Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1977
IS VAR EKKI I VAND-
RÆ0UM MEÐ ÁRMANN
tS sigraði Ármann án erfiðleika í 1. deildinni í körfu-
knattleik f gærkvöldi. Það var aðeins í upphafi sem
Ármenningar veittu stúdentum einhverja keppni, en tS
sigraði örugglega í leiknum með 99 stigum gegn 73.
Ármenningar byrjuðu leikínn
vel og komust í 4:0 og var það í
eina skiptið i leiknum, sem þeir
höfðu yfirhöndina. Stúdentar
vöknuðu fljótlega til lifsins, en
jafnræði var þó með liðunum
fram yfir miðjan fyrri hálfleik, en
þá breyttu stúdentar stöðunni úr
21:19 i 30:19. Staðan í hálfleik var
42 stig gegn 35 IS í vil. I síðari
hálfleik juku stúdentar forskot
sitt jafnt og þétt, án þess þó að
eiga neinn stórleik, en það var
stundum með ólikindum, hvernig
Armenningum tókst að brenna af
undir körfunni. Sigur ÍS var
aldrei í hættu og eina keppikefli
þeirra undir lokin var að komast í
100 stigin, en það tókst ekki og
lauk leiknum með sigri þeirra 99
stigum gegh 73.
Dirk Dunbar lék með stúdent-
um að nýju eftir meiðslin, sem
hann hlaut fyrir u.þ.b. mánuði.
Hann var þó vandlega vafinn og
gat sig lítið hreyft, en átti góðan
leik og skoraði 20 stig. Hann á þó
nokkuð langt í land til þess að ná
sínum fyrri styrkleika. Þá áttu
Bjarni Gunnar Sveinsson, Jón
Héðinsson og Ingi Stefánsson
allir þokkalegan leik. Stúdentar
voru heppnir, að mótstaðan vár
ekki meiri að þessu sinni, þvi að í
liðið vantaði Kolbein Kristinsson,
auk þess sem Dirk Dunbar og
Steinn Sveinsson léku meiddir.
Hjá Ármanni var Björn
Christiansen langfriskastur og
átti nú sinn bezta leik í vetur. Þá
voru Mike Wood og Jón Björg-
vinsson þokkalegir, en Atli Ara-
son var óvenju daufur að þessu
sinni. Greinilegt er að Ár-
menningar verða að taka á honum
stóra sínum, ef þeir ætla að gera
sér nokkrar vonir um sæti i úr-
valsdeild næsta vetur.
Stigin fyrir IS: Bjarni Gunnar
Sveinsson 21, Dirk Dunbar 20,
Jón Héðinsson 19, Ingi Stefáns-
son 14, Guðni Kolbeinsson 7,
Gunnar Halldórsson, Helgi Jens-
son, Jón Óskarsson og Þórður
Óskarsson 4 stig hver og Steinn
Sveinsson 2.
Stigin fyrir Armann: Björn
Christiansen 24, Mike Wood 18,
Jón Björgvinsson 14, Átli Arason
13 og Guðmundur Sigurðsson 4.
ag
JOFN
HRUN
Birgir Jóhannesson átti góðan leik með
skoraði eitt mark og fiskaði þrjú vítaköst.
STAÐA í
í SEINNI
landsliðinu I gærkvöldi.
3 stig úr
9 leikjum
tSLENZKA landsliðið í hand-
knattleik hefur leikið níu lands-
leiki á keppnistlmabilinu. Sjö
þeirra hefur landinn tapað, ein-
um lauk með jafntefli og sigur
vannst á Færeyingum f NM hér á
landi f lok síðasta mánaðar. Urslit
Iandsleikja haustsins hafa orðið
sem hér segir:
27. okt. tsland—Noregur 16:17
29. okt. tsfand — Danmörk 25:25
30. okt. tsland — Færeyjar 27:18
4. Nóv. tsland — V-Þýzkal. 12:17
5. nóv. tsland — V-Þýzkal. 16:18
13. nóv. tsland — Pólland 21:28
14. nóv. tsland—Pólland 15:21
16. nóv. tsland—Svíþjóð 17:28
17. nóv. tsland—Svíþjóð 14:20
Þrír fyrstu leikirnir á þessum
lista voru í Norðurlandamótinu f
handknattleik og því leiknir á
heimavelli. Hinir leikirnir 6 hafa
verið leiknir á útivöllum. Marka-
talan í þessum níu fyrstu lands-
leikjum vetrarins er þannig að
islenzka landsliðið hefur fengið á
sig 192 mörk, en skorað 163. Er
hún þannig óhagstæð um 29
mörk.
