Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976 13 0 Öþekktir líkræningjar hafa brotizt inn í grafhýsi Mussolinis og stolið heila hans, sem var geymdur i steinkrukku. Þeir rændu einnig marskálkshúfu hans. Heilinn var sendur til Bandarikjanna 1945 til vís- indalegra rannsókna. Ekkja Mussolinis, Donna Rac- hele, baröist fyrir því árum saman að hann yrði jarðsettur í fæðingarbæ sínum, Predappio. Árið 1957 var likið flutt frá leynilegum grafreit til Predappio og jarðsett þar. Heilanum var ekki skilað fyrr en 1966 og honum var komið fyrir í sérstakri krukku, því að fjölskyldan vildi ekki að kistan yrði opnuð. Grafhýsið hefur verið vinsælt af erlendum ferða- mönnum og fasistum. Sprengju var kastað að því 1971 og skemmdir urðu á i Samsæri gegn Tito Stálu heila Mussolinis NEÐANJARÐARSAMTÖK Moskvu-kommúnista í Júgóslavíu hafa uppi áætlanir um að steypa Tito forseta af stóli með stuðningi Rússa og innlima landið í valdablokk þeirra að sögn brezka blaðsins Daily Telegraph. Stuðningsmenn samtakanna ganga undir nafninu kominformistar og leiðtogar þeirra studdu Rússa þegar Tito sleit sambandinu við Stalín 1948. Stefna kominformista er lýst í 120 blaðsíðna greinargerð, sem sérfræðingur Daily Telegraph í málefnum kommúnistaríkja hefur komizt yfir, og hann segir að skjalið jafngildi stríðsyfirlýsingu áhendur Tito. Hreyfingin hvetur til þess að forsetaembætt- ið verði lagt niður, að Tito verði vikið úr embætti og að eigur hans verði gerðar upptæk- ar. Jafnframt er Tito sakaður um að hafa sýnt meiri grimmd en rannsóknarrétturinn á Spáni og Gestapo Hitlers gagnvart tugum þúsunda pólitískra andstæðinga, sem sitji i fangelsum, pyntingarklefum og fangabúðum. Daily Telegraph segir í forystugrein, að lengi hafi verið vitað um starfsemi kominfor- mista sem eigi að gegna því hlutverki að senda þegar þar að komi áskorun frá „júgóslavnesku þjóðinni" til Rauða hersins um „bróðurlega aðstoð". Hins vegar telur blaðið ískyggilegt hve langt komnar áætlanir Rússa séu. TltO forseti Bernharð prins (t.h.) hefur haft mikil áhrif f hollenzka flughernum og af þeim stafa vandræði hans. Ekki fyrsta hneykslið,.. 0 Ásakanirnar um að Bernharð Hollandsprins hafi þegið 1,1 milljón dollara f mútufé frá bandarfska flug- vélafyrirtækinu Lockheed eru ekki fyrsta hneykslið f sögu konungsættarinnar. Arið 1934 gaf hollenzkur prins vinkonu sinni ávfsun sem hún fyllti út með einni milljón gyllina. Lögreglufulltrúi að nafni van t’Sant var fenginn til að semja við hana og honum tókst að lækka upphæðina f 100.000. Bernharð prins kvæntist Júlfönu drottningu 1937 og varð geysivinsæll f strfðinu þótt hann væri Þjóðverji og fyrrverandi SS-maður Hann tók virkan þátt f skipulagningu mótspyrnunnar í London og hann tók þátt f loftárásum á Þýzkaland. Þegar Júlfana varð drottning 1948 sagði hann „Kona mfn stjórnar landinu, en ég stjórna heimilinu.” Hann hefur verið kallaður einn bezti sölumaður allra tíma og seldi hollenzka framleiðslu f öllum heimshlutum: Fokker-flugvélar til Súdans, sykurverksmiðju til Eþfópfu og eimreiðar til Argentfnu. Viðræður hans við Peron einræðisherra voru erfiðar en að lokum tókst Bernharð að tryggja Evitu konu hans hollenzka orðu, og f staðinn keypti Peron eimreiðarnar. Bernharð hefur einnig stóraukið tekjur Óranfuættarinnar, sem er auðugasta konungsætt heims. Júlfana drottning er ein auðugasta kona heims og fjölskvldan þarf ekki að borga skatt. Tekjur hennar eru svo miklar, að ýmsum finnst ótrúlegt að Bernharð hafi þegið mútur. Sumir telja að prinsinn hafi ekki fengið krónu, að aðrir hafi stungið peningunum á sig og sagt að prinsinn hafi fengið þá. Þegar Júlfana drottning komst undir áhrif skottulæknisins Greet Hofmans, sem kvaðst geta læknað blinda dóttur hennar, bjargaði Bernharð konungsættinni. Nú getur svo farið að Júliana leggi niður völd. Þá tekur Beatrix prinsessa við. Bernharð dvelst f Sviss og vill ekkert um málið segja. Meirihluti Hollendinga telur hann saklausan. landsins og aukinn stuðning við rækt- un landsins Þegar frumvarp til þess- arar löggjafar hafði hlotið endurskoðun rikisstjórnar og Alþingis og náð sam- þykki sem lög, var framkvæmd lag- anna falin nýrri stofnun Búnaðarfélag- inu óviðkomandi. Síðan hefur þessari stofnun verið falið meira og meira af þeim verkefnum, sem eðlilegast var að fela B.l Þannig hefur hluti sóknar i landbúnaðarmálum beinlínis verið tek- in úr höndum B í og fengin ýmist sjálfu rikisvaldinu i hendur eða