Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKT0BER 1975 □ Pétur Friðrik: Kjarvalsstaöir. □ Hafsteinn Austmann: Loftinu. Q Sigurþór Jakobsson: Hafnarstræti 5. □ Ljósmyndasýning: Franska bókasafnið. Pélur Fridrik Sigurðsson hefur haldið fjölda málverka- sýninga, frá því að hann kom fyrst fram sem eins konar undrabarn í málaralistinni, og jafnan hafa þessar sýningar borið vitni mikilli málaragleði og atorku, — á stundum um of, þvf að veggrýmið hefur ekki borið ailan þennan fjölda mynda, þótt þétt væri hengt og þá jafnvel tekið til bragðs að stilla myndum upp í kringum gæslu við inngang sýninga. Sýning Péturs að Kjarvals- stöðum nú er engin undantekn- ing fyrri sýninga að þessu leyti að það ber mikilli atorku vitni að hafa málað nær allar þessar myndir á sl. tveimur árum, jafnvel þótt Pétur sé einn þeirra gæfusömu raanna, sem hafa getað helgað sig málverk- inu að öllu leyti um langt skeið. Pétur markaði sér snemma þá stefnu að feta í slóð braut- ryðjendanna Ásgríms, Schev- ings og nú sfðast aðallega Kjar- vaB o! hefui gerl það af leikni, kunnáttu og litagleði, Jóns Stefánssonar hefur hann hins vegar sótt lftið sem ekkert til, enda þar um gjörólíkt svið að ræða sem fellur ekki að skap- gerð og vinnumáta Péturs. Nú hefur það verið svo, að þeir hafa ekki þótt háttsigldir, sem slíkt hafa gert en hins vegar þótti það listrænn gæða- stimpill í langa tíð að vera und- ir áhrifum frá Þorvaldi Skúla- syni eða Svavari Guðnasyni, enda voru þeir nær okkur í tímanum. Allir sóttu þessir brautryðj- endur lærdómsvizku sína á er- lendar slóðir og hlutu frum- skólun sína í Kaupmannahöfn, Osló og London. Það er þannig jafngamalt íslenzkri málaralist, að málarar sæki áhrif erlendis frá og jafnframt gæfa íslenzkrar listar, að þeir skuli vera og hafa verið, jafn opnir fyrir áhrifum, því að öll list byggist á víxlverkun áhrifa og persónuleika og hvorugt getur án annars verið ef stefnt skal til einhverra varanlegra gilda. Ennþá er ekki hægt að tala um neina eiginlega erfðavenju i nýrri íslenzkri málaralist, en þó má segja, að landslagið hafi lengi verið rfkjandi þáttur og þá meir fyrir sölumöguleika en upprunalega tjáningarþörf. Og landslagið mun halda velli ekki síður en ffgúran, þó þvi aðeins að myndlistarmaðurinn gæði það stöðugt nýjtt og fersku lífi. Það er þannig að mínu mati ölluhraustlegrahjámálurum að leitast við að uppgötva eitthvað, sem ekki hefur áður verið gerð skil né uppfært í stað þess að leita uppi vinsæl og viðurkennd mótív, sem forverarnir gerðu sígild. Allt í ríki náttúrunnar á að geta orðið góðum mynd- listarmanni uppspretta og hvati frjórra hugmynda, og minn- umst þess, að Rainer Maria Rilke reit eitt sinn: „Hið smáa er jafnlítið smátt og hið stóra er stórt. Það gengur mikil og eilff fegurð gegnum veröld alla og henni er réttlátlega dreift yfir stóra og smáa hluti.“ — Það er þetta, sem ber að hafa í huga, að það er ekki hið stórkostleg- asta í veröldinni, sem endilega hefur orðið kveikja mikilla listaverka f gegnum aldirnar, heldur og einnig hið smæsta. Lis tsýningar — Nú ætla ég ekki að gefa Pétri línur í þá átt, hvernig hann eigi að mála og hvernig ekki, því að ég er þess fullviss, að hann muni halda sínu striki áfram enn um sinn a.m.k., auk þess hefi ég svo oft skrifað um sýningar hans, að ég kæri mig ekki um að endurtaka fyrri ábendingar. — Á þessari sýningu Péturs eru myndir, er bera leiknum hæfileikamanni vitni, og undar- legt er, að sumar myndanna eru nær alveg skynrænt málaðar eða þannig, að glitti ekki í ofur- litla rönd himins í bakgrunni, teldust þær abstrakt líkt og nr. 27 „A móti só)u“ og nr. 40 „Gráviðri", sem er vafalítið heillegasta landslagsmynd