Morgunblaðið - 16.03.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
3
Skrúfudagur Vél-
skólans í dag
HINN árlegi „Skrúfudagur“ Vél-
sköla íslands i Reykjavik verður
haldinn í 13. sinn laugardaginn
16. mars. Þessi dagur er tileinkað-
ur kynningu nemenda á námi því
er fram fer f Vélskóla íslands.
Með honum vilja nemendur
kynna nám og starfsemi innan
veggja skólans fyrir væntanleg-
um nemendum, svo og öðrum
þeim, er hafa áhuga á málefnum
Vélskólans.
í Vélskóla íslands eru nú 330
nemendur, þar af 300 í skólanum
í Reykjavfk.
Sú staðreynd blasir nú við vél-
stjórastéttinni, að um 60% þeirra
manna sem stunda véistjórnar- og
vélgæslustörf, eru réttindalaus og
því mundu nemendur gera allt,
sem í þeirra valdi stendur, tilþess
að bæta úr þessu ástandi m.a. með
aukinni kynningu á námi og starfi
innan Vélskólans.
Nemendur vonast til þess, að
sem flestir, sem hafa áhuga á vél-
stjórnarstörfum, svo og þeir, sem
bera hag skólans fyrir brjósti,
fjölmenni á „Skrúfudaginn“.
Dagskrá „Skrúfudagsins“ hefst
með hátíðarfundi í Hátíðarsal Sjó-
mannaskólans kl. 13.30. Að lokn-
um hátíðarfundi hefst svo kynn-
ing á starfsemi skólans, og stend-
ur kynningin til kl. 17.00.
Kaffiveitingar á vegum Kvenfé-
lagsins keðjunnar, sem er félag
eiginkvenna vélstjóra, verða í
veitingasal Sjómannaskólans frá
kl. 14.00.
Verkstjórar á námskeiði
1 GÆR, föstudag, lauk i Reykja-
vík fjögurra vikna námskeiði fyr-
ir verkstjóra sveitarfélaga, sem
haldið hefur verið í tveimur
áföngum í vetur. Námskeið sóttu
16 verkstjórar frá: Akranesi,
Ölafsvík, Patreksfirði, Blönduósi,
Dalvík, Akureyri, Vopnafirði,
Fáskrúðsfirði, Vestmannaeyjum,
Eyrarbakka, Hafnarfirði og úr
Reykjavik.
Auk almennrar verkstjórnar
var megináherzla lögð á leiðbein-
ingar f mælingum, úrvinnslu upp-
drátta, vali vinnuvéla og áhalda
og sérstaklega var fjallað um ein-
staka þætti tæknimála svo sem
vatnsveitur, hitaveitur og gatna-
gerð úr varanlegu efni.
Námskeið þetta var liður í hin-
um reglulegu námskeiðum Verk-
stjórnarfræðslunnar, en náms-
efni valið í samráði við Samband
ísl. sveitarfélaga, og er þetta í
annað sinn, sem slíkt námskeið er
haldið.
Oll fullkomnustu
tœki í hiartabílinn
„Lionsklúbburinn Fjölnir f
Reykjavík hefur gefið eitt
hundrað þúsund krónur i
„Hjartabílssöfnun Blaða-
mannafélags íslands". Nú hef-
ur safnazt hátt á þriðju milljón
króna, og gerir það kleyft að
kaupa í bílinn öll þau fullkomn-
ustu tæki, sem á markaðnum
eru. Bilinn er væntanlegur til
landsins í maí, en nú er verið að
byggja yfir hann hjá fyrirtæki í
Noregi. Lionsklúbburinn Fjöln-
ir hefur á undanförnum árum
styrkt margvísleg málefni. Má
þar meðal annars nefna Barna-
heimilið á Silungapolli, á með-
an það var starfrækt, heimilið i
Víðinesi og ásamt öðrum Lions-
klúbbum gaf Fjölnir verulega
upphæð í Vestmannaeyjasöfn-
unina. í vetur hefur klúbbur-
inn styrkt skátaflokk til þess að
innrétta húsnæði og ekki má
gleyma tveimur ljónum, sem
hann gaf Sædýrasafninu.
Myndin er tekin er klúbbfélag-
ar gáfu í „Hjartabílssöfnun-
ina“. Talið frá hægri eru: Þor
Guðjónsson, umdæmisstjóri,
Davíð Guðmundsson, gjaldkeri,
Gylfi Hinriksson, fráfarandi
formaður, Ragnar Gunnarsson,
formaður, Árni Gunnarsson,
formaður söfnunarnefndar Bl,
og Gústav Sófusson, ritari.
Blaðamannafélagið færir
Fjölnismönnum bestu þakkir
fyrir gjöfina.
Asgeir Magnússon framkvæmda-
stjóri Bæjarútgerðar Rvíkur
Veturliði Gunnarsson ásamt nokkrum verka sinna.
Tvær sýningar á
Kjarvalsstöðum
TVÆR sjálfstæðar málverka-
sýningar verða opnaðar á
Kjarvalsstöðum f dag, laugardag-
inn 16. marz klukkan 2.00. Hér
eru á ferðinni listmálararnir
Veturliði Gunnarsson og Haf-
steinn Austmann og munu
sýningar beggja standa til 24.
þ.m.
