegn skapara sínum í þessu til- liti. Miðflokkur krefst þess, að ríki og sveitarfélög gangi á und an í aukningu fyrirtækjalýðræð is. Um atvinnulíf er þetta ann ars sagt í stefnuskránni: „At- vinnulif, sem einkum byggist á eignarrétti einstaklinga, sam- keppni og frjálsum fyrirtækjum skapar bezta möguleika til fram fara og velsældar." Gegn einok un(artilhneigingum) vill flokk- Sigurðiir Ragnarsson urinn beita samkeppnisvænleg- um aðgerðum. Vel fer á þvi að enda þessa grein á þvi, sem er reyndar bæði upphaf og endir í stefnu- skrá þessa flokks: Lýðræðið verður að efla með því að færa fólkinu vald sitt. Þá verður að hlúa að frjálsri skoðanamynd- un og vernda einstaklinginn gagm'art kerfinu. Beinlínis draga mátt úr því. Kvelja líf- tóruna úr teckno- og byrokratí- inu. Byrgja brunninn, áður en þjóðin dettur ofan i. Leyfa henni að ráða og kjósa — við 18 ára aldur — um menn og mál efni, en ekki forskrúfað og steingelt kerfi, sem helzt dugir til ,að auka eigin vöxt, á kostn að athafna og vilja mannfólks- ins. Ágæti þessara hugmynda og útfærslu þeirra verður ekki fjallað um hér. Hins vegar má ætla, að þær séu eins og iang- þráður og frískandi norðanblást ur, sem sópar af í sænsku stjórn málalífi. UNGIR 5JÁLF5TÆÐIMTIENN 5KRIFA Þórarinn Stefánsson og Valgarð Stefánsson: Islenzk iðnbylting? Menntamálaráðherra gat þess á Alþingi i byrjun des- ember í fyrra, að hafinn væri undirbúningur að samningu laga um tækniháskóla á Is- landi. Mun þessi ráðstöfun vera liður í framkvæmd ís- lenzkrar iðnbyltingar. Tilgangur þessarar greinar er að gera. athugasemd við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að beita sér fyrir stofnun sér- staks tækniháskóla. Á Islandi hefur lengið ver- ið starfrækt stofnun, sem ætl að er að gegni sama hlut- verki og væntanlegur tækni- háskóli. Er það verkfræði- skor verkfræði- og raunvís- indadeildar Háskóla íslands. Stofnun sérstaks tæknihá- skóla felur því væntanlega í sér þá ákvörðun að verk- fræðiskor verði klofin frá Háskóla Islands og sameinist tækniháskólanum. Það er skoðun okkar að í slíkri endurskipulagningu verkfræðikennslunnar búi engin lausn, hvorki á þeim vandamálum, sem verkfræði- kennslan á við að stríða, né á þeim vandamálum, sem is- lenzkir atvinnuvegir búa við sakir ástandsins í verkfræði- kennslu á Islandi. Vandamálið liggur að okk- ar dómi í skipulagningu verk fræðirannsóknanna, sem all- ar fara fram utan Háskóla Islands og í litlum tengslum við verkfræðiskor. Við viljum ræða þetta vandamál lítið eitt og auk þess rökstyðja þá skoðun okkar, að það geti orðið þró un islenzkrar tæknimenning- ar fjötur um fót, ef verkfræð in verður klofin frá annarri rannsóknarstarfsemi við Há- skóla Islands. HLUTVERK OG STAÐA VERKFRÆÐINNAR í ÍSLENZKA Þ.IÓÐFÉLAGINU Það er hlutverk verkfræð- innar að nýta þekkingar- forða mannkynsins við verk- legar framkvæmdir. Afkoma atvinnuveganna í iðnþróuðu þjóðfélagi er beinlínis háð þróunarstigi verkfræðinnar. Erfiðlega hefur gengið að nýta framfarir á sviði raun- vísinda innan islenzkra aðal- atvinnuvega. Sem dæmi má nefna að sjálfvirkni er þar næsta óþekkt fyrirbæri. Staf ar þetta eflaust af því að kennsla i verkfræði og tækni fræði hefur aðeins að litlu leyti verið sniðin eftir þörf- um íslenzkra aðalatvinnu- vega. Sérstaklega áberandi er misræmið milli aðalat- vinnuveganna og námsefnis- ins við verkfræðiskor háskól ans. Hvorki fiskiðnaður né landbúnaður eiga sér þar nokkurt lærdómssetur. Iðnbyltingar er fyrst og fremst þörf í aðalatvinnuveg unum. Hún verður ekki gerð nema með því að f jölga mennt uðu starfsfólki innan þessara atvinnugreina. Innan fiskiðn aðarins er þörf hundruð verk fræðinga og þúsunda annarra tæknimenntaðra manna. Landbúnaðurinn er eitthvað betur á vegi staddur, þó ekki nógu vel. Slikt ástand er óviðunandi. Grundvöllur ís- lenzkrar iðnbyltingar hlýtur að byggjast á íslenzkri há- skólakennslu i greinum, sem