Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975 Minning: Sigurður Sveinbjörns- son Stykkishólmi t Þökkum af heilum hug öllum þeim er sýndu okkur samúð, vegna bróður og fraenda okkar HALLDÓRS GUÐJÓNSSONAR er lézt af slysfórum 26 nóv 19 75 að Óðmsgötu 4 Sérstakar þakkir til fjölskyldna Sigurgeirs Sigurjónssonar, lögfraeðings og Ársæls Þorsteinssonar bryta Fyrir hönd aðstandenda, Aðalsteinn Guðjónsson Einn af mínum bestu vinum var Sigurður Sveinbjörnsson. Oft lá leið rnín til hans, því eins og þar stendur til góðs vinar liggja gagn- vegir. Ég kynntist honum ekki fyrr en hann flutti í Hólminn árið 1953. Eg fann strax að þarna var traustur alvörumaður á ferð en sem þó sá hið broslega i til- verunni. Hann kunni vel að sam- eina þetta. Sigurður var fæddur í Bjarn- eyjum á Breiðafirði 20. des. 1894 Var hann því tæplega 81 árs er hann lést hér í sjúkrahúsinu 29. nóv. s.l. Foreldrar Sigurðar voru Olöf Sigurðardóttir og Sveinbjörn Gestsson, góður og gegn bóndi í eyjunum. Sigurður ritaði bók um æfiár sín sem út kom i fyrra, en þar er mjög stiklað á stóru, en vel og skilmerkilega sagt frá þvi það var honum lagið. 1 Bjarneyjum var hann sín æsku og unglingsár og var snemma látinn vinna bæði í landi og sjó. Annað þekkti sá tfmi ekki. Hann giftist 1926 konu sinni Lilju Jóhannsdóttur, og í Rauðseyjar fluttu þau 1927 þar sem þau bjuggu i 12 ár eða til 1939 að þau fluttu i Efri Langey, sem Sig- imður keypti þá og við þá ey var hann lengst af kenndur eða allan þann tíma sem ég þekkti hann. Væri Sigurður frá Langey nefndur vissi fólk við hvern var átt. Þau hjón eignuðust 5 dætur sem allar eru giftar og standa fyrir sinu heimili. Og eins og Sig- urður sagði í viðtali sem ég átti við hann sjötugan fyrir Mhl. „dæturnar okkar fimm hafa verið mikið ljós f lífinu". Þau hjón hafa verið mjög samhent, kunnað vel að meta hvort annað og heimili t Inmlega þakka ég öllum þeim ættingjum og vinum sem minnt- ust látinnar eiginkonu minnar, ANNEYAR Ó. JÓNSDÓTTUR Óskar Garibaldason, Siglufirði. t Þökkum mmlega samúð við and- lát og jarðarför MAGNÚSAR GUÐMUNDS SONAR frá Hamarseli Eiginkona, barnabörn þeirra. börn, tengdadóttir, og fjölskyldur t Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa, HARÐARÞÓROARSONAR sparisjóðsstjóra, Öldugötu 34. fer fram frá Dómkirkjunni föstudagmn 1 2 desember kl 1 30 siðdegis Ingibjörg Oddsdóttir, Þórður Harðarson, Sólrún Jensdóttir, Anna Harðardóttir, Leifur Dungal. og barnabörn. t þeirra hefir Ijómað af hamingju, þrátt fyrir að erfiðleikar og annað hafi m. ■ i. Sigui„ur dró enga dul á það að hann hefði eignast dýrmæta trúarreynslu og taldi það hina mestu guðs gjöf til dauðlegra manna. Skömmu eftir að hann fluttist hingað f Stykkishólm gekk hann i söfnuð Hvitasunnu- manna og þær voru fáar samkomurnar og bænastundirnar sem hann ekki sótti. Við áttum mörg sameiginleg hugðarefni og þvf lágu leiðir okkar meir saman og því er nú mikill tregi í huga mínum er ég kveð þennan góða vin minn. Sigurður var maður kirkju og kristni. Þegar hann var i Langey var hann bæði safnaðar- fulltrúi og meðhjálpari kirkjunnar