Morgunblaðið - 25.11.1979, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.11.1979, Blaðsíða 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna 24ra ára gömul stúlka, sem lokið hefur B.A. prófi, óskar eftir áhugaverðu starfi nú þegar eða um áramót Uppl. í síma 13721. Vélstjóra vantar á 75 tn. línubát. Uppl. í síma 92—8062 Grindavík. Verslunarstjóri Maður með margra ára reynslu í rekstri kjörbúöa óskar eftir starfi. Upplýsingar í síma 44891. Verkstjóri, frystihús Höfum verið beðnir að útvega verkstjóra að frystihúsi á Suðurnesjum. Nánari uppl. veita Gísli Erlendsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir í síma 85311. rfli rekstrartækni sf. Lr Síðumúla 37 - Sími 85311 Kjötvinnsla Kaupfélag ísfirðinga óskar að ráöa nú þegar kjötiðnaðarmann eða mann vanan kjöt- vinnslu. Umsóknir sendist Siguröi Jónssyni, kaup- félagsstjóra, eða starfsmannastjóra Sambandsins, sem gefa nánari upplýsingar. Kaupfélag ísfiröinga Skrifstofustarf Sportver h.f. vill ráða fólk í skrifstofustörf. Heilsdagsstarf við vélritun og hálfsdagsstarf við færslu á bólhaldsvél. Uppl. gefnar á skrifstofu Sportvers h.f., Skúlagötu 26, ekki í síma. Skulagötu 26. Sími 19470.125 Reykjavik. E4T441ERKI FR44fTÍQ4RINN4P KORonn r:l »T:Ti iTi*Til frá Kóróna RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Staða aðstoðarlæknis viö Barnaspítala Hringsins er laus til umsókn- ar. Staðan veitist til 6 mánaða frá 1. febrúar 1980. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 3. janúar 1980. Upplýsingar veitir yfirlæknir Barnaspítala Hringsins í síma 29000. Hjúkrunar- fræðingar óskast til starfa á handlækningadeild, bækl- unardeild og Barnaspítala Hringsins nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000. Reykjavík, 25. nóvember 1979. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI29000 Vélritun Tek að mér vélritun, er með IBM-kúluritvél. Uppl. í síma 85325 e.h. Rekstrarstjóri Óskum að ráða rekstrarstjóra frá 1. janúar 1980. Hlutaðeigandi þarf að hafa viðurkennd matreiðsluréttindi. Umsóknir sendist for- manni hússtjórnar Páli Guðmundssyni Mýrarhúsaskóla fyrir 4. desember 1979. Félagsheimilið Seltjarnarnesi Staða sveitarstjóra Hreppsnefnd Neshrepps, utan Ennis, Hellis- sandi, óskar aö ráða sveitarstjóra. Æskilegt er, að umsækjendur geti hafið störf, 1. febr. 1980. Umsóknarfrestur er til 10. des. 1979. Allar frekari upplýsingar veita: Skúli Alexand- ersson, oddviti, sími 93-6619 og Samúel Ólafsson, sveitarstjóri, símar 93-6637 og 6777. Skrifstofustarf Útflutningsfyrirtæki í miðborginni óskar að ráða starfskraft til almennra skrifstofustarfa og ábyrgðamikilla sendiferða. Viðkomandi þarf aö hafa lokið prófi frá Verzlunarskóla, Samvinnuskóla, viðskipta- sviði Fjölbrautarskóla eða hafa sambærilega menntun. Góð laun í boði fyrir hæfan starfskraft. Handskrifaðar umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Morgunblaðinu sem fyrst merkt: „Lipur — 4558.“ Húsvörður Þar sem núverandi húsvörður Norðurlanda- sendiráðs í Reykjavík hættir störfum 1. apríl 1980 vegna aldurs, er starfið laust til umsóknar. Hámarksaldur 40 ár. Ökuskírteini. Kunnátta í einhverju skandinavísku máli og/eða ensku. Umsækjandi sem hefur starfað við opinber íslenzk fyrirtæki, m.a. við akstur, kemur frekast til greina. Umsækjandi þarf auk sendi- og aksturs- starfa að geta tekið að sér sjálfstætt, ef meö þarf ásamt launuðum aðstoðarmanni, ræst- ingu á skrifstofuhæð og kjallara sendiráðs- ins, hirðingu garðsins (þar meðtalið að slá grasið), og eftirlit með bifreiðum sendiráös- ins. Laun í samræmi við svipaðar stöður innan lögreglunnar meö tilliti til aldurs, ásamt launahækkunum og eftirlaunum í samræmi við meðaltal innan lögreglunnar. Húsnæði fylgir gegn sanngjörnum launafrádrætti. Umsóknir á einhverju hinna ofangreindu tungumála ásamt meðmælum sendist: Tilboð merkt „H—4572“ Arkitekt óskast til starfa. Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson, Þingholtsstræti 27 R. Framtíðarstarf Stórt innflutningsfyrirtæki óskar aö ráða sjálfstæðan og dugmikinn starfsmann til starfa. Góðrar enskukunnáttu krafist. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 30. þ. mán. merktar: „Framtíðarstarf — 4557.“ Fataverzlun í miöbænum óskar eftir starfkrafti strax. Vinnutími 1—6. Æskilegur aldur 20—35 ár. Umsóknir er tilgreina aldur, menntun og fyrri störf sendist augld. Mbl. fyrir 28. nóv. merkt: „Rösk — 19“. Þjóðhagsstofnun óskar aö ráöa starfsmann til vinnu viö skýrslugerð. Stúdentspróf úr verzlunarskóla eöa samvinnuskóla æskilegt. Skriflegar umsóknir um starfiö sendist fyrir 8. desem- ber nk. Þjóðhagsstofnun Rauðarárstíg 31, Reykjavík sími 25714 Viðskiptafræðingur Útflutningsfyrirtæki í miðborginni óskar aö ráða viðskiptafræðing til alhliða starfa. Nauösynlegt er aö viökomandi hafi góða kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli. Góð laun í boöi fyrir hæfan starfskraft. Handskrifaðar umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist Morgunblað- inu, sem fyrst, merktar: „Röskur — 4559.“ Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins auglýsir eftir Yfirverkstjóra í frystihús 1. Frystihúsiö, sem er nýtt, er staðsett á Austfjöröum. 2. Unniö er eftir bónuskerfi. 3. í boði er starf yfirverkstjóra. 4. Starfiö felst í yfirumsjón með vinnslu og gerö vinnsluútreikninga. 5. Húsnæði er fyrir hendi. Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur hafi próf frá Fiskvinnsluskólanum, matsréttindi nauðsynleg. Farið veröur með umsóknir sem trúnaðar- mál. Skriflegar umsóknir sendist Fiskiðn, fagfélagi fiskiðnaðarins, Box 103, 121 Reykjavík, sem fyrst og eigi síðar en 30. nóv. n.k. Nánari upplýsingar veittar í síma 13151.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.