LEIKHLEI,
HÁLFLEIK
EFTIR góðan fyrri hálfleik og jafntefli í leikhléi gegn Svíum í gærkvöldi, fór leikur íslenzka liðsins úr böndunum í
seinni hálfleiknum. Svíarnir sigu fram úr og sigruðu örugglega, 20:14 urðu úrslit leiksins. íslenzka landsliðið
kemur heim i dag eftir langa og stranga keppnis- og æfingaferð til V-Þýzkalands, Póllands og Svíþjóðar. í ferðinni
hafa verið leiknir sex landsleikir og liðið æft tíu sinnum saman.
Fyrri hálfleikurinn i gærkvöldi var vel
leikinn af íslenzka liðinu og annað
jákvætt við leik íslenzka liðsins var góð
frammistaða nýliðans Birgir Jóhannes-
sonar úr Fram. Lék hann mikinn hluta
leikstns og skoraði eitt mark, auk þess
sem hann fiskaði þrjú vítaköst. Sagði
Birgir Björnsson í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að Birgir hefði sann-
að það í þessum leik að hann gæti
orðið nýr Björgvin með tímanum, hann
hefði allt til að bera til þess
ísland hafði yfir í upphafi leiksins í
gærkvöldi. 2:1. 3:2, og 7:6, en í
leikhléi var staðan 8 8 í seinni hálf-
leiknum skoruðu Svíarnir helmingi
fleiri mörk en íslendingarnir og unnu
örugglega, 20 1 4 Sagði Birgir Björns-
son að úthald íslenzku leikmannanna
hefði greinilega verið þrotið í seinni
hálfleiknum, reynd hefðu verið ótíma-
bær skot, gagnstætt því sem var í fyrri
hálfleiknum Þá sagði Birgir að ís-
lenzka liðið hefði leikið yfirvegað, góð-
ar skiptingar verið og góð skot
Blaðamaður hjá Expressen, sem
Morgunblaðið hafði samband við í
gærkvöldi, sagði að íslenzka liðið hefði
dregið niður hraðann í fyrri hálfleikn-
um og hefur eftir þjálfara sænska liðs-
ins, Bertil Anderson, að íslenzka liðið
hefði leikið rólega í fyrri hálfleiknum,
það hefði verið möguleiki íslands til að
standa í sænska liðinu.
— Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var
mjög slakur, segir sænski þjálfarinn
— Ég húðskammaði leikmennina í
leikhléi og gaf þeim fyrirskipanir um að
leika hraðar i seinni hálfleiknum Það
gerðu þeir og erfiðleikar okkar voru úr
sögunni.
Birgir Björnsson sagði í gærkvöldi
að þetta væri alls ekki skýringin á því
hvernig leikurinn þróaðist íslenzka lið-
ið hefði alls ekki leikið hægan hand-
knattleik i -gærkvöldi Allan tímann
hefði verið reynt að keyra hraðann upp
i leiknum, en i seinni hálfleiknum hefði
úthaldsleysi leikmanna komið til sög-
unnar
Sænski blaðamaðurinn segir að leik-
urinn í gærkvöldi hafi verið slakur á
báða bóga og islenzka liðið greinilega
verið þreytt eftir hina löngu ferð. Hann
segir að beztur i islenzka liðinu hafi
verið Ólafur Einarsson, en hrósar einn-
ig öryggi Jóns Karlssonar í vítaköstun-
um
Voru þeir markahæstir í islenzka lið-
inu, Ólafur með 4 mörk, Jórv með 7
mörk, þar af 6 úr vítaköstum Þorberg-
ur, Birgir og Árni gerðu eitt mark hver.
Sá síðastnefndi gat ekki leikið þennan
leik á fullu, þar sem hann á við lítils
háttar meiðsli að stríða
Bertil Anderson, sænski þjálfarinn,
hefur lokaorðin í þessum pistli, en
hann sagði að loknum'leiknum í gær-
kvöldi — Þessi leikur sagði okkur
ekkert Mögulegt er að við leikum
gegn íslandi i Danmörku í HM í janúar
og þá stillir ísland upp sínu HM-liði,
þ e með „atvinnumenn” sína.
Þeir Jón Héðinsson, Ingi Stefánsson og Bjarni Gunnar voru sterkastir f
liði Stúdenta f gærkvöldi, ásamt þjálfara liðsins.
