Morgunblaðið - 06.01.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.01.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979 5 „Á leið í Paradís” Alþjóðleg ljósmyndasýning á Kjarvalsstöðum A Kjarvalsstöðum verður í da« opnuð alþjóðloR ljósmvndasýning sem gengur undir nafninu „A leið í Paradís“. Þetta er 3. alþjóðlega ljósmyndasýningin en sú 1. sem kemur hingað til landsins. Mynd- irnar á sýningunni er 422 og eru valdar af þýzka tímaritinu „Stern“. 95 myndanna eru í litum en 170 ljósmyndarar frá 86 löndum hafa tekið myndirnar sem á sýningunni eru. Nafn sýningarinnar, „Á leið í Paradís“, á að tákna þróun mann- kynsins. Mikill hluti myndanna sýnir styrjaldir, hungursneyð, fólksfjölgunarvandamál, náttúru- hamfarir og ofbeldi auk annars sem nú hrjáir mannkynið. Ein mynd er á sýningunni frá Islandi en hún er af eldgosinu á Heimaey. Myndin er tekin af erlendum ljósmyndara en enginn íslenzkur ljósmyndari á myndir á sýning- unni, sem stendur til 20. janúar. Starfestúlkur á sjúkrahúsinu á Akranesi: Hafa boðað verk- fall 15. janúar nk. Á MILLI 60 og 70 starfsstúlkur á Sjúkrahúsinu á Akranesi hafa boðað til verkfalls 15. þessa mánaðar hafi þær ekki fyrir þann tíma fengið aðild að Starfsmannafélagi Akraness, STAK, eða sambærileg kjör við félagsmenn þar. Viðræður hafa farið fram á milli deiluaðila, sem eru Verkalýðsfélag Akraness fyrir hönd stúlknanna og Akraneskaupstað- ar. Fundur verður haldinn í deilunni fljótlega eftir helgi. Magnús Oddsson bæjarstjóri á Akranesi sagði í samtali við Mbl. í gær að hann gerði sér vonir um að samkomulag næðist án þess að til vinnustöðvunar kæmi. Magnús sagði að erfitt væri fyrir Akranes- kaupstað að greiða hærri laun en gert væri á sams konar stofnunum ánnars staðar og benti hann í því sambandi á sjúkrahús í Reykjavík. Magnús sagði að 15. desember hefði verið undirritaður samning- ur milli Reykjavíkurborgar, Vinnumálanefndar ríkisins og Starfsstúlknafélagsins Sóknar fyrir starfsfólk við samsvarandi Út í óvissuna sýnd í BBC í gærkveldi Frá Þórleifi Ólafssyni, fréttaritara Mbl. í Englandi. FYRSTI hluti sjónvarpsmyndar- innar Running Blind eða Út í óvissuna eftir sögu Desmond Bagley verður sýndur í brezka sjónvarpinu t' kvöld. Eins og kunnugt er kvikmyndaði BBC-sjónvarpið þessa sögu á íslandi sl. sumar. Þar leikur Ragnheiður Steindórsdóttir eitt aðalhlutverkið í myndinni en með önnur aðalhlutverk fara þeir Stuart Wilson og George Sewell. Running Blind verður sýnd í þremur hlutum. Verður fyrsti hlutinn sýndur kl. 9.25 á rás BBC, en hinn næsti að viku liðinni á sama tíma og hinn þriðji að tveimur vikum liðnum, einnig á sama tíma. Brezka sjónvarpið hefur mikið auglýst þessa mynd að undanförnu og alltaf tekið fram að myndin sé tekin á íslandi sl. sumar. störf og þessar 64 stúlkur ynnu á sjúkrahúsinu á Akranesi. Þar hefðu stúlkunum verið boðin þessi kjör, en þær hefðu ekki viljað sætta sig við þau. Bjarnfríður Leósdóttir for- maður Verkalýðsfélags Akraness sagði að stúlkurnar hefðu lengi beðið eftir að við þær yrðu gerðir samningar. Þær vildu helzt ganga beint inn í STAK og fá sömu laun og réttindi og aðrir í því félagi, sem vinna sambærileg störf og stúlkurnar. Á mánuði munaði nú 25 þúsund krónum á launum stúlknanna og lægsta taxta STAK. I vaktaálagi munaði allt að 270 krónum á klukkustund og í orlofi allt að 10 dögum. Stúlkur sem störfuðu á dagheimilum og leik- skólum á Akranesi væru í STAK og nú síðast hefðu starfsstúlkur á Höfða verið teknar inn í STAK. — Annars sýnir þetta mál allt saman fyrst og fremst hve hróp- lega ilja launaðar starfsstúlkur í Sókn eru, sagði Bjarnfríður Leós- dóttir. Hún sagði ennfremur að reiknað hefði verið út að ef stúlkurnar fengju greidd laun samkvæmt lægsta taxta bæjarins munaði það Akranesbæ 35—40 milljónum króna á ári. Benedikt boðið til Svíþjóðar BENEDIKT Gröndal utanríkis- ráðhcrra hefur þegið boð Hans Blix utanríkisráðherra um opin- bera heimsókn til Svíþjóðar. Mun hcimsóknin standa yfir dagana 15., 16. og 17. janúar nk. í för með ráðherra verður Hörður Helga- son skrifstofustjóri. Barnaguðsþjónusta í Dómkirkjunm á morgun Á morgun, sunnudag kl. 11, verður barnaguðsþjónusta í Dóm- kirkjunni. Skólakór Garðabæjar syngur við messuna undir stjórn Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur. Mar- teinn H. Friðriksson verður við orgelið. Þetta er fyrsti sunnudagurinn á ári barnsins og því er boðað til barnaguðsþjónustu. Jafnframt er þess vænst, að eldra fólkið, bæði foreldrar og afar og ömmur, komi með börnunum, og að sjálfsögðu eru allir velkomnir, hvort sem þeir hafa börn til að koma með eða ekki. Eitt af hlutverkum barnaársins hlýtur að vera að færa fullorðna fólkið og börnin nær hvort öðru, og ég hygg, að fátt stuðli þar betur að en sameiginleg kirkjusókn. Við þekkjum það mörg, sem vaxin erum, að meðal ánægjulegustu minninga okkar frá bernskudögum eru minningar frá messuferðum með fullorðna fólkinu. Það er svo mikið til af trúarþörf, en af því að henni er ekki alls staðar svarað á réttan hátt, þá fer líf of margra aðrar brautir en ella. Þetta er hægt að fyrirbyggja með því að hlynna að bænalífi heima fyrir og ræða við börnin um trúmál. Sameiginleg kirkjuganga er örugglega gott innlegg í slíka lífsstefnu. Á það viljum við minna með barnaguðsþjónustunni í fyrramálið kl. 11. Við stöndum báðir að þessari messu prestarnir og erum svo lánsamir, að hafa fengið hinn vel þekkta Skólakór Garðabæjar til að syngja. Hann mun flytja messusvör og leiða almennan söng, en einnig syngur kórinn sjálfstætt nokkur lög í kórdyrum. Eg vona, að sem flestir komi og hjálpi okkur við að skapa ánægju- lega stund í Dómkirkjunni í fyrramálið. Þórir Stephenscn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.