stofn- unum sem eru félaginu óbundin og óháð Þegar Áburðarverksmiðjan i Gufu- nesi var stofnuð, árið 1954, hafði rikisvaldið um það alla forystu og var bændasamtökunum engin þátttaka boðin um það mál Þó var hlutafélag stofnað um verksmiðjuna og taldist rikið eiga i fyrstu helming hlutafjárins, S í S. fjórðung og félag áhugamanna fjórðung, en hluttaka bændasamtak- anna var engin Haustið 1961 afhenti rikið áburðarverksmiðjunni áburðar- verslunina, og þá aðstöðu sem áburðarverksmiðjan fékk með þvi hefur hún notað til þess að tryggja sér markað fyrir framleiðslu sína og ráða að mestu ein verði áburðarins. Með því hefur bændastétt landsins verið gerð ómyndug um þetta mikilvæga mál fyrir landbúnaðinn, og búnaðarsamtökin hvergi látin koma þar nærri Þó skal þess getið að hin siðustu ár hefur formaður Áburðarverksmiðjustjórnar verið sami og formaður Stéttarsam- bandsins. Eins og þessu hefur nú verið lýst, er það augljóst mál, að hlutur bænda- samtakanna er furðu litill orðinn bæði fyrir þjóðfélagið i heild og einnig fyrir bændastéttina sérstaklegn Leifaraf þvi alsherjarfélagi, sem stofnað var 5 júli 1899, til þess að fara höndum um öll mál bændastéttarinnar og land- búnaðarins, eru nú tvö félög, sem að visu hafa sameiginlega rót, en eru aðgreind að hlutverkum þannig, að annað, sem enn heitir Búnaðarfélag íslands, rúmar leiðbeiningastarf fyrir bændastéttina, hitt, sem heitir Stéttar- samband bænda, fer með verðlagsmál stéttarinnar. Önnur mál, er bænda- stéttina varða, eru þessum samtökum úr hendi gengin, nema hvað þau hafa þar að sjálfsögðu tillögurétt, og leitað er oft álits þeirra um önnur. Ef bændastétt landsins á að rísa til virðingar i þjóðfélaginu verður hún að taka sin eigin mál i sinar hendur, ýmist til fullra ráða eða þá til samninga við aðrar stéttir og rikisstjórnina Til þess að svo megi verða verður hún að efla samtök sin og þó fyrst og fremst að safna þeim til einingar og fulls sam- starfs. Slikt verður trauðlega gert nema með því að gera Búnaðarfélag íslands aftur að þvi, sem það upphaflega átti að vera, allsherjarsamtök bændanna er lætur sér ekkert er landbúnaðinn varðar, óviðkomandi Auðvitað verður að vera verkaskipting innan þessara samtaka, en þau verða að vera ein heild og undir yfirstjórn, sem hefur alla bændastéttina óskipta að baki sér Þessi samtök verða að krefjast þess að fá i hendur sér þau verkefni, sem ríkisstjórn eða aðrir aðilar hafa tekið af bændastéttinni Bændasamtökin eiga ekki að sætta sig við að hafa með höndum aðeins þau verkefni, sem þeim eru skömmtuð s.s fræðslumál stéttarinnar og áhrifavald i verðlags og afurðasölumálum, heldur eiga þau að takast á hendur öll skipulagsmál land- búnaðarins. Þau eiga að krefjast þess að fá í sinar hendur áburðarverslunina og allt það er ræktunarmálin varðar Þau eiga að krefjast þess að fá i sinar hendur yfirstjórn lánamála land- búnaðarins, meðferð jarðeignanna og alla endt^rsköpun landbúnaðarins Stofnanir, sem bændasamtökin verða að krefjast yfirráða yfir, eru m.a. áburðarverslunin, Landnám rikisins. og Búnaðarbankinn. Skal nú nánar vikið nokkuð að þvi hvernig það skipulag kann að geta orðið, sem yrði á þessum nýju lands- samtökum bændanna: Um leið og sókn er hafin til þess að endurheimta og auka verkefni bænda- samtakanna, er sjálfsagt að endur- skoða skipulag þeirra og færa til sam- ræmis við þær kröfur, er liðandi tími og þau auknu verkefni er þau takast á hendur, gerirtil þeirra Sjálfsagt er að allir bændur landsins taki þátt i búnaðarsamtökunum og hafi þar jafnan atkvæðisrétt um alla af- greiðslu mála, jafnt heimafyrir i málum félagsdeildanna sem til afgreiðslu mála og kosninga í heildarsamtökunum Fram til þessa hefur það þótt sjálf- Framhald á bls. 22 WICKMANN 5 ACA, 500 BHK, 1961 með öllu tilheyrandi, stefnisröri, öxli skrúfu oq loftflöskum til sölu. Nánari uppl. Haaland & S0nn, Ryfylkekaien, 4000 Stavanger, sími (045) 20341. Blaðburðarfólk óskast_______________ AUSTURBÆR: Sóleyjargata Óðinsgata. VESTURBÆR: Skólabraut. UPPL. í SIMA 35408 VIKULEGAR HRAÐFERÐIR EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Fró NORFOLK WESTON POINT KRISTIANSAND HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM mánudaga þriájudaga þriájudaga þriójudaga mióvikudaga fimmtudaga Frá ANTWERPEN - FEUXSTOWE - KAUPMANNAHÖFN - ROTTERDAM - GAUTABORG - HAMBORG FERÐIR FRÁ ÖÐRUM HÖFNUM EFTIR FLUTNINGSÞÖRF Æ F * V /' -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.