Morgunblaðið - 10.09.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.09.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1975 5 ÍÞRÓTTIR Armenningar fá bandarískan risa ÁRMENNINGAR hafa nú gengið frá samningum við bandaríska körfuknattleiksmanninn Jimmy Rogers, og mun hann leika með liðinu a.m.k. frá 15. september til 15. desember n.k., en þá mun samningurinn við hann verða endurskoðaður, og hafa Ármenningar opna möguleika til þess að framlengja hann. Jimmy Rogers er þekktur körfu- knattleiksmaður í Bandarlkjunum og lék hann með liðinu Texas Southern University, auk þess sem hann hefur starfað sem leikmaður og þjálfari baéði í Argentinu og í Mexikó. Hann er 1,98 metrar að hæð og um 200 pund að þyngd Jimmy Rogers er fyrsti útlending- urinn sem leikur sem atvinnumaður með hérlendu liði, en sem kunnugt er þá áforma fleiri körfuknattleikslið að fá til sin bandaríska leikmenn. Koma Rogers til Ármanns vekur frekari vonir um að liðið komist í 2. umferð í Evrópubikarkeppni bikar- hafa i körfuknattleik, en það á að mæta finnska liðinu Playboys í fyrstu umferð. Hafa Árménningar ákveðið að fá Símon Ólafsson til liðs við sig í Evrópubikarleikjunum, en hann stundar nú nám í Seattle i Bandaríkjunum Það lið sem sigrar i umræddum leikjum á að mæta Estudiantes frá Spáni i 2. umferð. BREMNER OG FÉLAGAR FENGUEKKITÆKIFÆRI UL AÐ ÍJTSKÝRA MÁUÐ EINS og skýrt var frá i Morgun- blaðinu i gær hefur fyrirliði skozka landsliðsins, Billy Bremner, leik- maður með Leeds Utd , verið úti- lokaður frá fleiri landsleikjum fyrir Skotland. Ástæðan er drykkju- skapur og átök sem hann lenti i á veitingastaðnum Bonaparte i Kaupmannahöf n eftir landsleik Danmerkur og Skotlands þar um síðustu helgi. -— Þetta er geysilega mikið hávaðamál hér 'i Skotlandi, sagði Jóhannes Eðvaldsson, er Morgun- blaðið ræddi við hann i fyrrakvöld, en einn af félögum Jóhannesar, Pat McCluskey, var með Bremner á um- ræddu .veitingahúsi og var einnig útilokaður frá landsliðinu, ásamt Willy Young, Joe Harpner og Arthur Graham. Jóhannes sagði að skozku blöðin fjölluðu mikið um mál þetta og birtu viðtöl við hlutaðeigendur Leik- mennirnir væru reyndar mjög fátalaðir, en forystan segði að ekki hefði verið um annað að ræða. Framkoma þeirra félaga hefði verið svo vitaverð, að þrátt fyrir getu þeirra í knattspyrnu hefði Skotland ekki þörf fyrir þá. — Ég get ekkert annað sagt en að þarna er um misskilning að ræða, og mér finnst hörmulegt, að langur ferill minn með skozka lands- liðinu skyldi enda svona, er haft eftir Billy Bremner, en hann-skorti aðeins tvo leiki til að setja landsleikjamet í Skotlandi, og hafði keppt ákveðið að því marki. Jóhannes Eðvaldsson sagði að það kæmi fram í blöðunum, að leikmennirnir hefðu verið dauða- drukknir. Auk þess að vera með uppsteyt á veitingahúsinu, hefðu þeir brotizt inn hjá einum fararstjór- anna og rótað í töskum hans, senni- lega i leit að áfengi. Þá kæmi það einnig fram að sennilegt væri að félög viðkomandi leikmanna myndu refsa þeim á einhvern hátt, senni- lega með leikbanni. ' Um félaga sinn i Celtic sagði Jóhannes, að hann hefði ekkert viljað um mál þetta ræða, og væri reyndar í felum vegna ásóknar_ fréttamanna. Pat McCluskey er ung- ur leikmaður og átti þvi framtiðina fyrir sér með skozka landsliðinu. Þá sagði Jóhannes ennfremur að það hefði vakið mikla athygli og umtal, að leikmennirnir fengu ekkert tækifæri til þess að halda uppi vörnum. Skozka knatt- spyrnusambandið lét einungis kanna mál þetta, en kallaði leik- mennina aldrei fyrirsig. Keflvíkingar ganga í hús og selja miða KEFLVÍKINGAR hefja forsölu aðgöngumiða á leik sinn við Dundee í UEFA-keppninni I knattspyrnu á föstudaginn kemur. Munu þeir þá ganga í hús og selja miða, en til að sleppa sléttir frá þátttöku sinni segj- ast forráðamenn ÍBK þurfa að selja 4—5000 miða á leikinn, Leikið verður í Keflavik annan þriðjudag og hefst leikurinn klukkan 1 8 Unnið er að því þessa dagana að endurbæta girðinguna kringum völlinn og girða leiðina frá búningsklefum að vellin- um. Þá verður komið upp bráða- birgðastúku fyrir blaðamenn og Firmakeppni KNATTSPYRNUDEILD Ár- manns hyggst gangast fyrir fyr- irtækjakeppni í utanhússknatt- spyrnu, ef næg þátttaka fæst. Þátttökugjald er kr. 10.000,00 og eru þau fyrirtæki sem áhuga hafa á að taka þátt í keppni þessari beðin að tilkynna þátt- töku hið fyrsta í síma 32608 milli kl. 17.00 og 19.00 út þessa viku. Fjölþrautamót HSK FJÖLÞRAUTAMÓT HSK sem fresta varð sl. fimmtudag verð- ur haldið fimmtudaginn 11. september n.k. kl. 18.00 á Sel- fossvelli. heiðursgesti, en leikurinn er fyrsti leikurinn í Evrópumótunum, sem fram fer utan Reykjavíkur, Met hjá Ingunni í 400 m INGUNN Einarsdóttir, IR, setti nýtt íslandsmet 1 400 metra hlaupi á frjálsfþrótta- móti 1 Gautaborg f gærkvöldi. Hljóp Ingunn vegalengdina á 57,8 sekúndum, en gamla niet- ið var 58 sekúndur, og átti hún það sjálf. TIL þÍN.FRÁ OKKUR Herrar, nýkomin jakkaföt með vesti, stakir slétt flauelsjakkar. Terlin buxur, 3 snið margir litir. Einnig rúllukragabolir, ásamt miklu úrvali af Mens'Club herraskyrtum. Gallabuxur frá LEVIS og USA, ásamt flauelsbuxum frá INEGA og USA ávallt fyrirliggjandi. Fyrir dömur, regnkápur (þunnar) , einnig kjólar, pils, flauels buxnadraktir, denim buxna samfestingar, terlin buxur með háum streng, (dökkir og Ijósir litir) Dömu og herrapeysur í stórglæsilegu úrvali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.