Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 3 Nefnd undirbýr frjálsan útvarpsrekstur ÁHUGAMENN um írjálsan útvarps- og sjónvarpsrekst- ur héldu í fyrrakvöld fund um þau mál og voru frummælendur þeir Guðmundur H.Garðarsson og ólaf- ur Hauksson. Fundarstjóri var Indriði G. Þorsteinsson og fundarritarar Haraldur Blöndal og Pétur Rafnsson. Sóttu fundinn á þriðja hundrað manns og urðu miklar umræður eftir framsöguerindin. Var samþykkt að stofna til samtaka, er hafi þann tilgang að vinna að því að rekstur útvarps á íslandi verði gerður frjálsari en hann nú er. í ræðum manna kom fram að vegna breyttra viðhorfa og nýrra möguleika í tækni á sviði hljóð- varps og sjónvarps ætti að vera vel mögulegt að hrinda áformum um frjálsari útvarpsrekstur í framkvæmd, en með því mætti skapa ákveðna samkeppni milli Ríkisútvarpsins og hinna nýju stöðva er leitt gæti til betra efnis. Töldu fundarmenn óviðunandi að búa við einn ríkisfjölmiðil undir valdi stjórnmálainanna þar sem í því fælist ákveðin hætta fyrir lýðræðislega stjórnarhætti og kváðu frelsisskerðingu í því fólgna að leyfa ekki nema einum aðila rekstur útvarps. Af þeim ástæðum töldu menn brýnt að koma upp sjálfstæðum hljóðvarps- og sjón- varpsrekstri. A fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: Almennur fundur áhugamanna um frjálsan útvarps- og sjón- INNLENT varpsrekstur haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 25. október 1979, samþykkir að stofna til samtaka, sem hafi þann megintilgang að vinna að því að rekstur útvarps á íslandi verði gerður frjálsari en nú er, og að afnuminn verði einkaréttur sá, sem Ríkisútvarpið hefur nú á útvarpi skv. ákvæðum í lögum nr. 19 frá 5. apríl 1971. Samþykkir fundurinn að kjósa nú nefnd manna, sem vinni að undir- búningi stofnunar samtakanna. Skal nefndin undirbúa samþykktir fyrir samtökin og boða til stofn- fundar samtakanna, svo og að gera aðrar nauðsynlegar ráðstaf- anir í þessu skyni. Um 180 manns skrifuðu undir yfirlýsingu um stofnun samtak- anna og var á fundinum kjörin nefnd 16 manna til að vinna að undirbúningnum og eru þeir: Guðmundur H.Garðarsson, Indriði G.Þorsteinsson, Ólafur Hauksson, Haraldur Blöndal, Pét- ur Rafnsson, Björn Vignir Sigur- pálsson, Markús Örn Antonsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Bessí Jóhannsdóttir, Stefán Hilmars- son, Sveinn R. Eyjólfsson, Magnús Kjartansson, Asgeir Hannes Eiríksson, Kristinn Andersen, Hannes Gissurarson og Jón Ólafs- Rekstur útvarps á íslandi verdi gerdur frjálsari „Hver er stefna stjóm- málaílokkanna 1 mál- efnum fatlaðra?” Ellefu bát- ar með síld Höfn. 26. október. ELLEFU síldarhátar fóru á miðin í Kærkvöldi þótt bræla væri og fengu rúm- lega 2000 tunnur. Stemma saltar 1.000 tunnur og Síldarsöltun h/f byrjar í fyrramálið að salta af þess- um afla um 600 tunnur og fara 4 — 500 í frystingu. Áframhaldandi bræla er á mið- unum og litlar líkur á að bátarnir fari út i kvöld. Fraktskip komu hingað í dag og biðu þess að komast inn en urðu að snúa frá vegna veðurs. Einar — spyrja fatlaðir flokkana Einar Hákonarson er hér að hengja upp málverkið „Biðstöð”. Honum til aðstoðar er nemandi hans úr Myndlista- og handiðaskólanum, Páll Guðmundsson. Ljósm. Emilia. Einar Hákonarson sýn- ir á Kjarvalsstöðum SAMEIGINLEGUR fundur Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Reykjavík, og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á ísíandi, samþykkti nú nýverið að skora á stjórnir landssambands fatlaðra og Blindrafélagsins að beina þegar í stað nokkrum spurningum til þeirra stjórnmálasamtaka, sem bjóða fram i öllum kjördæmum landsins. Aðalfundur öryrkjabandalags íslands, haldinn 25. okt. s.l., tók undir þessa áskorun. Sérstök nefnd var skipuð til að sjá um framkvæmd málsins. Spurningalisti hefur verið saminn, sem sendur verður öllum stjórnmálaflokkunum og er svara við spurningunum æskt fyrir 10. nóvember n.k. EINAR Hákonarson opnar mál- verkasýningu á Kjarvalsstöðum i dag, laugardaginn 27. október kl. 15. og mun sýningin standa til 11. nóvember. Á sýningunni eru 67 oliumálverk, flest máluð á siðustu tveimur árum. Þetta er 7. einkasýning Einars en hann lauk námi frá Myndlista- og handíðaskólanum árið 1964. Siðar stundaði hann fram- haldsnám við Valands-lista- háskólann í Gautaborg. Að þvi námi loknu kenndi Einar við Myndlista- og handiðaskólann i Reykjavik þar til hann tók þar við sem skólastjóri á s.l. ári. „Ég mála mannlíf, það stendur mér næst,“ sagði Einar í stuttu spjalli við Mbl. „Viðhorfin til myndlistar hafa breyst mikið á síðustu árum. Áður fyrr var málari einskis metinn ef hann málaði ekki samkvæmt einhverjum viður- kenndum stíl. Nú er það ekki stíllinn sem skiptir máli, heldur það sem hvert málverk hefur til að bera, hinn innri tónn verks- ins.