Morgunblaðið - 28.10.1977, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
239. tbl. 64. ár«.
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
K ictnr hrotnnnninoonn'j flnHnr til crrufar í cr®r
(Sfmnniynd AP)
1000 lögreglumenn
við útför Baaders
og f élaga í gærdag
StuttKart 27. október Reuter.
ÚTFÖR v-þýzku hryðjuverkamannanna þriggja. sem frönidu sjálfs-
nioró í Stammheinifangelsi í stðustu viku, fór frani í Stuttgart í dag án
þess aó til tíðinda drægi. l'm 1000 vopnaðir lögreglumenn voru f
viðbúnaðarstöðu er kistur þeirra Andreas Baaders. (áuðrúnar Ensslin
og Jan-Carl Kaspe voru látnar síga í gröfina. en um 2000 manns voru
viðstaddir. Margir vinstriöfgamenn hrópuðu vigorð. eins og „niorð".
„Þeirra verður lengur minnzt en morðingjanna", og ýnisir háru spjöld
með nöfnum þremenninganna og vígorðum: „Þau voru pyntuð og myrt
í Stammheim."
Þremenningarnir voru jarðsett-
ir hlið við hlið i Stuttgartkirkju-
garðinum þrátt fyrir mótmæli
ibúa í nágrenninu. sem óttast að
gröf þeirra verði helgistaður
vinstriöfgamanna. Presturinn
séra Bruno Streibel sagðí. er kist-
urnar sigu i gröfina: „Faðir fyrir-
gef þeim, því þau vita eigi hvað
þau gjöra.“
Margir af þeim. sem viðstaddir
voru útförina. báru rauðar grirn-
ur ti! að þekkjast ekki en þrátt
fyrir að mikillar reiði gætti drö
ekki til tíðinda að öðru leyti en
því að einhverjar skemmdir voru
unnar á lögreglubilum. er lög-
Framhald á bls. 19.
S-Afríka:
Jimmy Carter styður
algert vopnasölubann
Callaghan
nær frú
Thatcher
London, 27. október. AP
VERKAMANNAFLOKKUR
James Callaghans forsætisráð-
herra í Bretlandi nýtur jafn-
mikilla vinsælda og Ihalds-
flokkur frú Margaret
Thatchers samkvæmt skoðana-
könnun er var birt í Daily
Telegraph í dag.
Hvor flokkur um sig hefur
45% kjósenda á bak við sig en
i sumar var munurinn á fylgi
flokkanna 14.5%. Átta af
hundraði síyðja frjájslynda
flokkinn en 2% aðra.
Könnunin var gerð áður en
Denis HeaL; skýrði frá hinum
nýju aukafjáriögum sem ýmsir
Framhald á bls. 19.
CARTER
Washington 27. október Reuter.
CARTER Bandaríkjaforseti tilkvnnti í da« á blaöamannafundi í Washington, að
hann mvndi stvðja álvktun örysgisráðs S.Þ. um algert vopnasölubann til A-Afríku,
en að hann ákvæði síðar hugsanlegar aðrar aðgerðir eins og viðskiptaþvinganir.
Forsetinn fordæmdi aðgerðir S-Afríkustjórnar í síðustu viku, er starfsemi 18
samtaka blökkumanna í landinu var bönnuð, útgáfa tveggja blaða bönnuð og milli
60—70 forvstumenn andófssamtaka gegn kvnþáttamisrétti handteknir.
VORSTER
Carter sagði að S-Afríkustjórn
hefði með aðgerðum sínum aukið
mjög á hættuástandið í suður-
hluta Afríku og að Bandaríkja-
stjórn hefði þegar lýst miklum
áhyggjum yfir þessari þróun
mála.