sinnar f Dagverðar- nesi og stundaði það sem annað af alúð. Sigurður fékk litla fræðslu i æsku en þeim mun hetur notaði hann hverja stund til fróðleiksöfl- unar, er hann komst á legg. Hann átti orðið gott bókasafn og margar sjaldgæfar bækur. Las hann mikið og vandlegaoglagði allan hug að því sem hann las og lagði út af þvf í viðræðum við kunningja sína. Hann hafði mikinn áhuga fyrir verndun máls- ins og að ekki glötuðust gömul orð og hugtök og gat þvf veitt lið þeim sem að söfnun þeirra stóðu. Vandaður til orðs og æðis. Ég stend í mikilli þakkarskuld við þennan vin minn og sem lítil þökk eru þessi fáu orð skrifuð. Ég lýk þeim með orðum Sigurðar er hann sagði við mig fyrir 11 árum: Kristur talar um að hann opinberi það smælingjum sem vitringun- um og hyggindamönnum sé hulið. Ég tel mig einn þessara smælingja svo langt sem það nær og í fylgd með honum sem varð- veitt hefir mig og mína, langar mig til að Ijúka hérvistardögun- um. — Sigurður lá seinustu dagana á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Þangað kom ég oft til hans og ræddi við hann. Hann vissi að hverju dró og bjó sig til ferðar. Hann hafði vel fyrir séð og vega- nestið var gott, hugsað fyrir hverjum hlut. Hann naut aðhlynningar hinna ágætu lækna og systranna sem eru svo ein- stakar hjúkrunarkonur. Vinir komu í heimsókn. Allt þetta gerði undirbúninginn léttari til ferðar. Nokkru áður en stundin kom rétt- um við hvor öðrum hönd. Við skildum báðir hvað bak við bjó og óskuðum hvor öðrum alls hins besta. Viðskilnaður um stund og allt endurnýjað síðar þvi við átt- um óþrjótandi umræðuefni. Guð blessi góðan vin. Arni Helgason. Maðurmn minn, faðir okkar og tengdafaðir JENSJÓNSSON skipstjóri, Áfftamýri 56. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12 desember kl 15. Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Siysavarnafélag íslands Hlín Kristensen ^ börn og tengdabörn. t Útför móður okkar ODDNÝJAR GUOMUNDSDÓTTUR Bollagotu 7, Reykjavik fer fram frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 13 desember kl 2 e h Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl 1 1 30 og til baka að athöfn lokinni Jónas Helgason, Helgi Helgason, Hrafnkell Helgason. Sigurður Helgason. + Útför eiginmanns míns, STEINS EGILSSONAR jarðf ræðings, Hraunbæ 118, verður gerð frá Fossvogskirkju, í dag fimmtudaginn 1 1 desember kl 3 siðdegis Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnas^ hans er bent á líknarstofnanir Guðrún Hjálmarsdóttir. Faðir minn. + SIGURÐUR ÞORSTEINSSON fyrrum bóndi Fremri-Hlíð I Vopnafirði, andaðist að heimili mínu. Holtagerði 82. Kópavogi, niunda desember Valgeir Sigurðsson. Vegna útfarar STEIISIS EGILSSONAR jarðfræðings, verða skrifstofur vorar lokaöar í dag frá kl. 2 e.h. I. Pálmason h.f. Vesturgötu 3. Reykjavík. SVIÐSMYND — Mynd úr leikrftinu Skfrn sem Leikfélag Þoriáks- hafnar frumsýndi á dögunum. Frá vinstri: Gissur Baldursson, Margrét Sigurðardóttir, Ómar Waage, Bergþóra Arnadóttir og Vernharður Linnet. Ljósm. Sigurður Jónsson. fara nokkrir með 2—3 hlutverk, að visusmá. Þarnakoma fram nokkrir