Fram á toppinn eftir
sigur yfir ÍR-ingum
SPENNAN í Reykjavíkurmótinu jókst verulega í gærkvöldi þegar Fram vann ÍR í Laugardalshöll 16:15. ÍR var
ósigrað fyrir leikinn en með sigri sínum í gærkvöldi komust Framarar í efsta sæti mótsins með betra markahlutfalli
en ÍR. Fram hafði örugga forystu um miðbik seinni hálfleiks en ÍR eða réttara sagt Ásgeir Eliasson hafði nærri náð
að jafna metin. En það tókst ekki og Framarar hrósuðu sigri.
Fyrri hálfleikur þessa leiks er einhver
mesti delluleikur, sem undirritaður |
man eftir að hafa séð í háa herrans tíð,
enda var markatalan i hálfleik eftir því,
5 4 Fram i hag Vitleysurnar voru svo
margar og margbreytilegar að hinir fáu
áhorfendur. sem til staðar voru, göptu
af undrun
Seinni hálfleikurinn var miklu betri
Framarar byggðu smám saman upp
öruggt forskot og komust i 1 5:9 en þá
tóku Bjarm Hákonarson og ekki síður
Ásgeir Elíasson til sinna ráða og höfðu
nær jafnað metin Þegar leiktíminn var
úti átti ÍR aukakast, en ekki tókst
liðsmönnum ÍR að finna smugu í gegn-
um varnarvegg Framara og bæði stigin
voru þeirra
Seinni hálfleikurinn var það bezta,
sem Fram hefur sýnt í vetur. Liðið var
jafnt en Guðjón markvórður var þó
einna beztur Hjá ÍR var Ásgeir lang-
beztur, hreinn undramaður með bolt-
ann á stundum, en Bjarni Hákonarson
og Jens i markinu voru líka góðir
Aðrir leikmenn léku undir getu
. Mörk Fram Arnar Guðlaugsson 5
(2v), Guðjón Marteinsson 4. Gústaf
Björnsson 3, Ragnar Hilmarsson 2,
Sigurbergur Sigsteinsson 2 og Jens
Jensson 1 mark
Mörk ÍR Ásgeir 7, Bjarni 5, Hörður
Harðarson 2 og Ólafur Tómasson 1
mark
Georg Árnason og Kjartan Steinbach
dæmdu þokkalega
SS
Valsmenn heppnir aö
ná jöfnu gegn Leikni
fSLANDSMEISTARAR Vals máttu prísa sig sæla mcil jafntcfli gegn 2. deildarliði Leiknis f Reykjavíkur-
mótinu f handknattleik f gærkvöldi. Leiknum lauk 20:20 en um tíma f seinni hálfleik virtist sigur Leiknis
blasa við, því liðið hafði þá fjögurra marka forvstu. En eins og á móti Ármanni sprungu I.eiknismenn á
limminu og Valur náði að jafna metin.
Ferðaþreytt Valsliðið, án lands-
liðsmanna sinna, var ekki líklegt
til stórafreka, enda kom það á
daginn. Valsmenn höfðu þó frum-
kvæðið lengi vel í fyrri hálfleik
leiksins og höfðu þeir um tima
örygga forystu 12:8, en Leiknis-
menn, með Hafliða Pétursson í
broddi fylkingar, skoruðu fimm
siðustu mörkin og höfðu yfir í
hálfleik, 13:12.
í byrjun seinni hálfleiks voru
Leiknismenn með völdin á vellin-
um og var engu líkara en þar
væru íslandsmeistararnir á ferð.
En um miðjan seinni hálfleik
misstu þeir móðinn og þegar stað-
an var 17:13 þeim i vil, byrjuðu
Valsmenn með sina leikreynslu
að saxa á forskotið og náðu að
jafna.
Hjá Leikni var Hafliði Péturs-
son óstöðvandi í f.h. og skoraði 8
mörk. Höfðu Valsmenn sérstakar
gætur á honum í s.h. Auk Hafliða
átti Finnbogi Kristjánsson mjiig
góðan leik í markinu. Hjá Val var
Stefán Gunnarsson langbeztur.
Mörk Leiknis: Hafliði 9, Hörður
Sigmarsson 5 (1 v), Ásmundur
Kristinsson 3, Árni Jóhannesson
2 og Finnbjörn Finnbjörnsson 1
mark.
Mörk Vals: Stefán Gunnarsson
9, Gísli Blöndal 4. Bjarni Jónsson
3, Björn Björnsson 2 og Steindór
Gunnarsson 2 mörk.
Dómarar voru Davíð Jónsson og
Sveinbjörn Björnsson og hefur
ekki sést jafn mislukkuð dóm-
gæzla í langan tima.
— SS.