Ummæli forsetans koma daginn
eftir að John Vorster forsætisráð-
herra S-Afríku sagði á fundi í
Jóhannesarborg að hann væri
ekki tilbúinn til ' að koma á
kosningalýðræði í landinu þannig
að allir hefðu jafnan atkyæðisrétt
og hver sá maður, sem héldi að
Bandaríkjamenn eða Rússar
sættu sig við eitthvað minna en
slíkan jöfnuð væri fifl. Hann
sagði að það væri öllum ljóst að
Hirti Alsír-
stjórn lausn-
argjaldið?
T«kíó27. október. Reuter.
HÁTTSETTUR japanskur em-
bættismaður sagði f Tókíó í dag,
að japanska stjórnin hefði fengið
óstaðfestar fregnir um að Alsír-
stjórn hefði gert upptækar 4
milljónir dollara af 6 milljóna
doilara lausnargjaldi, sem Japan-
ir greiddu flugræningjunum úr
Rauða hernum japanska á dögun-
Franihald á bls. 19.
þaó væru þessi tvö stórveldi, sem
stæðu að baki baráttunni gegn
S-Afríku, því þau vildi komast til
áhrifa í þriðja heiminum.
Pieter Botah varnarmálaráð-
herra S-Afríku sagði í viótali við
New York Times i gær, að S-
Afríka hefði nægilega sterkan
vopnaframleiðsluiðnað í landinu
til að sjá sér fyrir vopnum. Gæti
stjórnin barizt svo hart gegn
þeim, sem reyndi að binda enda á
stjórn hvítra manna, að þeir yrðu
furðu lostnir.
Tító þreyttur
Bclgraó 27. oklober Reuler.
TALSMAÐUR Títós Júgóslaviu-
forseta skýrði frá því i dag að
læknar forsetans hefðu skipað
honum að taka sér þriggja vikna
hvíld frá störfum og hefði fyrii-
hugaðri heimsókn Sadats Egypta-
landsforseta í byrjun næsta
mánaðar verið frestað um óákveð-
inn tíma. Talsmaóurinn tók fram
að Titó væri ekki veikur. aðeins
þreyttur.
Framhald á bls. 21.
Tillaga bandaríska flugráðsins:
Northwest Airlines fái
leyfi til Islandsflugs
Talsmaður félagsins staðfestir umsóknina í samtali við Morgunblaðið
Washington 27. oklóber AP.
BANDARÍSKA flugráðið (CAB) hefur lagt til við
Jimmy Carter forseta að hann veiti flugfélaginu
Northwest Airlines heimild til að fljúga reglubund-
ið áætlunarflug milli Bandaríkjanna, tslands og
Norðurlanda. Er þetta hluti af umfangsmikilli end-
urskipulagningu Atlantshafsflugs bandarískra flug-
félaga, en Carter fór fram á að fá tillögur flugráðs í
þessum efnum til að hann gæti tekið ákvörðun fyrir
1. nóvember n.k. í tillögum ráðsins er einnig gert
ráð fyrir að svipta Pan Am flugleyfi til tslands og
hinna Norðurlandanna.
Morgunblaðið náði i gær-
kvöldi sambandivið Roy Erick-
son, talsmann Northwest Air-
lines í höfuóstöðvum fyrirtæk-
isins í Minneapolis, Minnesota,
og spurði hann um fyrirætlanir
félagsins í sambandi við Is-
landsflug. Erickson sagði það
rétt, að Northwest hefði sótt
um leyfi til að fljúga til Islandá,
en þar sem Bandaríkjaforseti
ætti eftir að taka ákvörðun í
málinu hefðu forráðamenn fé-
lagsins tekið þá afstöðu að
skýra ekki frá fyrirætlunum
sínum fyrr en Carter hefði af-
greitt málið. Hann sagði það
ekkert leyndarmál að North-
west Airlines hefði sött um
leyfi til íslandsflugs og til
hinna Norðurlandanna, þar
sem PanAm hefði um árabil
dregið mjög úr eða lagt alveg
niður flug til þessara landa. Er
Mbl. ítrekaði spurningu sírja
um hvort fvrirtækið hygðist
hefja samkeppni við Loftleiðir
Framhald á bls. 19.