byrjendur sem lofa góðu um framtfðina. Það má því segja að leikstjóra og leikendum öllum hafi tekizt vel að koma boðskap höfundar til skila, sem er um hversdagslíf fólks 1 nútímaþjóð- félagi. Það er því trú min að það séu margir sem eiga eftir að njöta ánægjustunda með Leikfélagi Þorlákshafnar sem hyggst sýna leikritið á nokkrum stöðum á Suðurlandi og eru næstu sýningar í Borg i Grimsnesi laugardaginn 13. desember klukkan 21.30 og i Hveragerði sunnudaginn 14. des- ember klukkan 21. Leikfélag Þorlákshafnar: Frumsýndi „Skírn” eft- ir Guðmund Steinsson Þorlákshöfn 8. des. LEIKFÉLAG Þorlákshafnar um alla hina mörgu leikendur, því hlutverk f leiknum eru 25 og Þá var öldin önnur: Seyðisfjarðarkaupstaður hinn forni og skaftfellskar sagnir frumsýndi leikritið „Skfrn“ eftir Guðmund Steinsson laugardag- inn þann 6. desember s.l. f fyrsta áfanga félagsheimilis f Þorláks- höfn við mjög góðar undirtektir leikhúsgesta. Leikstjóri er Sigurður Karlsson og er þetta í annað sinn sem hann færir upp leikrit með Leikfélagi Þorláks- hafnar. Með aðalhlutverk fara þau Vernharður Linnet, sem leikur húsbóndann á heimilinu og frú Bergþóra Arnadóttir sem leikur konu hans. Þau fara mjög vel með sín hlutverk og má segja hið sama Sjálflýsandi kross á sjúkrahússkirkju EINS og getið var um á sínum tíma átti kaþólska reglan st. Fransiskusystur, í Stykkishólmi 40 ára starfsamæli á þessu ári, 1 tilefni þessa afmælis ákvað útfaraskreytlngar blómouol Groóurhúsiö v/Sigtun simi 36770 — eftir Einar Braga MEÐ þessari bók lýkur Einar Bragi verki sfnu: „Þá var öldin önnur — I—III bindi og birtir aftast nafnaskrá yfir öll bindin, sem tengir þau saman og eykur á gildi safnsins. hreppsnefnd Stykkishólmshrepps að færa reglunni í afmælisgjöf vandaðan, sjálflýsandi kross á kirkju sjúkrahússins, en kirkjan var öll endurnýjuð að innan á s.l, ári. Þessi kross hefir nú verið settur upp í turn kirkjunnar og ijómar nú yfir bænum. Er hann hinn fegursti og setur ljómandi svip á bæinn að kvöldi til og er öllum sem á horfa hið mesta augnayndi. Er Övíst að hrepps- nefndin hefði getað valið betri gjöf né táknrænni í þessum til- gangi, enda meta Snæfellingar og aðrir að verðleikum hið dýrmæta starf sem systurnar vinna i líknarmálum hér um slóðir, fyrir utan margt annað sem þær vinna byggðum hér. Leikfélag Þorlákshafnar var stofnað 1970 og hefur tekið til meðferðar eitt leikrit á ári að undanskildu árinu 1973. Stjórn félagsins skipa Vernharður Linnet, Garðar Þorsteinsson, Ast- rún Davíðsson, Jón Guðmundsson og Björgvin Guðjónsson. Hafi leikfélagið þökk fyrir framtak sitt. — Ragnheiður. í fyrsta þættinum, Seyðis- fjarðarkaupstaður hinn forni, er grafinn úr djúpi gleymskunnar forboðinn verzlunarstaður, sem fátt var áður vitað um. Þrjár skaftfellskar myndir eru samdar út frá þremur frumstæðum en skemmtilegum uppdráttum eftir þrjá skaftfellska presta á 18. öld: sr. Vigfús Benediktsson (Galdra- Fúsa), sr. Magnús Ólafsson og sr. Arna Gíslason. I bók þessari fara saman þjóð- legur fróðleikur og eftirtektar- verðar mannlýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.