lúta að landbúnaði og fiskiðn aði. Nú hjóta menn að spyrja hvers vegna Háskóli Islands hafi látið hjá líða að koma á fót þessarri kennslu. Orsökin er vafalaust sú að samkvæmt lögum um rann- sóknarstofnanir atvinnuveg- anna fara rannsóknir i þágu atvinnuveganna fram við sjálfstæðar smástofnanir, hver fyrir sína atvinnugrein. Þess ar stofnanir hafa engin form- leg tengsl við Háskólann, en þær búa yfir þeirri vísinda- þekkingu, sem nauðsynleg er til þess að koma á fót verk- fræðikennslu í þágu atvinnu veganna. Það vandamál, sem þarf að leysa, er hvernig tengja megi rannsóknarstofnanir atvinnu veganna við verkfræðiskor. Það er erfitt að sjá hvers vegna nauðsynlegt er að Jfetofna sérstakan tæknihá'- skóla til þess að leysa þetta vandamál. Er ekki ríkis stjórnin í geitarhúsi að leita ullar? HVERS VEGNA EKKI TÆKNIHÁSKÓLA ? Stofnun sérstaks tækni- háskóla er ekki aðeins ónauðsynleg ráðstöfun, held- ur beinlínis óæskileg að okk- ar dómi. Þetta viljum við nú rökstyðja. Vegna þess að öll háskóla kennsla er nátengd vísinda- rannsóknum endurspeglast skiptingin i vísindastarfinu alltaf að meira eða minna leyti í skipulagi kennslunnar. Fyrir 50 árum voru tengsl milli verkfræðirannsókna og annarra raunvísinda næsta lítil. Þetta ástand endurspegl ast í tilveru hinna sjálfstæðu tækniháskóla. Þróun raunvísinda á síð- ustu áratugum hefur verið í þá átt að verkfræði- og raun visindi hafa tengzt nánari og nánari böndum. Nú er nær ógerningur að greina á miíli verkfræðirannsókna (hag nýtra rannsókna) og ann- arra rannsókna i raun- vísindum (grundvallar rann- sókna). Víða um heim hafa menn því á síðari árum gert sér ljóst að óæskilegt er að einangra verkfræðina í sér- stökum háskólum. Alls staðar á Norðurlönd- um er nú stefnt markvisst að þvi að auka tengsl tæknihá- skóla og annarra háskóla. Lengst hafa Norðmenn geng- ið í þessu efni með því að sam eina Tækniháskóla Noregs og Kennaraháskóla Noregs. Þessir háskólar mynda nú ásamt Safni konunglega vís- indafélagsins Þrándheimshá- skóla. Nú í lok marz mun stjórn- skipuð nefnd í Svíþjóð leggja fram tillögur um fram haldsmenntun þar i landi. Okkur er kunnugt um að í þeim tillögum er gert ráð fyr ir mjög viðtækum samruna háskólanna. Til dæmis verð ur um tuttugu háskólum í Stokkhólmi slegið saman i eina heild. Meðal þessarra má nefna Stokkhólmsháskóla Ifonunglega tækniháskólann og Karolinska institutet (læknaskóli). Á sama tíma og þetta ger- ist stofna íslendingar nýjan kennaraháskóla og gera ráð- stafanir til þess að stofna sér stakan tækniháskóla. Sú staðreynd að skipulag tæknimenntunnar á Norður löndum og víða annars stað- ar í heiminum var gerð að mestu eftir þýzkri fyrirmynd í byrjun aldarinnar má ekki hafa áhrif á endurskipulagn- ingu íslenzkrar tæknimennt- unar á áttunda tug aldarinn- ar. Skipulagsmál tæknimennt unnar erlendis stefna að því skipulagi, sem nú er á Is- landi. ísland var brautryðj- andi i skipulagsmálum há- skóla. NIÐURLAG Það verður engin iðbylting á Islandi ef setið er auðum höndum, en forðast ber van- hugsaðar aðgerðir. Islenzkir atvinnuvegir auð kennast mjög af því hvað vís indaleg þekking er lítið hag- nýtt. Allt bendir þess vegna til að auka megi framleiðni þessara greina gífurlega með því að koma á fót skipulagðri samvinnu við vísindastarf- semi og háskólakennslu. Við höfum hér reynt að rökstyðja það sjónarmið að brýnt verkefni sé að koma á nánum tengslum milli vís- inda, háskólakennslu og at- vinnuveganna. Við höfum auk þess rökstutt þá skoðun að tilveruréttur sjálfstæðra tækniháskóla er ekki sam- ræmanlegur vísindalegri þró- un. Að lokum má þæta Við þeim rökum að eflaust mun ódýrara að safna saman í einn stað allri kennslu og rannsóknarstarfsemi í raun- vísindum og verkfræði í stað þess að spaðhöggva þessa starfsemi í smástofnanir, sem varla geta staðið á eigin fót- um hvað þá gengið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.