“ Á sýningu Einars á Kjarvals- stöðum eru tvær myndir málaðr við Njálssögu. Önnur myndin er í eigu Búnaðarbankans en hin hangir í Valhöll á Þingvöllum. „Mér finnst það furðulegt að þjóð sú sem metur bókmenntir eins mikið og raun ber vitni skuli ekki hafa sýnt sögu sinni þá ræktarsemi að láta mála myndir upp úr henni. Eina myndin af þessu tagi, sem ég veit um að er í opinberri stofnun, í er mynd Gunnlaugs Blöndal af Þjóðfundinum en hún hangir í anddyri Alþingishússins. Það tru aðeins einstaklingar sem hafa farið fram á það við mig að ég málaði verk upp úr sögu Jónas Ingimundarson við hljóðfærið Islands. Einhvern tímann var samt samþykkt þingsályktun- artillaga um að stuðla að því að gerð voru málverk af merkisat- burðum úr sögu landsins, en það varð um hana eins og svo margar aðrar tillögur, hún datt uppfyrir. Þegar íslendingar geta ekki sýnt sögu sinni nægjanlega ræktarsemi eiga þeir stutt eftir ólifað sem ein þjóð. Mig langar að lokum að geta þess að ég er mjög gramur yfir meðferð sjónvarpsins af frétta- flutningi af málverkasýningum. Því vísaði ég fréttamanni sjón- varps burtu héðan í dag. Ég vil ekki lenda í þerri „föstudags- ruslakistu“ sem þeir hafa komið sér upp. Ég lenti í þessari sömu aðstöðu er ég hélt sýningu í Bogasal árið 1970. Þá hafði FÍM gert þá samþykkt að félagar skyldu ekki þoða fréttamenn sjónvarps á blaðamannafundi fyrir málverkasýningar. Eftir þau mótmæli sá þátturinn „Vaka“ dagsins ljós og er hann enn við lýði. En fréttaflutningur sjónvarps virðist mótast of mikið af áhuga fréttamannanna. Ef haldið er rall eiga þeir menn góðan full- trúa og ef haldin er hestasýning er sagt frá slíku í fleiri daga. En umfjöllun um myndlist er eng- in,“ sagði Einar að lokum. Píanótónleikar Jónas Ingimundarson, píanó- leikari, heldur n.k. mánudag 29. október tónleika á Kjarvals- stöðum og verða þeir haldnir inni á sýningunni hjá Einari Hákonarsyni. Hefjast tónleik- arnir kl. 21 en sýningunni verður lokað kl. 20.30 tónleikakvöldið. Á efnisskránni er m.a. sónata eftir ítalska tónskáldið Balta- sarre Galuppi, sem uppi var á 18. öld. Eftir Frans Schubert verða leikin þrjú píanóljóð sem útgefin voru að tónskáldinu látnu. Þessu næst eru á efnisskrá tónleikanna verk eftir Franz Liszt og Sergei Rachmaninoff. Tónleikunum lýkur á sónötu eftir argentínska tónskáldið Alberto Ginastera. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi, er fyrrnefnd framkvæmda- nefnd boðaði til í gær. Starfs- maður nefndarinnar, Magnús Kjartansson, fyrrv. ráðherra, sagði, að ætlunin með þessu væri að vekja stjórnmálaflokkana til vitundar um réttindaleysi fatlaðs fólks og fá þá til að marka skýra stefnu í málefnum fatlaðra. Magn- ús sagði, að á íslandi væru nú á milli 30—40 þús. manns fatlaðir og ætti sá hópur tölulega séð 10 þingmenn af þeim 60, er sitja á Alþingi. taka tillit til þeirra, er þeir setja X-ið á kjörseðla sína í desember. Spurningalistinn verður birtur í heild í Mbl. síðar. Spurningunum til stjórnmála- flokkanna er skipt í tvo kafla. I öðrum kaflanum er spurt um rétt fatlaðra til þátttöku í almennri stjórnmálastarfsemi, um val fólks á framboðslista, setu á Alþingi, í sveitarstjórnum o.fl. í hinum er spurt um stöðu fatlaðra almennt, afstöðu stjórnvalda til starfsað- stöðu þeirra, lífeyrisgreiðslur o.fl. Svörin við spurningunum verða síðan birt opinberlega og að sögn nefndarmanna, munu fatlaðir og aðstandendur þeirra áreiðanleg'. Ljfem. Mbl. Kristián. Þessi mynd var tekin á blaðamannafundinum í gær. Á myndinni eru nefndarmenn framkvæmdanefndar- : 'nar, talið frá vinstri: Rafn Benediktsson formaður Sjálfsbjargar í Reykjavik, Magnús Kjartansson starfsmaður nefndarinnar, Sigursveinn D. Kristinsson, Halldór Rafnar og Gísli Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.