sýn- ingarinnar og með sterkust persónuleg höfundarmark. Pétur kemst sem fyrr betur frá húsamyndum sfnum en lands- lagi, og að þessu sinni sýnir hann í fyrsta skipti portrett- myndir, sem staðfesta leikni og tæknileg tilþrif og verða til þess, að maður óskar eftir meiru af slíku, einkum þótti mér myndin „Steini" renna stoðum undir slfkar óskir, því að Pétur nær hér fram sterkri skapgerð og heillegri mynd- byggingu. Óþarfi er að efast um, að sýn- ingin hljóti góða aðsókn og að Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON sala muni sem fyrr verða með ágætum, og er þá eftirsóknar- verðum tilgangi náð. Hafsteinn Austmann sýnir þessa dagana og til 10. október 33 vatnslitamyndir á „Loftinu" á Skólavörðustíg. Er hér um að ræða myndir, sem Hafsteinn hefur málað með þessari tækni í rúma tvo áratugi og búið til sýningar. Elstu myndirnar, sem eru frá 1952, hafa yfir sér lit- rænan, ungæðislegan þokka manns, sem er að uppgötva lit- ina í fyrsta skipti og kannar áhrif þeirra, aðrar eru undir sterkum áhrifum frá Snorra Arinbjarnar, sem staðfestir, að það voru ekki hin „flottu" áhrif, sem hrifu hinn unga listamann í upphafi, heldur frekar hinar hrjúfu óvenjulegu litasamsetningar. Næst kemur gvass-mynd frá 1956, og hér hefur Hafsteinn greinilega kynnst og hrifist af flatarmáls- listinni og litirnir eru brúnir og þungir, því að allt var þungt á dögum kalda strfðsins í stjórn- málum sem listum. Um 1960 virðist svo nýr og ferskur tónn hafa haldið innreið sfna í mynd- heim Hafsteins, svo sem sjá má á myndum líkt og 13 „Mynd“ og 14 „Speglanir“ og eru þetta að mínu mati með sterkustu myndum sýningarinnar Ijóð- rænar og ferskar. Hið ljóðræna gengur eins og rauður þráður um alla sýninguna, tengir hana saman, þannig að hún er mjög samstæð, lifandi og fersk. Segja má, að svipuð myndræn vanda- mál hafi tekið hug Hafsteins síðustu 15 árin, en þó án þess að hann hafi tapað nokkru f fersk- leika í sambandi við meðferð lita og forma. Hann fer sér hægt og vinnur vel úr efni- viðnum, og slík fhaldsemi skilar oft raunbeztum árangri, þegar fram sækir. Þessi sýning Haf- steins er ein sú heillegasta, sem ég hefi séð frá hans hendi og er honum til mikils sóma og verð allrar athygli. Sigurþór Jakobsson er liðlega þrítugur maður f. 1942, sem hefur opnað sýníngu á 34 mál- verkum og vatnslitamyndum á vinnustofu sinni að Hafnar- stræti 5. Hann stundaði nám í Kvöldskóla Myndlistarskóla Reykjavíkur í nokkur ár eftir 1960, en hélt svo til Englands til frekari náms. Litir mynda hans eru hvellir og harðir og form sömuleiðis, og eru það e.t.v. áhrif frá vinnu hans í auglýsingaiðnaðinum á undan- förnum árum, en hér kemur einnig greinilega fram ónóg skólun í lita- og formfræði. Líkt og réttilega er bent á í sýn- ingarskrá, farast Sigurþóri átökin við liti og form betur í hinum stærri myndum en hin- um minni. Greinileg eru áhrif frá Karli Kvaran, en enginn hægðarleikur er að feta í fót- spor þess stranga myndsmiðs. Af þessari sýningu verður lítið dæmt um hæfileika Sigurþórs á myndlistarsviðinu og skal því ekki spáð um framvinduna. Sýningarskrá sýningarinnar er óvenjulega vel og haganlega hönnuð og að flestu mjög til fyrirmyndar. 1 Franska bókasafninu við Laufásveg sýna um þessar mundir tveir Frakkar ljós- myndir i lit og svart-hvitu. Nokkrar myndanna eru hinar ásjálegustu, en athygli vekur, hve illa er frá þeim gengið og uppsetning bágborin. Er ljóst, að hér verður að gera meiri kröfur, einkum vegna þess að staðurinn er hinn skemmtileg- asti heim að sækja — mikið af listaverkatímaritum og bókum liggja þar frammi og er áhuga- fólk um listir hvatt til að líta þar inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.