Á sýningu Hafsteins Aust-
manns eru 49 myndir, sem flestar
eru málaðar á sl. fjórum árum og
hafa flestar þeirra komið fyrir
almenningssjónir áður. Flest
verkanna eru olíumálverk máluð
á striga en auk þess eru þarna
nokkrar acryl-myndir og átta
vatnslitamyndir, sem eru nokkru
eldri. Þetta er 6. sýning Hafsteins
hér heima en hann sýndi fyrst í
gamla Listamannaskálanum árið
1956.
Veturliði Gunnarsson sýnir að
þessu sinni rúmlega 100 myndir
og eru þær frá ýmsum árum.
Flestar myndanna hafa ekki verið
sýndar áður en þetta eru mest
pastel-myndir en einnig eru
nokkrar olíumyndir og olíukrítar-
myndir. Veturliði sýndi fyrst árið
1952 og hefur hann siðan haldið
fjölda sýninga og tekið þátt f sam-
sýningum bæði hér heima og er-
lendis. Um þessar mundir er
hann með myndir á sýningum í
Bandarikjunum, Þýzk.alandi og
Stokkhólmi og þegar sýningunni
á Kjarvalsstöðum lýkur fer hann
til Bandaríkjanna þar sem hann
mun sýna 40—50 oliumyndir.
Báðar sýningarnar eru opnar
frá kl. 4.00—10.00 þriðju-
daga—föstudaga frá 2.00—10.00
laugardaga og sunnudaga.
ÞORSTEINN Arnalds, fram-
kvæmdastjóri bæjarútgerðar
Reykjavíkur, hefur sagt lausu
starfi sfnu sem framkvæmda-
stjóri útgerðarinnar af heilsu-
farsástæðum. Uppsögn Þorsteins
fylgir vottorð frá lækni, sem telur
nauðsynlegt, að Þorsteinn hverfi
úr því starfi, sem hann hefur
gegnt hjá BUR, þar eð annað
kynni að hafa mjög slæm áhrif á
heilsu hans.
Otgerðarráð samþykkti eftir-
farandi ályktun einróma:
„Utgerðarráð þakkar Þorsteini
Arnalds störf hans hjá Bæjarút-
gerð Reykjavíkur um 28 ára
skeið. Telur útgerðarráðið sjálf-
sagt, að honum verði greidd eftir-
laun og felur formanni ráðsins að
ræða við borgarstjóra, hvernig
greiðslum til Þorsteins verði jafn-
að milli Bæjarútgerðarinnar og
lífeyrissjóðs starfsmanna borg-
arinnar."
Þorsteinn hefur átt við van-
heilsu að stríða síðustu árin.
Hafsteinn Austmann við verk sitt „Linudans". (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Skauta-
svell
boðið út
A NÆSTUNNI verða boðnar út
framkvæmdir við skautasvell í
Laugardalnum, sem Reykjavíkur-
borg hyggst láta gera. Verður
skautasvel lið austan við Laugar-
dalshöllina, 60x30 m að yfirborði
og komið þar fyrir leiðslum og
vélfrystitækjum, þannig að hægt
sé að frysta fyrir skautasvellið.
En við svellið verða búningsklef-
ar, söluaðstaða, gevmslur og vél-
arhús.
í sumar er ætlunin að grafa
fyrir skautasvellinu, skipta um
jarðveg, gera gang umhverfis
svellið og steypa plötu undir hús-
in, en siðan verður haldið áfram
þegar meiri fjárveiting er f.vrir
hendi, að því er Stefán Kristjáns-
son, fþróttafulltrúi borgarinnar,
tjáði Mbl.
Stefán sagði að reynslan yrði að
skera úr um það hvort okkar
óstöðuga veðrátta leyfði skauta-
svell, jafnvel þó frystivélabúnað-
ur væri fyrir hendi, en ef svo
reyndist að það gengi illa, þá
væru menn viðbúnir því að geta
byggt yfir svellið og gert úr því
skautahöll síðar.
• nvr
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RAÐINN
Á fundinum kom fram tillaga
frá Sveini Benediktssyni, for-
manni útgerðarráðs, um að ráða
Ásgeir Magnússon, Hrauntúni við
Alftanesveg, sem annan af tveim-
ur framkvæmdastjórum Bæjarút-
gerðar Reykjavikur frá og með
15. maí næstkomandi. Var til-
lagan um ráðningu Ásgeirs sam-
þykkt með atkvæðum Sveins,
Einars Thoroddsens, Harðar
Helgasonar og Jónasar Jónssonar,
en Guðmundur Vigfússon sat hjá
við atkvæðagreiðsluna um ráðn-
inguna. Hafði Guðmundur óskað
þess, að framkvæmdastjórastaðan
yrði auglýst laus til umsóknar
með umsóknarfresti til 15. apríl
næstkomandi, en sú tillaga verið
felld með 4 atkvæðum gegn einu.
Ráðning Asgeirs sem fram-
kvæmdastjóra BUR var staðfest á
fundi borgarráðs f gær samkvæmt
tillögu Birgis ísleifs Gunnars-
sonar borgarstjóra og með at-
kvæðum borgarráðsmannanna
Ölafs B. Thors, Alberts Guð-
Asgeir Magnússon
mundssonar, Markúsar Arnar
Antonssonar og Kristjáns Bene-
diktssonar. Adda Bára Sigfúsdótt-
ir sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Ásgeir Magnússon hefur verið
framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga frá árinu 1958.